Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 15
Fréttir 15Helgarblað 22.–24. mars 2013
Skartgripakeðja
Skaðar bankann
n Seðlabankinn hefði þurft að útvega FIH-bankanum 400 milljarða
S
ala Seðlabankans á danska
FIH-bankanum árið 2010
hefur sætt töluverðri gagn-
rýni eftir að ljóst varð að
Seðlabankinn myndi líklega
ekki fá nema hluta af söluverðinu
greiddan. Eins og kunnugt er tók
Seðlabankinn allsherjarveð í danska
bankanum þegar Kaupþing fékk 80
milljarða króna lán í október 2008.
Danska bankann keypti Kaupþing
árið 2004 á 84 milljarða króna.
Þann 18. september árið 2010
seldi Seðlabankinn 99,9 prósent
af hlutafé FIH-bankans en stærstu
kaupendurnir voru tveir danskir líf-
eyrissjóðir. Viðskiptablaðið greindi
frá því stuttu eftir söluna að Seðla-
bankanum hafi ekki verið annað fært
en að losa sig við danska bankann á
þessum tímapunkti. Ef það hefði
ekki tekist hefði danska ríkið líklega
tekið yfir bankann sem hefði þýtt að
allsherjarveð Seðlabankans í hluta-
bréfum FIH-bankans hefði orðið
verðlaust.
Nokkru áður hafði danska ríkið
veitt bankanum víkjandi lán
upp á 40 milljarða króna og
veitt ábyrgð fyrir 1.000 millj-
arða króna skuldabréfaút-
gáfu bankans. Nýir eigend-
ur veittu bankanum síðan
200 milljarða króna lánalínu
og veitti danska ríkið síðan
ríkisábyrgð fyrir sömu upp-
hæð. Greindi Viðskiptablað-
ið frá því að ef salan hefði
ekki gengið í gegn hefði ver-
ið gerð krafa um að Seðla-
bankinn reiddi fram þessa
400 milljarða króna til að
endurfjármagna FIH-bank-
ann. Líklega hefði slík ráð-
stöfun orðið afar umdeild á
Íslandi.
Greiddu einungis 40 milljarða
Seðlabankinn seldi FIH-bankann
á tæplega 110 milljarða íslenskra
króna. Nýju eigendurnir staðgreiddu
40 milljarða af kaupverðinu. Fyrir af-
gang kaupverðsins veitti Seðlabank-
inn svokallað seljendalán upp á 70
milljarða króna sem er á gjalddaga
í árslok 2014. Endurgreiðsla selj-
endalánsins er þó háð ýmsum tak-
mörkunum. Þannig hefur FIH-bank-
inn afskrifað 66 milljarða króna frá
því að Seðlabankinn seldi bankann
árið 2010. Sú upphæð mun dragast
frá seljendaláninu og miðað við það
fengi Seðlabankinn nánast ekkert
endurgreitt af umræddu seljenda-
láni.
Salan háð gengi Pandoru
Það sem gæti mögulega hækkað
virði seljendalánsins er hins vegar
svokallaður Axcel III-sjóður sem
er í eigu FIH-bankans. Helsta eign
hans í dag er hlutur í dönsku skart-
gripakeðjunni Pandoru. Skartgripa-
keðjan fór vel af stað í dönsku kaup-
höllinni þegar hún fór á markað í
október 2010. Upphafsgengið nam
210 dönskum krónum og náði hæst
365 dönskum krónum á hlut í janúar
2011. Bréfin hríðféllu síðan á árinu
2011 og fóru lægst niður í 35 danskar
krónur á hlut. Gengi þeirra í dag er
hins vegar um 150 danskar krónur á
hlut.
Það er þó töluvert langt frá hæsta
gengi bréfanna, í janúar 2011, og
miðað við núverandi stöðu hagn-
ast Seðlabankinn ekki á hluta-
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
bréfaeign Axcel III-sjóðsins í Pand-
oru. Það gæti þó breyst en þessi
árangurstenging er bundinn fram
til loka 2015. Þá var einnig inni í
samningnum á milli Seðlabankans
og hinna nýju kaupenda ákvæði
um að ef kaupandahópurinn næði
umframávöxtun á þeim 40 millj-
örðum króna sem lagðir voru fram
við kaupin fyrir lok árs 2015 fengi
Seðlabankinn 20 prósent af öllu
umfram kaupverðið.
Ólíklegt að allt fáist endurgreitt
Líklegt verður að teljast að Seðla-
bankinn muni ekki ná að endur-
heimta þá 80 milljarða króna sem
Kaupþing fékk lánaða í október
2008 að fullu. En eins og áður kom
fram fékk Seðlabankinn einungis
greidda um 40 milljarða króna við
söluna á FIH-bankanum haustið
2010. Hversu mikið fæst umfram það
verður að koma í ljós árið 2014 og
2015. Þó virðist sem að Seðlabank-
inn hafi ekki átt aðra kosti haustið
2010 en að selja þeim aðilum sem
höfðu boðið hæst í FIH-bankann
á þeim tímapunkti. Án þess hefði
Seðlabankinn átt á hættu að fá ekki
krónu upp í 80 milljarða króna kröfu
sína. n
D
anska skartgripakeðjan
Pandora var í eigu danska
auðmannsins Jespers Niel-
sen og fjölskyldu hans í
gegnum, fyrirtæki þeirra Kasigroup
en þau seldu hlut sinn áður en fé-
lagið fór á markað árið 2010. Niel-
sen hefur nokkra tengingu við Ís-
land en eftir að hann seldi hlut
sinn í Pandoru einbeitti hann sér
að stórum hluta að danska hand-
boltafélaginu AG København, sem
var í hans eigu. Nokkrir Íslendingar
spiluðu með liðinu og má þar
nefna Ólaf Stefánsson, Guðjón
Val Sigurðsson, Arnór Atlason og
Snorra Stein Guðjónsson.
