Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Síða 3
Þ
ingmennirnir Hanna Birna
Kristjánsdóttir og Óttarr
Proppé þiggja tvöföld laun í
sumar í ljósi þess að lausn-
arbeiðni þeirra hjá borginni
tekur ekki gildi fyrr en 1. ágúst. Sem
kunnugt er hafa þau verið á launum
sem borgarfulltrúar undanfarin ár en
ofan á þau bætist nú þingfararkaup
vegna sumarþingsins sem staðið hef-
ur yfir frá 6. júní. Sóttust Hanna Birna
og Óttarr eftir því að lausnarbeiðni
þeirra tæki gildi fyrr og vildu síður fá
launin greidd. Hins vegar taldi skrif-
stofa borgarstjórnar hagkvæmara að
lausnar beiðnin tæki gildi síðar í stað
þess að kallaðir yrðu inn varamenn í
sumar.
Gengu úr nefndum
„Borgarfulltrúarnir tveir hafa beðist
lausnar vegna nýrra starfa og tekur
lausnarbeiðnin gildi frá og með 1.
ágúst í samræmi við samþykktir
Reykjavíkurborgar,“ segir Helga Björk
Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar.
„Borgarfulltrúar vinna sér ekki inn
neinn orlofsrétt eins og aðrir laun-
þegar, en í samþykktum kemur fram
að þeir skuli fá greidd full laun á
meðan sumarleyfi borgarstjórnar og
fundahléi ráða og nefnda stendur.“
Segir Helga að þingmennirnir tveir
hafi gengið úr öllum ráðum og nefnd-
um fyrir sumarleyfi en fái greidd ein-
föld grunnlaun síðasta mánuðinn.
„Síðasta launagreiðslan til þeirra fer
fram þann 1. ágúst og jafnframt fer
fram hefðbundið uppgjör, til dæmis
vegna lífeyrisgreiðslna og starfskostn-
aðar á borð við símkostnað.“
Þrjár milljónir yfir sumarið
Þingfararkaup er 630 þúsund krónur á
mánuði en varaforsetar þingsins, for-
menn fastanefnda og formenn þing-
flokka, fá 15 prósenta álag. Í ljósi þess
að Óttarr gegnir stöðu varaforseta er
hann með 724 þúsund krónur í þing-
fararkaup. Við þetta bætast laun borg-
arfulltrúa sem nema 441 þúsund krón-
um. Samtals er hann því með hátt í 1,2
milljónir króna í mánaðarlaun. Hanna
Birna er enn betur sett því mánaðar-
laun ráðherra, annarra en forsætisráð-
herra, eru rúmlega 1,1 milljón króna.
Með borgarfulltrúalaununum fær hún
meira en þrjár milljónir í laun fyrir
júní- og júlímánuð.
Í 200 prósent starfi
„Lausnarbeiðnin þurfti að vera dag-
sett 1. ágúst til að ég hefði umboð til
að starfa á vegum borgarinnar áfram
sem ég er enn að gera. Í raun og veru er
það bara eftir samþykktum borgarinn-
ar,“ segir Óttar Proppé í samtali við DV.
„Ég kann nú ekki við að tala fyrir hönd
okkar beggja, en ég er að minnsta kosti
enn að sinna störfum fyrir borgina og
sat til dæmis fundi í ráðum og nefnd-
um núna í júní.“ En er Óttar þá í 200
prósent starfi þessa dagana? „Já, svona
meira og minna, því borgarfulltrúa-
starfið er ansi drjúgt,“ svarar Óttar. Ekki
náðist í Hönnu Birnu við vinnslu frétt-
arinnar. n
Fréttir 3Mánudagur 1. júlí 2013
Vildu ekki fá
tvöföld laun
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
n Þingmenn þiggja einnig laun borgarfulltrúa
Hanna Birna Hanna
Birna er innanríkisráð-
herra og fráfarandi
borgarfulltrúi.
Óttarr Proppé Óttarr
er nýkjörinn þingmaður
Bjartrar framtíðar og
fráfarandi borgarfull-
trúi Besta flokksins.
„Á alls ekki að
ganga laus“
n Jóhannes Páll brýst inn og brýtur kynferðislega gegn börnum og öðrum íbúum
2003 – Réðst á unga
konu á veitingahúsi
Árið 2003 réðst Jóhannes, sem
þá hét Jóhann, á konu á salerni
veitingahúss, lamdi höfði
hennar ítrekað við vegg, reif
niður um hana buxur og nær-
buxur og káfað svo á kynfærum
hennar. Hann var dæmdur í níu
mánaða fangelsi.
