Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 32
Vikublað 14.–16. janúar 201432 Menning Cooper og Gorfer í samvinnu við hönnuði Vinna verk fyrir hönnuði Norræna tískutvíæringsins N orræni tískutvíæringurinn er haldinn í Frankfurt í ár en á sýningunni er fatahönnun þriggja norrænna þjóða í brennidepli, Grænlands, Íslands og Færeyja. Þetta er í þriðja skipti sem sýn­ ingin er haldin og lofar góðu ef marka má falleg listaverk ljós­ myndaranna frá Gautaborg, Söruh Cooper og Ninu Gorfer sem héldu sýningu í Norræna húsinu í fyrra. Sýningin Langa andartakið var sú allra umfangsmesta sem Norræna húsið hefur ráðist í. Norræna húsið er einnig framleiðandi að tískutví­ æringnu og sýningin í Frankfurt verður stærsta verkefnið sem það ræðst í á árinu. Meginsýning NFB nefnist The Weather Diaries og er afrakstur ná­ ins samstarfs Ninu og Söruh með hönnuðum. Þær hafa skapað með þeim íðilfögur ljósmyndaverk. Fyrstu tvær myndirnar hafa birst þar sem ljósmyndararn­ ir vinna með hönnuðunum Niko­ laj Kristensen og Jessie Kleemann frá Grænlandi og Steinunni Sig­ urðardóttur. Tvíæringurinn verður haldinn í Museum of Applied Arts dagana 22.–23. mars. n kristjana@dv.is Fyrir Steinunni Þetta ljósmyndaverk unnu Nina og Sarah með fatahönnuðin- um Steinunni Sigurðardóttur. Skemmtilegt uppátæki Áhrifin eru skemmtileg af samstarfi hönnuða og ljósmyndara. Hér mynda Sarah og Nina fyrir Nikolaj Kristensen og Jessie Kleemann frá Grænlandi. Fokking Hamlet Mikil gleði ríkti í Borgarleikhús­ inu eftir frumsýningu á Hamlet með leikaranum Ólafi Darra Ólafssyni í hlutverki hins þjáða Danaprins. Ólafur Darri þótti fara á kostum en var hógvær að vanda og steig ekki nema hálft skref fram fyrir hópinn í uppklappi eft­ ir sýninguna. Leikverkið var uppnefnt, „Fokking Hamlet“ í eftirpartíi á vegum leikhússins en rithöfund­ urinn Jón Atli Jónasson hrærði duglega upp í texta verksins með tilvísunum í samtímann. Orð eins og tagg, kópí og peist, háskerpa og fleiri slógu viðkvæma leik­ húsgesti á meðan aðrir fögnuðu tilbreytingunni. Leikhússtjór­ inn Magnús Geir var kampakát­ ur, það voru líka Þorgerður Katrín og Hamlet sjálfur, Ólafur Darri, ásamt sinni ektafrú, Lovísu. Gleði eftir frumsýningu Afplánaði í blaðamennsku Sindri Freysson fagnaði tuttugu ára rithöf- undarafmæli á þar síðasta ári þrátt fyrir að vera rétt skriðinn yfir fertugsaldurinn. Hann er afkastamikill höfundur sem hefur sent frá sér á annan tug bóka en fyrir ljóðabókina, Í klóm dalalæðunnar fékk Sindri á þar síðasta ári verðlaun Tómasar Guðmundssonar. Nýjasta verk Sindra er sálfræðitryllirinn Blindhríð og í því veltir hann fyrir sér sambandi eltihrellis á netinu og fórnarlambs hans. Vissulega efni sem á erindi við samtímann. Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Sindra um verkið og innblásturinn, ferilinn og upp- eldisárin á Morgunblaðinu. Í nýrri bók Sindra er sagt frá veður­ fræðingnum Stefáni sem kynnist dularfullri breskri konu í flug­ vél og á með henni stuttan ásta­ fund. Hann á ekki von á að heyra í henni eftir ævintýrið en það fer á annan veg og við tekur æsileg at­ burðarás. „Hún fer að senda honum tölvupóst og skilaboð og nýtir netið með frekar óhugnanlegum hætti til þess að hrella hann. Stefán gerir sér grein fyrir því að hann er orðinn fórnarlamb rafrænna ofsókna og þarf á endanum að taka ákvörðun hvort hann kollsteypist undan ofsóknun­ um eða hvort hann tekur til varna. Þá er spurningin, hvort honum tekst það áður en lífi hans og hans nánustu lýkur. Óvenjuleg kvenpersóna í íslenskum skáldskap Sindri segir kvenpersónu sögunnar ekki alla þar sem hún er séð og hann telur hana óvenjulega í íslenskum skáldskap. „Hún er ekki öll þar sem hún er séð, það er alveg ljóst að þótt aðferðir hennar séu ansi skuggalegar og meðulin róttæk, þá er það sem býr að baki sem vekur mestan óhugnað. En hún geymir ýmis leyndarmál. Ég myndi segja að þetta sé mjög óvenju­ leg kvenpersóna í íslenskum skáld­ skap. Ég man að minnsta kosti ekki eftir nokkurri kvenpersónu í líkingu við hana.