Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Page 23
Fólk 23Mánudagur 15. apríl 2013
Ásdís Rán ögrar
fyrrverandi
Ísdrottningin Ásdís Rán birti
mynd af sér á Facebook-síðu
sinni á dögunum þar sem hún er
með byssu í hönd. „Fyrrverandi
maðurinn minn, Garðar, ætti að
vera hræddur núna,“ skrifaði Ás-
dís í myndatexta við myndina
og Garðar svaraði: „ Ef þú héldir
rétt á byss unni og miðaðir henni
beint þá yrði ég kannski hrædd-
ur.“ Nóg er um að vera hjá Ásdísi
sem er komin aftur út til Búlgaríu
eftir að hafa verið á Íslandi í
nokkrar vikur.
Kvödd
með stæl
Líkt og DV sagði frá á föstudag þá
hefur Ástríður Viðarsdóttir kvatt
RÚV og haldið til nýrra starfa í
framleiðsludeild Latabæjar. Síð-
asti vinnudagur Ástríðar var á
föstudag og kvaddi samstarfsfólk
hennar hana með stæl. Ástríði
var komið á óvart af samstarfs-
fólkinu með blöðrum og köku
sem á stóð „Ég dey“ sem mun
vera nokkurs konar einkenn-
isfrasi hennar. Jóhannes Kr.
Kristjánsson úr Kastljósi birti
mynd af uppátækinu á Face-
book-síðu sinni og mátti sjá að
Ástríður var afar snortin af upp-
átækinu.
n Helga safnar fyrir bættum hag þeirra sem minna mega sín
É
g er svolítið stressuð, svo-
lítið mikið meira að segja, en
maður getur ekki haft þetta
endalaust,“ segir Helga Haf-
steinsdóttir sem þann 4. maí
næstkomandi ætlar að láta klippa
af sér svokallaða dredda sem hafa
fylgt henni undanfarin sex ár. Fyrir
þá sem ekki vita þá eru dreddar hár-
tíska sem á rætur sínar að rekja til
Jamaíku og hróður þessara hárlokka
breiddist út um heiminn með vin-
sældum reggítónlistar.
Helga hefur nú ákveðið að það sé
tímabært að losa sig við dreddana
en hyggst þó ekki gera það án til-
gangs. Hún ætlar nefnilega að safna
áheitum áður en þeir fá að fjúka og
það sem safnast fer rakleiðis inn á
minningarsjóð Lofts Gunnarssonar.
Loftur, sem var lengi á götunni, lést
fyrir aldur fram í fyrra og eftir andlát
hans var minningarsjóðurinn stofn-
aður með það að markmiði að bæta
aðbúnað útigangsmanna. Loftur var
vinur Helgu og hún vill því safna
áheitum í hans minningu. „ Loftur
var yndisleg manneskja og hug-
sjónamaður. Hann átti sér draum
um að bæta aðbúnað útigangsfólks
og eftir að hann lést var styrktar-
reikningur stofnaður í þeim tilgangi.
Til þess að heiðra minningu Lofts
og til þess að bæta aðbúnað þessa
útigangsfólks langar mig að styrkja
þetta málefni. Svo er þessi mála-
flokkur algjörlega fjársveltur,“ segir
hún.
Dreddana hefur hún verið með
í sex ár og hún viðurkennir að hún
sé smá stressuð að láta klippa þá
af. „Þeir ná alveg niður á rass, þeir
eru rosalegir,“ segir hún og skell-
ir upp úr. Helga ætlar að halda upp
á dreddana eftir að þeir hafa verið
klipptir af. Þeir eru henni það hug-
leiknir að hún ætlar ekki að henda
þeim. „Tengdamamma ætlar að
prjóna handa mér tösku og festa
dreddana á. Svo ætla ég bara að
geyma hina á góðum stað,“ segir
hún hlæjandi.
Helga viðurkennir að líklega verði
einhverjir fegnir þegar dreddarnir
verða farnir enda hafi ríkt skiptar
skoðanir um ágæti þeirra meðal
hennar nánustu. Mörgum finnst
þeir flottir en það eru aðrir henni
tengdir sem eru ekki svo hrifnir af
þessari hártísku. „Sumir eru búnir
að hata þetta alveg frá byrjun, það
eru ekki allir jafn hrifnir af þessu.
