Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 24
24 Umræða 22.–24. mars 2013 Helgarblað
Fundarstjóri: Fyrir hvað
stendur Lýðræðisvaktin? Nú
liggur fyrir að flokkurinn muni
beita sér í stjórnarskrármálinu, hvaða
önnur mál setur flokkurinn á oddinn?
Þorvaldur Gylfason Lýðræðis
vaktin hefur eitt höfuðmarkmið:
að allir sitji við sama borð. Stefnu
skrá Lýðræðisvaktarinnar er lýst á
xlvaktin.is. Vefsetrið er gagnvirkt
eins og vefsetur stjórnlagaráðs
var. Í því felst, að við þiggjum með
þökkum ábendingar um áherzlur
í stefnu okkar í efnahagsmálum,
velferðarmálum, auðlindamálum,
byggðamálum o.s.frv., en stefn
unni í öllum þessum málaflokkum
er lýst á xlvaktin.is. Við leggjum
auk stjórnarskrármálsins þunga
áherzlu á efnahagsmál, jafnréttis
mál og auðlindamál.
Pétur Jónsson: Ætlið þið í
kosningabandalag með
einhverjum? Eigið þið t.d. ekki
góða samleið með Dögun?
Þorvaldur Gylfason Við eigum
langa samleið t.d. með Dögun
og Pírötum. Við eigum örugglega
eftir að ræða saman um einshvers
konar samstarf fyrir kosningar og
vonandi einnig eftir kosningar.
Aðalsteinn Kjartansson:
Hvernig gengur söfnun
meðmælenda? Ertu öruggur
um að þið getið boðið fram í
kosningunum í apríl?
Þorvaldur Gylfason Söfnun með
mælenda gengur ljómandi vel. Við
bjóðum fram í öllum kjördæmum
og stillum upp sterkum listum, sem
nú er verið að kynna einn af öðrum.
Andrea Ólafs: Getur þú
svarað því með ábyrgum
hætti hvers vegna þú ert ekki
tilbúinn til að afnema verðtryggingu á
lánum – heldur setur í stefnu þína að
setja nýja vísitölutengingu á þau?
Getur þú útskýrt hvers vegna það nægir
þér ekki að láta breytilega og fasta
vexti nægja sem „verðtryggingu“ í
lánasamningum eins og gert er víðast
hvar um gjörvalla veröld?
Þorvaldur Gylfason Lýðræðis
vaktin vill „gæta jafnræðis milli
lántakenda og lánveitenda,
m.a. með endurmati eða afnámi
verðtryggingar húsnæðislána,
og brúa bil kynslóðanna“, eins og
stendur í stefnuskránni á xlvaktin.
is. Okkur finnst of snemmt að lofa
fortakslausu og tafarlausu afnámi
vertryggingar húsnæðislána,
þar eð við teljum nauðsynlegt að
kanna t.d. lögmæti verðtryggingar
innar eins og hún hefur verið fram
kvæmd og hyggja vandlega að
ólíkum leiðum til að jafna aðstöðu
lántakenda og lánveitenda.
Ástasigrún Magnúsdóttir:
Þurfa stjórnmálaflokkar ekki
lengri marineringu en bara
nokkra mánuði til þess að marka sér
stefnu, kynna hana og setja fram sem
trúverðugan valkost fyrir kjósendur? Er
ekki hætta fólgin í því að of mörg lítil
framboð gefi kost á sér, fáir nái inn fólki
og þar með haldist óbreytt ástand á
þingi?
Þorvaldur Gylfason Marineringin
hefur þegar farið fram, þar eð
hryggjarstykkið í Lýðræðisvaktinni
eru fv. stjórnlagaráðsfulltrúar, sem
unnu náið saman í stjórnlagaráði
og kunna að vinna saman sem
einn maður og ná góðum árangri.
Liðsaukinn, sem okkur hefur borizt
víðs vegar að, er sama sinnis og við
um helztu mál. Við stefnum á að
ná nógu mörgum þingsætum til
að geta tryggt, að vilji þjóðarinnar
í stjórnarskrármálinu nái fram að
ganga á Alþingi eftir kosningar auk
annarra stefnumála Lýðræðis
vaktarinnar.
Sigurður Sigurðsson: Sæll
Þorvaldur og til hamingju.
Hvaða leið telur þú
vænlegasta fyrir Íslendinga í sambandi
við gjaldmiðilinn. Nú erum við með
krónuna í böndum og auk þess bæði
með verðtryggðar og óverðtryggðar
krónur. Hugnast þér að taka upp annan
gjaldmiðil eða telur þú okkur geta samið
um es konar bindingu við annan
gjaldmiðil þannig að það virki fyrir bæði
einstaklinga og fyrirtæki og þjóðarbúið?
