Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 14.–16. janúar 201438 Fólk Guðni gerist fararstjóri á Kanarí „Ég á að sjá um kvöldvökur og íslenskan húmor,“ segir ráðherrann fyrrverandi É g verð skemmtanastjóri hjá Vita ferðum – þeir hafa beðið mig um að taka að mér að verða leiðsögumaður fólks­ ins og halda úti dagskrá. Söngur, gleði og sagnagerð. Ég á að sjá um kvöldvökur og íslenskan húmor,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþinginsmaður og landbúnað­ arráðherra, sem er óhræddur við að feta nýjar slóðir. Nú er hann búinn að taka að sér nýtt hlut­ verk en hann ætlar ásamt eigin­ konu sinni, Margréti Hauksdóttur, að vera leiðsögumaður í ferð fyrir eldri borgara til Kanarí í mars og apríl. Miklu stuði hefur verið lof­ að í ferðinni; hjónin munu standa fyrir hressilegum morgnum með gönguferðum og hreyfingu auk skemmtidagskrár á kvöldin. Guðni er þekktur fyrir að vera mikill sagnamaður og er einn vinsælasti veislustjóri landsins. Það verða því eflaust ófáar sögurnar sem fá að fjúka í ferðinni. Hjónin hafa farið árlega til Kanarí í nokkur ár og yfirleitt á þessum árstíma þar sem þau vilja vera heima á Íslandi yfir sumar­ tímann. „Það er árlegt hjá okkur að fara á þessum tíma. Ég nenni ekki að fara til útlanda á sumrin. Þegar nóttlaus voraldarveröld og yndis­ legur tími ríkir á Íslandi þá finnst mér best að vera heima,“ segir Guðni kátur. n viktoria@dv.is Guðni og Margrét Hjónin ætla að halda uppi stuðinu fyrir eldri borgara á Kanarí. Ætlar að fegra húsmæður Það er alltaf nóg um að vera hjá Ásdísi Rán sem birti eftirfarandi skilaboð á Facebook­síðu sinni: „Kæru húsmæður ATH! Ég er að leita af [sic] sjálfboðaliða (30­40 ára) í 3 mán beauty/Fitness átak opinberlega, þarf að hafa tíma æfa og fara í treatment á daginn. Einnig vantar mig sjálfboðaliða í fegrunartreatment s.s botox, varafyllingu og fl. Ég er ekki að fara hjálpa einhverri sem þarf ekki á því að halda sendið mér stutta reynslusögu af hverju þú?“ „Frábært að þættirnir séu að fara í sýningu“ n Lífsleikni Gillz í bíó í febrúar n Sex þættir verða að einni mynd A uðvitað finnst mér frábært að þættirnir séu að fara í sýn­ ingu. Sérstaklega þar sem ég kom nú ekki einn að þessu, heldur gríðarlega mikið af hæfileikaríku fólki sem lagði mikið á sig við gerð þáttanna. Það er því mjög gaman að sjá alla þessa vinnu skila sér á hvíta tjaldinu í febrúar,“ segir Egill Einarsson, maðurinn að baki Gillzenegger eða Gillz, um það að þættirnir Lífsleikni Gillz verði frum­ sýndir í Sambíóunum þann 7. febrúar næstkomandi. Rúm tvö ár eru síðan upptökum á þáttunum lauk og mikil óvissa verið um hvort þeir yrðu sýnd­ ir eða ekki. Lífsleikni Gillz er sjálfstætt framhald þáttanna Mannasiðir Gillz sem sýndir voru á Stöð 2. Mikil óvissa ríkt um þættina Upprunalega stóð til að Lífsleikni Gillz yrði sex þátta sería sem sýna átti á Stöð 2. Sýning þáttanna var hins vegar sett á ís þar sem Egill og unnusta hans voru kærð fyrir nauðg­ un í desember 2011 þegar upptökum á þáttunum var nýlega lokið. Sýningu þáttanna var frestað meðan á rann­ sókn málsins stóð en á endanum vís­ aði saksóknari málinu frá. Sagt var svo frá því að Stöð 2 ætlaði sér ekki að sýna þættina. Síðastliðið haust bárust svo fréttir af því að til stæði að sýna þættina í kvikmyndalengd en ekki varð úr því heldur og var því haldið fram á kvikmyndavefnum Svarthöfða að Ingibjörg Pálmadóttir, eigandi 365 sem rekur