Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Qupperneq 31
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Sport 31 Dúnsængur og koddar fyrir veturinn Ítölsk rúmföt frá Bellora Laugavegi 87 - Sími: 511 2004 Fermingargjöfin í ár er Dúnsæng frá Dún og Fiður Laugavegi 87 l sími 511-2004 FERMINGARTILBOÐ D V E H F. 2 01 1 Ingólfur Sigurðsson ingolfur@dv.is Þ eir lásu leik Norðmanna mjög vel og það var varla veikan hlekk að finna hjá íslenska liðinu,“ segir Bjarki Sigurðsson, hand- knattleiksþjálfari og fyrrverandi hornamaður í handbolta, um sannfærandi sigur Íslands á Noregi í fyrsta leik B-riðils á Evrópumótinu. Bjarki var sérstak- lega ánægður með varnarleik Ís- lands og fannst Björgvin svara fyrir gagnrýni á sinn hlut með glæsi- legum hætti. Björgvin steig upp „Björgvin var líka að verja úr opn- um færum,“ segir Bjarki. „Hann var gagnrýndur fyrir mótið en steig upp á sunnudaginn. Drengirnir og þjálfarateymið hafa greini- lega unnið heimavinnu sína vel og séð hvað betur mátti fara í æf- ingarleikjunum sem þeir spil- uðu í síðustu viku. Sigurinn má skrifast fyrst og fremst á vörn og markvörslu sem skilaði flottum hraðaupphlaupum og auðveldum mörkum.“ Komu Norðmönnum í opna skjöldu „Það var greinilegt að þeir ætluðu að selja sig dýrt frá fyrstu mínútu,“ segir Bjarki um íslenska liðið sem mætti af miklum krafti í leikinn og Norðmenn lentu 6–1 undir eftir nokkurra mínútna leik. „Ég held það hafi komið Norðmönnum í opna skjöldu hvað Íslendingarnir voru grimmir og fastir fyrir. Strák- arnir á miðjunni, Vignir og Sverrir, spiluðu eins og herforingjar með Björgvin fyrir aftan sig. Sjálfs- traustið og leikgleðin geislaði af leikmönnum og það var alveg sama hver kom inn á – menn ætl- uðu sér sigur.“ n Geisluðu af sjálfstrausti n Markvarslan og sterkur varnarleikur skilaði hraðaupphlaupum B-RIÐILL LIÐ L S J T MÖRK STIG 1 Spánn 1 1 0 0 34:27 2 2 Ísland 1 1 0 0 31:26 2 3 Noregur 1 0 0 1 26:31 0 4 Ungverjaland 1 0 0 1 27:34 0 Ísland - Noregur 31–26 Mörk Íslands: n Guðjón Valur Sigurðsson 9 n Ásgeir Örn Hallgrímsson 6 n Rúnar Kárason 4 n Arnór Atlason 3 n Snorri Steinn Guðjónsson 3 n Þórir Ólafsson 3 n Aron Pálmarsson 2 n Vignir Svavarsson 1 Varin skot: n Björgvin Páll Gústavsson 13 n Aron Rafn Eðvarðsson 1 „Þurfum toppleik til að vinna“ N ú fá þeir ágætis tíma til þess að hvíla sig,“ segir Bjarki um íslenska liðið en næsti leik- ur liðsins er gegn Ungverj- um á þriðjudag. „Það má ekki gleyma því að Ungverjarnir spil- uðu við Spánverja og lentu á vegg þar. Það var kraftabolti spilaður í þeim leik. Ég myndi segja að okkar lið búi yfir mun meiri tækni. Það sem Ungverjar munu áreiðanlega stóla á er að spila fasta vörn og keyra á okkur með hraðaupphlaupum. Við eigum alveg að geta spilað vel á móti þeim. Mér fannst þeir mjög klaufalegir oft og tíðum, seinir á fótum og við eigum að nýta okkur það,“ bætir Bjarki við um næstu mótherja Íslands. „Leikur Spánar og Ungverja olli mér vonbrigðum,“ segir Bjarki sem fylgist vel með öllum liðum B-riðils- ins. „Ég hallast að því að við eigum að vera betri en Ungverjarnir, en við þurfum að eiga toppleik til að vinna. Ungverjar eru komnir upp við vegg ásamt Norðmönnum. Þeir verða að sigra til þess að komast áfram í keppn- inni. Þetta er ekkert gefið,“ en íslenska liðið þarf einn sigur í viðbót til þess að tryggja sér í milliriðla og þá jafnvel með stig með sér. En hvað þarf að ger- ast til þess að sigur vinnist? „Þeir eru með stóra og sterka leik- menn og við þurfum að eiga aftur jafn góðan leik varnarlega,“ útskýrir Bjarki. „Þá fáum við þessa markvörslu sem við erum alltaf að biðja um og hún skilar sér alltaf í hraðaupphlaupum. Það eru auðveldustu mörkin og þau slökkva í andstæðingunum. Það verð- ur hins vegar erfiðara að ganga í gegn- um þá sóknarlega, en þá þurfum við að vera mjög hreyfanlegir í aðgerðum okkar.“ n Ungverjar eru stórir og sterkir en „seinir á fótum“ Spáir í spilin Bjarki Sigurðsson er bjart- sýnn fyrir leik Íslands og Ungverjalands Í fyrsta skipti á stórmóti Gunnar Steinn Jónsson Fæðingardagur: 4. maí 1987 Hæð: 191 sm Þyngd: 99 kg Félag: Nantes, Frakklandi Leikstaða: Vinstri skytta Bjarki Már Gunnarsson Fæðingardagur: 10. ágúst 1988 Hæð: 197 sm Þyngd: 93 kg Félag: Aue, Þýskalandi Leikstaða: Vörn LEIKIR Þriðjud. 14. jan. klukkan 17.00 Ísland - Ungverjaland Fimmtud. 16. jan. klukkan 17.00 Ísland - Spánn Gleði Sigurinn á Normönnum var afar sannfærandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.