Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 10
Vikublað 14.–16. janúar 201410 Fréttir
Fjöldahandtökur og harka lögreglunnar
n Hvert hneykslismálið á fætur öðru n Harka áberandi í garð hælisleitenda n 32 kærur gegn lögregluþjónum n Lögreglustjóri sæmdur fálkaorðunni
Á
rið 2013 var stormasamt ár í
sögu lögreglunnar á Íslandi.
Hvert hneykslið á fæt
ur öðru skók löggæsluyfir
völd. Sum málanna snerust
um framgöngu einstakra lögreglu
þjóna en önnur eru alvarlegri og
benda til þess að víða sé pottur
brotinn hjá stofnuninni sjálfri. Má
þar nefna fjöldahandtökur og áreiti
í garð hælisleitenda, ótrúlega hörku
gagnvart mótmælendum og skort
á sjálfseftirliti hjá lögregluembætt
um.
Þrjátíu og tvær kærur bárust
ríkis saksóknara vegna meintra
brota lögreglumanna í starfi á árinu
2013. Helmingur lögreglumanna á
landinu vinnur á höfuðborgarsvæð
inu en þaðan komu flestar kærurn
ar. Oftast er kært vegna harðræðis
við handtöku og húsleit. Í fyrra bár
ust 27 kærur vegna lögreglumanna
en engin þeirra endaði með ákæru.
Ýmsir af atburðum ársins
benda til þess að sjálfseftirliti lög
reglunnar sé stórlega ábótavant.
Þá má til dæmis nefna að þegar
lögreglumaðurinn Kristján Örn
Kristjánsson kastaði drukkinni
konu á bekk við Laugaveg kom í ljós
að hann hafði áður verið staðinn að
alvarlegum brotum í starfi án þess
að vera dreginn til ábyrgðar. Fjallað
er um fleiri dæmi hér til í ítarefni.
Mörg þeirra vekja upp þá spurn
ingu hvort stofnanir sem hafa eft
irlitsskyldu gagnvart lögreglu þurfi
ef til vill að beita heimildum sín
um í auknum mæli. Þannig mætti
efla aðhaldið og koma í veg fyr
ir að lögreglan fari ítrekað út fyrir
þau takmörk sem löggjafinn hefur
sett henni. Þótt lögregluofbeldið
sé alvarlegast er ýmislegt annað
við verklag lögreglu sem þarfnast
umfjöllunar og umræðu. Hér verð
ur því ekki einungis fjallað um of
beldi, heldur einnig stórkostleg
afglöp og vanrækslu, auk athyglis
verðra áherslna og yfirlýsinga, sem
vöktu athygli árið 2013. n
Lét Karl Vigni óáreittan
9. janúar Kastljós greinir frá því að
lögreglan hafi haft myndband af
játningum barnaníðingsins Karls
Vignis Þorsteinssonar undir hönd
um í þrjár vikur án þess að aðhafast
nokkuð. Lögregla hafði engin af
skipti af Karli Vigni fyrr en daginn
eftir að Kastljós hóf umfjöllun um
brot hans.
Lögreglan leynir gögnum
9. janúar Úrskurðarnefnd um
upplýsingamál kemst að þeirri
niðurstöðu að Stefáni Eiríkssyni,
lögreglustjóra á höfuðborgar
svæðinu, hafi ekki verið heimilt að
leyna skýrslu lögreglunnar um bú
sáhaldabyltinguna fyrir almenn
ingi. Nefndin taldi rökstuðningi
lögreglustjórans ábótavant þegar
hann synjaði bloggaranum Evu
Hauksdóttur um aðgang að skýr
slunni.
Starfaði áfram þrátt fyrir
þrjár barnaníðskærur
10. janúar Fréttatíminn greinir frá
því að lögreglumaður, sem þrívegis
var kærður fyrir að misnota ungar
stúlkur, hafi aldrei verið leystur
undan vinnuskyldu meðan rann
sókn málanna stóð yfir. Lögreglan
vísar til þess að ríkissaksóknari hafi
ekki getað afhent ríkislögreglustjóra
rannsóknargögn málsins.
Lögreglan vill halda
áfram að refsa
hælisleitendum
28. febrúar Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum hvetur til þess í
umsögn við frumvarp til
útlendingalaga að íslensk stjórn
völd haldi áfram að refsa hæl
isleitendum fyrir framvísun fals
aðra skilríkja enda þótt 31. grein
flóttamannasamnings Sam
einuðu þjóðanna kveði á um
bann við því að hælisleitendum
sé refsað fyrir ólöglega komu til
landsins. Pia Prytz Phiri, fram
kvæmdastjóri umdæmisskrif
stofu Flóttamannahjálpar Sam
einuðu þjóðanna í
NorðurEvrópu, hefur gagnrýnt
íslensk stjórnvöld harðlega fyrir
að fara á svig við þetta ákvæði og
frumvarp til nýrra útlendingalaga
miðaði meðal annars að því að
bæta úr því.
Lögreglan bregður sér í
hlutverk leigubílstjóra
28. júlí Kvartað er undan því að
lögreglumenn bregði sér í hlutverk
leigubílstjóra og keyri ungt fólk
með fulla poka af áfengi í Byggðar
enda í Reykjavík. Nágrannar furð
ast háttsemina en lögreglan í
Reykjavík gerir lítið úr kvörtuninni
á Facebooksíðu sinni.
