Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Blaðsíða 4
4 Fréttir Vikublað 29. apríl–1. maí 2014
Ungir drengir
áreittir á
kvennakvöldi
„Er búin að vera vitni að því tvö
ár í röð að miðaldra konur áreiti
unga drengi kynferðislega,“ segir
Margrét Júlía
Rafnsdóttir,
verkefnastjóri
hjá Barna-
heillum. Hún
varð vitni að
áreitinu á
kvennakvöldi
Breiðabliks
sem haldið
var síðastliðinn
föstudag.
„Já, á kvennakvöldi Breiða-
bliks fóru konur fram á það að
drengirnir sem voru að þjóna
færu úr að ofan og meira að segja
átti að hefja uppboð á nokkrum
þeirra,“ segir Margrét Júlía en hún
fór fram á að þetta yrði stöðvað.
Breiðablik sendi frá sér yfir-
lýsingu í kjölfar málsins, þar sem
þeir segjast harma þessa upplif-
un Margrétar.
„Það er afar miður að reynsla
þessa gests á samkomu á vegum
deildarinnar hafi verið með þeim
hætti sem hún lýsir. Knattspyrnu-
deild Breiðabliks vill hafa í heiðri
siðareglur félagsins og jafnréttis-
stefnu knattspyrnudeildarinnar.
Hún mun kynna reglurnar fyrir
aðstandendum samkomunnar
og brýna fyrir þeim að gera það
sem í þeirra valdi stendur til að
koma í veg fyrir að upplifun gesta
verði með þessum hætti,“ segir í
yfirlýsingu frá knattspyrnudeild
Breiðabliks.
Margrét Júlía
Rafnsdóttir
Romm af stút
á leið frá Kúbu
Lenda þurfti flugvél sem var
á leið frá Kúbu til Moskvu á
Keflavíkurflugvelli um helgina
vegna drukkins farþega. Konan
kom ölvuð um borð og var tek-
in ákvörðun um að selja henni
ekki áfengi á leiðinni. Þá dró
hún upp rommflösku og fór að
drekka úr henni. Áhöfnin fór
þess á leit við konuna að fá að
geyma flöskuna. Hún brást illa
við þeirri málaleitan og sýndi
áhöfninni ógnandi tilburði.
Lögreglunni á Suðurnesjum
var gert viðvart og var konan
vistuð í fangaklefa.
Fórnarlamb Hjartar
hætt störfum á 365
n Var boðið að vera án tengsla við Hjört sem mun starfa áfram hjá 365
S
tarfsmaður 365 miðla sem
Hjörtur Hjartarson, frétta-
maður Stöðvar 2, réðst að í
starfsmannateiti er hættur
störfum hjá 365. Maður-
inn þurfti að leita sér aðhlynningar
í kjölfar atviksins, en hann fékk
áverkavottorð frá lækni samkvæmt
heimildum DV. Hjörtur mun hins
vegar snúa aftur til starfa hjá fyrir-
tækinu.
Maðurinn leitaði til lögreglu
vegna málsins, sem mælti með
því að hann reyndi að leita sátta
við Hjört, áður en farið yrði lengra
með málið. Sáttaumleitun hans
bar árangur, en í tilboði mannsins
felst meðal annars að Hjörtur muni
greiða honum ákveðnar bætur,
samkvæmt heimildum DV. Í sam-
tali við DV staðfestir Hjörtur að sátt
sé komin í málið, en vill ekki tjá sig
um málið að öðru leyti.