Stöð 2, hefði stöðvað sýningu þáttanna. Sigmar Vilhjálmsson, einn eigenda Stórveld­ isins, sagði það þó vera af og frá – Stórveldið ætti framleiðslurétt á þátt­ unum en ekki væri tímabært að sýna þá að sinni. Það hefur því ríkt mikil óvissa um það lengi hvort þættirnir yrðu yfirhöfuð sýndir. Lofar góðri skemmtun Nú hefur hins vegar verið ákveðið að sýna Lífsleikni Gillz í breyttri mynd. Þættirnir hafa verið klipptir saman og efnið stytt upp í kvikmyndalengd. „Þetta var stytt að einhverju leyti. Í grunninn eru þetta sex sjónvarps­ þættir sem við klipptum til að þetta meikaði sens,“ segir Hugi Halldórs­ son einn eigenda Stórveldisins sem stóð að framleiðslu þáttanna. „Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta fara í bíó – hinir sitja heima. Fyrir okkur breytir það litlu. Þetta var tilbúið. All­ ir þeir sem mæta munu hins vegar skemmta sér alveg konunglega,“ segir Hugi. Ekki vitað um fjölda sýninga Aðspurður hvort að efni þáttanna Lífsleikni Gillz hljóti nýja merkingu í ljósi þeirra atburða sem töfðu sýn­ ingu myndarinnar segir Hugi svo ekki vera. „Þetta er ekki þannig efni. Það er mikill misskilningur með þetta efni. Það er ekki kvenfyrirlitn­ ing í þessu efni. Það er frekar í hina áttina – það er verið að kenna mönn­ um hvernig á að koma fram,“ segir hann og bætir við: „En eins og ég segi – það eru einhverjir sem vilja sjá þetta – þeir fara og sjá þetta. Hin­ ir sitja heima. Þeir sem hafa áhuga, þeir eru velkomnir.“ Hugi segir sýn­ ingar á þáttunum alfarið vera í hönd­ um Sambíóanna og aðsókn stjórni því hversu lengi myndin verður sýnd. „Kannski verður þetta bara ein sýn­ ing, kannski 50. Ef það kemur enginn þá hljóta þeir að hætta að sýna þetta en eflaust er eitthvað jafnvægi þarna á milli. Það er allavega klárt mál að þeir sem koma munu hafa gaman af.“ n Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Lofar góðri skemmtun Þættirnir voru tilbúnir fyrir tveimur árum og upprunalega átti að sýna þá á Stöð 2. Lífsleikni Gillz Hér má Gillz í hlutverki sínu í þáttunum. „Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta fara í bíó – hinir sitja heima Festist við blaðakonu Mikill fjöldi fólks var viðstaddur frumsýningu Mið­Íslands á nýju uppistandi í Þjóðleikhúskjallar­ anum síðastliðið föstudagskvöld. Meðal þeirra sem voru mættir var Björn Ingi Hrafnsson, eig­ andi Vefpressunnar. Vegna mik­ ils mannfjölda á sýningunni var töluvert þröngt í salnum og þegar Björn Ingi var að fara til sætis síns vildi ekki betur til en að jakka­ tala hans flæktist í hári hinnar hárprúðu blaðakonu Hönnu Ólafsdóttur sem sat í röðinni fyrir framan. Vakti það talsverða kátínu gesta þegar Björn Ingi reyndi að losa sig frá Hönnu en það tók dágóða stund og var rætt um það í salnum að atvikið hefði verið ágætis upphitun fyrir uppi­ standið. Forsetahjónin í stuði Hljómsveitin Sigur Rós fagnaði 20 ára afmæli sveitarinnar með heljarinnar afmælisveislu í Iðnó á laugardag. Þar var margt góðra gesta og mátti sjá mörg þekkt andlit í veislunni. Þar á meðal voru forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff sem heiðruðu afmælisbörnin með nærveru sinni. Hjónin skemmtu sér vel í veislunni og spjölluðu við gesti. Fyrr um kvöldið mætti Ólafur á frumsýn­ ingu Hamlet í Borgarleikhúsinu. Ólafur og Dorrit létu partístandið ekki á sig fá og til þeirra sást í IKEA á sunnudeginum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.