Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Síða 2
Vikublað 14.–16. janúar 20142 Fréttir
Fjallað um lekamálið í Sviss
Greint frá því í Ticino News að Tony Omos haldi til í Sviss
S
vissneski miðillinn Ticino
News fjallar um það að innan
ríkisráðherra Íslands, Hanna
Birna Kristjánsdóttir, sem og
starfsmenn innanríkisráðuneytisins,
hafi verið kærð fyrir leka persónu
upplýsingum um hælisleitendur.
Greint er frá því að Tony Omos, hæl
isleitandinn sem kærði lekann til lög
reglu, hafi dvalið í Sviss eftir að hon
um var vísað frá Íslandi. Í umfjöllun
Ticino News segir að ráðherrann hafi
ekki viljað tjá sig um málið og að lög
regla eigi eftir að ákveða hvort það
verði rannsakað frekar.
Í greininni kemur fram að Tony
geti ekki sótt um hæli í Sviss þar sem
hann sé á ábyrgð íslenskra stjórn
valda þar sem umsókn hans um hæli
hafi verið í ferli hér á landi í næstum
tvö ár. Þá er greint frá því að Tony hafi
haldið til á lestarstöð í Bellinzona
dagana fyrir jól eða þangað til hann
fékk inni hjá kunningja sínum í Basel.
Ticino News greinir jafnframt
frá því að Tony óttist um líf sitt verði
hann sendur aftur til Nígeríu, enda
hafi þær ásakanir sem fram komu í
minnisblaði innanríkisráðuneytis
ins, ratað til heimalands hans. Vitnað
er í viðtal DV við Tony þar sem hann
sagði að búið væri að rústa mann
orði hans. Í niðurlagi umfjöllunar
Ticino News segir að Tony fái ekki
hæli á Íslandi, nema þá mögulega ef
rannsókn málsins leiði í ljós að ráð
herrann beri ábyrgð í lekamálinu.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðl
um undanfarna daga bíður ríkissak
sóknari svara frá ráðuneytinu vegna
málsins. n
jonbjarki@dv.is
Frétt á ítölsku Frétt Ticino News er á ítölsku en miðillinn er starfræktur í héraðinu Ticino
sem er ítölskumælandi og sunnarlega í Sviss.
Borgin styrkir
björgunarsveitir
Jón Gnarr borgarstjóri og full
trúar björgunarsveita í Reykjavík
undirrituðu á mánudag styrktar
samning. Björgunarsveitirnar
sem um ræðir eru Björgunar
sveitin Ársæll, Björgunarsveitin
Kjölur, Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík og Hjálparsveit skáta
í Reykjavík. Samtals nemur fjár
hæðin 30 milljónum króna, á
þremur árum, og er hún greidd
óskipt til styrkþega og skulu þeir
sjá um að skipta styrknum á
milli sín skv. sérstöku samkomu
lagi þar um.
n Aðalmeðferð Stokkseyrarmálsins hélt áfram í gær
A
ðalmeðferð í Stokkseyrar
málinu svokallaða hélt
áfram í gær, en þá komu
fimm vitni fyrir dóminn
auk þess sem upptaka
af yfirheyrslu lögreglu var spiluð.
Einstaklingurinn sem þá var yfir
heyrður er nú látinn. Tvö vitn
anna töluðu símleiðis frá útlönd
um, annars vegar faðir Stefáns Loga
Sívarssonar og einnig vinkona fyrr
verandi sambýliskonu Stefáns Loga.
Þá bar maður vitni, en hann var hús
ráðandi hússins sem sakborningarn
ir áttu að hafa farið með fórnarlamb
ið í á Stokkseyri. Einnig bar vinkona
þeirra vitni, en hún hafði verið með
Stefáni Loga kvöldið sem árásin á að
hafa átt sér stað.
Klæddur í ruslapoka og
bundinn við burðarbita
Frásögn húsráðandans passar að
flestu leyti við framburð fórnar
lambsins. Einn sakborninganna,
Davíð Freyr, hringdi í hann og
sagðist vera á leiðinni. Hann hafi
komið ásamt tveimur öðrum, fé
laga sínum og fórnarlambinu.
