Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 4
Vikublað 14.–16. janúar 20144 Fréttir Álag á sjúkraliða sagt ómannlegt n Sjúkraliðar brenna út í starfi á lágum launum n Lítil endurnýjun Á lag á sjúkraliðum er ómann­ legt og er að slíta þeim út. Stöðugt vinnuálag veldur veikindum og vinnuslysum og launin eru allt of lág að sögn Kristínar Á. Guðmundsdóttur, formanns Sjúkraliðafélags Íslands. Álagið fellur oft í skuggann af álagi á lækna og hjúkrunarfræðinga og segir Kristín að oft og tíðum sé fólk að brenna út í starfi. „Það verður bara að segjast eins og er að það er mesta álagið á þeim. Þó að álag sé mikið á hinum, er líkamlegt álag á þessum hópi alveg gríðarlegt.“ Líkt og hjá mörgum öðrum stéttum eru kjarasamningar við sjúkraliða að renna út um mánaðamótin. Kristín segir að erfitt geti reynst að endurhæfa fólk í þessum spor­ um. „Endurhæfingarráðgjafar fé­ lagsins hafa komið á máli við mig og bent á að þetta gangi ekki upp. Þær eru að fá til sín sjúkraliða sem glíma við langvarandi veikindi, þeir eru búnir og það er varla hægt að endurhæfa þá,“ segir Kristín. Ómannlegt Kristín bendir á að líkamlegt álag á sjúkraliðum sé mikið. Flestir sjúkra­ liðar eru konur og meðal aldur þeirra er hár. „Sjúkraliðar sinna margir mjög veikum einstaklingum, þurfa að snúa þeim, baða og klæða. Um er að ræða sjúklinga sem eru allt upp í 200 kíló,“ segir Kristín og bendir á að sjúkraliðar þurfi oft að sinna sjúklingum einir og óstuddir. Þetta skapi verulega hættu á vinnu­ slysum. Þeir sjúkraliðar sem DV hefur rætt við eru sammála. „Að baða mikið hreyfihamlaða mann­ eskju einn skapar stórhættu,“ segir einn þeirra. Í samtali við DV segja sjúkraliðar, konur sem starfað hafa á Landspít­ alanum, að álagið sé ómannlegt. Ein þeirra er enn í námi og segist njóta þess að læra, en starfsnám­ ið valdi henni miklu hugarangri. „Álagið er þannig að ég varð eigin­ lega bara veik af því að vinna svona mikið. Þegar maður varð svo veik­ ur fann maður hvernig allir urðu reiðir og baktöluðu mann. Þetta var eins og ég væri að bregðast með því að vera mannleg og veikjast,“ segir hún. Alvarleg vinnumenning Kristín tekur undir þetta og seg­ ir að vinnumenningin sé orðin mjög alvarleg. „Undurmönnun­ in er mikil fyrir. Ef einhver veikist þá er fólk ekki kallað inn í þeirra stað og þá eykst álagið. Það er ekki hægt að ýta verkefnunum, eða sjúk­ lingunum, á undan sér. Það þarf að sinna þeim,“ segir hún. „Inn á borð til mín kemur mikið af svona upp­ lýsingum,“ segir Kristín og bendir á að þeir sjúkra liðar sem sæki um sjúkradagpeninga séu oftar en ekki með sjúkdóma sem rekja megi til líkamlegs og andlegs álags. Oft eru það stoðskerfissjúkdómar eða and­ legir sjúkdómar. „Þetta er mikið áhyggjuefni,“ segir Kristín. Minna álag á lækna Kristín segist hafa rætt við Vinnu­ eftirlitið um það álag sem er á starfsfólki í heilbrigðisgeiranum, þá sérstaklega sjúkraliðum. Vinnu­ eftirlitið hafi hins vegar vísað á landlækni. „Það þýðir ekkert að tala við Vinnueftirlitið þó svo að fólk sé að verða að örkumla aumingjum í vinnunni,“ segir Kristín og er mjög ósátt. „Vinnueftirlitinu kemur það ekki við og segist ekki hafa heim­ ildir til að gera neitt í málinu. Land­ læknisembættið á að fylgjast með heilbrigðisstéttum, en er ekki að sinna því,“ segir Kristín. Kristín segist ekki gera lítið úr því álagi sem er á aðra heilbrigðis­ starfsmenn, en segir að það sé kom­ ið út fyrir öll mörk í starfi sjúkraliða. Heilbrigðisráðherra hefur gef­ ið það út að minnka eigi álag á lækna með því að nýta betur sjúkra­ liða og hjúkrunarfræðinga. Fé­ lag hjúkrunar fræðinga er ekki sátt við þessa stefnumótun, en Kristín segist hafa tekið vel í það og von­ ast til þess að fagmenntun