Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 6
Vikublað 14.–16. janúar 20146 Fréttir 13.00 – 13.15 Sýn Geðhjálpar Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar 13.15 – 13.45 Sjálfræðissvipting – eigin reynsla Ágústa Karla Ísleifsdóttir, Björn Hjálmarsson, Sveinn Rúnar Hauksson 13.45 – 14.00 Ákvörðun um sjálfræðissviptingu – reynsla ættingja Fanney Halldórsdóttir, móðir 14.00 – 14.15 Aðkoma lögreglu að sjálfræðissviptingum Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins 14.15 – 14.45 Kaffihlé 14.45 – 15.00 Sjálfræðissviptingar frá sjónarhóli geðlækna geðsviðs Landspítalans Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir réttar- og öryggisdeildar geðsviðs Landspítalans 15.00 – 15.15 Sjálfræðissviptingar frá sjónarhóli félagsþjónstu Akureyrarbæjar Ester Lára Magnúsdóttir, verkefnisstjóri 15.15 – 15.30 „Opið samtal“ í nálgun við sjúklinga í geðrofi Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Geðheilsu- eftirfylgdar og Hugaraflskona 15.30 – 15.45 Í víðu samhengi Héðinn Unnsteinsson ráðgjafi í geðheilbrigðismálum og fyrrum sérfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) 15.45 – 16.15 Samantekt og pallborðsumræður með þátttöku fulltrúa frá Akureyrarbæ, Landspítala, Geðhjálp og lögreglunni Fyrsta málþing Geðhjálpar 2014 HVERS VIRÐI ER FRELSIÐ? Sjálfræðissviptingar, nauðung og valdbeiting í geðheilbrigðisþjónustu. Ráðstefna á vegum Geðhjálpar á Grand Hótel Reykjavík 23. janúar kl. 13. Fundarstjóri Hulda Dóra Styrmisdóttir aðjúnkt við viðskiptadeild HR og fulltrúi í ráðgjafahópi Geðhjálpar Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á ráðstefnuna með því að senda tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda á gedhjalp@gedhjalp.is. Aðgangseyrir kr. 1.500, frítt fyrir félaga í Geðhjálp. Hægt er að skrá sig í félagið á www.gedhjalp.is. Árgjald er kr. 2.000 kr. World Class missir einkaleyfi E inkaleyfisstofa hefur ákveðið að einkaleyfisskráning World Class á vörumerkinu „Kross- fit“ sé ekki lengur í gildi, en bandaríska fyrirtækið Crossfit Inc. fór fram á að slíkt yrði gert. Mánuði eftir að merkið var skráð sendi Crossfit inn andmæli til Einkaleyfisstofu, þar sem talið var að viðskiptavinir gætu ruglað vöru- merkjunum saman. Fyrirtækið hefur alþjóðlegan einkarétt á vörumerkinu Cross- fit og til að nota vörumerkið þarf að hafa nytjaleyfissamning. Fjöl- margar líkamsræktarstöðvar bjóða upp á crossfit-þjálfun og borga ár- leg gjöld til bandaríska fyrirtækisins fyrir notkun vörumerkisins. Þá er sú krafa gerð að þjálfarar hafi réttindi frá fyrirtækinu, sem þeir öðlast á sér- stökum námskeiðum sem haldin eru reglulega. Líkamsræktarstöðvum sem hafa slíkan samning er einnig heimilt að hafa skráð lén og heima- síðu sem inniheldur vörumerkið, en samskipti við fyrirtækið fara að mestu leyti fram í gegnum netið. Óánægðir með Björn Samkvæmt heimildum DV er forsaga málsins sú að sumarið 2012 ákvað Crossfit Inc. að rifta samningi við World Class, sem bauð upp á cross- fit-þjálfun í sérstakri líkamsræktar- stöð í Kringlunni, Crossfit Iceland. Í kjölfar riftunarinnar var nafni stöðv- arinnar breytt í Krossfit. Crossfit Iceland var fyrsta stöðin hér á landi sem hafði samning við Crossfit Inc. Eigandi World Class, Björn Leifs- son, var hins vegar ekki skráður fyrir leyfinu, heldur Arnar Hafsteinsson, fyrrverandi þjálfari stöðvarinnar, sem var með fyrstu þjálfurum lands- ins sem hafði réttindi frá Crossfit Inc. Björn ákvað svo að færa út í kvíarnar og fór að bjóða upp á crossfit-þjálfun í nýrri stöð í Egilshöll. Sérstakt leyfi þarf aftur á móti fyrir hverja og eina stöð, en World Class greiddi ein- göngu fyrir eitt leyfi. Samkvæmt heimildum DV voru forsvarsmenn Crossfit Inc. ekki ánægðir með Björn, sem hvorki vildi greiða fyrir báðar stöðvarnar né gera einn af þjálfurum sínum að tengilið við fyrirtækið í stað Arnars. Hann fékk viðvörun í tölvupósti frá Cross- fit Inc. þar sem honum var gefið tækifæri til þess að bæta úr þessum vandamálum, en það þyrfti að gerast fljótt. Björn brást hins vegar ekki við því og tæpum tveimur mánuðum síðar ákvað bandaríska fyrirtækið að rifta samningnum við Crossfit Iceland. Borið eins fram á íslenskri tungu Um haustið ákvað Crossfit Inc. að