Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Page 20
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttASkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AðAlnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtARSími AUglýSingAR Sandkorn 20 Umræða Vikublað 11.–13. febrúar 2014 Ég er ekki frægur lengur Verður þetta framtíðin, að ritskoða allar fréttir RÚV? Flest ykkar voru mjög ánægð með þáttinn Óvinir ráðuneytisins Shia LeBeouf með poka á hausnum. – tmz.com Vigdís Hauksdóttir. – heimssyn.is Mikael Torfason aðalritstjóri. – Mín skoðun Stöð 2 S ú ákvörðun Sigríðar Frið­ jónsdóttur ríkissaksóknara að vísa lekamáli innanríkis­ ráðherra til rannsóknar lög­ reglu undirstrikar að emb­ ættið er ekki eitt þeirra sem eru í pólitísku makki um að fela eða klóra yfir mál sem kunna að vera óþægi­ leg fyrir flokksgæðinga. Sérstaða þessa máls er að grunur í málinu beinist að æðsta manni dómsmála, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem ætlar að sitja áfram í skugga máls­ ins. Saksóknari sýnir þann styrk að krefjast rannsóknar á máli sem ráð­ herrann sjálfur hefur fullyrt að eigi ekki rót hjá sér eða aðstoðarmönn­ um sínum. Lekamálið er um margt próf­ steinn á réttarkerfið og siðferði fjöl­ miðla. Vikum og mánuðum saman reyndu stærstu fjölmiðlar landsins að þagga málið niður með því að láta eins og ekkert hafi gerst. Sumpart er hægt að skilja framgöngu Frétta­ blaðsins og Morgunblaðsins þar sem gögnum ráðuneytisins var lek­ ið til þeirra. Þessir fjölmiðlar og blaðamenn þeirra tóku að sér að vera boðberar slúðurs um flóttafólk og raunar íslenskan ríkisborgara. Þeir dreifðu viðkvæmum persónu­ upplýsingum um örsnautt, land­ laust fólk sem á sér venjulega engar varnir. Upplýsingunum var augljós­ lega komið skipulega til umræddra fjölmiðla sem birtu þær sama dag og stóð til að mótmæla brottrekstri flóttamannsins Tony Omos fyrir utan innanríkisráðuneytið. Í leka­ gögnunum voru ávirðingar sem hafa ekki verið sannaðar og sumar raunar afsannaðar. Innanríkisráðherra og aðstoðar­ menn hennar, Gísli Freyr Valdórs­ son og Þórey Vilhjálmsdóttir, hafa ítrekað svarið af sér lekann. Gísli Freyr benti reyndar á embættis­ menn í innanríkisráðuneytinu sem hugsanlega sökudólga. Þrenningin í innanríkisráðuneytinu hefur verið önnum kafin við að benda á allt og alla í kringum sig til að losna und­ an grun. Svo langt hefur ráðherr­ ann gengið í vörn sinni að hann hef­ ur með dylgjum og óhróðri reynt að koma höggi á þá blaðamenn DV sem fylgt hafa þessu máli fast­ ast eftir. Það er ánægjulegt að um­ ræddir blaðamenn DV hafa verið tilnefndir af Blaðamannafélagi Íslands til verðlauna vegna um­ fjöllunar sinnar um hælisleit­ endur. Tilraunir ráðherrans og aðstoðarmanna hans til þöggunar hafa verið í senn ósvífnar og siðlausar. Þegar tilraun­ ir til að varpa grun á embættismenn dugðu ekki var reynt að þagga niður í blaðamönnunum. Það væri illskiljanlegt ef í ljós kæmi að Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri eða aðrir embættis­ menn stæðu að lekanum. Enn óskiljanlegra er að Rauði krossinn tæki upp á því að stinga flótta­ menn í bakið með þess­ um hætti. Þar á bæ eru menn þekktir fyrir að hlífa og hlúa að fólki fremur en höggva. Og það er sama hvern­ ig málinu er velt upp. Sá eini sem hafði hagsmuni af því að sverta flóttamennina var ráðherrann sem stóð andspænis því þann örlagadag sem lekinn varð að mótmælt yrði við ráðuneytið. Málið allt hefur tekið hinar undar­ legustu vendingar. Allt frá því því lekinn var kortlagður hefur Hanna Birna þverneitað að bera ábyrgð. Á einhverjum tímapunkti sagði hún óhugsandi að upplýsingarn­ ar hefðu komið úr ráðuneytinu. Þar vísaði hún til innanhússrann­ sóknar sem ekki hefur verið upplýst hvernig staðið var að. DV sagði frá því að starfsmenn innanríkisráðu­ neytisins hefðu óskað eftir óháðri rannsókn. Því var hafnað af ástæð­ um sem ekki verða skýrðar nema á einn veg. Saksóknari hefur síðan