Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Qupperneq 52
52 Fólk 22.–24. mars 2013 Helgarblað Hvað er að gerast? 22.–24. mars Föstudagur22 mar Laugardagur23 mar Sunnudagur24 mar Biggi og nýtt myndband Biggi Hilmars, þekktur úr hljómsveitinni Ampop, gaf nýverið út sína fyrstu sólóplötu sem hefur fengið mjög góðar viðtökur og hafa lög af henni hljómað í íslensku útvarpi undanfarið. Fullskipuð hljómsveit spilar með Bigga á tónleik- unum auk þess sem frumsýnt verður glænýtt tónlistarmyndband við lag af plötunni eftir myndlistarkonuna Maríu Kjartans. Faktorý 21.30 Skonrokk Vegna fjölda áskorana verða þessir tónleikar fluttir aftur. Margir af bestu rokksöngvurum þjóðarinnar leiða saman hesta sína ásamt magnaðri hljómsveit. Magni, Eyþór Ingi, Páll Rósinkranz, Pétur Guðmunds og Biggi Haralds flytja rjómann af bestu rokklögum allra tíma. Hof, Akureyri 20.00 Grande Nýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson. Hér er á ferðinni einleikur sem var frumsýndur á Up & Coming á Lókal-leiklist- arhátíðinni árið 2011. Leikari er Hjörtur Jóhann Jónsson en Steinþór Helgi Sunde sér um tónlistina. Leikhúskjallarinn 20.00 Útgáfutónleikar Nóru ásamt Jöru Hljómsveitin Nóra blæs til útgáfutónleika í tilefni af útkomu annarrar breiðskífu sinnar, Himinbrim, sem kom út skömmu fyrir jól. Á tónleikunum verður öllu tjaldað til, og mun sveitin fá til liðs við sig strengjakvartett og slagverksleikara til að koma plötunni í heild sinni sem best til skila. Tjarnarbíó 20.30 Einar Mikael – Heimur sjón- hverfinganna Heimur sjónhverfinganna er frábær fjölskyldusýning sem er troðfull af mögnuðum sjónhverfingum og drep- fyndnum göldrum. Meðal atriða verða heimsfrægar sjónhverfingar, þar á meðal þekkasta sjónhverfing fyrr og síðar þar sem kona er söguð í sundur. Sýningin er undirbúningur fyrir heimsmet sem Einar Mikael stefnir á að slá seinna á þessu ári þar sem hann ætlar að framkvæma fleiri sjónhverfingar á þremur mínútum en nokkur töframaður hefur gert hingað til. Austurbær 19.30 Stærðin skiptir engu M ér finnst það vera brýnt mál að allir geti haldið góða páska. Sjálf ólst ég upp hjá einstæðri móður sem átti tvö börn og veit að svona hátíðar geta valdið kvíða og stressi, segir Helga Þórey Sigurlínu- og Jónsdóttir sem hvetur landsmenn til að gefa hjálparstofnunum landsins páskaegg. Helga Þórey gaf Fjölskylduhjálp fimm egg í fyrra og í ár biðlar hún til landsmanna að vera með og hefur stofnað Facebook-síðu af því tilefni. „Ég er að reyna að vekja athylgi á þessu og athuga hvort fólk geti ekki hjálpað til. Þetta þarf alls ekki að fara í gegn- um mig. Þeir sem vilja geta bara valið hjálparsamtök og farið með eggin sjálf. Stærð eggjanna skiptir engu máli. Að- almálið er að öll börn fái egg.“ Helga Þórey segir Fjölskylduhjálp eiga von á 600 til 800 einstaklingum í mataraðstoð í næstu viku. „Það væri gaman ef það væri hægt að senda all- ar þessar fjölskyldur heim með páska- egg,“ segir hún en bætir aðspurð við að hún hafi alltaf fengið egg yfir há- tíðarnar í æsku. „Sem betur fer. Ég get ekki ímyndað mér hvað það væri sár lífsreynsla að fá ekkert páskaegg sem barn.“ Helga Þórey hefur fengið góð við- brögð við uppátækinu. „Ég verð klökk að hugsa um það. Það eru ótrúlega margir viljugir að taka þátt í þessu á einn eða annan hátt. Sjálf hef ég fengið díl við Freyju og þeir sem vilja geta haft samband við mig í gegnum Facebook- síðuna Gleðjum um páskana og keypt eggin í gegnum mig á góðu verði. Aðrir geta bara komið sínum eggjum sjálfir. Það er algjörlega val hvers og eins.