Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Page 18
55 kílóum léttari
18 Lífsstíll 11. febrúar 2013 Mánudagur
n Grét í hljóði í aftursætinu eftir verslunarleiðangur n Tók sig á fyrir ófæddan son
A
nnie Marin Guð-
mundsdóttir breytti
algjörlega um
lífsstíl fyrir um
þremur árum.
Hún er 23 ára, á eitt barn
og stundar nám á félags-
fræðibraut. Hún segir það
ekki hafa breytt persónu
sinni að missa þessi 55
kíló en hún upplifi fleiri
gæðastundir og lífsgæðin
séu miklu betri en áður.
Dagurinn hefst ekki lengur
á því að pæla í hverju eigi
að klæðast og hvað hún
eigi að láta ofan í sig held-
ur sé lífið miklu léttara í
orðsins fyllstu merkingu.
Hvernig fórstu að því
að létta þig og á hve
löngum tíma?
„Það var þannig að ég var rosa-
lega þung og hafði verið of
þung alla mína ævi. Ég man
eftir að fara með mömmu
minni í Kringluna að leita að
fötum og ekkert passaði. Og
síðan var bara grátið í hljóði
í aftursætinu á leiðinni heim.
Svo þegar ég var 19 ára þá var
ég sem þyngst og sem mest.
Það þung að ég fór til læknis
og hann sagði við mig, án þess
að það tengdist eitthvað ástæð-
unni fyrir læknisheimsókn-
inni, að ef mig myndi einhvern
tímann langa í börn þyrfti ég
að létta mig. Lítið vissi hann að
ég var ólétt í þeim töluðu orð-
um. Í raun byrjaði þetta ferli og
þessi hugarfarsbreyting hjá mér
þegar ég var ólétt.
Ég fór í sykurþolspróf (vegna
stærðar) þegar ég var ólétt og þar
kom í ljós að ég var með meðgöngu-
sykursýki. Læknirinn talaði við mig
og sagði að ég þyrtfi að koma aft-
ur í prufu tæpum mánuði seinna.
Og mælti með hollu mataræði og
hreyfingu á meðan. Ég man hvað
ég var miður mín og ákvað á þeim
degi að ég ætlaði ekki að vera „feita“
mamman. Ég ætlaði ekki að vera
mamman sem getur ekkert gert
með barninu sínu. Ég ætlaði að vera
mamman sem fer með barnið í fót-
bolta og er virk og er ekki barninu
sínu til skammar,“ segir Annie.
Sleppti lyftunni og gekk stiga
„Ég fór til næringarráðgjafa og byrj-
aði á ströngu hollu matarplani
ásamt því að fara í meðgöngusund
2 sinnum í viku. Þetta hafði strax
góð áhrif og ég svindlaði aldrei í
mataræðinu eða hreyfingunni.
Þegar ég fór aftur í sykurþolspróf
voru niðurstöður þær að ég væri
ekki með meðgöngusykursýki. Ég
tók af mér 10 kíló á meðgöngunni
en þau komu aftur hægt og rólega
undir enda meðgöngunnar. Ég var
jafn þung daginn sem ég komst að
því að ég væri ólétt og daginn sem
ég átti. Eftir að sonur minn fæddist
var þessi hugsun að ég ætlaði að
vera mamma sem hann gæti ver-
ið stoltur af brennimerkt í höfuðið
á mér. Ég byrjaði á mataræðinu og
viðhélt hollu, góðu mataræði í þrjá
mánuði. Síðan bætti ég við göngu-
ferðum og léttum æfingum heima.
Alltaf taka stigana og þannig smá
hluti. Ég hafi lítið þol og fór ekki
fram úr mér í æfingum. Heldur
reyndi ég að byggja mig upp hægt
og rólega,“ segir Annie.
Stundaðir þú einhverja líkams-
rækt í upphafi átaksins?