undirstrikað alvöru málsins með því að vísa því til lögreglu og held­ ur ráðherrann flóttanum áfram. Að­ spurð segist Hanna Birna ekki ætla að segja af sér þar sem rannsóknin beinist að ráðuneytinu en ekki ráð­ herranum. Hanna Birna ætlar sem sagt að sitja áfram á meðan stofn­ anir sem eru á forræði ráðuneytis­ ins rannsaka mál hennar. Þessi af­ staða er stórfurðuleg og lýsandi fyrir þá afneitun sem er í gangi í innsta hring ráðherrans. Það mun koma til kasta Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra að stjórna rannsókninni á ráðherran­ um og starfsliði hans. Stefán er vammlaus embættis­ maður af sama tagi og saksóknari. Hann gerir sér örugg­ lega grein fyr­ ir því að þarna duga engin vettlinga­ tök. Sá sem er til búinn til þess að berja á flóttafólki mun væntan­ lega verjast öðrum með tiltæk­ um ráðum. Árásirnar sem fram að þessu hafa beinst að flóttafólki og blaðamönnum munu færast yfir á þá sem stjórna rannsókninni. Ráðherrann er á berangri í mál­ inu. Eini þingmaðurinn sem hef­ ur veitt henni stuðning er Ragn­ heiður Ríkharðsdóttir, tengdamóðir Þóreyjar aðstoðarmanns ráðherra. Bjarni Benediktsson, formað­ ur Sjálfstæðis flokksins, hefur sagt það eitt um stöðu Hönnu Birnu að hann telji ekki að hún eigi að víkja vegna kærunnar. Aðrir pólitískir samherjar innanríkisráðherrans þegja og bíða átekta. Spillingarmóðan er yfir öllu þessu máli. Það er nauðsynlegt að fletta ofan af því og láta þá sem stóðu að baki lekanum svara til saka fyrir dómstólum. Innanríkisráð­ herra og allir íslenskir stjórnmála­ menn þurfa ekki síst á því að halda að stungið verði á graftar kýlinu. Það er dagljóst að sökudólgurinn eða sökudólgarnir leika enn laus­ um hala og eru með aðgang að við­ kvæmum persónuupplýsingum. Takist ekki að finna þá er spurning hvert næsta fórnarlamb innanríkis­ ráðuneytisins verður. Óvinir ráðu­ neytisins eru hvergi óhultir. n Skuggi Dags Innan Samfylkingar er vaxandi óánægja með frammistöðu Árna Páls Árnasonar formanns sem tók við rústum flokksins af Jóhönnu Sigurðardóttur. Árni Páll hefur ekki náð að hífa flokkinn upp úr eymdinni. Á sama tíma hefur vegur Dags B. Eggertssonar vaxið mjög. Skoðanakannanir benda til að meirihluti kjósenda vilji fá hann sem borgarstjóra á eftir Jóni Gnarr. Þá staðnæmast margir við nafn hans sem næsta formanns. Skuggi Dags hvílir því yfir Árna Páli. Milljónir til Páls Páll Magnússon, fyrrverandi út­ varpsstjóri, er nú kominn aftur á byrjunarreit eftir að hafa ekki sóst eftir því að verða endurráð­ inn eftir að fimm ára ráðningu hans lauk. Páll hefur að sögn rúmlega milljón krónur á mánuði í eitt ár, eftir að hann hætti störfum. Nú síðast heyrðist til hans lesa aug­ lýsingu um tónleika Björgvins Halldórssonar. Hermt er að ekki sé sátt milli stjórnar RÚV og Páls um það hve mikið hann eigi að fá borgað eftir að hann ákvað sjálfur að hætta. Hjón á ráðherrastóla Innan úr Framsóknarflokknum heyrist að líklegt sé að fimmti ráðherra flokksins verði hin sjóaða Sigrún Magnús dóttir sem datt inn á þing í fylgisholskeflu flokksins. Sigrún á að baki langan feril í borgarstjórn og skortir þannig ekkert á reynsluna. Reyndar yrði það sögulegt ef hún fengi ráð­ herrastól því það yrði þá í fyrsta sinn sem hjón næðu þeim áfanga að verða ráðherrar. Eiginmaður hennar, Páll Pétursson frá Höllu­ stöðum, á að baki farsælan feril sem félagsmálaráðherra. Ráðherrakrísa Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur enn ekki náð að manna fimmta ráð­ herrastólinn. Ef miðað er við kynjahlutfall og styrk út úr kosn­ ingum er aug­ ljóst að Vigdís Hauksdóttir ætti að hreppa hnoss­ ið. En til þess mega Sigmundur og félagar ekki hugsa. Um tíma var talið að Frosti Sigur jónsson, þingmaður og sérlegur banda­ maður Sigmundar, hreppti hnossið en fjölmæli hans um MP banka og skattaþakið hafa gengisfellt hann. Reynir Traustason rt@dv.is Leiðari „Ráherrann er á ber- angri í málinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.