Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Síða 20
20 Sport 11. febrúar 2013 Mánudagur
Öll pressan á Mourinho
n Risaslagur í Meistaradeild Evrópu milli Real Madrid og Manchester United
H
inn slóttugi þjálfari Manchester
United, Alex Ferguson, hefur
marga fjöruna sopið gegnum
tíðina og kann mætavel að
snúa pressu í meðvind. Skotinn vill nú
meina að öll pressan vegna leiks Real
Madrid og Manchester United í 16 liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu sé á
Jose Mourinho og leikmönnum hans.
Fjórir fyrstu leikirnir í úrslitakeppni
Meistaradeildarinnar fara fram í vik-
unni. Á morgun tekur Celtic á móti
Juventus og á sama tíma býður Val-
encia franska liðið PSG velkomið á
Mestalla-leikvanginn. Degi síðar hefur
Shaktar Donetsk leik gegn Dortmund.
Þó um bærilega spennandi leiki sé
að ræða falla þeir allir í skuggann af
leik Real gegn Manchester sem einnig
fer fram á miðvikudag en þar mætast
ekki aðeins einhverjir færustu þjálf-
arar heims heldur vekur ekki minni
spennu að þetta er í fyrsta skipti sem
stórstjarnan Cristiano Ronaldo mætir
sínu gamla liði. Sá er í blússandi stuði
þessi dægrin og setti þrennu um
helgina í 4–1 stórsigri Real á Sevilla í
spænsku deildinni.
Ferguson kann að hafa rétt fyr-
ir sér með að pressan sé mun meiri á
Real Madrid. Manchester United situr
þægilega í efsta sæti ensku úrvals-
deildarinnar meðan liði Mourinho
hefur gengið herfilega á Spáni. Alla-
vega miðað við væntingar sem alltaf
eru miklar. Real situr ekki aðeins langt
fyrir neðan erkifjendur sína frá Kata-
lóníu heldur líka fyrir neðan erkifjend-
ur sína frá sömu borg; Atletico Madrid.
Ósættis hefur orðið vart í herbúðum
Hvíta hússins, eins og Real er gjarnan
kallað heima fyrir, og leikmenn hafa
meira að segja leyft sér að gagnrýna
Mourinho í fjölmiðlum.
Vissulega má mikið gerast til að
Real Madrid eigi möguleika heima
fyrir á titli og því má færa til sanns vegar
að pressan sé meiri á Mourinho og fé-
laga að komast áfram í Meistaradeild
Evrópu. En ekki má heldur gleyma
að alltaf er pressa á enska liðinu. Ekki
kannski síst vegna þess að Manchester
hefur ekki komist ýkja langt í Meistara-
deildinni síðan Cristiano Ronaldo yfir-
gaf félagið. n
albert@dv.is
Úlfúð á Spáni
Það hefur aldrei verið gott á milli
aðdáenda Real Madrid annars
vegar og aðdáenda Barcelona hins
vegar og skot og skætingur er regla
en ekki undantekning. Þó hefur
kólnað enn frekar á milli hópanna
í þessari viku eftir að katalónska
sjónvarpsstöðin TV3 setti saman
og sýndi myndband þar sem leik-
mönnum Real Madrid er líkt við
hýenur. Um var að ræða klippur af
leikmönnum Real að brjóta á hin-
um ýmsu leikmönnum Barcelona
í gegnum tíðina en þó fyrst og
fremst gagnvart Leo Messi sem
vissulega fær oftast óblíðar mót-
tökur í leikjum liðanna. Mynd-
bandið má sjá á vef DV.is
Ferguson á
toppnum
BBC tók saman í vikunni hvaða
þjálfarar í Englandi hefðu gert
bestu hlutina á þessari leiktíð og
þar reyndist stjóri Manchester
United, Alex Ferguson, sér á parti.
Lið hans hefur að meðaltali 2,48
stig úr leikjum liðsins en næstur
Skotanum kom Eddie Howe stjóri
Bournemouth með 2,27 stig að
meðaltali. Í neðri hlutanum mátti
sjá nöfn manna á borð við Mark
Hughes sem stýrði QPR aðeins
til 0,33 stiga að meðaltali og Paul
Lambert hjá Aston Villa var ekki
hátt skrifaður heldur með sín 0,84
stig á þessari leiktíð.
Biðst afsökunar
Peter Odemwingie hefur beðið
stuðningsmenn og stjórn West
Brom afsökunar á frumhlaupi
sínu í síðasta mánuði þegar hann
tók upp á því, nánast á eigin spýt-
ur, að ganga til liðs við QPR. Taldi
framherjinn að samkomulag um
kaup væru frágengin og mætti
galvaskur á æfingasvæði síns nýja
félags. Í ljós kom að hann hafði
svo ekki verið seldur og fór heim
á ný með skottið milli lappanna.
Hann missir tveggja vikna laun
fyrir uppátækið.