„Ekki fyrstu vikurnar, en seinna meir
bætti ég við hnitmiðuðum æfing-
um í ræktinni. Ég fór í „rpm“-tíma
sem eru spinning-tímar og algjör
snilld. Ég prófaði Hot Yoga, Body
Combat, Body Pump og einnig
magadans í Baðhúsinu. Svo benti
vinkona mín mér á súludans/
súlufitness. Þá loksins fann ég eitt-
hvað sem ég hafi virkilegan áhuga
á. Fyrir utan það að vera í hörku
líkamsrækt þá leið manni alltaf svo
vel eftir æfingu,“ segir hún.
Hvað varstu lengi að
ná takmarki þínu?
„Ég tók tvö ár í að grennast og
styrkjast. Eitt ár í að viðhalda þeirri
þyngd og halda áfram að æfa og svo
er ég aftur að núna. Ég hef miklu
meiri orku og er miklu virkari en
ég var. Auðvitað eru öll dagleg verk
miklu auðveldari! Öll hreyfing er
auðveldari. Ég hef meira þol og verk
sem virtust virkilega erfið ef ekki
ógerleg eru ekkert mál í dag. Enda
er maður ekki að burðast með auka
55 kíló á sér.
Þegar maður hefur verið of þung-
ur og ekki passað inn í fegurðar-
stuðul samfélagsins þá hefur það
óneitanleg áhrif á sjálfsmyndina og
sjálfsöryggið. Það er mikil breyting
þar. Í dag er ég sjálfsörugg og veit
hver ég er og hvað ég vil. Að kaupa
föt er allt annað, áður var Evans
eina búðin sem ég gat verslað í og
núna get ég farið í hvaða búð sem
er! Það er ótrúlega frelsandi að hafa
þetta val,“ segir Annie.
„Leitt að segja en já, ég finn
verulegan mun á hvernig fólk kem-
ur fram við mig,“ segir Annie þegar
hún er spurð út í fordóma.
„Að fara í fatabúð of þung og fá
augnaráð eða jafnvel bara þau svör
að þau ættu ekkert fyrir þig þar. Eða
vorkunnaraugnaráð, það er öm-
urlegt. Ég finn mun á almennu við-
móti í minn garð. Ég finn mun þegar
ég fer að versla. Fæ betri þjónustu í
sumum tilvikum. Ég held að það
séu fitufordómar og ég held að þeir
séu frekar duldir í mörgum tilvik-
um. Því miður,“ segir hún.
Hvað ráðleggur þú þeim sem
standa í þeim sporum að eiga
langan veg fyrir höndum og
finnst engin leið út úr þessum
vítahring ofþyngdar?
„Ekki gefast upp áður en þú byrjar!
Það er svo ótrúlega erfitt að byrja en
um leið og þú ert komin í gegnum
fyrstu vikuna þá verður það léttara!
Ég þekki þessa tilfinningu að hugsa
að ekkert eigi eftir að breytast eða að
ég eigi aldrei eftir að vera grönn eða
bara venjuleg. En það er bara ekki
satt! Jafn væmið og það hljómar þá
er svo mikill sannleikur í þeim orð-
um að þetta sé maraþon, ekki sprett-
hlaup.
Fáðu vin eða fjölskyldumeðlim
með þér. Stuðningur í gegnum þetta
ferli er ómetanlegur. Byrjaðu hægt
og rólega. Eitt skref í einu jafnvel
þótt þú dettir í óhollustu, ekki gefast
upp. Einn dagur í einu,“ segir Annie.
Hvernig er dæmigerður
dagur í lífi þínu?
„Vakna með Krumma og gera okkur
til fyrir skólann og leikskólann.Skutl-
ast með hann og svo koma mér í skól-
ann. Ef það er gat í stundaskránni
minni nýti ég tímann og fer í rækt-
ina. Eftir skólann sæki ég Krumma
og við leikum okkur eða förum í
heimsókn til Evu Rósar, bestu vin-
konu hans. Síðan er það bara heim
að elda kvöldmat, skella Krumma
í bað og svo lesum við saman tvær
bækur og hann fer að sofa. Eftir að
hann er sofnaður nýti ég tímann í að
læra eða slappa aðeins af.“
Eitthvað að lokum?
