Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 54
Ný bók og nýtt barn á leiðinni A thafnakonan, sjónvarps- kokkurinn og veitinga- staðaeigandinn Hrefna Rósa Sætran skrifaði í vik- unni undir nýjan bókasamning. Eins og vanalega er í nógu að snú- ast hjá Hrefnu Rósu sem þessa dagana bíður komu erfingja núm- er tvö. Hún og sambýlismaður hennar, Björn Árnason, eiga fyrir soninn Bertram Skugga. Stefnt er að útgáfu uppskrifta- bókarinnar í haust og samkvæmt heimildum DV verður hún í létt- ari kantinum og því á allra færi að elda gómsæta rétti eftir uppskrift- um verðlaunakokksins. Þetta er þriðja uppskriftabók Hrefnu sem gaf einnig út Fiskmarkaðsbókina og Grillréttabók Hagkaupa. n n Þriðja bókin og erfingi númer tvö Fastur í tökum vegna veðurs T ökum á nýjustu mynd Dags Kára hefur seinkað vegna skorts á íslensku vetrar- veðri. Heimildir DV herma að tökulið hafi stokkið af stað þegar síðasta óveður reið yfir landið en sitji nú auðum hönd- um. Myndin sem um ræðir ber heitið Fleygur og er framleidd af Baltasar Kormáki og fyrirtæki hans, Sögn ehf. n n Þurfa á íslenskum vetri að halda Elsa lét laga skóna sína E lsa Yeoman, forseti borgar- stjórnar, var fyrsti viðskipta- vinurinn hjá nýjum skósmið í Árbænum. Á íbúafundi í Ár- bænum fyrir stuttu lét borgarstjór- inn, Jón Gnarr, þau orð falla að það vantaði skósmiði og kaupmenn á hornin í úthverfin. Inga Steinunn Björgvinsdóttir og Hjörleifur Harðarson tóku borgarstjórann á orðinu og opnuðu Skósmiðjuna í Árbænum. Það var því kannski við hæfi að fyrsti viðskiptavinurinn væri úr röðum borgarstjórnar. n n Var fyrsti viðskiptavinur nýs skóara Kemur út í haust Uppskrifta- bók Hrefnu verður í léttari kantinum. Fyrsti viðskipta- vinurinn Elsa Yeoman mætti í opnun Skósmiðjunnar í Árbæ. Hvar er snjórinn? Dagur Kári er líklega einn landsmanna að vilja lengri vetur. Fitubrandari á FemínistaFundi É g vissi ekki hver þessi maður var áður en ég settist inn á fundinn og ég get ekki sagt að okkar fyrstu kynni hafi verið góð, segir Saga Garðars- dóttir leikkona um uppákomu á Femínistafundi Heimdalls – félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem haldinn var í Valhöll á þriðju- dagskvöld og hefur valdið heilmiklu fjaðrafoki. Einn framsögumanna var Brynjar Níelsson, hæstaréttarlög- maður og frambjóðandi Sjálfstæðis- flokksins. Þegar hann hélt framsögu sína stóð Saga upp í miðri ræðu hans og æpti hátt svo öðrum gestum snar- brá. Einn gesta hélt að hætta steðjaði að og var í viðbragðsstellingu þegar Saga hrópaði skyndilega aftur að sögn viðstaddra: „Ái, mér er svo illt í auðmýktinni í mér!“ Saga útskýrir að hún hafi einfaldlega fundið til líkam- legrar vanlíðunar vegna framkomu Brynjars. Misboðið „Hann byrjaði að tala og strax fannst mér hann haga sér stórundarlega, hann fór að stara út í sal með ein- hverjum ströngum svip. Það var ein- hver leikur í gangi, sem enginn var að spila með í nema hann. Þegar hann var búinn að ýja að því að hafa verið til umfjöllunar í fantasíu- bók Hildar, sem var fyrsti lélegi brandarinn hans af sex sem komu í kjölfarið seinna um kvöldið, og segja femínisma leifar úr ruslakistu marx- ismans og gefa okkur konum alveg óumbeðið ráð um kvenréttindabar- áttu sem hann telur á villigötum, þá var mér allt í einu farið að líða mjög illa. Ég var að hugsa um það hvern- ig hann, hvítur karlmaðurinn, gæti sett sig í spor konu og vitað hvernig það væri að vera undir og á meðan ég var að hlusta á hann þá fann ég að ég var komin með kaldan svita, aukinn hjartslátt og stuttan andardrátt. Mér leið eins og ég stundum þegar ég fæ sviðsskrekk en áttaði mig svo á því að mér var hreinlega svo misboðið að ég fann til. Mig verkjaði undan honum. Ég gat því ekki annað en stunið því upp að mig verkjaði í auðmýktina.