Þeir hafi greinilega verið að rífast
og húsráðandinn vildi ekki skipta
sér af, svo hann fór inn í eldhús á
meðan hinir voru í stofunni. Hann
heyrði umrót í stofunni og kjallara,
áður en Davíð Freyr og félagi hans
hafi komið og sagt að þeir þyrftu að
fara. „Ég vissi þá strax að sá slasaði
væri í kjallaranum, hringdi í Davíð
og spurði hvað væri í gangi. Hann
sagði manninn vera þar og að ég
mætti sleppa honum. Ég lét hann
hafa klink, kom honum á bens
ínstöð og sagði honum að drífa
sig í burtu.“ Maðurinn var aðeins
íklæddur í svartan ruslapoka í kjall
aranum, þar sem hann var bund
inn við burðarbita.
„Farðu, farðu, farðu“
Faðir Stefáns Loga sagðist hafa verið
í húsnæði í Hafnarfirði kvöldið sem
árásin átti sér stað, en þangað komu
mennirnir með fórnarlömbin tvö.
Annað fórnarlambið, sem hér verð
ur kallaður Árni, hafði sagt Stefáni
Loga frá því að hitt fórnarlambið
hefði sofið hjá fyrrverandi sambýl
iskonu hans. Faðir Stefáns Loga,
hvatti Árna til þess að koma sér í
burtu og sagði hann ekki hafa verið
í haldi sakborninganna. „Ég sagði
við hann: Farðu, farðu, farðu, þú
lendir í vandræðum ef þú ferð með
þeim. Hann hlustaði ekki á mig, það
var eins og hann vildi vera þarna í
vandræðunum.“ Þá sagði hann Stef
án Loga ekki hafa verið lengi í hús
næðinu, ekki nema kannski hálf
tíma. Einnig sagði hann að enginn
þeirra hefði verið edrú. „Það voru
allir útúrdópaðir á einhverju stera
kjaftæði. Það var enginn með sjálf
um sér.“
Setti hettuna á sig
og sneri sér undan
Vinkona ákærðu sagðist hafa verið
með Stefáni Loga í samkvæmi í
Breiðholti umrætt kvöld. Hann hafi
farið inn í herbergi með Árna, og
hún heyrði að þeir voru að rífast.
Stefán bað hana um að koma inn til
sín, en þegar hún kom inn sá hún að
þeir voru að rífast, setti upp hettu,
sem var á úlpunni, og sneri sér út í
horn. Sagðist hún hafa verið í kvíða
kasti allan daginn og var að fara á
taugum við að fylgjast með þessu.
Hana minnti þó að hún hefði séð
Árna liggjandi þar sem hann bað
Stefán fyrirgefningar, en hún vissi
þó ekki af hverju.
Vitnaleiðslum er lokið í málinu
en munnlegur málflutningur fer
fram 21. janúar næstkomandi. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is „Ég lét hann hafa
klink, kom hon-
um á bensínstöð og sagði
honum að drífa sig í burtu.
„Það voru allir
útúrdópaðir“
Mætti ekki
Stefán Logi, Stefán
Blackburn og Davíð
Freyr mættu ekki
fyrir dóminn í gær.
Mynd SigTRygguR ARi
Tróð saur upp í
samfanga
Baldur Kolbeinsson hefur verið
ákærður af ríkissaksóknara fyrir
sérlega hrottafengna líkams
árás á samfanga sinn í útivistar
garði LitlaHrauns þann 10. maí
í fyrra. Baldur er ákærður fyrir
að hafa veist að samfanga, sem
dæmdur hafði verið fyrir kynferð
isbrot gegn barni, þar sem hann
sat á bekk. Tekið um höfuð hans
„makað og troðið saur í andlit
hans og munn og því næst slegið
hann tvisvar til þrisvar í höfuð
og líkama,“ eins og það er orðað
í ákæruskjali. Þolandinn hlaut
bólgna vör, eymsli í brjóstkassa
og tognun í hægri öxl við árásina
og krefst einnar milljónar króna í
miskabætur í málinu.
Framleiðsla
hvalabjórs
stöðvuð
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands
hefur stöðvað framleiðslu á
hvalabjór Steðja. Framleiðsla
á bjórnum hófst fyrir stuttu en
brugghúsið Steðji í Borgarfirði
ætlaði að setja hann á markað
fyrir þorrann.
RÚV greinir frá ákvörðun heil
brigðiseftirlitsins en þar segir
að heilbrigðiseftirlitið leyfi ekki
notkun hvalamjöls sem notað
er í framleiðsluna, um eitt kíló
í hverja tvö þúsund lítra lögun.
Hvalmjölið, sem er úr hvalbeini,
má ekki nota sem fóður fyrir
skepnur til manneldis.
Dagbjartur Ingvar Arilíusson,
eigandi Steðja, segir í samtali við
RÚV að brugghúsið muni hlíta
niðurstöðu matvælaeftirlitsins.