Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Page 37
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Fólk 37
Ruth Reginalds
Ruth var ein af fyrstu
barnastjörnunum og
líklega ein sú skærasta.
Hún var ung að árum
þegar hún sló í gegn
með lögum á borð við
Róbert bangsa, Ósk mín
skærasta og reykinga-
laginu. Plötur hennar
seldust í tugþúsundum
eintaka og hún var dáð
af ungum sem öldnum.
Bak við bjart brosið og barnslega of-
urröddina var þó mikill sársauki. Ruth
sagði frá því í ævisögu sinni sem kom út
fyrir nokkrum árum að lífið sem barnastjarna hefði ekki verið neinn dans á rós-
um. Hún hafi byrjað að reykja þegar hún söng reykingalagið, hún háði lengi bar-
áttu við eiturlyf, ofbeldi og átröskun. Ruth býr í dag í Kaliforníu með seinni eig-
inmanni sínum og 6 ára dóttur þeirra og ber nú nafnið Ruth Moore.
Íslenskar
barnastjörnur
Jóhanna Guðrún
Jóhanna Guðrún var aðeins níu ára þegar fyrsta platan hennar kom út. Plat-
an bar nafnið Jóhanna og sló í gegn. Jóhanna var uppgötvuð í Söngskóla
Maríu og Siggu en María gerðist umboðsmaður hennar og næstu árin söng
hún víða. Toppnum var svo náð þegar hún landaði öðru sætinu í Eurovision
fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Jóhanna Guðrún leitaði tækifæra erlendis
líka og var með norskan umboðsmann. Sjálf flutti hún um tíma til Noregs eftir
Eurovision-keppnina en er nú flutt aftur heim á klakann ásamt unnusta sín-
um og er enn að syngja.
Garðar
Thor
Cortes
Garðar sló í gegn sem Nonni í þátt-
unum Nonna og Manna. Þættirnir
voru mjög vinsælir og Garðar heill-
aði margar dömurnar sem sveita-
pilturinn Nonni. Garðar sneri sér svo að söngnum eins og margir vita
og þykir einn besti óperusöngvari landsins.
Katla María
Katla María kom fram á sjónarsviðið árið 1979
með sína fyrstu plötu þar sem hún söng spænsk
barnalög. Næsta plata hét Litli
Mexíkaninn og á þriðju plöt-
unni söng hún með Pálma
Gunnarssyni. Katla María sló
í gegn en svo heyrðist lítið í
henni eftir barnastjörnuferil-
inn en hún tók þó þátt í tveim-
ur undankeppnum Eurovision.
Undanfarin ár hefur hún verið
að syngja með ítalska rokk-
bandinu Lunainfea.
Björk
Björk þarf ekki að kynna enda þekkja
flestir núlifandi Íslendingar hana. Björk
byrjaði ferilinn 11 ára sem barnastjarna.
Hún var nýorðin 12 ára þegar hennar
fyrsta sólóplata kom
út árið 1977, platan
bar nafnið Björk og á
henni söng hún meðal
annars þekkt íslensk
barnalög.
Síðan þá hefur
frægðarsól hennar
aldeilis skinið skært
og í dag er hún lík-
lega þekktasti Ís-
lendingurinn. Björk
er enn á fullu í tón-
listinni og er tekju-
hæsti söngvari lands-
ins; eignir hennar
eru samkvæmt síðunni celebritynetworth.com
metnar á rúma 5 milljarða.
Rokklingarnir
Rokklingarnir voru það allra vin-
sælasta hjá ungum krökkum árin
1989–1991. Á þessum árum komu út
þrjár plötur með þeim. Rokklingarnir
voru ungir krakkar sem sungu gömul
dægurlög. Hljómsveitin var gerð
að breskri fyrirmynd, Mini Pops frá
Englandi sem hafði vakið mikla lukku
í heimalandinu. Stofnandi hljómsveit-
arinnar var Birgir Gunnlaugsson sem á
þessum árum rak BG-útgáfu. Krakk-
arnir sem skipuðu Rokklingana komu
flestir úr Seljaskóla en þar voru börn
Birgis við nám. Í kjölfarið var auglýst
eftir fleiri krökkum; hundruð umsókna
bárust og nokkrir voru valdir úr. Rokklingunum fylgdi Rokklingaklúbbur sem
var aðdáendaklúbbur sveitarinnar en Rokklingarnir urðu gríðarlega vinsælir
og áttu stundum fullt í fangi með ágang aðdáenda. Auk Rokklingaklúbbsins
var stofnaður Rokkskóli þar sem krökkum var kennt að dansa og syngja eins
og Rokklingarnir. Eftir þriðju plötu Rokklinganna var útgáfurétturinn seldur til
Skífunnar og eftir það dó sveitin út. Ekkert þeirra Rokklingabarna hafa öðlast
mikla frægð á efri árum og létu frægð barnæskunnar greinilega duga.
Svala
Björgvins
Svala er líkt og flestir vita dóttir söngv-
arans Björgvins Halldórssonar. Svala
byrjaði að syngja opinberlega þegar
hún var um 7
ára en þá söng
hún á jóla-
plötu föður síns
og þegar hún
var 9 ára söng
hún dúett með
pabba sínum
á annarri jóla-
plötu. Líklega
þekkja flestir
lögin: Ég hlakka svo til og Fyrir jól sem
hljóma í viðtækjum landsmanna fyrir
jól en þau syngur Svala. Á unglings-
aldri gekk Svala í rafhljómsveitina
Scope sem átti mikilli velgengni að
fagna hérlendis. Árið 2001 skrifaði
hún samning við Priority Records
og gaf út plötuna The Real Me og
samnefnt lag á plötunni sló í gegn í
Bandaríkjunum. Svölu var spáð mik-
illi frægð vestanhafs en fljótlega eftir
að platan kom út fór útgáfufyrirtækið
á hausinn. Árið 2005 gaf hún út
plötuna Bird of Freedom. Frá árinu
2008 hefur Svala verið í hljómsveitinni
Steed Lord ásamt eiginmanni sínum
og bróður hans. Þau búa í Los Angeles
þar sem þau elta drauminn.
Ísland hefur alið af sér fjölmargar
barnastjörnur. Sumar hafa haldið
áfram í skemmtanabransanum
en aðrar sögðu skilið við stjörnu-
heiminn þegar komið var fram
á fullorðinsár. DV rifjar upp
nokkrar eftirminnilegar íslenskar
barnastjörnur.