Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2014, Side 31
Vikublað 11.–13. febrúar 2014 Sport 31
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
ÚTSALA
30-60%
AFSLÁTTUR
Kínversk
handgerð list
· Vasar
· Diskar
· Lampar
· Pottar
· Myndir
o.m.fl.
Fengu 28 milljónir króna
G
eir Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands
(KSÍ), og Þórir Hákonarson,
framkvæmdastjóri sambands-
ins, fengu samtals 28,2 milljónir króna
í laun á síðasta ári. Þetta jafngildir
2,35 milljónum króna á mánuði, eða
rúmlega milljón á mann. Þetta kemur
fram í ársreikningi KSÍ fyrir árið 2013
sem birtur var á mánudag. Öll laun og
launatengd gjöld námu 115,8 millj-
ónum króna. Þetta þýðir að tæplega
fjórðungur af launagreiðslum KSÍ fer
til Geirs og Þóris.
KSÍ tapaði 27,9 milljónum króna
á síðasta ári sem er töluverð breyting
frá árinu 2012 þegar sambandið skil-
aði 477 milljóna króna hagnaði. Þrátt
fyrir tap á síðasta ári stendur sam-
bandið vel. Eignir þess nema rúm-
um 760 milljónum króna og bókfært
eigið fé í lok síðasta árs var 200 millj-
ónir króna.
Kostnaður við öll landslið sam-
bandsins nam 445 milljónum króna,
en gert hafði verið ráð fyrir því í áætl-
un að kostnaðurinn yrði 365 millj-
ónir króna. Gera verður ráð fyrir
því að stór hluti þessarar kostnað-
araukningar sé til kominn vegna
góðs árangurs karlalandsliðsins sem
komst alla leið í umspil fyrir HM síð-
astliðið haust.
Í ársreikningnum kemur fram
að KSÍ hafi úthlutað 42 milljónum
króna til aðildarfélaga, annarra en
þeirra sem léku í Pepsi-deild karla,
vegna barna- og unglingastarfs. Fé-
lögin í í Pepsi-deild karla fengu sam-
bærilegan styrk frá Knattspyrnusam-
bandi Evrópu, UEFA, að upphæð 46
milljóna króna. Auk þess styrkti KSÍ
félög í Pepsi-deild karla og 1. deild
karla um 21 milljón króna vegna
leyfiskerfis árið 2013. n
einar@dv.is
Fjórðungur af launatengdum greiðslum KSÍ fer til Geirs og Þóris
Skiptar skoðanir á frammistöðu Mesut Özil hjá Arsenal
S
tuðningsmenn enskrar
knattspyrnu voru upp með
sér þegar Þjóðverjinn Mesut
Özil gekk í raðir Arsenal á
lokadegi félagaskiptaglugg-
ans í fyrrasumar. Özil hafði verið
einn besti leikmaður spænska stór-
liðsins Real Madrid undanfarin ár,
og besti knattspyrnumaður heims,
Cristiano Ronaldo, sagði við fjöl-
miðla að hann kæmi til með að sakna
þjónustu miðvallarleikmannsins
snjalla. Auk þess voru áhangend-
ur Real Madrid allt annað en sáttir
við ákvörðun félags síns um að láta
Þjóðverjann af hendi. Ekki var það til
þess að minnka eftirvæntingu spark-
spekinga nyrðra og Özil kom eins og
stormsveipur í ensku deildina. Allra
augu voru á honum.
Hálfu ári síðar situr Arsenal á
toppi deildarinnar þar sem Özil hef-
ur spilað 19 leiki. Hann hefur komið
að 12 mörkum; skorað fjögur og lagt
upp átta. Aðeins Wayne Rooney hef-
ur lagt upp fleiri mörk, níu talsins. En
skiptar skoðanir eru um hvort Özil sé
jafn góður og margir halda fram.
Segir Wenger hafa keypt
rangan mann
Adrian Durham, pistlahöfundur á
Daily Mail í Englandi, skrifaði grein
um frammistöðu Özil gegn Fulham
um miðjan janúar. Durham velti
vöngum yfir hvort Arsené Wenger,
þjálfari Arsenal, hafi einfaldlega val-
ið rangan mann til þess að verja 42
milljónum punda í. Jafnframt benti
Durham á að „sá rétti“ hafi farið til
erkifjenda þeirra í Tottenham Hot-
spur, Daninn Christian Eriksen.
„Özil hefur gert góða hluti frá því
hann gekk í raðir Arsenal,“ skrifaði
Durham. „En hann virðist ekki vera
sá leikmaður sem er stærsta ástæða
þess að liðið trónir á toppi deildar-
innar.