„Það sem skiptir máli er að líða vel
í eigin skinni og vera sáttur við sig.
Maður á bara eitt líf og einn líkama.
Berðu virðingu fyrir þér og þínum
líkama,“ segir Annie að lokum. n
„Það sem skiptir
máli er að líða vel í
eigin skinni og vera sáttur
við sig.
Forljót græn kápa og
goji-ber í uppáhaldi
Lumar þú á einhverjum fegrunarráðum?
Já, að borða hollan mat og drekka vatn er
besta ráðið held ég bara, annars er fátt jafn
fallegt og sjálfsöryggi og bros.
Lumar þú á uppskrift að fitusnauðum
hádegismat?
Í augnablikinu er eitt salat í uppáhaldi. Það
er virkilega hollt og gott. Ég tek það oft með
sem nesti í skólann.
n 1 lárpera
n Hálf rauð paprika
n 4 sveppir
n 1 stöng sellerí
n Smá rauðlaukur
n Rauð vínber
n 1 gulrót
n 1–2 msk. fetaostur, ósaltaðar kasjúhnet-
ur, goji-ber
Grænmetið skorið niður í bita og blandað
vel saman. Ein matskeið af feta út á og svo
hnetunum og berjunum.
Uppáhaldssmoothie? Ég elska að fá mér
smoothie og er dugleg að breyta uppskrift-
um. Um þessar mundir er þessi í uppáhaldi.
n Goji-djúsinn með skrúftappanum
n Góð lúka af frosnum berjum
n Próteinduft
n 1 msk. chia-fræ
n Minta, ef ég á
Blandað saman í blandara, svo bætt út í
þetta 1 msk. af hörfræjum og hrært saman
og drukkið.
Ef peningar væru engin fyrirstaða
hvernig væri þín fullkomna helgi og með
hverjum? „Mín fullkomna helgi væri að
stökkva með litla kút til Bandaríkjanna til
að heimsækja stjúpsystur mína og börnin
hennar. Fara með strákana í vatnagarð og
kíkja í verslanir.“
Hvað er í veskinu þínu í þessum töluðu
orðum? „Í veskinu mínu er jarðar-
berjatyggjó, snuð, maskari og sólarpúður.
Plástrar og gjafabréf á Tommaborgara, svo
eru lyklarnir mínir fastir á veskinu því ég týni
öllu og er að reyna nýja aðferð til að halda í
lyklana.“
Þér er boðið á stefnumót með 30 mín-
útna fyrirvara, í hverju ferð þú og hvað
gerir þú til að vera sjúklega sæt? ,,Ég fer í
svarta hlýralausa kjólinn set á mig sjúklega
smart vængjahálsmenn frá Gyllta kettinum.
Skelli mér í litla sæta leðurjakkann minn og
er klár.“
Dýrmætasta flíkin í fataskápnum? „Dýr-
mætasta flíkin í skápnum mínum er forljót
græn kápa sem ég gekk mikið í áður en ég
var ólétt. Ástæðan er sú að ég get alltaf
farið í hana til að minna mig á hversu dugleg
ég er. Og hversu langt ég er komin.“
Best í heimi? „Að sjá son minn hlæja
óstjórnlega. Ekkert er betra en að sjá barnið
sitt hamingjusamt.“
Léttara líf Annie segir
lífið léttara í orðsins fyllstu
merkingu. MynD SigtryggUr ari
23 kíló farin Hér
er Annie búin að
missa um 23 kíló.
annie í upphafi átaks
annie og sonurinn Þessi mynd er tekin af Annie og syni hennar Krumma, en hér var hún
búin að missa um 10 kíló
Fyrir um 55 kílóum síðan