Þorvaldur Gylfason Lýðræðis
vaktin tekur ekki afstöðu í
ESBmálinu og ekki heldur í
gjaldmiðilsmálinu vegna þess, að
nýja stjórnarskráin kveður á um, að
þau mál verði útkljáð í þjóðar
atkvæðagreiðslu. Við teljum rétt
að ljúka þeim samningum, sem
eru nú í gangi. Stjórnmálaflokkar
og Alþingi þurfa ekki að skipta sér
af málum, sem þjóðin ræður til
lykta, þar eð þjóðin er yfirboðari
þingsins. Við á Lýðræðisvaktinni
munum sitja við sama borð og aðrir
kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslu
um ESB og evruna.
Aðalsteinn Kjartansson:
Bæði þú og Lýður Árnason
tókuð þátt í starfi Dögunar
þegar sá flokkur fór af stað. Af hverju
fóru þið ekki fram undir merkjum þess
flokks?
Þorvaldur Gylfason Ég tók ekki
þátt í starfi Dögunar, kom þangað
bara gestur í tvö skipti að ræða
við þau um efnahagsmál og þáði
ásamt Þóri Baldurssyni tónskáldi
far með rútunni þeirra til að kynna
landsmönnum stjórnarskrárfrum
varpið í aðdraganda þjóðarat
kvæðagreiðslunnar 20. október.
Okkur kom öllum ágætlega saman.
Dögun er líkt og Píratarnir gegnheil
í stjórnarskrármálinu.
Damien Atilio: Telur þú enn
að Íslendingar hafi farið
siðlausa leið í Icesave málinu
með því að greiða ekki tilbúna skuld
Breta og Hollendinga? Eru fleiri skuldir
sem siðferði þitt vill borga fyrir hönd
þjóðarinnar?
Þorvaldur Gylfason Ég kannast
ekki við neitt siðleysistal í
sambandi við Icesavemálið. Málið
snerist um ólíkt áhættumat. Sumir
töldu, líkt og ríkisstjórnin og vænn
hluti stjórnarandstöðunnar á þingi,
öruggara að ganga að samningum,
aðrir ekki. Eðlilegt var, að kjósendur
afgreiddu málið í þjóðaratkvæða
greiðslu. Málið fékk á endanum far
sælar lyktir fyrir Íslendinga, þegar
dómur féll Ísendingum í vil. Sumum
kom dómurinn á óvart, öðrum ekki.
Flókin dómsmál eru oft þess eðlis,
að ágreiningur um þau er eðlilegur.
Hjörtur Hjartarson: Sæll
Þorvaldur. Finnst þér ástæða
til að hefja sérstaka rannsókn
á framgöngu Seðlabankans í
aðdraganda hrunsins og fyrst á eftir?
Þorvaldur Gylfason Já, ég tel
brýna ástæðu til, að slík rannsókn
fari fram í samræmi við ályktun
Alþingis um málið. Ótækt er, að
Seðlabankinn skuli halda áfram
að leyna Alþingi hljóðritun af
símtali forsætisráðherra og
seðlabankastjóra um lykilatriði
í aðdraganda hrunsins. Nýja
stjórnar skráin tekur á þessum
vanda með ákvæðum, sem er ætl
að að girða fyrir leynd og spillingu.
Sigurður Sigurðsson Er
Ísland bananalýðveldi? Hér
tala þingmenn fjálglega um
þjóðaratkvæðagreiðslur á sama tíma
og þeir virða ekki niðurstöður þeirra.
Hvernig myndir þú lýsa þessu fyrir
aðkomufólki eða erlendum
fréttamönnum?
Þorvaldur Gylfason Ég hef
í lengstu lög forðazt að nota
þetta orð, bananalýðveldi, en
ég skil spurninguna. Ísland er
mun skemmra komið á sinni
pólitísku þróunarbraut en flest
löndin í kringum okkur. Þar kæmi
aldrei til álita að hunza úrslit
þjóðaratkvæðagreiðslu, allra sízt
þjóðaratkvæðagreiðslu um mörg
brýnustu álitamálin á vettvangi
stjórnmálanna svo sem jafnt vægi
atkvæða, auðlindir í þjóðareigu,
beint lýðræði, persónukjör o.fl. Það
væri hneyksli á heimsvísu, ef Al
þingi gengi gegn vilja þjóðarinnar.
