Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 3
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Fréttir 3
Mundu að skila
atkvæði þínu
22. janúar er síðasti dagurinn sem
þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður
í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
tímanlega.
Ekki geyma það til
síðasta dags
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. janúar
FLÓABANDALAGIÐ
F
oreldrum barna sem ættu
að byrja á leikskóla í haust
og fara í Hraunvallaskóla
á Ásvöllum í Hafnarfirði
hefur verið tjáð að mikil
óvissa sé um hvort börnin fái inni
á leikskólanum. Ástæðan er sú að
Hraunvallaskóli, það er grunn-
skóli með sama nafni á sömu
lóð og leikskólinn, er orðinn svo
barnmargur að hann þarf að nýta
frístandandi hús, eða útihús, fyrir
kennslu. Leikskólinn hefur hing-
að til haft aðgang að þeim húsum.
Komast ekki fyrir
Þar með er talsvert minna pláss
sem leikskólinn hefur úr að spila
og því ekki hægt að bjóða upp
á leikskólapláss. Málið er enn
til skoðunar að sögn Steinunn-
ar Þorsteinsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar.
Steinunn segir í samtali við DV
að Hraunvallaskóli, grunnskólinn
það er, sé einfaldlega orðinn það
stór að ekki sé hægt að koma þar
fyrir öllum börnum sem þar þurfa
að rúmast.
Í ár eru þar tæplega átta hund-
ruð börn, en verða níu hundruð
á næsta skólaári. Hins vegar eru
færri börn á leikskólaaldri í hverf-
inu og þeim fer fækkandi. Fyrir
barnafjölskyldur gæti þetta þýtt
að eitt barn fær pláss á Hamra-
völlum, leikskóla í sama hverfi,
en annað hjá Hraunvallaskóla.
Áfram hjá dagmömmu
Líkur eru á því að börnin fái inni
á leikskóla í sínu hverfi þ.e. á
Hamravöllum, en DV þekkir þó
dæmi þess að foreldri hafi feng-
ið þau svör að barnið yrði jafnvel
að vera hjá dagmömmu áfram,
eða sækja leikskóla utan hverfis.
Við þetta eru foreldrarnir mjög
ósáttir, enda er eldra systkinið í
Hraunvallaskóla. Þó leikskólarnir
séu í sama hverfinu, eru Hamra-
vellir þó talsvert langt frá Hraun-
vallaskóla.
Ekki mun vera skortur á leik-
skólaplássi í Hafnarfirði, en búist
er við því að ákvörðun liggi fyrir í
kringum miðjan febrúar. n
Ekki pláss fyrir börnin
Foreldrar ósáttir við að þurfa að leita í marga skóla
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Hraunvallaskóli Grunn-
skólinn Hraunvallaskóli er
orðin svo stór að minnka þarf
leikskólann. Mynd Gunnar GunnarSSon
Árni Thoroddsen
Benedikt Sigurðarson
Framkvæmdastjóri
Bjarni Guðmundsson
Framkvæmdastjóri
Björn Þorláksson
Ritstjóri og rithöfundur
Böðvar Ingi aðalsteinsson
Atvinnubílstjóri
dana rún Hákonardóttir
Verkefnastjóri
davíð Elvar Marinósson
Ráðgjafi
Edda Björgvinsdóttir
Leikari
Ester Sveinbjarnardóttir
Verkefnastjóri
Filipe Carvalho
Sölumaður
Fjölnir Már Baldursson
Kvikmyndagerðamaður
Gauti Sigþórsson
Lektor
Guðjón Pedersen
Leikstjóri
Guðjón E. Hreinberg
Guðmundur Þór Sigurðsson
Gunnar Konráðsson
Húsasmíðameistari
Hallur Guðmundsson
Bókavörður
Helgi Þorsteinsson
Framkvæmdastjóri
Hrafn Gunnlaugsson
Kvikmyndaleikstjóri og rithöfundur
Hrannar Már Gunnarsson
BA í lögfræði
Íris alma Vilbergsdóttir
Almannatengill
Jón Ólafsson
Aðstoðarrektor
Ketill Gauti Árnason
Nemi
Kolbrún Halldórsdóttir
Framkvæmdastjóri
Laufey Guðjónsdóttir
Forstöðumaður
Magnús Geir Þórðarson
Leikhússtjóri
Magnús Sigurðsson
Almannatengill í ferðaþjónustu
Maríanna Friðjónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Magnús Víðisson
Sölumaður
Michael Jón Clarke
Tónlistarmaður
Ólafur Páll Gunnarsson
Dagskrárgerðarmaður
Ólína Þorvarðardóttir
Doktor í íslenskum bókmenntum og
þjóðfræði
Salvör nordal
Forstöðumaður
Sigurður Ásgeir Árnason
Viðburðastjóri
Stefán Jón Hafstein
Sviðsstjóri
Sveinn Ívar Sigríksson
Viðskiptafræðingur
Úlfhildur dagsdóttir
Bókmenntafræðingur
Víðir Benediktsson
Blikksmiður og skipstjóri
Þorgils Björgvinsson
Tónlistarmaður
Þ
að er ánægjuefni hversu
margir reynslumiklir
einstaklingar sækja um
stöðu útvarpsstjóra. Næsta
skref er að fara yfir um-
sóknir og meta hvaða umsækjend-
ur verða boðaðir í viðtal. Ég bind
vonir við að hægt verði að ganga
frá ráðningu nýs útvarpsstjóra fyrir
mánaðamót,“ segir Ingvi Hrafn
Óskarsson, stjórnarformaður
Ríkis útvarpsins ohf.
Nú hefur verið birtur listi yfir
umsækjendur um stöðu útvarps-
stjóra en fresturinn rann út á mið-
nætti. Nokkrir þjóðþekktir einstak-
lingar eru á meðal umsækjenda.
Þar má nefna leikhúsmanninn
Magnús Geir Þórðarson, þing-
manninn fyrrverandi Ólínu
Þorvarðardóttur og kvikmyndaleik-
stjórann og fyrrverandi útvarps-
stjórann Hrafn Gunnlaugsson.
Fleiri þekktir vilja í Efstaleiti því
leikkonan Edda Björgvinsdóttir
sótti um starfið og Stefán Jón Haf-
stein.
Heimspekingurinn Salvör Nor-
dal er á meðal umsækjenda en hún
átti meðal annarra sæti í stjórn-
lagaráði. Athygli vekur að útvarps-
maðurinn Ólafur Páll Gunnarsson,
vill í stólinn sem Páll Magnússon
skildi eftir auðan á dögunum.
40 vilja stöðu
útvarpsstjóra
Margir reynslumiklir einstaklingar vilja stýra RÚV
Listinn í heild sinni