Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 8
Vikublað 14.–16. janúar 20148 Fréttir Snautlegur endir F yrir jól bárust fréttir af því að hafnfirska útgerðarfyrir­ tækið Stálskip hefði sagt upp öllum skipverjum á frystitogaranum Þór. Þegar blaðamaður DV hafði samband við framkvæmdastjórann, Guðrúnu Lárusdóttur, neitaði hún því að leggja ætti útgerðina niður um síð­ astliðin áramót. Frá vordögum 2013 hafa sögu­ sagnir gengið um að selja ætti út­ gerðina. Öllum skipverjum togar­ ans Þórs var sagt upp frá og með síðastliðnu hausti. Eigendur fyrir­ tækisins sögðu hins vegar að ekki stæði til að leggja útgerðina niður eða selja hana en viðurkenndu þó síðastliðið sumar að aðilar hefðu sýnt áhuga á að kaupa fyrirtækið. Sjómennirnir voru þó ráðnir áfram í staka túra allt fram til jóla. Þeir fengu hins vegar lítinn fyrir­ vara áður en þeim var tilkynnt að túrarnir yrðu ekki fleiri og raunar kom það þeim í opna skjöldu, sér­ staklega þar sem Guðrún neitaði því ávallt að til stæði að selja út­ gerðina eða hætta rekstri og selja Þór og kvóta. Þess má geta að fyrir­ tækið hefur ratað í fréttir þar sem meðallaun fyrirtækja hafa verið tekin saman – og þá verið ofarlega á lista. Síðast í nóvember kom það fram í samantekt Frjálsrar verslunar að meðallaun hjá fyrirtækinu væru rúmlega 23 milljónir á ári, eða hátt í tvær milljónir króna á mánuði. Við­ brigðin fyrir starfsmenn útgerðar­ innar, sem nú eru atvinnulausir, eru því væntanlega mikil. Óðs manns æði Saga Stálskipa er fyrir margar sakir nokkuð merkileg. Henni voru gerð nokkuð góð skil í tímariti Frjálsrar verslunar árið 1993, en þá voru þau hjónin Ágúst Guðmundur Sigurðs­ son og Guðrún Helga Lárusdóttir valin sem „Menn ársins í íslensku viðskiptalífi.“ Sagan hófst árið 1970 þegar Ágúst sá breska togarann Boston Wellvale í Ísafjarðarhöfn, en þangað hafði hann verið dreginn af strandstað við Arnarnes í Ísafjarðar­ djúpi. Þau hjónin sáu tækifæri í því að gera skipið upp og nýttu allt sitt sparifé til þess að festa kaup á því. Mörgum þótti þetta óðs manns æði, en Ágúst sagði við tímaritið að heppnin hefði verið með þeim. „Stálið reyndist gott í togaranum enda var hann ekki nema um fimm ára þegar hann strandaði. Enn fremur reyndist unnt að gera við vélina.“ Fjölmiðlafár vegna skipakaupa Árið 1978 keypti fyrirtækið togar­ ann Ben Lui frá Aberdeen, en skip­ ið var eitt það aflahæsta þar í borg. Kaupin vöktu nokkra athygli, að því er fram kemur í umfjöllun Frjálsr­ ar verslunar, og þá sérstaklega þar sem togarinn var með hreint veð­ bókarvottorð. Fyrirtækið greiddi 40 prósent af kaupverði skipsins beint út og afganginn á einu ári. Ellefu árum síðar komst fyrir­ tækið aftur í fréttir, þá vegna kaupa þess á togaranum Sigurey frá Pat­ reksfirði. Skipið var boðið upp á nauðungaruppboði en þeim Ágústi og Guðrúnu var gert ljóst af for­ stjóra Byggðastofnunar að hann myndi alltaf bjóða hærra en þau í skipið. Jafnframt spurði hann þau hvort þau ætluðu að leggja líf fólks á Patreksfirði í rúst. Stálskip stóð hins vegar uppi með hæsta boð, 257,5 milljónir króna. Greiða þurfti um 140 milljónir út og átti fyrirtækið um 100 milljónir í banka. Afgangur­ inn var fenginn að láni hjá bank­ anum, en þrátt fyrir það hagnaðist fyrirtækið á rekstri skipsins, í það minnsta fjögur ár á eftir eða þang­ að til umfjöllunin var birt árið 1993. Ágúst viljugri til að selja Ágúst sagði þá í samtali við Frjálsa verslun að nokkrar af ástæð­ um fyrir velgengni Stálskipa væri framúrskarandi skipsáhafnir, lítil yfirbygging og góðar úrlausn­ ir í viðhaldi skipanna. Um yfir­ bygginguna sagði Guðrún: „Sú hætta er líka samfara of mikilli yf­ irbyggingu að stjórnandinn, eða eigendurnir, missi svolítið tilfinn­ inguna fyrir hlutunum og séu ekki jafn upplýstir um það sem gerist innan fyrirtækjanna.