“ Spurður hvort hann hefði verið óléttur Umræðuefni fundarins var staða femínisma á Íslandi í dag og aðrir framsögumenn voru þau Hildur Sverrisdóttir, varaborgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, femínist- inn Helga Þórey Jónsdóttir og Hildur Lilliendahl, femínisti og verk- efnastjóri hjá Reykjavíkurborg. Mikill hiti var í fundargestum og enn er rifist um þau málefni sem bar á góma á fundinum, þá helst á Face- book, og eru það bæði framsögumenn og fundargestir sem eiga í stríði. Með- al þess sem hefur valdið fjaðrafoki eru tilsvör Brynjars til ungs manns í salnum, Viðars Freys Guðmunds- sonar. Sá hafði borið upp spurningu, beint henni til Brynjars og getið þess í leiðinni að hann væri í fæðingaror- lofi. Brynjar spurði þá Viðar hvort það hefði ekki verið hann sem var óléttur. Viðar Freyr segist ekki taka um- mæli Brynjars um vaxtarlag hans nærri sér. „Ég er smá í yfirvigt. Það má túlka ummælin sem óviðeigandi. Ég hef hitt Brynjar og talað við hann áður og honum hefur fundist að hann þekkti mig nógu vel til þess að gant- ast með vaxtarlag mitt. En ég tók þetta ekki nærri mér.“ Saklaust að gera grín að feitu fólki? Einn framsögumanna, Helga Þórey Jónsdóttir, ræddi á athugasemda- þræði Facebook um óviðeigandi ummæli Brynjars. „Djöfull var lélegt af þér að segja fitubrandara á kostn- að unga mannsins í salnum á mánu- daginn. Ég hefði haldið að fullorðið fólk væri yfir slíka hegðun hafið.“ Brynjar svaraði Helgu Þórey um hæl: „Þér fannst kannski allt í lagi að vinkona þín truflaði framsögu mína með þessum ömurlega gjörn- ingi? Hann er voðalega valkvæður hjá ykkur dónaskapurinn. Þið haf- ið áhyggjur af meinlausu gríni en kippið ykkur ekki upp við þegar ég og aðrir erum kallaðir kvenhatarar og vinir nauðgara. Og búið jafnvel til lista um þá sem þið viljið flokka í þann hóp. Líttu þér nær Helga Þórey.“ Er bara saklaust að gera grín að feitu fólki? var Brynjar spurður og svaraði hann því til að grínið hefði verið óþarfi. „Auðvitað var óþarfi og óviðeigandi hjá mér þetta grín. Upp- gjör á því er á milli mín og hans og þið Helga þurfið ekki að hafa svona miklar áhyggjur af því. Ég er bara að velta fyrir mér túlkun ykkar á dóna- skap og hvað hann er valkvæður. Það er að vísu þekkt hjá aðgerðasinnum.“ Tilfinningahiti villti sýn Viðar Freyr segir hitann í fundargest- um hafa villt þeim sýn. „Mér sýndist báðum fylkingum heitt í hamsi. Þetta var gagnlegur fundur en spurningar misstu oft marks því þær voru of til- finningahlaðnar. Til dæmis spurði einn fundargesta Brynjar hvað hon- um fyndist ef einhver vildi ráðast inn til hans til að nauðga honum og drepa. Auðvitað gat hann ekki svar- að slíkri spurningu. En á sama tíma var þessi fundur gott framtak og mér fannst Brynjar og Hildur Lilliendahl svara spurningum fundargesta vel og skýra sín sjónarmið.“ n n Brynjar Níelsson spurði ungan mann hvort hann hefði verið óléttur n Sögu Garðarsdóttur var líkamlega misboðið og fann til verkja Tók ummælin ekki nærri sér „Ég hef hitt Brynjar og talað við hann áður og hon- um hefur fundist að hann þekkti mig nógu vel til þess að gantast með vaxtarlag mitt,“ segir Viðar Freyr. Óþarfi Þessari mynd var dreift á Facebook og þótti fréttnæm. „Auðvitað var óþarfi og óviðeig- andi hjá mér þetta grín,“ segir Brynjar Níelsson um ummæli sem hann lét falla í garð ungs manns á fundi Heimdalls. Líkamlega illt „Mér leið eins og ég stundum þegar ég fæ sviðsskrekk en áttaði mig svo á því að mér var hreinlega svo mis- boðið að ég fann til,“ segir Saga um fyrstu kynni sín af Brynjari. 54 Fólk 22.–24. mars 2013 Helgarblað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.