Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 21
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Umræða 21 Spurningin Hvern vilt þú í stól útvarpsstjóra? S onardóttir mín fæddist í fyrir rúmu einu og hálfu ári og þá eignaðist ég loksins barnabarn. Það var búið að segja mér að þetta yrði skemmtilegt, en hvílík dásemd. Ég veit vel að barnabörn annarra eru frábær en þetta ber klár­ lega af. Fljótlega eftir að Emma fæddist fór hún að ferðast um heiminn og hefur nú búið í fjórum heimsálfum og heimsótt fjölda borga og er því kölluð Emma víðförla. Vídeóspjall í gegnum netið bjargar því að við Emma erum í nær daglegu sambandi, en auk þess hef ég heimsótt hana tvisvar til útlanda og þá höfum við átt indælar stundir saman. Oftar en ekki hefur verið farið á róló eða lóló eins unga daman orð­ ar fyrirbærið sem er hennar upp­ áhaldsstaður. Þetta hefur leitt hug minn að róluvöllum og fjölskyldu­ vænu umhverfi í Reykjavík sem mis­ mikið er af og skortir víða. Austurvöllur Vinsældir Austurvallar jukust til muna þegar kaffihúsin opnuðu þar eitt af öðru. Nú er svo komið að á góðviðris­ dögum á sumrin safnast þar saman gríðarlegur fjöldi fólks á öllum aldri til að njóta útivistar og samveru á þessum skjólgóða bletti. Börn hafa ekki mikið við að vera á vellinum og í raun er styttan af Jóni Sigurðssyni eina leiktækið. Breytt nýting vallarins kallar á annars konar hönnun og því lagði ég til í borgarráði um daginn að Austur­ völlur yrði endurskipulagður og meðal annars komið þar fyrir huggu­ legum leiktækjum. Ég hef trú á því að íbúarnir sýni þessu verkefni áhuga og margir vilji leggja hönd á plóg. Því lagði ég til að hefja verkið með almennri hug­ myndasamkeppni sem fram færi í sumar. n „Börn hafa ekki mikið við að vera á vellinum og í raun er styttan af Jóni Sigurðs- syni eina leiktækið. Lóló á Austurvöll Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Aðsent Mynd EyÞór ÁrnAson „Við erum rasistar, og það þarf að gera eitthvað í því. F yrir nokkru síðan eignaðist litla frænka mín vinkonu af pólsku ætterni. Dag einn kom þessi vinkona hennar í heimsókn, og þegar móðir hennar kom til baka að sækja hana buðu foreldrarnir henni í kaffi. Hún samþykkti boðið undrandi. Henni hafði aldrei áður verið boðið í kaffi. Hún hafði búið á þessu landi í mörg ár. Samt hafði aldrei nokkur maður sýnt sóma sinn í að bjóða henni í kaffi, sem er erfitt að forð­ ast ef þú býrð í umræddu sveitarfé­ lagi. Að minnsta kosti ef þú ert Ís­ lendingur. Þetta atvik fékk mig til að hugsa hvort við Íslendingar séum eins umburðarlyndir og við viljum lát­ ast. Að vísu stöndum við framar­ lega í málefnum samkynhneigðra, kynjajafnrétti og þar fram eftir göt­ um, en hvað varðar rasisma erum við enn á miðri tuttugustu öldinni. Það virðist vera einhvers konar viðtekin skoðun að Pólverjar séu annars flokks borgarar, fólk sem getur ekki mögulega orðið eitt­ hvað annað en verkamenn og fylli­ byttur. Þessi skoðun er mun við­ teknari heldur en ég hef hingað til reynt að sannfæra sjálfan mig um. Fólk segir Pólverjabrandara sín á milli, allir hlæja en enginn leyfir sér að efast um hvort það sé siðlegt að segja slíka brandara eða ekki. Fólk hneykslast yfir því að þeir Pól­ verjar sem koma hingað til lands „asnist ekki til að læra almenni­ lega íslensku“. Hvernig er hægt að ætlast til þess að útlendingar geti lært tungumálið okkar ef enginn vill nokkurn tímann tala við þá? Tungumál með með fjögur föll, þrjú hljóðvörp og fimm fornafna­ flokka? Kynþáttafordómar á Íslandi eru eins og gríðarstór fíll í stofu sam­ félagsins sem enginn vill tala um. Það er svo auðvelt að gleyma hvað við erum óumburðarlynd í raun og veru. Það er svo auðvelt að mála sér mynd af fullkomnu samfé­ lagi þar sem eina vandamálið eru spilltir bankamenn og pólitíkusar. En það er alls ekki þannig. Stund­ um þurfum við að líta í eigin barm og sjá bláköldu staðreyndirnar. Við erum rasistar, og það þarf að gera eitthvað í því. n Fordómar á Íslandi Helgi Jónsson Aðsent Þorsteinn Jakobsson. – DV Ég varð ástfanginn af hlutum sigurður Kaiser er ósáttur við fyrirkomulag þorrablótsins í Bolungarvík. – Facebook Það var ekki rétt af mér að kalla þig rasista Hanna Birna Kristjánsdóttir vildi ekki tjá sig um kæru á hendur sér. – DV Ég þarf ekkert að tjá mig um það Myndin Fyrir dómi Vitnaleiðslur fóru fram á mánudag í svonefndu Stokkseyrarmáli, þar sem þeir Stefán Logi Sívarsson, Stefán Blackburn, Davíð Freyr Magnússon, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnarsson eru ákærðir fyrir tvær hrottalegar líkamsárásir, mannrán og pyntingar í íbúðarhúsi á Stokkseyri, síðastliðið sumar. Mynd siGtryGGur Ari Könnun Á að leyfa einhleypum að sækja þorrablótið í Bolungarvík? 38,4%61,6% 391 AtKvæði Já Nei „Ég væri til í að sjá Magnús Geir. Hann er búinn að gera magnaða hluti í leikhúsinu, kannski getur hann gert það sama uppi á RÚV.“ Benedikt Bjarnason 38 ára framkvæmdastjóri „Magnús Geir, mér finnst hann spennandi, og Laufey Guðjónsdóttir. Auk þess er Gauti Sigþórsson góður kostur – og Edda Björgvins. Hún er fyndin.“ Bjargey Ólafsdóttir 31 árs myndlistar- og kvikmyndagerðarkona „Ég veit það ekki. Ég samt ánægð með brotthvarf Páls.“ Jóhanna María Svövudóttir 21 árs leikskólakennari „Ég hef ekki hugmynd um það. Ég vil samt auka veg menningar­ umfjöllunar.“ Tryggvi Ólafsson 67 ára bókavörður „Ég þekki enga umsækjendur. Þegar ég bjó á Ítalíu voru bara gamlar bíó­ myndir í sjónvarpinu. Vonandi verður RÚV ekki þannig.“ Alice Demurtas 21 árs háskólanemi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.