Mamma og pabbi hafa til dæmis
ekki verið neitt sérstaklega hrifin af
þeim,“ segir hún. Helga verður ef-
laust feginn að geta þvegið hárið
almennilega þegar dreddarnir eru
farnir. „Það er reyndar alveg hægt að
þvo hárið en það er kannski örlítið
erfiðara, eðli málsins samkvæmt,“
segir hún.
Þeir sem vilja heita á Helgu
er bent á styrktarreikninginn;
reikningsnúmer 318-26-5171 og
kennitala 461112-0560. Mikilvægt er
að setja sem skýringu á millifærsl-
unni: dreddar. Minningarsjóðurinn
stefnir að því að kaupa ný rúm, dýn-
ur, sængur, rúmföt og fleira í Gisti-
skýlið í Þingholtsstræti. n
viktoria@dv.is
„Tengdamamma
ætlar að prjóna
handa mér tösku og
festa dreddana á
Ósáttur við dómarana
Á
hugaljósmyndarinn og fyrir-
sætan Helgi Ómarsson er
meðal keppenda í sjón-
varpsþættinum Ljósmynda-
samkeppni Íslands. Hann er ósáttur
við dómarana í þættinum sem settu
út á útlit Hólmberts Briem Friðjóns-
sonar sem var fyrirsæta hjá Helga í
síðasta þætti. „Þetta hefur kraum-
að í mér síðan upptökur fóru fram
og loksins eftir að þátturinn hefur
verið sýndur hef ég loksins mál-
frelsið til að tjá pirring minn gagn-
vart þeim ummælum sem fóru fram
í þessum þætti þar sem við kepp-
endur fengum verkefnið „Auglýs-
ingar“,“ segir Helgi á bloggsíðu sinni
inni á Trendnet.is. Af skrifum Helga
að dæma er hann afar ósáttur við
það hvernig dómararnir í þættinum
gagnrýndu útlit fyrirsætunnar, þá
sérstaklega gestadómari þáttarins,
ljósmyndarinn Ari Magg. „Ara Magg
mislíkaði andlitsdrættir hans og jú,
gaf sér það bessaleyfi að segja í sjón-
varpi að módelið
mitt, liti út eins
og dragdrottn-
ing. Og ekki nóg
með það, þá halda
dómarar áfram að
dæma útlit hans á nei-
kvæðan máta er við keppend-
urnir biðum baksviðs,“ segir Helgi
ósáttur á bloggsíðu sinni. „Hvað
hef ég að segja? Jú, mér þykir þetta
bæði ófagmannlegt, og heimsku-
legir dómar. Dómarar í ljósmynda-
keppni eiga að mínu mati að dæma
útfærslu myndarinnar en ekki útlit
einstaklings, þá sérstaklega í sjón-
varpi. Andstyggilegt, og lítið tillit
tekið til tilfinninga annarra. Þessi
ummæli og almennu dómarnir
sem fara um í þessum þætti segja jú
meira um einstaklinginn sjálfan en
nokkuð annað. Fólk skal hafa það í
huga,“ skrifar Helgi og er greinilega
heitt í hamsi yfir þessu og segir að
lokum: „Í lokin vona ég að Hólmbert
fái afsökunarbeðni frá Ara Magnús-
syni varðandi þessi niðrandi um-
mæli í garð hans.“ n viktoria@dv.is
Dreddarnir fjúka í
þágu útigangsmanna
n Keppandi í Ljósmyndasamkeppni Íslands vill að Ari Magg biðjist afsökunar
Ósáttur Helgi er
ósáttur við dóm-
arana í þættinum
og þá sérstaklega
gestadómarann,
Ara Magg. Þessu
sagði hann frá á
bloggsíðu sinni.
Í minningu Lofts Helga klippir af sér
dreddana í minningu Lofts og fara áheitin
inn á minningarsjóð Lofts. Sjóðnum er ætlað
að bæta aðbúnað útigangsmanna.