Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 33
D avid Francis Bieber, alls óskyldur ungstirninu Justin, er frá Flórída í Bandaríkj- unum, fæddist 1966, sonur skólastjóra sem kemur ekki frekar við sögu. Að skólagöngu lok- inni gekk hann til liðs við landgöngu- liða Bandaríkjahers, en staldraði stutt við, var enda sparkað út eftir að hafa verið fjarverandi án leyfis. Í kjölfarið lagði Bieber fyrir sig sölu fíkniefna og líkamsrækt. Hinn 9. febrúar, 1995, var Markus Mueller, líkamsræktarfélagi Biebers, skotinn til bana í Fort Myers og taldi lög- regla að Bieber hefði staðið að baki morðinu; hefði jafnvel fengið leigu- morðingja til að annast það. Bieber var handtekinn en síðar sleppt vegna skorts á sönnunargögnum. Í nóvember sama ár varð gerð skotárás á Michelle Marsh, fyrrver- andi kærustu Biebers, en hún slapp með skrekkinn. Rannsókn leiddi í ljós að um sama skotmann var að ræða og í máli Muellers. Bieber sá sitt óvænna og lagði á flótta úr fylkinu, tók upp nafnið Nathan Wayne Coleman, nafn barns sem dáið hafði 1975, og fór úr landi árið 1996. Læti í Leeds Með fölsuð skilríki með nafni Nathans Wayne Coleman í farteskinu kom Bieber til Bretlands 26. septem- ber 1996. Hann kom inn í landið í Ramsgate í Kent og fékk sex mánaða dvalarleyfi sem síðar var framlengt vegna giftingar hans og Denise Horsley í Kendal í Cumbriu, í mars 1997. Bieber starfaði sem dyravörður í næturklúbbi árið 1998 og notaði frí- tíma sinn til að koma sér upp álitlegu vopnasafni. Árið 2001 sótti Denise um skilnað. Segir nú ekki meira af Bieber fyrr en 26. desember, 2003, þar sem hann var á mörkum Gipton- og Oakwood- hverfanna í Leeds. Á vegi hans urðu tveir umferðarlögreglumenn, Ian Broadhurst og Neil Roper. Þeir ráku augun í BMW-bifreið sem Bieber var í og flettu henni upp. Í ljós kom að bifreiðin var stolin og því báðu þeir Bieber um að koma með sér á stöð- ina til frekara spjalls og settist Bieber í aftursætið. Lögreglumönnunum þótti réttast að kalla á liðsauka og svaraði kollega þeirra, James Banks, kallinu. Neil Roper gerði sig líklegan til að skella handjárnum á Bieber, en þá fór allt til fjandans. Skotinn af dauðafæri Bieber stóð frammi fyrir því að verða dæmdur fyrir hin ýmsu brot í Bretlandi og mögulegu framsali til Bandaríkjanna, Flórída nánar tiltekið. Hann dró níu millimetra skammbyssu úr pússi sínu og skaut fjórum, til að byrja með, að óvopn- uðum lögreglumönnunum sem reyndu að komast undan. Roper fékk tvö skot; í aðra öxlina og kviðinn, en tókst að komast und- an. Broadhurst fékk eitt skot í bakið og varð óvígur. Banks slapp óskadd- aður, en ein kúla lenti í talstöð hans. Bieber gekk síðan að Banks þar sem hann lá og gat sig hvergi hreyft og skaut hann af dauðafæri beint í höfuðið. Í kjölfarið flúði Bieber og komst með vopnavaldi yfir bifreið og lét sig hverfa. Í meira lagi frumleg vörn Eftir umfangsmikla leit var Bieber að lokum handtekinn 31. desember þar sem hann hafði hreiðrað um sig á hótelherbergi skammt frá Gateshead. Hann hafði þá litað hár sitt rauðleitt og undir rúmi hans fannst hlaðin skammbyssa sem síðar kom í ljós að hafði verið notuð við morðið á Broad- hurst. Daginn eftir var hann ákærður fyrir eitt morð og tvær morðtilraunir og réttarhöldin fóru fram í Newcastle og lauk þeim 2. desember 2004. Bieber neitaði sök – öllum heila pakkanum; morði, tveimur morðtil- raunum og að hafa haft í fórum sín- um skotvopn og guð má vita hvað og hvað. Inntak varnarinnar var að Bieber hefði hvergi komið nærri málinu. Um hefði verið að ræða vin hans frá Flórída – nauðalíkan vin, vel að merkja – sem hefði framið ódæðin. Bieber var bara að geyma fyrir hann byssuna … og nei, hann gat ekki gefið upp nafn vinarins af ótta við hefndaraðgerðir af hans hálfu. Vörn af þessu tagi hefði hugsan- lega gengið í Bandaríkjunum, en Bretar voru ekki ginnkeyptir fyrir skýringum Biebers sem var sakfelld- ur fyrir morð og tvær morðtilraunir og fékk þrefaldan lífstíðardóm. Dómnum var áfrýjað og árið 2006 hafnaði áfrýjunardómstóll beiðni Biebers um að dómnum yrði breytt, en úrskurðaði aftur á móti að honum væri velkomið að áfrýja þeim tilmælum dómara í upphaf- legu réttarhöldunum að Bieber skyldi aldrei aftur geta um frjálst höfuð strokið. Árið 2008 úrskurðaði Hæsti- réttur Bretlands að Bieber þyrfti ekki að afplána lífstíðardómana, en yrði þó að vera á bak við lás og slá í að minnsta 37 ár – til ársins 2041. Um það leyti mun Bieber fagna 75 ára afmæli sínu og hver veit nema yfirvöld í Flórída krefjist þess þá að fá hann framseldan. Við bíðum spennt. n 33Helgarblað 22.–24. mars 2013 lífstíðardóma hlaut bandaríski raðmorðinginn Gary Leon Ridgway sem oftast nær var nefndur Green River-morðinginn. Ridgway hefur viðurkennt að hafa myrt 71 manneskju en talið er að hann hafi myrt rúmlega níutíu manns, þótt það hafi ekki enn verið sannað. Við bakka Green River myrti hann fyrst 16 ára vændiskonu árið 1982. Hann herjaði aðallega á vændiskonur í Washington fylki.48 „ Bieber gekk síð- an að Banks þar sem hann lá og gat sig hvergi hreyft og skaut hann af dauðafæri beint í höfuðið. BIEBER n Flúði bandaríska laganna verði n Endaði á bak við breskan lás og slá David Francis Bieber Komst undir fölsku flaggi til Bretlands og er þar enn. Í BRESKUM BOBBA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.