Ég sagði „flest löndin í kringum
okkur“. Það gerðist í Færeyjum
skömmu eftir heimsstyrjöldina
síðari, að Færeyingar ákváðu
með naumum meiri hluta í
þjóðaratkvæðagreiðslu að slíta
sambandinu við Dani og lýsa yfir
sjálfstæði. Úrslitin voru hunzuð
með lagatæknilegum brellum. Það
var hneyksli, sem hefur legið eins
og mara á sundraðri færeyskri þjóð
æ síðan.
Jóhann Fjalar: Nú hef ég ekki
gert upp hug minn varðandi
næstu kosningar. Af hverju
ætti ég að kjósa ykkur?
Þorvaldur Gylfason Við viljum
tryggja framgang þjóðarviljans
í stjórnarskrármálinu. Við viljum
hraða endurreisn efnahagslífsins.
Við viljum eftir föngum rétta
hlut heimilanna, sem urðu fyrir
skakkaföllum af völdum hrunsins.
Við viljum tryggja fólkinu í landinu
réttmæta hlutdeild í auðlindum í
þjóðareigu. Við viljum, að allir sitji
við sama borð. Við viljum rétta hlut
kvenna svo sem brýna þörf ber til
t.d. á vinnumarkaði, í lífeyrismálum
og atvinnumálum. Við viljum
hreinsa til. Við viljum spúla dekkið.
Annas Sigmundsson: Hversu
háir yrðu óverðtryggðir vextir
af íbúðalánum á Íslandi til
langframa ef verðtryggingin yrði
afnumin? Landssamtök lífeyrissjóð
anna hafa sagt að þau myndu núvirða
eignir sínar með 9% óverðtryggðri
kröfu ef verðtrygging yrði afnumin en
krafan í dag er 3,5% verðtryggð. Myndi
það ekki þýða að erfitt yrði fyrir
lánastofnanir að bjóða minna en svona
10% óverðtryggða vexti af
íbúðalánum?
Þorvaldur Gylfason Þessu get
ég ekki svarað, Annas, ekki að svo
stöddu, þetta er eitt af því, sem
þarfnast vandlegrar yfirlegu.
Árelíus Þórðarson: vSæll
Þorvaldur. Nú er búið að
skerða lífeyrissjóð
landsmanna svo mikið að maður sem
unnið hefur í 50 ár fær nokkrum
þúsundköllum meira þegar ævistarfi
lýkur en sá sem aldrei hefur borgað í
sjóðinn. Þurfa ekki stjórnmálaflokkar
að taka þetta inn á sína stefnuskrá?
Þorvaldur Gylfason Við leggjum
áherzlu á að koma bankamálunum
í viðunandi horf til frambúðar
og setja bönkum ströng skilyrði í
lögum til að tryggja, að þeir gegni
hlutverki sínu með hagkvæmum
hætti. Misheppnuð einkavæðing
bankanna 1998–2003 hnykkir á
nauðsyn þessa. Bönkunum má
ekki aftur líðast að vaxa landinu
yfir höfuð og hegða sér eins og ríki
í ríkinu. Þeir þurfa að lúta ströngu
eftirliti og strangri löggjöf til að
halda verðbólgu í skefjum og girða
fyrir hættuna á kollsteypum.
Stefnuskrá Lýðræðisvaktarinnar
tekur á lífeyrismálunum. Þar segir
meðal annars: „Auka verður kröfur
um fagleg vinnubrögð og gegnsæi
í störfum lífeyrissjóða. Treysta
verður skilyrði þeirra til að ávaxta
fé sjóðsfélaga svo hægt verði að
bæta kjör lífeyrisþega. Samræma
þarf lífeyrisrétt milli hins almenna
vinnumarkaðar og opinbera
geirans. Girða þarf fyrir hættuna
á að lífeyrissjóðir verði ríki í ríkinu
í krafti eignarhalds á fyrirtækjum.
[…] Gleymum því ekki, að lífeyris
sjóðir eru eign almennings.“
Guðmundur Sigurðsson:
Þorvaldur hvað finnst þér um
þá birtingarmynd lýðræðis að
þeir sem sóa hundruðum milljarða líkt
og gert var í Kaupþingsláninu geti sjálfir
ráðið því hvort almenningur verði
upplýstur um ferlið?
Þorvaldur Gylfason Mér finnst
það afleitt. Nýja stjórnarskráin tek
ur á vandanum, Hún er í reyndinni
hryggjarstykkið í stefnuskrá Lýð
ræðisvaktarinnar. Nánari útfærslur
er að finna í stefnumiðunum á
xlvaktin.is. Upplýsingafrelsi er eitt
af höfuðmarkmiðum Lýðræðis
vaktarinnar. Við viljum vinna að
gagnsæi og gegn spillingu. Lyftum
leyndarhjúpnum.
