Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 11
ALLIR FLOKKAR Á MÓTI OFURLAUNUM 10 Fréttir Fréttir 11Helgarblað 22.–24. mars 2013 Framsóknarflokkurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 1 Eftir efnahagshrunið dró úr ójöfnuði milli þeirra tekjuhæstu og lægstu. Það var ekki afleiðing af bættri stöðu þeirra tekjulægstu heldur því að verulega dró úr tekjum þeirra tekjuhæstu. Enn er tekjubilið allt of mikið og það þarf að bæta úr því með áherslu á að auka tekjur þeirra lægst launuðu. Eitt af því sem framsóknar- menn ályktuðu um á flokksþingi 2013 er að Íslendingar skuli búa við einfaldara og sanngjarnara almannatryggingakerfi sem stuðlar að betri afkomu þeirra sem treysta á almannatryggingar og tryggja launajafnrétti kynjanna. 2 Já. Það sem framsóknarmenn sjá helst í því er endurskoðun al-mannatryggingakerfisins með einföldun og sanngirni að leiðarljósi. Þar sjáum við fyrir okkur að stuðla þurfi að launavottun fyrirtækja og stofnana þar sem kynbundinn launamunur er ekki til staðar. Þá viljum við sjá afnám verðtryggingar sem er mikilvægt fyrir þorra þjóðarinnar. Fram- sókn vill sjá framgang grunngilda samvinnu- og framsóknarstefnunnar, um samvinnu, sjálfsábyrgð, lýðræði, sanngirni, jafnrétti og samfélags- lega ábyrgð. Þar sem manngildi er ætíð sett ofar auðgildi. 3 Það er ljóst að þessi launamunur hefur minnkað, sem er nauðsyn-legt og jákvætt. Laun forstjóra fyrirtækja þurfa að taka mið af aðstæðum og almennri launaþróun í samfélaginu á hverjum tíma. 4 Ég tel skynsamlegt að skoða hvort setja þurfi reglur í þessum anda hér á landi. Það virðist t.d. ljóst að ofurbónusakerfið sem tíðkaðist í fjár- málageiranum hafi átt ríkan þátt í að skapa efnahagsbólurnar sem sprungu á árunum 2007 og 2008. Lýðræðisvaktin Þorvaldur Gylfason 1 Já, ójöfnuðurinn í skiptingu tekna og auðs er of mikill. Ójöfnuður-inn í tekjuskiptingunni rauk upp í aðdraganda hrunsins, minnkaði síðan aftur eftir hrun, en er samt ekki enn kominn aftur á sama stig og annars staðar á Norðurlöndum. Ójöfnuðurinn í eignaskiptingu virðist vera alltof mikill, en Hagstofa Íslands hefur ekki kortlagt hann enn. Það er brýnt verkefni. 2 Já. 3 Kannski fimmfaldur munur á heildarlaun-um tekjuhæstu forstjóra landsins og verkamanna geti talizt æskilegur eða í mesta lagi tífaldur. Launamunur ætti að ráðast fyrst og fremst af heilbrigðum vinnumarkaði. Óheilbrigð launakjör sumra yfirmanna í bönkum og sumum einkafyrirtækjum og jafnvel ríkisfyrirtækjum vitna um sjálftöku, sem löggjafinn getur komið böndum á. 4 Já. Vinstri græn Katrín Jakobsdóttir 1 Ójöfnuður er alltaf vandamál. Við sjáum það með því að líta í kringum okkur að þeim samfélögum vegnar best þar sem jöfnuður er mestur. Á meðan fjöldi Íslendinga berst í bökkum á lágmarkslaunum er erfitt að réttlæta að sumir, jafnvel yfirmenn þeirra, hafi tugföld laun þeirra. 2 Ég hef ávallt beitt mér fyrir því að auka jöfnuð í mínum störfum í stjórnmálum og mun halda því áfram. Ég tel að brýnasta verkefni næsta kjörtímabils sé að auka jöfnuð í samfélaginu. Það gerum við með því að leggja áherslu á að það svigrúm sem kann að skapast hjá ríkissjóði verði nýtt til þess að snúa vörn í sókn í heilbrigðis-, velferðar- og mennta- málum og stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi og jöfnum og sjálfbærum vexti í hagkerfinu. 