Greiningardeildin vill
meira eftirlit
30. júlí Greiningardeild ríkislög
reglustjóra lýsir yfir áhyggjum af
því að vestrænt fólk sem ferðast til
stríðshrjáðra svæða geti komist í
kynni við öfgasinnaða hugmynda
fræði og framið hryðjuverk. Í skýrslu
sinni hvetur greiningardeildin til
aukins eftirlits og kvartar undan því
að möguleikar íslenskrar lögreglu til
að fyrirbyggja hryðjuverk séu minni
en á hinum Norðurlöndunum.
Barn ákært fyrir að leyfa
ekki vændi
11. október DV greinir frá því að lög
reglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
hafi ákært 16 ára stúlku fyrir fjársvik
eftir að hún ákvað að stinga af með
20 þúsund krónur sem átti upphaf
lega að vera gjald fyrir kynlíf. Málið
fór alla leið til Hæstaréttar sem vís
aði málinu frá dómi. Ákæran vakti
mikla hneykslan, enda erfitt að túlka
málið öðru vísi en svo að verið væri
að ákæra barn fyrir að leyfa ekki full
orðnum manni að misnota sig kyn
ferðislega. Ólöglegt er að kaupa
vændi af barni.
Ráðinn aftur gegn vilja
sýslumanns
9. nóvember DV greinir frá því að
lögreglumaður á Blönduósi, sem
var í september 2010 ákærður fyr
ir kynferðisbrot gagnvart fimmtán
ára stúlku, hafi verið ráðinn aftur
til starfa gegn vilja sýslumannsins á
Blönduósi sem óskaði eftir að ann
ar maður yrði ráðinn. Ríkislögreglu
stjóri skipaði í stöðuna og eru margir
bæjarbúa á Blönduósi ósáttir.
Dómari áreittur á flugvelli
17. nóvember Lögreglumenn á
Suðurnesjum áreita spænskan
knattspyrnudómara og aðstoðar
menn hans á flugvelli og gorta af
því á Facebook. Þar kemur fram lög
regluþjónarnir hafi ekki verið hrifn
ir af dómgæslunni og því hafi dóm
arinn fengið skömm í hattinn.
Greiningardeild í njósna-
samstarfi við Bandaríkin
17. nóvember DV birtir ítarlega út
tekt um samstarf greiningardeild
ar ríkislögreglustjóra við grunsam
legt leyniþjónustuapparat sem allt
bendir til þess að sé á vegum banda
rískra stjórnvalda. Í leyniskjölum
WikiLeaks kemur fram að grein
ingardeildin hafi verið „einstak
lega samvinnuþýð“ þegar kemur að
stuðningi og því að láta sendiráði
Bandaríkjanna í té upplýsingar. Rík
islögreglustjóri neitar að svara fyrir
spurnum DV um eðli samstarfsins
við Bandaríkin.
Sérsveitin skýtur
geðveilan mann til bana
2. desember 59 ára maður er skot
inn til bana af sérsveitarmönnum
á heimili sínu í Hraunbæ. Þetta er í
fyrsta skipti í sögu lögreglunnar sem
hún banar manni. Maðurinn hét
Sævar Rafn Jónasson og hafði lengi
átt við geðræn vandamál að stríða.
Á fundi með blaðamönnum lýsti
lögreglan atburðarásinni þannig að
maðurinn hefði skotið á lögreglu
menn sem hafi brugðist við með því
að skjóta á móti. Hann lést af sárum
sínum á gjörgæslu. Margir af stærstu
fjölmiðlum í Bretlandi, Bandaríkjun
um og víðar fjölluðu um atburðinn.
Lásasmiðir lagðir í
stórhættu
4. desember RÚV greinir frá því að
lásasmiður frá Neyðarþjónustunni
hafi verið í stórhættu þegar hann var
kallaður til af lögreglu til að opna
læsingu að íbúð byssumannsins í
Hraunbæ. Hann var óvarinn og
opnaði læsinguna á meðan
lögreglumenn knúðu dyra með
hlífðarskjöld sér til varnar. Annar
lásasmiður gagnrýndi starfsaðferðir
lögreglu í Facebookfærslu og sagðist
sjálfur hafa verið settur í stórhættu
þegar hann var beðinn um að opna
íbúðir í tengslum við fíkniefnamál.
Lögreglumenn hafi verið í skotheld
um vestum en ekki hann sjálfur.
Störf lögreglunnar rötuðu iðulega í fjölmiðla á nýliðnu ári
Jón Bjarki Magnússon
Jóhann Páll Jóhannsson
jonbjarki@dv.is / johannp@dv.is
Hátt settir Hér má sjá Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, og Harald
Johannessen ríkislögreglustjóra. Sá fyrrnefndi var sæmdur riddarakrossi af forseta Íslands
fyrir störf sín á árinu 2013. Mynd Sigtryggur Ari
Eldri borgarar teknir
Harka lögreglunnar gagnvart
mótmælendum í Gálgahrauni vakti
athygli, ekki síst þegar gamalli konu
var hrint ofan í gjótu. Mynd Sigtryggur Ari
Harkaleg handtaka Lögregluofbeldið á Laugaveginum vakti athygli, enda náðist atvikið
á myndband.