Ólafur Sigurðsson: Ef
flokkurinn þinn fær þokkalegt
gengi, hvernig ætlið þið að
tækla þessi endalausu þrátefli sem
koma upp á þingi þegar einn flokkur
kemur með frumvarp sem er drepið
einfaldlega því að það kom frá öðrum
flokki? Það er óþolandi að horfa upp á
góðar hugmyndir deyja eða taka mörg
ár í framkvæmd út af barnalegri
flokkapólitík.
Þorvaldur Gylfason Nýja stjórn
arskráin tekur á þessum vanda
með því að styrkja innviði þingsins
og einnig stöðu þess gagnvart
framkvæmdarvaldinu. Þetta er
einn af fjölmörgum kostum nýju
stjórnarskrárinnar. Í því ljósi þarf
að skoða andstöðuna gegn frum
varpinu á Alþingi, andstöðu gegn
frumvarpi, sem 67% kjósenda hafa
lýst stuðningi við. Andstæðingar
nýrrar stjórnarskrár á Alþingi eru að
kalla áframhaldandi ófremdar
ástand yfir þingið og sífellt minni
virðingu þjóðarinnar fyrir þinginu.
Lýðræðisvaktin vill efla virðingu
Alþingis með því að innleiða vinnu
brögð stjórnlagaráðs á Alþingi.
Már Karlsson: Hvað með
gjaldeyrishöftin, er ekki orðið
afar brýnt að losa um þau sem
allra fyrst? Munuð þið berjast fyrir því?
Ágúst Einarsson lýsir þeim sem
krabbameini í frétt á mbl.is.
Þorvaldur Gylfason Mjög brýnt er
að losa um höftin. Um þetta segir
í stefnuskrá Lýðræðisvaktarinnar:
„Við viljum … losa um „snjóhengj
una“ svo hægt sé að afnema gjald
eyrishöft. Þegar staða gjaldeyris
málanna liggur fyrir, þarf að finna
leið til að losa um „snjóhengjuna“
(nú um 400 milljarða króna eign
erlendra kröfuhafa í bönkunum,
sem vilja flytja féð úr landi). Sé svo
mikið fé flutt úr landi í einum rykk,
er líklegt, að gengi krónunnar falli
til muna með alvarlegum afleiðing
um.“ Ein leið til að aftra slíku geng
isfalli er að semja við kröfuhafa um
uppgjör á löngum tíma. Önnur er að
leggja útgöngugjald á úttekt fjárins
í gjaldeyri. Fleiri leiðir eru færar til að
losna við vogunarsjóðina og undan
snjóhengjunni, en engin þeirra er
góð.
Unnur Aðalbjörg
Hauksdóttir: Hvað segir þú
um þau orð Vigdísar
Hauksdóttur að hugmyndir
Framsóknarflokksins um auðlindir og
nýtingu þeirra samrýmist ekki nýrri
stjórnarskrá, þau vilja verja hagsmuni
þjóðarinnar allrar, ekki vera með þá
pólitísku vinstri sýn sem lagt er upp
með? Sitja ekki allir við sama borð skv.
auðlindavaktinni hjá ykkur?
Þorvaldur Gylfason Tillögur
Framsóknar um auðlindir nú
ganga mun skemmra en nýja
stjórnarskráin, sem kveður á um
auðlindir í þjóðareigu og engar refj
ar. Lýðræðisvaktin vill tryggja, að
nýtingarrétti auðlinda í þjóðareigu
sé úthlutað á jafnræðisgrundvelli,
gegn fullu gjaldi og til hóflegs tíma
í senn. Fráleitt er að halda því fram,
að það sé vinstri slagsíða á auð
lindaákvæði, sem 83% kjósenda
lýstu stuðningi við í þjóðarat
kvæðagreiðslunni 20. október.
Orn Karlsson Sæll Þorvaldur.
Telur þú það ekki næga
ástæðu fyrir afnámi
verð tryggingar að hún á það til að auka
raunvirði skulda vegna raunhækkunar
á verði einstakra vara og vöruflokka í
grunni vísitölu neysluverðs sem stafa
frá framboðs og eftirspurnarþáttum
óháðum gjaldmiðlinum?
Þorvaldur Gylfason Í fram
kvæmd hefur verðtryggingin
reynst hafa tvo megingalla: Þegar
kaupgjald hækkaði hægar en
verðlag, t.d. 2008–2010, uxu skuldir
heimilanna hraðar en laun og mörg
heimili lentu í greiðsluerfiðleikum.