2004 – Nam fjögurra ára
stúlku á brott
Árið 2004 braust Jóhannes inn
í hús á Seyðisfirði og nam á
brott fjögurra ára stúlku þaðan
sem hún svaf í rúmi sínu. Fað-
ir stúlkunnar kom að Jóhannesi
með stúlkuna í fanginu á stétt
utan við húsið og kom henni til
bjargar. Jóhannes hlaut tveggja
ára fangelsisdóm.
2008 – Braust inn og mis-
notaði fimm ára stúlku
Árið 2008 var Jóhannes hand-
tekinn eftir að hafa brotist inn
í hús við Grettisgötu í Reykja-
vík. Þar misnotaði hann fimm
ára stúlku þar sem hún lá við
hlið ömmu sinnar. Amma stúl-
kunnar vaknaði upp við það að
Jóhannes lá með höfuðið milli
fóta stúlkunnar og sleikti kyn-
færi hennar. Stúlkan reyndi
að segja Jóhannesi að hætta.
Hann komst inn í húsið með
því að brjóta upp stormjárn og
skríða inn um glugga en fyrr
um kvöldið hafði hann setið að
drykkju ásamt bróður sínum.
2013 – Grunaður um inn-
brot og tvö kynferðisbrot
Nú hefur Jóhannes verið
hnepptur í gæsluvarðhald,
grunaður um að hafa endur-
tekið leikinn. Hann er grun-
aður um að hafa brotist inn á
nokkur heimili á síðustu vik-
um. Í tveimur tilfellum er hann
talinn hafa brotið kynferðis-
lega á íbúum.
Brotaferill Jóhannesar
Hættulegur Jóhannes, áður
Jóhann, er sagður hættulegur.
Hann hefur brotist inn á heimili og
misþyrmt íbúum. Brotasaga hans
nær aftur til ársins 2003 og hann
hefur meðal annars verið dæmdur
fyrir að ræna barni úr rúmi sínu.
„ Í samþykktum
kemur fram að
þeir skuli fá greidd full
laun á meðan sumar-
leyfi borgarstjórnar og
fundahléi ráða og nefnda
stendur.
„Stór sigur fyrir mig“
n Dagbjört sigraði álverið og VÍS
É
g er alveg í skýjunum með
þetta. Niðurstaða dómsins er
betri en við þorðum að vona
en dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að ég bæri enga sök
heldur hafi álverið með saknæm-
um hætti sýnt af sér vanrækslu og
beri fulla ábyrgð á tjóninu,“ segir
Dagbjört Steinarsdóttir um niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjaness í
máli hennar gegn Rio Tinto Alcan
(Álverinu í Straumsvík) og Vá-
tryggingafélagi Íslands. DV sagði
frá málinu í júní en dómur féll í
málinu á föstudag. Forsaga málsins
er sú að Dagbjört lenti í vinnuslysi
í Álverinu í júní 2007, þá hafði hún
unnið þar í tæpan mánuð. Slysið
varð með þeim hætti að henni var
gert að ganga frá mótabotni með
krana inni á mótabotnalager í
steypuskála álversins en þegar hún
ætlaði að hífa botninn, sem er 14
tonn, lyftist botninn upp og færð-
ist til og frá og lenti á Dagbjörtu
sem stóð á milli mótabotnsins og
árekstrargrindverks og klemmdist
illa á mjaðmagrind. Dagbjört hlaut
mikla áverka við þetta og glímir enn
við ýmsa líkamlega kvilla vegna
slyssins. Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að Dagbjört ætti rétt á
skaðabótum frá álverinu og voru
álverið og VÍS dæmd til greiðslu
málskostnaðar. „Ég er mjög ánægð
með niðurstöðuna, þetta er stór
sigur fyrir mig og aðra starfsmenn
sem gætu lent í einhverju svona,“
segir Dagbjört. Ekki er ljóst hvort að
VÍS áfrýi dómnum en þeir hafa þrjá
mánuði til þess. n
viktoria@dv.is
Sigraði stóru risana Dagbjört vann mál
sitt gegn Álverinu og VÍS fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur. Hún er ánægð með sigurinn en
vegna vinnuslyss sem hún lenti í þar 2007
hefur hún mátt þola miklar kvalir.