Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Page 3
Fréttir 3Mánudagur 15. apríl 2013 þá lækka vextir n Telur raunhæft að komast inn 2015 n Vextir lækkuðu fjórfalt hjá Eystrasaltslöndunum ERM-II 2015 Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, telur raunhæft fyrir Íslendinga að vera kominn inn í ERM-II gjald- miðlasamstarfið árið 2015. Hvað er ERM-II? „Til þess að fá aðild að evrusamstarfinu þurfa ríki að uppfylla ákveðin skilyrði um efnahagslega samleitni (e. convergence) sem kennd eru við hollensku borgina Maastricht. Meðal skilyrðanna er að ríkin taki þátt í ERM-II samstarfinu um gjald- eyrismál í a.m.k. tvö ár og nái að halda gengi gjaldmiðla sinna innan ákveðinna marka. Frá stofnun Evrópusambandsins (ESB) hefur stöðugleiki gjaldmiðla aðildarríkja verið talinn mikilvægur þáttur í efnahags- legum samruna innan Evrópu. Í því ljósi var svokallað ERM samstarf (e. European Exchange Rate Mechanism) sett á fót í mars 1979 sem hluti af almennu samstarfi í peningamálum. Þegar evran var tekin upp í byrjun árs 1999 kom svokallað ERM- II samstarf í stað fyrra ERM samstarfs. Að hluta til er hugmyndin á bak við ERM-II fyrirkomulagið að það þjóni hlutverki „þjálfunarbúða“ þar sem ný aðildarríki byggi upp þekkingu og stofnanir til þess að geta rekið peningastefnu grundvall- aða á stöðugu gengi eigin gjaldmiðils gagnvart evru og því efnahagsstefnu án sjálfstæðrar peningastefnu. Með það að markmiði að hraða efnahagslegri samleitni nýrra aðildarríkja gagnvart evrusvæðinu sem mest þurfa nýju ríkin að tryggja að gengi gjaldmiðils þeirra sveiflist innan ±15% vikmarka, þótt sum hafi kosið að setja gengissveigjanleikan- um mun þrengri skorður. Mikilvægur þáttur ERM-II samstarfsins eru þau tæki og sú aðstoð sem bjóðast ERM-II ríkjunum á meðan á aðlögunarferl- inu stendur. ECB og seðlabankar að- ildarríkja ESB sem standa utan evrunnar hafa komið sér saman um fyrirkomulag til stuðnings við gengi gjaldmiðla ERM-II ríkjanna. Fyrst og fremst er um að ræða möguleg inngrip á gjaldeyrismarkaði, skapist þrýstingur á gengi gjaldmiðils viðkom- andi ERM-II ríkis, þar sem að seðlabanki viðkomandi ERM-II ríkis hafi aðgang að ótakmörkuðu lánsfé frá ECB til að styðja við gjaldmiðilinn. Aðeins er gripið til þessa stuðnings hafi aðrar leiðir til að styðja við gjaldmiðilinn (t.d. hækkun innlendra vaxta eða inngrip með eigin gjaldeyris- forða viðkomandi seðlabanka) ekki dugað og að tryggt sé að hann grafi ekki undan verðstöðugleika á evrusvæðinu. Einnig er gert ráð fyrir að lánsféð frá ECB sé endurgreitt innan þriggja mánaða.“ Heimild: Kafli 21. ERM-II samstarfið og reynsla nýrra aðildarríkja, úr skýrslu Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum sem kom út í september 2012. Fengu nærri þriggja milljarða afslátt n Ríkið veitti afslátt upp á fjórðung veiðigjaldsins n ÚA fékk afslátt H undrað og þrettán sjávar- útvegsfyrirtæki hafa fengið samtals 2,6 til 2,7 milljarða króna lækkun á greiðslu sérstaks veiðigjalds á yfir- standandi fiskveiðiári. Þetta kemur fram í svörum Eyþórs Björnssonar fiskistofustjóra við fyrirspurn DV um málið. 145 sóttu um afsláttinn en 113 fengu hann. Tæplega fjörtíu prósent allra þeirra 289 sjávarútvegsfyrirtækja sem er gert að greiða sérstakt veiðigjald til íslenska fá því af- slátt af gjaldinu. Heildarafsláttur- inn nemur meira en fjórðungi af heildar álagningu veiðigjalda, 8,8 milljörðum króna. Trúnaður ríkir um fyrirtækin Eyþór segist ekki geta gefið upp- lýsingar um hvaða fyrirtæki það eru sem fá afsláttinn á veiði- leyfagjaldinu. Í máli Eyþórs segir að trúnaður ríki um þessar upplýs- ingar. „Ákvarðanir um lækkun sér- staks veiðigjalds eru m.a. byggðar á upplýsingum úr skattframtölum sem afhent eru Fiskistofu í trúnaði. Sömu sjónarmið eigi við um lækkun sérstakra veiðigjalda og ákvarðanir um almenna skatta að því leyti að þeim sem að þeim koma er óheim- ilt að veita upplýsingar um fjár- hagsmálefni þeirra sem þeir fást við í starfi sínu.