Vegna viðmiðunar fjárskuld
bindinga við verðlag án tillits til
kaupgjalds hafa lántakendur borið
mesta áhættu vegna lánasamn
inga og lánveitendur borið litla
áhættu. Við bætast efasemdir
ýmissa lögfræðinga um lögmæti
verðtryggingar húsnæðis og
neytendalána eins og hún hefur
verið framkvæmd.
Öll þessi atriði þarf að gaumgæfa,
áður en ákveðið er, hvaða leið sé
greiðfærust að því marki að rétta
hluta heimilanna eftir höggið 2008.
Lýðræðisvaktin tekur málið alvar
lega, Okkar stefnuskrá er enginn
loforðaflaumur. Við lofum ekki upp
í ermina á okkur.
Hneyksli á heimsvísu
M
y
n
D
ir
S
iG
tr
y
G
G
U
r
A
r
i
„Endaþarms
kokteill“. Er það
ekki eitthvað sem
ríkisstjórnin hefur verið að
bjóða fólki á Íslandi síðustu
4 ár.“
Olgeir Andrésson við frétt DV
um íslenska vændissíðu þar sem
boðið var upp á kynlíf með ís
lenskum konum gegn greiðslu. Á kynlífs
matseðlinum var meðal annars til boða
sænskur endir og endaþarmskokteill.
„Telur það engu
skipta fyrir mál- og
fjölmiðlafrelsi þótt
Séð og heyrt yrði lokað að
fullu og öllu og bannað að
fjalla um alla skilnaði.“
ingólfur Ásgeir Jóhannesson
við frétt DV um að tímaritinu
Séð og Heyrt hefði verið bannað
að fjalla um skilnað Skúla Mogensen.
„Ég þekki fullt af
fólki sem fæðist án
getnaðarlims, þetta
er bara helvíti algengt held
ég. Svona 50% líkur.“
Oddur Eysteinn Friðriks-
son við frétt um Breta sem
fæddist án getnaðarlims en
á von á einum slíkum með aðgerð.
„Þau eru ofmetin.“
Sólrún Ósk Herbalife
leiðbeinandi um typpi við
fyrrnefnda frétt um Bretann
sem fæddist án getnaðarlims.
Bretinn sagðist vera vinsæll
meðal kvenna vegna þess að
hann nálgaðist þær ekki með kynlíf í
huga. Í kjölfarið lýsti Sólrún Ósk því yfir að
typpi væru ofmetin.
„Er þetta ekki
maðurinn með
hátt í fjörtíu millur
á mánuði sem bankastjóri
Landsbankans? Af því hann
bar svo mikla ábyrgð? Það
er ekki að heyra núna á hon-
um að ábyrgðin hafi verið
mikil fyrst hann „bara vann
þarna“.“
Jack Hrafnkell Daníelsson
við frétt um ummæli Sigurjóns
Árnasonar, fyrrverandi forstjóra
Landsbankans, þar sem hann sagðist
ekkert hafa til saka unnið á meðan hann
vann fyrir Landsbankann. Enda var hann
bara í vinnunni að eigin sögn.
„Bið alla góða
vætti að vaka yfir
þér og þínum ungi
maður.“
Baldur Bjarnason um Svein
Kristjánsson, sem 25 ára gamall
greindist með lífshættulegt
heilaæxli á stærð við golfkúlu. Þá átti
Sveinn fjórtán mánaða son og eignaðist
svo stúlku meðan á veikindunum stóð en
hann er við hestaheilsu í dag eftir djarfa
aðgerð lækna.
„Alveg er ég viss um
að hún hefur ekki
hleypt honum út
úr húsi til að komast í veiði
eða út í náttúruna til að
hlað upp testosterona eins
og öllum karlmönnum er
nauðsýn. Hún hefur þjarkað
honum út á ryksugunni og
í uppvaskinu og dreynað úr
honum það sem eftir var að
hormónunum.“
Þorsteinn Ásgeirsson við frétt
um taívanska konu sem fékk
skilnað frá eiginmanni sínum
vegna getuleysis.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
18
15
37
13
15
nafn: Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir
Aldur: 44 ára
Starf: Þingmaður Sam
fylkingar
Menntun: MA í viðskipta og
hagfræði frá Uppsalaháskóla
og BA í sagnfræði frá HÍ.
16
16
Þorvaldur Gylfason, formaður Lýðræðisvaktarinnar, mætti á Beina línu DV og svaraði spurningum lesenda