Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 30
Vikublað 14.–16. janúar 201430 Sport Töfrandi ár Ronaldinho K unnuglegt nafn knattspyrnuheimsins hefur borið á góma undanfarn­ ar vikur. Samningur töfra­ mannsins Ronaldinhos við brasilíska félagið Atletico Mineiro rann út og var hann þrálátlega orð­ aður við endurkomu til Evrópu. Tyrkneska félagið Besiktas var það lið sem sýndi mestan áhuga á Ron­ aldinho og viðurkenndi Ahmet Kavalci, einn stjórnarmanna Besiktas, að félagið væri í óðaönn að leita að fjársterkum aðilum til að fjármagna launakostnað hans. Brasilíumaðurinn brosmildi hélt þó tryggð við Atletico Mineiro og til­ kynnti Alexandre Kalil, forseti fé­ lagsins, fréttirnar í gegnum sam­ skiptamiðilinn Twitter í byrjun janúar. Evrópa heillaði ekki Bróðir og umboðsmaður leik­ mannsins, Roberto Assis, sagði í viðtali við Radio Itatiaia að skjól­ stæðingur hans hafi aldrei íhugað neinn annan kost en að halda áfram að sýna listir sínar í svarthvítri treyju Atletico. „Fréttir af endurkomu Rona­ ldinho til Evrópu var tilbúningur fjölmiðla,“ sagði Roberto Assis um meintan orðróm. „Við funduðum einungis með Atletico og eftir fund­ inn var allt saman komið á hreint.“ Bestur í heimi hjá Barcelona Ronaldinho lék með spænska stór­ liðinu FC Barcelona frá 2003 til 2008 og á fimm ára veru sinni hjá félaginu var hann tvisvar sinn­ um valinn besti knattspyrnumað­ ur heims af FIFA. Þaðan lá leiðin til Mílanó á Ítalíu, þar sem hann lék með stórliðinu AC Milan um tveggja ára skeið. Ronaldinho náði ekki að fylgja eftir velgengni sinni hjá Barcelona og var líkamlegt form hans, sem þótti ekki viðunandi, og tíðar ferðir á næturklúbba stór­ borgarinnar mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum ytra. Ronaldinho sýndi þó gamalkunna takta á vellinum inni á milli, en áhuginn og ástríð­ an skein ekki úr andliti hans eins og áður, og svo fór að kappinn flutti búferlum, heim til Brasilíu, eftir áratug í evrópskri knattspyrnu og skrifaði undir þriggja ára samning við Flamengo. Óvænt útspil bar ríkulegan árangur Í lok maí 2012 sagði Ronaldinho upp samningi sínum eftir að Flam­ engo hafði ekki staðið við launa­ greiðslur sínar í fjóra mánuði. Fjór­ um dögum síðar var hann kynntur til leiks í treyju Atletico Mineiro og þótti óvænt útspil kappans einkum og sér í lagi athyglisvert í ljósi ára­ langrar eyðimerkurgöngu félagsins. En með tilkomu Ronaldinho batn­ aði leikur Atletico til muna og leikni útherjinn fann sig að nýju – sýndi töfratakta á vellinum og í júlí 2013 stóð liðið í fyrsta skipti uppi sem sigurvegari í Copa Libertadores, Meistaradeild Suður­Ameríku. „Þetta hefur verið yndislegt ár,“ sagði Ronaldinho í viðtali við FIFA. com, en hann var í desember valinn Knattspyrnumaður ársins í Suður­ Ameríku árið 2013. „Við mörkuð­ um spor okkar í sögu aldargamals félags,“ sagði Ronaldinho við það tækifæri. Andstæðingarnir sýndu virðingu sína í verki Sigur Atletico tryggði liðinu þátt­ töku í Heimsmeistarakeppni fé­ lagsliða sem fór fram rétt fyrir jólahátíðarnar í Marokkó. Í undan­ úrslitum laut Atletico í lægra haldi fyrir gestgjöfum keppninnar, Raja Casablanca, þar sem Ronaldinho skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu. Að leik loknum hóp­ uðust leikmenn Raja Casablanca umhverfis Ronaldinho, sýndu hon­ um virðingu sína með lófataki og fengu að eiga skó töframanns­ ins. Algjört einsdæmi er að slíkt eigi sér stað í knattspyrnuheimin­ um – og hvað þá í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins – og undir­ strikar það hversu mikil virðing er borin fyrir brasilíska undrinu, sem stefnir að því að halda uppteknum hætti á nýju ári og vinna sér inn sæti í brasilíska landsliðinu sem heldur HM næsta sumar. n n Hafði ekki áhuga á að flytja aftur til Evrópu n Knattspyrnumaður ársins í S-Ameríku Ingólfur Sigurðsson ingolfur@dv.is Ronaldo de Assis Moreira Fæðingardagur: 21. mars 1980 (33 ára) Hæð: 1.83 sm Þyngd: 80 kg Ferill Ár Félag Leikur Mörk 1998–2001 Grêmio 52 21 2001–2003 PSG 55 17 2003–2008 Barcelona 145 70 2008–2010 Milan 76 20 2010–2012 Flamengo 33 15 2012– A. Mineiro 45 16 Landsleikir 1999– Brasilía 97 33 „Þetta hefur verið yndislegt ár „Hann hefur hjálpað mér mikið í gegnum tíðina,“ sagði ungstirnið Bernard, leikmaður Shaktar Donetsk, um fyrrverandi sam­ herja sinn hjá Atletico Mineiro, Ronaldinho. „Hann ræddi oftar en ekki málin við mig og minnti mig á að njóta þess að spila fót­ bolta. Tæknin sem hann býr yfir er ótrúleg. Hvort sem það var á æfingu eða í leik, þá reyndi ég alltaf að herma eftir því sem hann gerði. Ronaldinho hefur verið í lykilhlutverki í þroska mínum sem leikmanns.“ Bernard fer fögrum orðum um fyrirmynd sína „Minnti mig á að njóta leiksins“ „Fréttir af endur- komu Ronaldinho til Evrópu var tilbúningur fjölmiðla Lengi lifir í gömlum glæðum Ronaldinho er 33 ára en lætur það ekki stoppa sig í að dansa með knöttinn á vellinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.