Fór á Vog
Sem fyrr segir hefur Hjörtur nú
snúið aftur til starfa hjá 365, eftir að
hafa verið sendur í leyfi í vegna at-
viksins. Hjörtur setti inn yfirlýsingu
á Facebook-síðu sína strax í kjölfar
þess að DV greindi frá málinu, þar
sem hann sagðist vera á leið inn á
Vog til að leita sér hjálpar. „Ég mun
á morgun leggjast inn á Sjúkrahús-
ið á Vogi og leita hjálpar hjá því
góða fólki. Eitthvað sem ég hefði
átt að gera fyrir löngu. Ég fór í viðtal
þar í gær og fann að ég var á réttum
stað. Það er það sem ég hef augun
á núna, það er mitt fyrsta skref. Ég
iðrast óendanlega fyrir það sem ég
hef gert öðrum og ekki síður sjálf-
um mér.“
Boðið að vera án
tengsla við Hjört
Starfsmenn 365 sem DV ræddi við
vildu lítið tjá sig um málið, sem
þeim þykir óþægilegt og mjög
erfitt. Ari Edwald, forstjóri 365
miðla, segist lítið geta tjáð sig um
málið. „Það er erfitt fyrir fyrirtæki
að gerast dómari um samskipti
starfsmanna sinna, sem eiga sér
stað utan vinnu og á allt öðrum
vettvangi. Ef tilefni er til þurfa slík
mál að fá úrvinnslu óháð því hvort
fólk vinnur á sama stað eða ekki. Þá
hefur Hjörtur leitað sér aðstoðar og
starfsmanninum boðist að vera án
tengsla við Hjört í sínum störfum,“
segir Ari í tölvupósti til DV. Maður-
inn ákvað hins vegar að þiggja ekki
það boð og hefur nú hætt störfum
hjá fyrirtækinu.
Þykir fær klippari
Maðurinn, sem starfaði sem klipp-
ari, þykir afar fær í sínu starfi og
samkvæmt heimildum DV munu
starfsmenn fyrirtækisins sjá eftir
honum. „Mér finnst sárt að hann
skuli vera að hætta og hef áhyggjur
af því. Ég mun sakna hans, þetta er
góður strákur og mjög gott að vinna
með honum. Það er eiginlega það
sem mér finnst sárast í þessu öllu
saman,“ segir íþróttafréttamaður-
inn Arnar Björnsson sem starfar
hjá 365. „Ég hef áhyggjur af því að
við séum að missa menn eins og
þennan. Þetta er mjög þýðingar-
mikið starf í þessu húsi, menn eru
undir miklu álagi og mér þykir
vænt um hvað þessir drengir eru
boðnir og búnir til að gera það sem
maður biður þá um,“ segir Arnar.
Rekinn frá RÚV
Hjörtur ræddi við DV í ágúst árið
2013, en honum var sagt upp hjá
RÚV í byrjun ársins 2012. Ástæða
uppsagnarinnar var atvik sem átti
sér stað þegar íþróttamaður ársins
var kynntur á Grand hótel. Edda Sif
Pálsdóttir, sem þá var samstarfs-
kona Hjartar, kærði hann fyrir lík-
amsárás. Hún dró kæruna á end-
anum til baka, en Hirti var hins
vegar vikið frá störfum daginn eft-
ir atvikið. Það olli ósætti hjá sam-
starfsmönnum hans, sem hefðu
viljað að hann hefði hlotið sann-
gjarnari meðferð. Þó ríkti almenn-
ur skilningur fyrir ástæðu upp-
sagnarinnar.
Ósáttur við uppsögnina
„Ég mun aldrei verða sáttur við
hvernig RÚV tók á þessu máli. Tíu
tímum eftir að þessi atburður átti
sér stað kölluðu Kristín Hálfdánar-
dóttir, yfirmaður íþróttadeildar
RÚV, og starfsmannastjóri mig á
sinn fund. Þar var sagt við mig að í
ljósi þess sem gerðist kvöldið áður
hefði verið ákveðið að rifta ráðn-
ingarsamningi mínum og að lög-
fræðingur fyrirtækisins væri sam-
þykkur þessu. Þær voru klárar með
uppsagnarbréfið sem ég átti að
skrifa undir. Þetta kom mér hrein-
lega í opna skjöldu og ég trúði
ekki að þetta væri að gerast,“ sagði
Hjörtur við DV á síðasta ári. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Hjörtur Hjartarson Hjörtur mun
áfram starfa hjá 365, þrátt fyrir
atvik sem kom upp á milli hans og
samstarfsmanns hans í byrjun apríl.
Maðurinn hefur hins vegar hætt störf-
um hjá fyrirtækinu. Mynd KRistinn MagnÚsson
ari Edwald Segir erfitt fyrir 365 að gerast dómari í málum sem koma upp á milli sam-
starfsmanna utan vinnustaðarins.
„Það er erfitt fyrir
fyrirtæki að ger-
ast dómari um samskipti
starfsmanna sinna.