Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Page 26
Azealia Banks Azealia Banks skaust hratt upp á stjörnuhimininn á síðasta ári með útgáfu lagsins 212. Azealia er fædd árið 1991 í Harlem í New York. Hún var aðeins 17 ára þegar hún landaði plötusamningi hjá XL Recordings, en þar áður kom hún tónlist sinni á framfæri í gegnum vefsíðuna MySpace undir dulnefninu Miss Bank$. Fyrir um ári gaf Azealia út plötuna Fantasea og í apríl kom út smáskífan Yung Rapunxel en það er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu hennar sem ber heitið Broke with Expensive Taste. H vort sem það er vegna and­ femínískra rapptexta, tón­ listarmyndbanda eða ein­ faldlega skorts á kvenkyns röppurum hefur rapp­ heimurinn lengi verið stimplaður sem heimur karla. Hingað til hafa afar fáar konur skapað sér nafn í bransanum þó svo að rapparar á borð við Queen Latifah, Foxy Brown, Missy Elliot, Lauryn Hill og nú síðast Nicki Minaj hafi vissulega rutt brautina. Eitthvað virðast konur þó vera að sækja í sig veðrið því sífellt fleiri kvenkyns rapparar birtast nú á sjón­ arsviðinu og sýna okkur að stelpur geta líka rappað. Blaðamaður DV tók saman upp­ lýsingar um nokkra kvenkyns­ rappara sem vert er að fylgjast með á næstunni. n horn@dv.is 26 Fólk 1. júlí 2013 Mánudagur A lex, bróðir hinnar látnu söngkonu Amy Winehouse, sagði í viðtali á dögunum að hann teldi systur sína ekki hafa látist vegna mikill­ ar eitur lyfjaneyslu, heldur lotu­ græðgi. Amy veiktist af átrösk­ unarsjúkdómnum þegar hún var unglingur og náði aldrei að losna úr viðjum hans. Alex segir alla fjölskylduna hafa vitað af ástandinu á Amy en að erfitt hafi verið að takast á við það, enda hafi það verið mjög slæmt. „Hún hefði dáið á endanum, miðað við þá leið sem hún var að fara, en það sem drap hana í raun var lotugræðgi,“ sagði hann í sam­ tali við breska blaðið The Guardi­ an. „Ég held að lotugræðgin hafi gert hana meira veikburða og við­ kvæma. Hefði hún ekki verið með átröskunarsjúkdóm hefði hún verið líkamlega sterkari.“ Amy lést í júlí 2011, aðeins 27 ára að aldri. Hún hafði um árabil glímt við áfengis­ og fíkni­ efnavanda og vakti oftar en ekki athygli fyrir skrautlega framkomu. Rétt fyrir andlátið hafði hún aflýst öllum fyrirhuguðum tónleikum vegna vandræða í einkalífinu og mikillar neyslu. Amy vakti strax athygli fyrir sína fyrstu breiðskífu sem kom út árið 2003. Þremur árum síðar sló hún í gegn á heimsvísu, í kjölfar útgáfu plötunnar Back to Black, en fyrir hana hlaut Amy fimm Grammy­ verðlaun svo eitthvað sé nefnt. n Töffari fyrir allan peninginn n Hin 43 ára Gwen Stefani hefur haldið sér í fantagóðu formi í gegn­ um árin. Hún sást spranga um á Long Beach síðastliðinn laugardag í magabol og víðum gallabuxum sem fóru henni afar vel. Skvísan er með stílinn á tæru og lætur ekki aldurinn stöðva sig þegar kemur að fatavali. Húðflúruð ofurskvísa n Adele birti mynd af húðflúri sínu á Facebook um helgina. Skvísan lét rita orðið Paradís á höndina og fékk hún stjörnu­ húðflúrara, sem kallar sig Bang Bang, til verks­ ins. Þetta er ekki fyrsta húðflúrið hennar, hún er með bókstafinn a á bak við annað eyrað. Fékk nálgunarbann n Rihanna hefur fengið tímabund­ ið nálgunarbann á karlmann sem hefur ofsótt hana um tíma. Maðurinn, Robert Melason, var vistaður á geðdeild eftir að hann var gómað­ ur uppi á þaki heimilis hennar á dögunum. Rihanna segist óttast um líf sitt í kjölfarið og hefur farið fram á varanlegt nálg­ unarbann. 250 milljónir fyrir mynd n Kim Kardashian og Kanye West hafa fengið til­ boð frá tímariti upp á tvær millj­ ónir dollara fyrir fyrstu opinberu ljósmyndina af dóttur þeirra, North West. Erlend tímarit keppast um að fá að birta fyrstu myndina af barninu og eru foreldrarnir ekk­ ert að flýta sér að selja blöðunum mynd af litlu prinsessunni, enda ekki á flæðiskeri stödd fjárhagslega. Stjörnu fréttir Íris Björk Jónsdóttir Stelpur geta líka rappað n Heitustu kvenkyns rappararnir í dag n Sjúkdómurinn gerði hana veikburða Horuð Bróðir Amy segir hana hafa látist vegna lotugræðgi. K atrín, hertogaynja af Cambridge og verðandi barnsmóðir Vilhjálms Breta­ prins, mun fæða fyrsta barn þeirra hjóna á sama sjúkrahúsi og Díana prinsessa eignaðist bræð­ urna Vilhjálm og Harry. Sjúkrahúsið sem um ræðir er St. Mary‘s­sjúkra­ húsið í Paddington í vesturhluta Lundúna, og mun Marcus Setchell, fyrrverandi kvensjúkdómalæknir Elísabetar Bretadrottningar, taka á móti barninu. Við fæðinguna færist Harry prins niður um eitt sæti í röð verðandi landshöfðingja, en hið ófædda barn verður númer þrjú í röð erfingja að bresku krúnunni á eftir afa sínum og föður. Tilkynnt var um þungun Katrínar í desember síðastliðnum og er hún því komin ansi langt á leið, en von er á barninu í júlí. Heimildir herma að hinir verðandi foreldrar viti enn ekki kyn barnsins, heldur vilji láta það koma sér á óvart en fæðingin, og þá væntanlega kyn barnsins, verður tilkynnt líkt og hefðin segir til um. Umslag með upplýsingum um fæðinguna og barnið verður fært til Buckingham­hallar, aðseturs drottningar í Lundúnum, en síðan verður almenningi tilkynnt um mál­ ið við aðalhlið hallarinnar. n Fæðir á sama sjúkrahúsi og Díana n Kyn barnsins enn leyndarmál Segir Winehouse hafa látist úr lotugræðgi 3D Na‘Tee Samantha Davon James er bandarískur rappari sem gengur undir nafninu 3D Na‘Tee. Hún er fædd og uppalin í New Orleans í Louisiana og hefur vakið talsverða athygli á síðustu misserum. Samantha byrjaði ung að rappa og skrifaði undir hjá útgáfufyrir- tæki í New Orleans árið 1999, er hún var aðeins 13 ára. Hún vakti strax mikla athygli í heimaborg sinni og varð fljótt þekkt í rappheiminum þar fyrir góða frammistöðu í svokölluðum „rap battle“. Bandaríski rapparinn og pródúserinn Timbaland tók eftir Samönthu og hjálpaði henni að koma sér á framfæri. Hún sendi frá sér sína fyrstu plötu árið 2006 og þá næstu aðeins ári síðar. Í fyrrasumar sendi hún svo frá sér sína fyrstu breiðskífu, sem hlaut nafnið The Coronation. Verðandi foreldrar Þau Katrín og Vil- hjálmur eiga von á sínu fyrsta barni í júlí. M.I.A. Mathangi Arulpragasm er ensk söngkona, rappari, lagahöfundur, myndlistar- kona og leikstjóri sem kemur fram undir nafninu M.I.A. Hún er af tamílskum (e. Tamil) uppruna og er ættuð frá Srí Lanka. M.I.A. varð heimsfræg eftir að hún gaf út lagið Paper Planes árið 2008, en smáskífa með laginu seldist í yfir þremur milljónum eintaka í Bandaríkjunum einum og var titillagið í ósk- arsverðlaunamyndinni Slumdog Millionaire. Alls hafa komið út þrjár breiðskífur með þess- um mikla töffara og er sú fjórða væntanleg á þessu ári. Nú þegar hafa komið út tvö lög af hinni væntanlegu plötu, annars vegar lagið Bad Girls, sem sló rækilega í gegn, og hins vegar Bring the Noize sem kom út um miðjan júní. Iggy Azalea Iggy Azalea heitir réttu nafni Amethyst Amelia Kelly. Hún er fædd árið 1990 í Sidney í Ástralíu og vakti fyrst athygli árið 2011 er tónlistarmyndbönd við lög hennar Pu$$y og Two Times birtust á YouTube. Í september sama ár gaf hún út plötuna Ignorant Art og eftir að hafa vakið smám saman aukna athygli sendi hún frá sér plötuna TrapGold í október 2012. Fyrsta breiðskífa Iggy er væntanleg í september næstkomandi og mun hún bera heitið The New Classics LoLa Monroe LoLa Monroe heitir réttu nafni Addis Ababa. Hún er fædd í Eþíópíu en ólst að mestum hluta upp í Washington D.C. Í júní 2009 sendi hún frá sér sína fyrstu plötu, Boss Bitch‘s World, og aðeins þremur mánuðum síðar kom sú næsta út, The Lola Monroe Chronicles: The Art of Motivation. Síðan þá hefur hún gefið út tvær plötur til viðbótar, Untouchables og Batteries Not Included. Fimmta plata hennar, Lipstick & Pistols, er svo væntanleg á þessu ári. LoLa er í miklu uppáhaldi hjá rapparanum Wiz Khalifa en hún er jafnframt eina konan á samningi hjá Taylor Gang Records, en það er lítið útgáfufyrirtæki í hans eigu. Angel Haze Angel Haze heitir réttu nafni Raykeea Angel Wilson og er fædd árið 1991 í Detroit í Michigan. Angel er á samningi hjá útgáfufyrirtækjunum Universal Republic og Island Records og hefur verið iðin við að senda frá sér smáskífur og plötur. Á árunum 2011 og 2012 komu út með henni heilar fjórar plötur en von er á hennar fyrstu breiðskífu, Dirty Gold, síðar á þessu ári. Angel hefur vakið mikla athygli fyrir nokkrar smáskífur, þar á meðal útgáfa hennar af gamla Eminem- slagaranum Cleaning Out My Closet, auk þess sem lögin On the Edge og Shut the Fuck Up vöktu nokkuð umtal, enda samin til þess eins að rakka niður rapparann Azealiu Banks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.