“ Sækir sér innblástur norðan heiða Þótt Sindri hafi fest rækilega rætur í Vesturbænum og uni sér vel á þeim slóðum á hann ættir að rekja í Aðal­ dal. Þar dvelur hann öðru hverju og sækir sér innblástur. Í verkinu Í klóm Dalalæðunnar fjallar hann um dalinn ástsæla og fjölskyldu sína. „Í Aðal­ dalnum er fallegt og gott að vera. Fyr­ ir rúmum áratug keypti hluti af systk­ inahópnum stóran hluta jarðarinnar af föðurbróður mínum, sem býr þar enn, og þar dveljum við reglulega. Ég hef nýtt mér umhverfið og fjölskyldu­ söguna, þá hvað mest Í klóm dala­ læðunnar.“ Fjölskyldusögur Sindra eru krassandi. Langafi Sindra, Jakob Þorgrímsson sem kalla mætti fyrsta jafnaðarmann Íslandssögunnar var til að mynda í sambúð með systrum. „Menn kölluðu hann fyrsta jafnaðar­ mann Íslands í gamni. Hann átti 10 börn, fimm með hvorri systur. Meira að segja svo jafnt að hann átti fjóra drengi og eina stúlku með annarri og fjóra drengi og eina stelpu með hinni. Langafi var tveggja kvenna maki Sagan um Jakob og konurnar hans er merkileg. Hann varð ástfanginn af ungri konu en var látinn giftast eldri systur hennar af hagkvæmnisástæð­ um. Sú var húsmæðraskólagengin og þótti vænni kvenkostur handa honum. Hann leitaði hins vegar áfram í hina yngri og fór langan veg að heimsækja hana í öllum veðr­ um. Að því kom að eldri systirin taldi ómögulegt að Jakob væri að flækj­ ast um landið í vondum veðrum, ástin væri að stefna honum í lífs­ hættu, og hún ákvað að yngri systir­ in flytti hreinlega til þeirra. Ég hef séð mynd af svefnherberginu. Rúm hjónanna voru hlið við hlið og rúm systurinnar út við veggendann. Svo fór hann bara á milli rúma og átti með systrunum öll þessi börn. Þetta hefur verið erfitt fyrir systurnar og ástandið á heimilinu örugglega stundum þungt. Það er til ein ljós­ mynd af þeim öllum saman og Jakob er ósköp skömmustulegur á svipinn á myndinni,“ segir hann og hlær. Byrjaði á því að skrifa ljóð Skáldskapur var í hávegum hafður í fjölskyldu Sindra úr Aðaldalnum og hann sjálfur haft áhuga á ritstörfum frá blautu barnsbeini. Hann byrjaði ungur að setja saman prósa og ljóð. Hann var aðeins rétt rúmlega tví­ tugur þegar hann kynnti sitt fyrsta verk fyrir Jóhanni Páli Valdimars­ syni á Forlaginu. „Þegar ég er að vaxa úr grasi byrjuðu flestir höfundar á því að semja ljóð. Í dag þá er þetta breytt. Ung og efnileg skáld sjá frem­ ur tækifæri í því að skrifa handrit en ljóð til að vekja á sér athygli. Sjálfur var ég farinn að skrifa sem barn og unglingur. Ég skrifaði bæði prósa og ljóð og hef gert síðan. Í ljóðum getur maður leyft sér að vera knappari, óræðari og mystískari. Reika á milli tveggja heima. Skáldsagan gerir aðr­ ar kröfur. Í skáldsögunni vil ég halda lesandanum og skemmta honum. Ég vil að sögur mínar færi lesandan­ um eitthvað nýtt. Ég geng inn til Jó­ hanns Páls Valdimarssonar rétt rúm­ lega tvítugur og er þá með ljóðabók í farteskinu. Hann sat á bak við skrif­ borð í reykjarmekki og yfirheyrði mig um flesta hluti. Ég gekk út fremur óviss um framtíðina en viku seinna fékk ég símtal frá honum og framtíð­ in ráðin því ég hef verið skrifandi síð­ an og þótt ég sé nú fremur ungur enn þá átti ég 20 ára rithöfundarafmæli á þar síðasta ári.“ Átján ára í sambúð Allt gerðist fremur fljótt hjá Sindra ungum. Hann var aðeins átján ára þegar hann fór í sambúð og tveim­ ur árum síðar þurfti hann að sjá fyrir barni. Skáldskapurinn nægði ekki fyrir hinu daglega brauði og því réð hann sig til Morgun­ blaðsins. „Ég kynntist stúlku sem bjó í hvítu húsi á móti kirkjugarðin­ um. Eftir skamman tíma var barn á leiðinni. Ég var því ungur kom­ inn með fjölskyldu og þurfti að vinna fyrir hinu daglega brauði. Ég stundaði blaðamennsku í mörg ár samhliða ritstörfum. Ég réð mig til Morgunblaðsins. Á þeim tíma voru Matthías Johannessen og Styrmir Gunnarsson ritstjórar. Það var far­ sælt samstarf og þeir mynduðu mikið yin og yang. Það var ákveðið jafnvægi í blaðinu á þessum tíma. Þegar ég var að byrja var blaðið að slíta tengslin við Sjálfstæðisflokk­ inn, þá er hætt að sitja þingflokks­ fundi og fáir spurðir um þingflokks­ skírteini. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Lítill heimur „Það er mikil barátta um hvern lesenda,“ segir rithöfundurinn Sindri Freyssonu um bókmenntaheiminn á Íslandi. Mynd SiGtryGGur Ari „Það er enn þá gott fólk á Morgun- blaðinu en eignarhaldið og stefnan sem það setur þeim heldur þeim aftur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.