Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 31
Viðtal 31Helgarblað 22.–24. mars 2013 „Þetta er heimurinn þeirra“ n Tónlistarhúsið í Kulusuk sem brann til kaldra kola var þungamiðja samfélagsins n KALAK stendur fyrir tónleikum í Eldborgarsal Hörpu n Vilja byggja nýtt hús Ég fékk það sem menn kalla stund- um Grænlandsveikina,“ segir söngv- arinn landskunni Pálmi Gunnars- son. Hann er einn þeirra listamanna sem koma fram á styrktartónleikum sem fram fara Eldborgarsal Hörpu á laugardaginn. „Tónlistarhúsið var orðið svona miðpunktur í lífi þeirra. Þetta er alveg ömurlegt. Það var búið að gera upp húsið og safna hljóðfær- um. Það hefur mikið að segja fyrir svona lítið samfélag að hafa sama- stað þar sem fólk getur komið saman og jafnvel haldið tónleika,“ segir Pálmi. Stórkostlegt land og yndislegt fólk Hann þekkir vel til Grænlands enda hefur hann ferðast víða um landið undanfarin ár og tekið ástfóstri við það. „Ég man alltaf hvað mér fannst sérstakt að koma fljúgandi þarna yfir fyrst og sjá ísjakana og landið rísa úr sæ. Mér finnst þetta stórkostlegt land og yndislegt fólk,“ segir Pálmi og sparar ekki lýsingarorðin þegar kemur að því að lýsa fegurð lands- ins. „Landið er gríðarlega magnað. Þetta er ofboðslega stórt og mikið og í rauninni fannst mér náttúran við fyrstu sýn allt að því yfirþyrmandi en á mjög jákvæðan og flottan hátt,“ segir hann. „Síðan hef ég farið niður á syðsta odda Grænlands og þvælst þar um í óbyggðum og farið á einn fallegasta stað sem ég hef komið á sem er Paradísardalur og Miklavatn. Síðan hef ég farið vestur. Ég hef farið nokkrum sinnum til Nuuk og er byrj- aður að taka landið inn í skömmtum og ætla að halda því áfram.“ Tengdar þjóðir Pálmi segir mikla tengingu vera á milli Íslands og Grænlands. „Við erum svo samofin þessu landi að miklu leyti. Saga nýlendubúanna, Ei- ríks rauða með allt sitt lið. Þessar ný- lendur byggðust upp á fleiri þúsund manns. Leifarnar af þeim eru úti um allt og ég gerði mér ekki grein fyrir því hve mikið af formunum frá Ís- lendingum væru á Grænlandi. Þetta eru mjög tengdar þjóðir,“ segir Pálmi. Frjáls framlög Hann hvetur alla til þess að mæta á tónleikana og láta gott af sér leiða. Benda má á að hægt er að koma hljóðfærum til Tónastöðvarinn- ar í Skipholti 50D. Ókeypis er á tón- leikana og fjöldi listamanna stígur þar á svið. Meðal þeirra tónlistar- manna og hljómsveita sem koma fram í Eldborg á laugardaginn eru Agent Fresco, Digraneskórinn, DJ Margeir, Fóstbræður, Haffi Haff, Jakob Frímann Magnússon, KK, Morgan Kane, Pálmi Gunnarsson, Ojba Rasta, Sam Sam, Sísy Ey, Sykur, Unnur Eggertsdóttir og Þórunn Ant- onía. Heiðursgestir á tónleikunum eru, sem fyrr segir, grænlensku tón- listarmennirnir Anda Kuitse, Anton Sianiale og Efraim Ignatiessen sem koma hingað til lands frá Kulusuk. Þeir Anda, Anton og Efraim litu við á ritstjórnarskrifstofu DV á fimmtu- dag og sögðust þakklátir aðstoð Ís- lendinga við málstaðinn. „Þetta er sorglegt og ungmennin í Kulusuk finna mest fyrir því að tónlistarhúsið sé farið,“ segir Anton. „Það er lítið um að vera, en tónlistin gefur okkur mikið. Í húsinu eru bæði tónleikar, kennsla og svo gegnir það hlutverki félagsheimilis,“ bætir Efraim við. „Við erum þakklátir aðstoð Ís- lendinga, þið eigið afskaplega stórt og glæsilegt tónlistarhús. Reykja- víkurborg er falleg. Þið eruð rík,“ segir Anda. „Ef allt gengur vel get- um við byggt húsið í sumar,“ seg- ir Anton. „Við ætlum öll að hjálpast að.“ n Til Grænlands 14 ára „Ég held að það komi enginn ósnortinn frá því að fara inn á þetta svæði,“ segir Hjörtur Smárason sem fór fyrst til Austur-Grænlands fjórtán ára og hefur síðan þá ítrekað heimsótt landið . Heiðursgestir á tónleikunum Heiðursgestir á tónleikunum eru grænlensku tónlistar- mennirnir Anda Kuitse, Anton Sianiale og Efraim Ignatiessen sem koma hingað til lands frá Kulusuk. mynd SiGTryGGur ari „Við erum þakklátir aðstoð Íslendinga, þið eigið afskaplega stórt og glæsilegt tónlistarhús. Reykjavíkurborg er falleg. Þið eruð rík. „Ég fékk það sem menn kalla stund- um Grænlandsveikina. – Pálmi Gunnarsson Í Paradís Hér er Pálmi staddur í Paradísardalnum á Suður-Grænlandi sem hann segir vera einn fallegasta stað veraldar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.