Blóðprufur
eru málið
Arsene Wenger stjóri Arsenal vill
að tekið verði enn harðar á fíkni-
efnaneyslu knattspyrnumanna
og mælir sterklega með óreglu-
legum skyndiblóðprufum eftir
knattspyrnuleiki. Aðeins með
þeim hætti sé hægt að taka af
allan vafa um hvort knattspyrnu-
menn og fari að lögum og reglum
og standi sína plikt gagnvart yfir-
mönnum og ekki síst aðdáendum
sínum, eða ekki.
Stórleikur Ferguson og Mourinho hafar marga hildina háð en eru ágætis félagar utan
vallar. Vinátta þeirra verður sett til hliðar fyrir meistaradeildarslaginn. Mynd: REUtERS
M
ögulega hefur það ekki ýkja
mikil áhrif á meirihluta
þeirra félagsliða sem leika
í ensku úrvalsdeildinni en
frá og með næstu leiktíð
gilda strangari reglur um allan rekstur
knattspyrnuliða í þeirri deild en verið
hefur. Viðurlög við brotum verða líka
harkaleg; stig umsvifalaust dregin af
félögunum og í verstu tilfellum hrein
og bein frávísun úr efstu deild. En sitt
sýnist hverjum um nýju reglurnar.
Lengi hefur verið deilt á enska
knattspyrnusambandið og þá helst
forráðamenn úrvalsdeildarinnar
vegna þess hversu lítið væri um regl-
ur sem jöfnuðu stöðu félagsliða í
deildinni en þar eru og hafa verið
undanfarin ár nokkur lið sem hafa að-
gang að nánast ótæmandi fjármagni
meðan önnur berjast í bökkum með
skuldahala á eftir sér.
Ekki stóll fyrir dyr
Nýju reglurnar taka sérstaklega á
þessu en þó án þess að setja stórliðum
stólinn algjörlega fyrir dyrnar. Megin-
reglan verður sú að rekstur hvers og
eins félags verði í plús eða allavega
ekki í djúpum skít ár eftir ár. Hvert fé-
lagslið mun hafa reynslutíma næstu
þrjú árin en heildartaprekstur á þeim
þremur árum má ekki fara yfir 21,2
milljarða íslenskra króna.* Með öðr-
um orðum; félögin þurfa að reka sig
á hverju tólf mánaða tímabili fyrir rétt
rúma sjö milljarða króna ellegar eiga
á hættu að missa stig. Á þessu verð-
ur sú undantekning að allt fjármagn
sem notað verður til yngri flokka starfs
eða til að byggja upp og bæta aðstöðu
verður frádráttarbær.
Við fyrstu sýn virðist þetta vera
bærilega strangt ákvæði en raunin er
þó sú að þetta er mun hærri upphæð
en fyrstu tillögur nefndarinnar sem að
þessum reglum stendur. Til saman-
burðar nægir að nefna lið West Ham
sem dæmi en samanlagt tap þess fé-
lagsliðs síðustu fimm árin hefur ver-
ið sautján milljónir króna. West Ham
er ekki meðal þeirra allra verstu en
rekstur þar þó verið erfiður undan-
farin ár.
Launareglan
Önnur ný regla tekur til launa og er
tæknilega séð um launaþak að ræða
þó félögunum sé gert kleift að finna
leiðir hjá því. Miðað er við að heildar-
laun leikmanna fari aldrei yfir 10,5
milljarða króna* en það hámark gild-
ir þó aðeins um það fjármagn sem fé-
lögin fá frá úrvalsdeildinni vegna sjón-
varpstekna. Þau geta því með góðum
rekstri almennt þess utan notað hagn-
að af þeim peningum aukalega til
launagreiðslna sé þess þörf.
Brjóti félögin þessa reglu eru þó
viðurlögin ekki alvarleg heldur tak-
markast þá sú upphæð sem þau geta
eytt af öðrum tekjum sínum til launa
leikmanna við 800 milljónir króna
næstu ár á eftir.
Jafna stöðu félagsliðanna
Richard Scudamore, stjórnarformaður
ensku úrvalsdeildarinnar, segir að
nýju reglurnar eigi bæði að bæta hag
innlendra knattspyrnumanna og fé-
lagsliða en ekki síður jafna grundvöll-
inn sem þau spili á. Gangi allt eftir
mun það þýða harðari keppni í úrvals-
deildinni, fleiri unga innlenda leik-
menn í bestu liðunum og síðast en
ekki síst meiri ábyrgð stjórnarmanna
á gjörðum sínum. Nýju reglurnar setji
endapunkt á hamslausan peninga-
mokstur. n
*Tölurnar miðast við núverandi
gengi gagnvart pundi.
Böndum komið á
taumlausa eyðslu
n Strangari reglur settar um rekstur n Launaþak á leikmenn
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Fleiri ungir strákar fá tækifæri Gareth Bale er einn hinna frábæru leikmanna í enska
sem snemma fengu tækifæri að spreyta sig. Vonir standa til að það geri fleiri frá og með
næsta hausti.
Fækkar
erlendum leik-
mönnum? Ekki
endilega, en líklegt
má telja að félags-
liðin kaupi sterkari
erlenda leikmenn
en hingað til með
nýjum reglum.