“ n Mæðgin Helga Þórey ásamt átta mánaða syni sínum, Óskari Bjarna. n Helga Þórey hvetur landsmenn til að gefa páskaegg n Tónlistarmaðurinn Biggi Hilmars starfar náið með eiginkonunni „Ég hlýði bara“ Ú tkoman var alveg þess virði. Mér leið eins og ég væri orðinn tíu ára aftur, tilfinn- ingin var sú sama og þegar maður var að hoppa niður af bílskúrum og vesenast í snjónum, segir tónlistarmaðurinn Biggi Hilm- ars sem margir muna eftir úr hljóm- sveitinni Ampop, en Biggi gerði tón- listarmyndband við lag sitt Fool‘s Mate í vonda veðrinu í þar síðustu viku. „Við vorum búin að leigja hús- næði á Seltjarnarnesi en komumst ekki þangað vegna veðurs. Þess vegna leituðum við að flottum stað og fyrir valinu varð Laugarnestangi. Það var einhver tilfinning sem varð til þess að við völdum þann stað, veðrið var bandbrjálað og sjórinn úfinn. Stormurinn leikur lykilhlut- verk í myndbandinu. Ég er frekar partur af leikmyndinni. Þetta er voðalega músíkalskt allt saman, eins og að náttúran og veðrið sé að spila músíkina með mér, alveg einstök til- finning.“ Listrænn stjórnandi myndbands- ins er María Kjartansdóttir, ljós- myndari og listakona, en hún er unnusta Bigga. Aðspurður segir hann ekkert erfitt að lúta skipunum konu sinnar. „Ég viðurkenni að það er ekk- ert langt síðan það var erfitt en í dag er ég farinn að treysta henni svo vel. Hún er svo klár að ég lýt í lægra haldi. Hún getur skipað mér fyrir, fram og til baka, og ég hlýði bara,“ segir Biggi en María er einnig í hljómsveit hans þar sem hún syngur og spilar á hljóð- færi, sem er eitthvað sem hún hefur nýverið tekið upp á. Parið starfar auk þess saman að kvikmyndagerð undir nafninu Open Your Eyes and Listen. „María ferðast reglulega til útlanda þar sem hún kynnist mismunandi menn- ingarheimum með myndavél að vopni. Síðast bjó hún með sígaunum í hellum á Spáni. Ég vinn svo gjarn- an tónlistina. Við framleiðum þetta saman. Auk þess erum við saman í fjöllistahópnum Vinnslunni,“ segir Biggi en parið á eina dóttur saman sem er 11 ára. Biggi hvarf af sjónarsviðinu þegar hljómsveitin Ampop leið undir lok, en er nú að koma sterkur inn í íslenskt tónlistarlíf aftur og í þetta skiptið undir eigin nafni. „Það er slétt ár síðan við fluttum heim aftur eftir átta ára útiveru. Við bjuggum á Spáni, í Glasgow, London og París, lengst af í London. Ég viðurkenni að það var erfitt að flytja heim fyrst um sinn. Við sáum varla til sólar – sem var kannski eðlilegt þar sem við kom- um heim í byrjun janúar,“ segir Biggi og hlær. „En á þessu ári erum við bæði farin að elska að vera hérna. Það er engin útþrá lengur.“ Biggi og María verða með tón- leika á Faktorý í kvöld, föstudags- kvöld, en myndbandið verður frumsýnt fyrir tónleikana sem hefjast stundvíslega klukkan 22. indiana@dv.is „En á þessu ári erum við bæði far- in að elska að vera hérna. Stormurinn í aðalhlutverki Biggi lét óveðrið í síðustu viku ekki hafa áhrif á sig en segir storminn í aðalhlutverki í myndbandinu. Sjálfur sé hann frekar eins og partur af leik- myndinni. Mynd: María KjartanS Kominn heim Biggi, sem margir þekkja úr Ampop, er fluttur heim aftur eftir átta ára dvöl í útlöndum. Samrýmd Biggi og María vinna saman að mörgum verkefnum og eiga saman eina dóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.