andmæla einkaleyfi World Class á vörumerkinu Krossfit, en að mati fyrirtækisins var bandaríska vöru- merkið orðið alþekkt hér á landi. Þá um sumarið hafði Annie Mist Þórisdóttir sigrað á heimsleikum í crossfit annað árið í röð og óhætt að segja að þeir sigrar hafi vakið mikla athygli hér heima. Þá eru stöðvar með samning við Crossfit orðnar 12 talsins, víðs vegar um landið. Í rökum bandaríska fyrirtæk- isins kom fram að of mikil líkindi væru með vörumerkjunum, og að eini stafurinn sem hefði verið breytt væri borinn eins fram á íslenskri tungu. Þannig sé vöru- og þjónustu- líking augljós og hætta á ruglingi til staðar. World Class sagði hins vegar að lítil líkindi væru með vörumerkj- unum, þar sem þeirra merki væri myndmerki en merki Crossfit Inc. væri orðmerki. Sá hluti merkis- ins, sem Crossfit Inc. taldi ráðandi, stafirnir Krossfit, væri ekki aðaltákn merkisins. Því var Einkaleyfisstofa ekki sammála og komst að þeirri niðurstöðu að ruglingshætta væri með vörumerkjunum tveimur og úrskurðaði því að skráning merk- isins World Class Krossfit Iceland yrðir felld úr gildi. Fyrir helgi birti World Class frétt á heimasíðu sinni þar sem fram kom að Krossfit myndi breyta um nafn og yrði nú að „Hörkuformi“. Samkvæmt lýsingu byggir þjálfun- in á sömu æfingum og crossfit-æf- ingakerfið, en þjálfarar verða áfram þeir sömu. n Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is n Crossfit Inc. kemur í veg fyrir notkun á heitinu Krossfit Annie Mist Eigendur Crossfit töldu óumdeilt að vörumerki þeirra væri þekkt á Íslandi, sérstaklega vegna árangurs Annie Mistar á heimsleikunum. Mynd CRossfit inC. Segist ekki skulda Gunnari neitt Jón Ólafsson hafnar ásökunum fatahönnuðar J ón Ólafsson vatnsbóndi hafnar fullyrðingum um að hann skuldi Gunnari Hilmarssyni fata- hönnuði peninga. Í umfjöllun DV um kæru sem fyrirtækið Sonic ehf., sem rekur tískumerkið E-label, lagði fram á hendur Gunnari hjá sér- stökum saksóknara í síðustu viku kall- aði Gunnar kæruna hótunarbréf og sagðist frekar hafa átt von á því að Jón borgaði honum ógreidd laun. Sonic ehf. er rekið af dóttur Jóns, Þórunni, en Jón situr í stjórn þess. „Gunnar var ekki launþegi, hann var verktaki og verktakar senda reikn- inga fyrir þeirri vinnu sem þeir hafa unnið. Hann vann ekki neina vinnu í þeim mánuði sem hann er að tala um því það sást hvergi og það náð- ist ekki í hann,“ segir Jón um ásakanir Gunnars. „Menn þurfa að skila ein- hverju starfi til að fá eitthvað borgað.“ Samkvæmt kærunni var Gunnar ráðinn til starfa sem verktaki hjá Sonic ehf. til að annast kaup á hönnun ís- lenskra hönnuða til framleiðslu á Ind- landi. Samið var um að hann fengi greidd mánaðarleg laun en að hann hefði frjálsan vinnutíma. Í kæru- skjalinu er háttsemi Gunnars sögð hafa kostað félagið um fimmtíu millj- ónir króna. Kæran snýst um að hann hafi ekki staðið sig í starfi heldur hann hafi keypt gamla og gallaða vöru þegar hann átti að kaupa nýja hönnun frá íslenskum fatahönnuð- um. Þá er hann sagður í kærunni hafa keypt gamlan lager af fötum frá merkinu Royal Extreme og látið endurmerkja sem E-label. n adalsteinn@dv.is WikiLeaks segir tengslin engin „WikiLeaks hefur aldrei átt viðskipti við þennan Öryggis- varðaskóla. Það voru tveir einstaklingar sem buðu fram þjónustu sína árið 2011, án þess að þiggja fyrir það greiðslu, og var það þegið í eitt skipti í tengslum við fertugsafmæli Juli- an Assange á Englandi,“ segir Kristinn Hrafnsson, talsmaður WikiLeaks í samtali við DV. Viðtal við Stefán Stefáns- son, stofnanda Öryggisvarða- skólans, hefur vakið athygli síðan það birtist á Vísi. Þar var umfjöllun um lífvarðarnám- skeið sem skólinn hyggst halda í Mexíkó en í viðtali lét Stefán hafa eftir sér að það hefði verið aukin eftirspurn eftir lífvörðum á Íslandi. Sérstaklega í kringum framleiðslu á Hollywood-stór- myndum. Einnig hefði skólinn unnið fyrir WikiLeaks. True North vísaði því í kjölfarið á bug að Öryggisvarðaskólinn hefði sinnt verkefnum fyrir fyrirtæk- ið, eins og fullyrt var. Nú hefur WikiLeaks bæst í hópinn. skuldlaus Jón segir Gunnar ekki hafa skilað vinnu í þeim mánuði sem honum var ekki borgað. Hann segist ekki skulda Gunnari neitt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.