Hluti af söluverðinu sem Jesper
Nielsen og fjölskylda átti að fá fyrir
söluna á Pandoru var hins vegar
bundinn við gengi félagsins, líkt
og í tilfelli Seðlabankans. Eftir að
gengi Pandoru hríðfell varð AG
København gjaldþrota eða sum-
arið 2012. Þá var Jesper Nielsen
einnig eigandi og aðalstyrktar-
aðili þýska handknattleiksliðsins
Rhein-Neckar Löwen sem Guð-
mundur Þ. Guðmundsson þjálfar
en með liðinu spila þeir Alexander
Petersson og Stefán Sigurmanns-
son. Í framhaldi af erfiðleikum AG
København hætti Jesper Nielsen
einnig afskiptum af Rhein-Neckar
Löwen og styrkir liðið ekki lengur.
Jesper Nielsen átti Pandoru
Urðu að selja Seðlabankinn, undir forystu Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra, stóð frammi fyrir því haustið 2010 að ef danski FIH-bankinn yrði ekki
seldur þyrfti Seðlabankinn að leggja honum til 400 milljarða króna.
Hlutabréfin hríðféllu Eftir að hafa gengið nokkuð vel eftir að danska skartgripakeðjan Pandora fór á markað í október 2010 hríðféllu hlutabréfin árið 2011.
Kaupþing keypti FIH-bankann 2004 Kaupþing keypti danska FIH-bankann á 84 millj-
arða króna árið 2004 en við hrunið í október 2008 tók Seðlabanki Íslands yfir danska bankann.
Safnaði fyrir út-
för á Facebook
„Þau eru agndofa og auðmjúk
yfir góðvild þeirra sem tóku þátt,
frá þessari litlu eyju sem flestir
hafa aldrei heyrt um,“ segir Ásdís
Sigtryggsdóttir, sem búsett er í
Grahamstown í Suður-Afríku.
Ásdís hóf á dögunum söfnun
fyrir útför ungrar, fátækrar konu
sem lést af sárum sínum á sjúkra-
húsi sex vikum eftir að hún varð
fyrir hrottalegri hópnauðgun í jan-
úar síðastliðnum. Árásarmennirn-
ir, átta að tölu, nauðguðu hinni
þrítugu Thandiswu Qubuda, börðu
hana til óbóta og skáru meðal
annars af henni eyrun. Hún komst
aldrei til meðvitundar eftir árásina.
Ásdís, sem vinnur rann-
sóknarvinnu fyrir meistararitgerð
sína í Suður-Afríku, starfar einnig
með sjálfboðaliðasamtökunum
UPM, sem eru baráttusamtök at-
vinnulausra og fátækra á svæðinu.
Samtökin og Ásdís hafa barist fyrir
réttlæti í máli Thandiswu en í síð-
ustu viku biðlaði Ásdís til vina
sinna á Facebook um að styrkja
söfnun fyrir útför Thandiswu sem
fátækir aðstandendur hennar
höfðu ekki efni á þrátt fyrir aðstoð
UPM. Sú söfnun tókst vonum
framar og á nokkrum klukkustund-
um hafði Ásdís safnað rúmlega
185 þúsund krónum sem hún síð-
an millifærði á UPM-samtökin á
miðvikudag. Birti hún mynd á síðu
sinni til staðfestingar þeirri færslu.
Peningana mun UPM nýta til að
borga skuldir fjölskyldu Thandiswu
auk þess sem afgangurinn dugar til
að að styrkja almennt starf samtak-
anna, þar af stofnun kvennahreyf-
ingar sem berjast mun fyrir bættri
stöðu kvenna á svæðinu. Að sögn
Ásdísar kemur fram í nýjustu töl-
um frá hagstofu Suður-Afríku að
tvær konur verði fyrir kynferðisof-
beldi á degi hverjum á svæðinu þar
sem búa um 120 manns.
„Þau báðu mig að skila til allra
að þau væru ótrúlega þakklát og
hrærð yfir þessum viðbrögðum og
að koma því á framfæri að þessi
fjárhæð færi öll í að reyna að gera
heiminn að betri stað, auka mann-
virðingu og réttlæti og reyna að
koma í veg fyrir að slík brot yrðu
framin aftur,“ segir Ásdís að lokum.
Þingi verði
frestað
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra hefur lagt fram þing-
frestunartillögu á Alþingi. Þetta
gerði hún í gær, fimmtudag, en þá
hafði Ólöf Nordal, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, þegar lagt
fram slíka tillögu. Tillaga Jóhönnu
gengur út á að fundi verði frestað í
dag, föstudag, eða síðar ef nauðsyn
krefur. Þingsályktunin snýst um að
Alþingi álykti að veita samþykki
til þess að fundum þingsins verði
frestað frá 22. mars 2013 eða síðar,
ef nauðsyn krefur, eins og það er
orðað í tillögunni. Formenn allra
þingflokka sem eiga sæti á Alþingi
hafa þegar reynt að komast að
samkomulagi um þinglok undan-
farna daga en án árangurs.