Þessar háu fjárhæðir þurftu ekki
að fara eingöngu í að kaupa einn
leikmann. Ef Wenger lítur gægist
fyrir hornið sér hann Christian Erik-
sen sem kostaði 11 milljónir punda
og er 21 árs. Hann stjórnar leikjum á
miðjunni, verst og skapar marktæki-
færi, sem Tottenham nýtur góðs af
um þessar mundir.
Hefði Wenger keypt Eriksen yrði
hann fullkominn leikmaður fyrir
leikstíl Arsenal.“
Býr til færi á hálftíma fresti
Lee Hurley, pistlahöfundur á Metro,
er á öndverðum meiði.
„Hann er lævís, lítill snillingur,“
skrifar Hurley um Özil og viðurkenn-
ir að hafa staðið sjálfan sig að því að
gagnrýna leik Þjóðverjans. Sumar
snertingar við knöttinn virðast tilvilj-
anakenndar og sendingar hans virð-
ast ekki alltaf rata til samherja. Þegar
Hurley skoðaði tölfræði Özil eftir leik
frá því í janúar krossbrá honum.
„Hann var með 91 prósent
heppnaðar sendingar í þeim leik
sem sýndi fram á að ég hef ekki
hundsvit á leiknum. Önnur tölfræði
passar ekki heldur við það sem fólk
gagnrýnir hann fyrir. Özil er sá leik-
maður sem hefur skapað flest mark-
tækifæri af öllum leikmönnum
liðsins sem og deildarinnar.“
Og ekki bara á Englandi. Özil er
sá leikmaður sem hefur skapað flest
færi í fimm stærstu deildum álfunn-
ar. Á 29 mínútna fresti skapar Özil
færi eða leggur upp mark.
„Þegar við horfum á Özil þá er
það ekki leikmaðurinn sem bregst
okkur, heldur okkar eigin sýn.“ n
Skapar mest
af öllum
Vill gefa
stoðsendingar
Özil hefur lagt upp
átta mörk það sem
af er leiktíð.
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is Síðasti heimaleikur
Arsenal 2–0 Crystal Palace
2. febrúar 2014
n Sendingar Özil heppnuðust í 94 skipti af 104 tilraunum, sem gerir 90%.
n 68 sendingar af 78 tilraunum voru fram á við, sem gera 87% heppnaðar sendingar.
Þær 26 sem hann sendi til baka heppnuðust allar.
n Hann bjó til þrjú færi, var sá leikmaður sem fékk boltann oftast á vellinum og missti
hann sjaldnast.
Ferill Özil
Ár Lið Leikir Mörk
2006–2008 Schalke 30 0
2008–2010 Werder Bremen 71 13
2010–2013 Real Madrid 105 19
2013– Arsenal 15 4
Í nærmynd
n Mesut Özil
n 25 ára
n Fæðingardagur: 15.10. 1988
n Þjóðerni: Þjóðverji
n Hæð: 183 sm
n Þyngd: 76 kg
Tölfræði Özil í vetur
n Leikir: 20 n Mörk: 4 n Stoðsendingar: 8
n Skot í leik: 1,2 n Lykilsendingar í leik: 2,8
n Heppnaðar sendingar: 88%
n Sendingar í leik: 65,8
Stendur vel KSÍ stendur nokkuð traustum
fótum fjárhagslega. Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ, og Þórir Hákonarson fram-
kvæmdastjóri fengu samtals 28,2 milljónir
króna í laun á síðasta ári.
Toure gæti
farið í bann
Svo gæti farið að Yaya Toure,
leikmaður Manchester City, fái
þriggja leikja bann fyrir að sparka
í Ricky van Wolfswinkel, fram-
herja Norwich, í leik liðanna
um helgina. Aganefnd enska
knattspyrnusambandsins mun
fara yfir myndbandsupptökur úr
leiknum og taka ákvörðun út frá
þeim. Fari svo að nefndin meti
það svo að Toure hefði átt að fá
rautt spjald fær hann að líkindum
þriggja leikja bann. Það þýðir að
hann gæti misst af stórleik City
gegn Chelsea í fimmtu umferð
ensku bikarkeppninnar.
Sterling í
landsliðið
Raheem Sterling, leikmaður
Liverpool, verður væntan-
lega kallaður inn í landsliðs-
hóp Englands fyrir vináttuleik
gegn Danmörku þann 5. mars
næstkomandi. Þessi nítján ára
vængmaður hefur staðið sig vel
í vetur og átti sannkallaðan stór-
leik í 5–1 burstinu á Arsenal um
helgina. Roy Hodgson er sagður
horfa til Sterling sem mögulegs
arftaka Theo Walcott sem miss-
ir væntanlega af HM í sumar
vegna meiðsla. Annar Liver-
pool-leikmaður, Jordan Hend-
erson, fær væntanlega einnig
tækifæri í leiknum.