Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Side 23
Fólk 23Mánudagur 11. febrúar 2013
S
öngkonan Anna Mjöll Ólafs
dóttir gekk í það heilaga á
föstudeginum þegar hún gekk
að eiga Luca Ellis í látlausri en
fallegri athöfn í gömlu kirkj
unni á Árbæjarsafninu.
Söngkonan var glæsileg að vanda
með hárið uppsett og í hvítum hné
síðum kjól með perlufesti um háls
inn. Það var móðir hennar, söngkon
an Svanhildur Jakobsdóttir, sem leiddi
Önnu Mjöll inn kirkjugólfið þar sem
vatnsgreiddur brúðguminn beið. Eftir
athöfnina gengu hin nýbökuðu brúð
hjón saman út úr kirkjunni með ham
ingjublik í augum inn í amerískan
jeppa sem beið þeirra fyrir utan kirkj
una.
Luca er staddur hér á landi í fyrsta
skiptið, eins og kom fram í Íslandi í
dag á fimmtudagskvöldið. „Honum
finnst þetta æði. Ég held að hann vilji
flytja. Hann átti ekki orð yfir Bláa lón
ið. Það var ekki hægt að draga hann
upp úr,“ sagði Anna Mjöll í viðtalinu.
Þegar Luca var spurður af hverju
Ísland hefði orðið fyrir valinu fyrir
stóra daginn. „Hún er héðan og fjöl
skyldan er hérna. Við ætlum að hafa
víkingabrúðkaup. Ég er hálfur Finni
svo það er viðeigandi. Mamma var frá
Finnlandi.“
Þetta er þriðja brúðkaup Önnu
Mjallar. Margir muna eftir stuttu
hjónabandi hennar og milljarðamær
ingsins aldraða Cal Worthington.
Anna Mjöll og Cal standa enn
þá í málaferlum vegna peninga og
annarra deilna. „Ég hélt að þetta yrði
löngu búið en það virðist vera dreg
ið og dregið. Við ætlum bara að halda
áfram með okkar líf. Þeir gera bara
það sem þeir ætla að gera,“ sagði Anna
Mjöll um málaferlin í Íslandi í dag.
„Ég ætlaði ekki að gifta mig aftur
næstu árin en þetta bara einhvern
veginn skeði. Þá allt í einu sögðum við
„heyrðu eigum við ekki bara að gera
það á Íslandi?“. Jú, og við keyptum
miða. Þetta verður bara lítið og létt,
[…] bara nánasta fjölskylda, mamma,
bróðir minn, kærastan hans og nokkr
ir aðrir allra nánustu fjölskyldumeð
limir. Svo er bara kaffi á eftir og hafa
það „nice“,“ sagði Anna Mjöll.
Aðspurð hvort fjölskylda Luca
myndi fagna með þeim sagði Anna
Mjöll að þau byggju of langt í burtu til
þess. „Ekki í þetta skiptið. Við giftum
okkur bara aftur þar. Það getur vel ver
ið. En það varð að vera fyrst á Íslandi.
Það er aðal. Ísland er alltaf aðal. Það er
ekkert hægt að ræða það. Það er hægt
að ræða ýmislegt en ekki þetta.“
Anna og Luca kynntust í mars. Í
Íslandi í dag sagðist Anna Mjöll varla
muna eftir bónorðinu. „Hann fór að
tala um giftingu í apríl. Það gekk ekki
upp. Við náum voða vel saman og get
um ekki verið án hvors annars. Ég stóð
inni á klósetti og var að þvo klósettið.
Hann kom með kassa, tók utan um
mig og spurði; „hvað heldurðu?“ Þetta
var bónorðið. Það var hringur í kass
anum. Ekkert svona Eiffelturnsbónorð
uppi á efstu hæð eða neitt svoleiðis. Ég
held að þetta sé best, eitthvað eðilegt,
enginn glaumur, gleði og vesen,“ sagði
Anna Mjöll sem er greinilega í skýjun
um með Luca. „Hann er bestur. Hann
er yndislegur. Ég ætla að halda hon
um. Hann er eigulegur.“ n
n Ástfangin á Árbæjarsafninu
Fjölskyldumynd Fámennt en góð-
mennt var við athöfnina. Á myndinni
eru móðir og bróðir brúðarinnar ásamt
nýgiftu hjónunum. Myndir: PressPhotos.biz
Lyftu bæði fætinum
Skemmtileg mynd af
nýgiftu hjónunum þar
sem þau lyfta bæði
öðrum fætinum um leið
og þau kyssast.
eins og hollywood-stjarna Ellis er glæsi-
legur karlmaður og minnti helst á Hollywood-
stjörnu þegar hann tróð upp á Rósenberg á
laugardagskvöldinu.
eins og nýklippt úr hollywood Anna Mjöll
og Luca Ellis eru bráðmyndarleg hjón.
Fjarri glamúr
Hollywood
tónleikar Hjónin
héldu saman tónleika
á laugardagskvöldinu.
Fullt var út úr dyrum
og stemmingin góð.
enginn glamúr
Gamla kirkjan á
Árbæjarsafninu
varð fyrir valinu.
Ástfangna parið
lét hálku og slabb
ekki á sig fá.
Í dómsal Anna Mjöll og
Cal Worthington deila um
peninga og aðrar eignir.
„Erfitt að vera
með svona vand-
ræðagemlingi“
Fjárfestirinn Skúli Mogensen
og Margrét Ásgeirsdóttir eru að
skilja eftir rúmlega tveggja ára
tuga hjónaband. Skúli er að flytja
til Lundúna þar sem hann ætlar
að halda áfram uppbyggingu
WOW air. Saman eiga Skúli og
Margrét þrjú börn.
Skúli var í viðtali í helgar
blaði DV síðastliðið sumar og
lýsti þá hjónabandi sínu og sagð
ist heppinn. „Ég held að það sé
stórkostlega erfitt að vera með
svona vandræðagemlingi eins og
mér,“ sagði hann þá. „Við höfum
farið í gegnum öll
þessi ár saman,
búið á ansi mörg
um stöðum og
þvælst með
börnin okkar
hingað og þangað
en einhvern veg
inn hefur
þetta
allt
geng
ið.“
Lánaði Dorrit
augnblýant
Marta María Jónasdóttir er þekkt
fyrir bæði smekkvísi og vingjarn
leika. Hún gerði sannkallað góð
verk á Listasafni Reykjavíkur fyrir
helgi þegar hún lánaði forseta
frúnni Dorrit Moussaieff augn
blýantinn sinn.
Hún sagði frá þessu á Face
book: „Góðverk gærdagsins Ég
lánaði Dorrit Chanelaugnblýant
inn minn á Listasafni Reykjavíkur.“
Góðverkið náðist á mynd af ljós
myndaranum Sigurjóni Ragnari.
Í gallabuxum
á skíðum
Á föstudaginn var haldinn sam
eiginlegur fundur borgarstjórn
ar Reykjavíkur og bæjarstjórnar
Akureyrar í Menningarhúsinu
Hofi á Akureyri. Borgarfulltrúar
Reykjavíkur fóru í kynnisferð
um Akureyri og skoðuðu að
stöðuna í Hlíðarfjalli. Menn og
konur mættu misvel undirbú
in og eins og sjá má á meðfylgj
andi mynd voru þau Dagur B.
Eggertsson, formaður borgar
ráðs, og Oddný Sturludóttir
borgarfulltrúi fremur kuldaleg í
gallabuxum á skíðum.