3 Ég treysti mér ekki til að setja fram algildan mælikvarða á hvað sé eðlilegur launamunur milli þess tekjuhæsta og tekjulægsta í samfélaginu, því ýmislegt annað getur spilað inni í eins og uppbygging skattkerfis, styrkur velferðarkerfisins, aðgengi að menntun og heilbrigðis- þjónustu o.s.frv. Ég ætla því að vitna í kenningu stjórnmálaheimspekingsins John Rawls um réttlæti og gera þau orð að mínum: „Öll frumgæði mannlegs sam- félags — frelsi og tækifæri, tekjur og auður og forsendur sjálfsvirðingar — eiga að skiptast jafnt á fólk nema því aðeins að ójöfn skipting einhverra eða allra þessara gæða sé þeim til hagsbóta sem verst eru settir.“ 4 Með breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki árið 2010 setti Alþingi ákveðnar hömlur á hvatakerfi og starfslokasamninga við stjórnendur og lykilstarfsmenn fjármálafyrirtækja. Þar er kveðið á um að Fjármálaeftirlitið setji reglur um hvatakerfi og hafi þar til hliðsjónar til- mæli Evrópusambandsins og aðrar þær reglur um efnið sem samþykktar, eða viðurkenndar, kunna að verða. Hvað varðar þær reglur sem kjósendur í Sviss samþykktu og taka til allra skráðra fyrirtækja þar í landi þá er það eitthvað sem við eigum að sjálfsögðu að taka til umræðu. Best færi á því að samtök atvinnurek- enda og ekki síður almennir hluthafar í íslenskum fyrirtækjum, tækju frumkvæði í þessu, enda yrðu slíkar reglur ekki síður til hagsbóta fyrir þá en almenning. Hægri grænir Guðmundur Franklín Jónsson 1 Já, munurinn er út úr kortinu og ekki í takt við efnahgslíf þjóðarinnar. Ójöfnuður er alltaf vandamál ef sí og æ er hallað á millistéttina. 2 Já, með því að beita mér fyrir því að lögfesta lámarkslaun í 240.000 kr. á mánuði sem er ca. 1.400 kr. á tímann. Hækka skattleysismörk í 200.000 kr. á mánuði. Tryggja verður sömu laun fyrir sömu störf og kynbundnum launamun hjá hinu opinbera verður tafarlaust að eyða. 3 6 til 9 sinnum. 4 Engin spurning, það verður að taka á málinu strax á nýju þingi. Dögun Margrét Tryggvadóttir 1 Já, mér finnst of mikill munur á launum þeirra tekjuhæstu og tekjulægstu og myndi vilja sjá meiri jöfnuð í tekjum hér á landi þótt jöfnuður mælist meiri hér nú en fyrir hrun. Það skýrist einkum á því að færri eru ofurríkir en að tekjur hinna verst settu hafi hækkað mikið. 2 Já. Kjaramálin eru meðal stóru málanna en þau snúast þó ekki bara um laun heldur ekki síður lánskjör. 3 Ég held við verðum að spyrja okkur hvaðan það fé sem fer í laun forstjóra er komið og um hvers konar forstjóra er að ræða. Ég sé ekkert að því að forstjóri í eigin fyrirtæki sem byggir jafnvel á hugviti og dugnaði hans sjálfs sé með há laun, standi fyrirtækið undir því. Þegar forstjórar ríkisfyrirtækja eða banka eru með ofurlaun eru það hins vegar við hin sem blæðum. Í prinsippinu finnst mér allt að þrefaldur launamunur í lagi. Í því fellst að laun hinna lægst settu þurfa að hækka umtalsvert og laun forstjóranna að verða hóflegri. 