Í lögum um veiðigjöld nr. 74/2012 er ekki að finna ákvæði um birtingu álagningarskrár, eða annarra sambærilegra upplýsinga. Fiskistofa telur að í upplýsingum um lækkun veiðigjalda hjá eins- tökum gjaldendum geti falist upp- lýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni sem sanngjarnt og eðlilegt er að fari leynt. Af þeirri ástæðu er óheimilt að veita aðgang að upplýsingunum sbr. 9. gr. upp- lýsingalaga nr. 140/2012,“ segir í svari Eyþórs. Því er ekki hægt að greina frá nöfnum þeirra fyrirtækja sem fá afsláttinn. Aðspurður á hvaða forsendum afslátturinn byggi vísar Eyþór til frumvarps um veiðigjöld. Eitt af þeim atriðum sem nefnt er í frum- varpinu er að útgerðarfyrirtæki geti fengið afslátt af sérstaka veiði- gjaldinu ef félagið er mjög skuld- sett. Um þetta segir í frumvarpinu: „Vaxtaberandi skuldir viðkomandi í árslok 2011 samkvæmt skattfram- tali hans fyrir það ár án bókfærðra tekjuskattsskuldbindinga og að frá- dregnum peningalegum eignum séu hærri en svarar 4% af bókfærðu verðmæti ófyrnanlegra eigna sam- kvæmt framtali fyrir sama ár.“ Útgerðarfélag Akureyringa fékk afslátt Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir aðspurður að sjálft félagið Samherji fái ekki afsláttinn af veiðigjaldinu. Hann segir hins vegar aðspurður að eitt af dótturfélögum Samherja, Út- gerðarfélag Akureyringa, fái af- slátt af veiðigjaldinu. Þorsteinn Már segist ekki vera með það á hraðbergi hversu mikinn afslátt Útgerðarfélag Akureyringa fær af veiðigjaldinu. Því virðist sem Útgerðarfélag Akureyringa sé nægilega skuldsett til að geta fengið afslátt af sérstaka veiðigjaldinu. Líkt og komið hefur fram í DV keypti Útgerðarfélag Akur eyringa landvinnslueiningar útgerðarfélagsins Brims á Akureyri árið 2011. Kaupverðið á þessum eignum Brims nam um 14,5 millj- örðum króna og var að mestu greitt með yfirtöku skulda við Lands- bankann. Yfirtaka skulda nam 10,9 milljörðum króna en eiginfjárfram- lag Samherja í viðskiptunum nam 3,6 milljörðum króna. Í tilkynningu um viðskiptin frá Samherja kom fram að eiginfjárframlagið hefði verið fjármagnað að hluta með sölu á erlendum eignum. Ekki var tekið fram hvaða eignir það voru sem voru seldar. Þorsteinn Már segir aðspurður heildarafsláttinn sem veittur er af veiðigjaldinu vera háan. „Þetta er verulega há tala.“ Hann segist ekki skilja af hverju Fiskistofa birti ekki upplýsingar um nöfn þessara út- gerðarfyrirtækja. „Mér fyndist eðlilegt að þetta væri bara birt. Fiskistofa birtir allar mögulegar upplýsingar og um hitt og þetta.“ Hvaða fyrirtæki það eru sem fá þennan afslátt er því á huldu en ætla má að þar í hópi séu mörg af skuldsettustu útgerðarfélögum landsins og virðist stærð þeirra ekki skipta máli heldur hlutfall skulda miðað við eignir. n Jóhanna Margrét Einarsdóttir blaðamaður skrifar johanna@dv.is Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Þetta er veru- lega há tala Skilur ekki þögnina Þorsteinn Már Baldvinsson segist ekki skilja af hverju Fiskistofa greini ekki frá nöfnum þeirra útgerða sem fá afslátt af veiðigjaldinu. Eitt af dótturfélögum Samherja, Útgerðarfélag Akur- eyringa, fékk afslátt vegna mikillar skuldsetningar. Helmingur sótti um Helmingur allra útgerðarfélaga landsins sótti um afslátt á sérstaka veiðigjaldinu. Tæplega fjörutíu prósent íslenskra útgerðarfélaga fengu hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.