“ Þessi ummæli eru sérstaklega athyglisverð í ljósi ummæla Guð­ rúnar nú skömmu fyrir jól þar sem hún þvertók fyrir að verið væri að selja útgerðina. Einnig var skip­ verjum sagt að til stæði að halda útgerðinni áfram og þeir stóðu því í góðri trú um að þeir yrðu áfram í vinnu, þó lausráðnir væru. Í sam­ tali við DV síðastliðið sumar sagði Ágúst að þau hefðu fengið fyrir­ spurnir um mögulega sölu á fyrir­ tækinu, og að það kæmi til greina ef nógu gott tilboð bærist. Hann sagði jafnframt að sjálfur væri hann viljugri til þess að selja en eiginkona hans. Í ljósi nýlegra frétta af fyrirtæk­ inu virðist það þó nokkuð ljóst að til stendur að selja útgerðina og hef­ ur DV heimildir fyrir því að mjög líklegt sé að togarinn Þór verði seldur til Rússlands. Þá hermir sama heimild að Samherji/Síldar­ vinnslan ásælist kvóta Stálskipa.Í ljósi nýlegra frétta af fyrirtækinu virðist það þó nokkuð ljóst að til stendur að selja útgerðina og hef­ ur DV heimildir fyrir því að líklegt sé að togarinn Þór verði seldur til Rússlands. Þá hermir sama heim­ ild að Síldarvinnslan í Neskaups­ stað, sem Samherji á stóran hlut í, ásælist kvóta Stálskipa. Bæjaryfir­ völd í Hafnarfirði eru einnig að skoða hvaða möguleika þau hafa til þess að halda útgerðinni og skip­ inu í bænum, en samkvæmt lög­ um hefur sveitarfélag forkaupsrétt á skipum sem skráð eru í sveitarfé­ laginu. „Við höfum ekki fengið þær upplýsingar beint frá Stálskipum að til standi að selja útgerðina, en höf­ um séð það í fjölmiðlum og heyrt frá öðrum. Formlegt erindi þarf að berast frá þeim en slíkt hefur þó ekki enn gerst. Við erum að skoða lagalega stöðu okkar svo við séum vel undirbúin ef sú staða kemur upp að við viljum nýta réttinn, og ég hef óskað eftir því að lögfræðingur bæjarins fari í það verkefni. Áhuga­ samir aðilar hér í bænum hafa haft samband við okkur en ekki á form­ legan hátt. Bærinn má ekki eiga út­ gerðina, heldur verður að bjóða öðrum að kaupa. Með því stuðlum við áfram að fjölbreyttu atvinnu­ lífi hér í bænum, það skiptir máli,“ segir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir. n n Saga Stálskipa einkennist af dugnaði n Strandað skip upphaf að velgengni Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is „Sú hætta er líka samfara of mikilli yfirbyggingu að stjórn- andinn, eða eigendurnir, missi svolítið tilfinninguna fyrir hlutunum. Hjónin Guðrún hefur verið meira áberandi í starfsemi Stálskipa. Þegar þau hófu rekstur út- gerðarinnar var hún húsmóðir en hafði reynslu af bókhaldi. Ágúst starfaði þá sem kennari í Vél- skólanum. Myndin birtist í umfjöllun Frjálsrar verslunar um hjónin árið 1993. Mynd KRistjÁn EinaRsson tímamót Þór liggur við bryggju í Hafnarfirði. Hann fer líklega ekki til veiða fyrr en nýr eigandi hefur tekið við rekstrinum. Mynd sigtRygguR aRi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.