þeirra fái þá að njóta sín og að þeir geti sinnt þeirri hjúkrun með þeirri menntun sem þeir hafa aflað sér. „Það þarf þá að nota þá menntun sem þarna er til staðar,“ segir hún. „Það er er líka liður í álaginu að gera lítið úr fag­ stéttinni. Það er erfitt að vera alltaf undir það seldur að það séu aðrir sem stýri, stjórni og drottni, sem oft­ ast eru þá hjúkrunarfræðingar,“ segir hún og segir að það sé enn svo, þrátt fyrir lagabreytingu, að hjúkrunar­ fræðingar séu settir yfir sjúkraliða. „Það er óeðlilegt að þeir séu ekki meira nýttir sem yfirmenn inni á hjúkrunarheimilunum,“ segir Krist­ ín og bendir á að margir sæki sér áframhaldandi menntun í öldr­ unarhjúkrun. „Það eru staðir sem telja þetta ógna hjúkrunarfræðing­ um og nýta ekki þessa sérþekkingu, en það eru auðvitað ekki allir sem hugsa þannig. Þetta er misjafnt.“ Gríðarleg óánægja með laun Starfið getur komið niður á fjöl­ skyldunni, að mati sjúkraliða sem segjast að jafnaði tvisvar eða þrisvar í mánuði eiga erfitt með að sinna skyldum sínum gagnvart fjölskyldunni, vegna þess hversu miklum tíma þeir verja í vinnunni. Mörgum sjúkraliðum gengur erfið­ lega að lifa af launum sínum. Meðal laun sjúkraliða eru um 270 þúsund krónur fyrir fullt starf. Þeir telja sig hafa dregist talsvert aftur úr öðrum félögum, svo sem öðrum stéttum innan BSRB. Í nýrri launa­ könnun sjúkraliða kemur fram að 72,6 prósent svarenda voru ósátt við launin sín. Aðeins 22,8 prósent stéttarinnar starfa í fullu starfi. Meðalaldur stéttarinnar er mjög hár eða 51,2 ár sem og starfsaldur sem er 18 ár. Þetta skýrist meðal annars af því að þrátt fyrir að sjúkraliðabrautir í skólum séu full­ ar, ákveða mjög margir að leggja starfið ekki fyrir sig. Því verður minni endurnýjun í stéttinni. Í komandi kjarasamningum segir Kristín að stefna sjúkraliða verði fyrst og fremst sú að fá leiðréttingu launa og hækkun þeirra og að ekki verði samið lengur en til eins árs. Samningar renna út nú í lok þessa mánaðar. n Bannað að kalla út Ef fólk forfallast er enginn kallaður út í þess stað. Það þýðir aukið álag á aðra sem veldur mikilli gremju. Mynd GuðMundur ViGfússon Ásta sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Það þýðir ekkert að tala við Vinnu- eftirlitið þó svo að fólk sé að verða að örkumla aumingjum í vinnunni. „Þetta er mikið áhyggjuefni“ Kristín segir að álagið á sjúkra- liða sé að fara með þá. Stal brjósta- pumpu 26 ára síbrotamaður var í Hér­ aðsdómi Reykjaness á föstu­ dag dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir þjófnað. Mað­ urinn hafði þann 23. ágúst í fyrra stolið brjóstapumpu af gerðinni Medela mini electric að verðmæti 23.980 króna í verslun Lyfju í Kópavogi og síð­ an sex pökkum af kjúklinga­ bringum í verslun í Reykjavík þann 3. október síðastliðinn. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi en hann á að baki nokkurn brotaferil. Samkvæmt sakavottorði hefur honum tólf sinnum verið gerð refsing frá árinu 2007 og þar af fimm sinn­ um fyrir þjófnað. Fram kom hjá verjanda mannsins að hann væri nýbúinn að eignast barn og væri hættur brotastarfsemi. Engu að síður taldi dómari ekki ástæðu til að skilorðsbinda fimm mánaða refsingu sem maðurinn hlaut. Þá var maður­ inn dæmdur til að greiða Lyfju 23.980 krónur auk vaxta fyrir brjóstapumpuna sem hann stal. Strætisvagn fór út af í hálku Strætisvagn númer 72, á leið inn á Flúðir, fór út af veginum um klukkan hálf átta á mánu­ dagsmorgun. Engir farþegar voru í vagninum og bílstjórann sakaði ekki. Vagninn er óskemmdur og annar vagn var þegar sendur af stað til að sinna leiðinni. Mikil hálka er á svæð­ inu og vindhviða varð til þess að vagninn fór út af veginum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.