4 Mér finnst það bæði skynsamlegt og æskilegt og hyggst bæði beita mér fyrir slíku (og hef reyndar gert það við lagasetningu um fjármálafyrirtæki) sem og beinu lýðræði þannig að fólkið sem ofbýður geti sjálft krafist þess. Sjálfstæðisflokkurinn Bjarni Benediktsson 1 Bil milli þeirra sem hafa hæstu tekjurnar og þeirra sem eru tekjulægstir hefur minnkað eftir 2008, enda hrundu tekjur hinna tekjuhæstu. Ég held að þeir tekjulægstu upplifi það samt ekki sem neinar bætur á stöðu sinni. Það er hægt að búa við mikinn jöfnuð, þar sem allir hafa það jafnslæmt, með því að jafna kjörin niður á við. Það er ekki stefna Sjálfstæðisflokksins, stefna hans er að lyfta öllum frá botninum. 2 Sjálfstæðisflokkurinn vill bæta lífskjör landsmanna með því að minnka álögur á þá og auka þannig ráðstöfunartekjur. Einnig viljum við skapa skilyrði fyrir atvinnulífið til að ráða fleiri til starfa, skapa meiri verðmæti og gera betur við starfsfólk sitt. Þannig munu lífskjör batna og jöfnuður aukast. Jafnframt þarf að gera þeim öryrkjum og öldruðum sem eru vinnufærir kleift að sækja vinnu án ósanngjarnra skerðinga á lífeyris- og örorkugreiðslum og draga almennt úr tekjutengingum til þess að ýta undir virkni þessara hópa í þágu einstaklinganna sjálfra og samfélagsins alls. 3 Launakjör stjórnenda fyrir hrun báru merki bóluhagkerfisins sem þau urðu til í. Þau voru úr öllu samhengi við íslenskan veruleika og byggðu auk þess á ofmati á efnahagsástandinu. Það er athyglisvert svona eftir á séð að Davíð Oddsson var víða gagnrýndur þegar hann mótmælti þessari þróun með táknrænum hætti og tók út innistæðu sína í KB-banka. Laun stjórnenda og verkamanna eiga að vera í jafnvægi við ástand efnahagslífsins og getu fyrirtækja til að greiða laun. 4 Já. Ég tel til dæmis koma vel til greina að tryggja hluthöfum sterkari rétt til þess að greiða at- kvæði um árangurstengdar greiðslur. Við höfum nú þegar stigið ákveðin skref með því að starfskjara- stefna sé lögð fram á hluthafafundum til samþykktar. Það er skynsamlegt að fylgjast með því hvernig nýjar reglur reynast annars staðar og vera opin fyrir því að endurskoða lög og reglur. Annars eiga fyrirtæki almennt að vera frjáls að því að semja við starfsmenn sína um kaup og kjör, að öðru leyti en því sem gildir um lágmarkslaun og -réttindi. Vilji þau gera betur en það við starfsfólkið eiga þau að fá að gera það, en það er samt sem áður mjög mikilvægt að þau sýni ábyrgð og að hvatar til árangurs séu innan ákveðinna marka og stuðli ekki að óeðlilegum ákvörðunum. „Það virðist t.d. ljóst að of­ urbónusakerfið sem tíðkaðist í fjármálageir­ anum hafi átt ríkan þátt í að skapa efna­ hagsbólurnar sem sprungu á árunum 2007 og 2008. „ Já, munurinn er út úr kortinu og ekki í takt við efnahgslíf þjóðarinnar. Ójöfnuður er alltaf vanda­ mál ef sí og æ er hallað á millistéttina. „Með breyting­ um á lögum um fjármálafyrirtæki árið 2010 setti Alþingi ákveðnar hömlur á hvatakerfi og starfs­ lokasamninga við stjórnendur og lykil­ starfsmenn fjár­ málafyrirtækja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.