Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Qupperneq 22
22 Umræða Vikublað 14.–16. janúar 2014
Kanarífuglinn í námunni Umsjón: Henry Þór Baldursson
Mest lesið
á DV.is
Vinsælast á mánudaginn
1 Eigendur E-label kæra fatahönnuð Félag sem rekur
tískumerkið E-label hefur lagt fram
kæru á hendur fatahönnuðinum Gunnari
Hilmarssyni.
16. 407 hafa lesið
2 Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 245
einstaklingar og verkefni fá greidd
starfslaun listamanna í ár. Stjórnir
starfslaunasjóðanna tilkynntu um
ákvörðun sína á mánudag.
16.337 hafa lesið
3 Sigurður Kaiser kallar skólastjóra rasista
fyrir að styðja þorrablót í Bol-
ungarvík Þorrablótið í Bolungarvík
verður haldið 25. janúar næstkomandi, í
sjötugasta sinn. Lofaðar konur með lög-
heimili í sveitarfélaginu hafa einar rétt
til að mæta blótið með mökum sínum.
15.819 hafa lesið
4 Svona er íslenskt þrælahald Nútíma-
þrælahald fyrirfinnst á Íslandi, einkum
í formi mansals. „Þökk sé velmegun,
landfræðilegri einangrun og sterkum
stofnunum á nútíma þrælahald sér stað
þar á tiltölulega litlum skala,“ segir í
skýrslu Global Slavery Index sem gefin
var út í október.
14.998 hafa lesið
5 Kúlurass á nokkrum vikum Margir þrá að vera með svokall-
aðan kúlurass. Með þolinmæði og smá
vinnu er hægt að tóna bakhlutann upp
svo um munar á nokkrum vikum.
13.029 hafa lesið
Svarthöfði
Kaupþingsjúgrið sem visnaði
Dómur sögunnar mun verða harður vegna dómsmorðsins í Al-Thani-málinu
S
tundum er skepnuskapur
mannsins ótakmarkaður.
Nokkur atvik í mannkyns-
sögunni hafa opinberað
þetta og þau eru öll svipuð
í formi. Glöggt auga
Svarthöfða fyrir hneigð-
um sögunnar hefur
varpað hulunni af
hinum hulda sann-
leik sem kraumar
undir yfirborði at-
burða sem virðast
án samhengis.
Velviljaður
samherji hjálpar
löndum sínum. Á
meðan gnægtir
hans endast gleðst
lýðurinn og dýrk-
ar hann. En um leið
og í ári harðnar
snýr lýðurinn
baki við
honum, og jafnvel ræðst að
honum sjálfur.
Svikin
Augljósasta dæmið um
þetta er Jesús Kristur. Þegar
hann gaf öllum fisk og
brauð var lýðurinn sáttur.
En síðan þegar Rómaveldi
snéri sínu ógurlega
ríkisbáknsauga í átt
að frelsaranum
hurfu banda-
menn hans
eins og dögg
fyrir sólu:
„Áður en haninn hef-
ur galað í nótt munt
þú hafa afneitað mér
þrisvar,“ sagði hann, og
það var rétt.
Sigurður Einarsson,
Hreiðar Már Sigurðsson
og Magnús Guðmunds-
son voru nýlega sviknir af
múgnum. Eftir að hafa sog-
ið ríkulegt júgur Kaupþings-
banka og glaðst, sner-
ist lýðurinn
gegn þeim og lét fangelsa þá. Rétt
eins og lærisveinarnir ýmist afneit-
uðu Jesú eða sviku hann í hendur
ríkisbáknsins, snéru Íslendingar
ýmist baki við Kaupþingsmönnun-
um eða réðust gegn þeim í persónu.
Bankahrun í útlöndum, sem var
auðvitað engum að kenna, varð til
þess að Kaupþingsjúgrið visnaði og
almenningur reiddist velunnurum
sínum. Eftir að hafa þegið sinn flat-
skjá reiddi æstur múgurinn – með
einkennilegan saksóknara í farar-
broddi – hnífana á loft.
Lærdómur sögunnar
Það hryggir Svarthöfða að sjá órétt-
lætið ganga yfir velunnara samfé-
lagsins; að mannkynið hafi ekkert
lært af sögunni. Í Al-Thani-málinu
– eða öllu heldur dómsmorðinu –
voru velunnararnir dæmdir fyrir
svokallaða „markaðsmis-
notkun“. Svarthöfði frussaði
nánast af reiði þegar
dómurinn féll: „Þetta kall-
ast að laða að erlenda fjár-
festingu,“ æpti Svarthöfði
í lúna leðurklædda Lazy-
boy stólnum, með krump-
að dagblaðið í höndunum.
Sá eini sem tapaði á þess-
um viðskiptum var einhver
múslimi í útlöndum. Á nú
að fangelsa heiðarlega Ís-
lendinga fyrir að fá einhvern
sjeikbjálfa, sem nota bene
veit ekki aura sinna tal, til
þess að kaupa köttinn í sekknum?
Vonarglætan
Sem betur fer er oft ljósglæta í
svartasta myrkri. Það er nefni-
lega önnur hneigð sem greina má
í mannkynssögunni að einstaka
sinnum rís upp réttsýnn og göfug-
ur einstaklingur og talar gegn órétt-
lætinu og blóðþyrstum múgnum.
Dæmi um þetta er auðvitað Jesús
sjálfur. Annað dæmi er Brynjar
Níelsson. Hann hefur frá upphafi
gagnrýnt harðlega dómsmorðið á
góðu samherjunum í Kaupþings-
banka. Hann hefur bent skilmerki-
lega á það að dómurinn sé ein-
faldlega rangur. Dómararnir meta
múgsefjun meira en réttlætið, og
taka þar með þátt í þeim myrkra-
verkum sem munu í framtíðinni
sverta sögu vors göfuga lands. n
Jesús Kristur
Lýðurinn elskaði
hann meðan
fiskurinn entist.
Brynjar Níelsson Það
er alltaf vonarglæta fyrir
heiminn, þegar menn eins
og Brynjar brýna sína raust.
Kaupþingsjúgrið Visnaði eftir misráðnar fjárfestingar
almennings í flatskjám.