Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Blaðsíða 18
Vikublað 29. apríl–1. maí 201418 Fréttir Erlent
n Hætturnar á hæstu tindunum leynast víða n Verstu slysin síðustu áratugina
Níu hörmuleg
slys á fjöllum
A
ð ganga á fjöll getur verið
krefjandi og jafnvel lífs-
hættulegt eins og mýmörg
dæmi sanna, nú síðast
þann 18. apríl þegar sex tán
létust í snjóflóði á Mount Everest.
Í fjallamennsku leynast hætturnar
víða; veikindi geta komið upp,
skriðuföll og snjóflóð geta orðið og
í bröttum hlíðum og skiptir máli að
vera vel skóaður til að missa ekki fót-
anna og detta. DV skoðar hér nokkur
hörmuleg slys sem orðið hafa á fjöll-
um undanfarna áratugi en vefurinn
Listverse.com tók saman. n
einar@dv.is
Pamírfjöll
Land: Kirgisistan Hæð: 7.134 metrar
Mannskaði: 40
n Eitt versta fjallgönguslys sögunnar
varð þann 17. júlí 1990 þegar 40 manns
létust þegar þeir reyndu að komast
á Leníntind í Pamírfjöllum. Alls voru
140 göngumenn í hópnum sem reisti
búðir í sex þúsund metra hæð, á svæði
sem kallað er Steikarpannan. Þar
dundu ósköpin yfir er snjóflóð féll á
hópinn. Alls létust 40 manns, þar af 27
Sovétmenn. Hinir sem létust voru frá
Tékkóslóvakíu, Ísrael, Sviss og Spáni.
Nanga Parbat
Land: Pakistan Hæð: 8.126 metrar
Mannskaði: 16
n Nanga Parbat er níunda hæsta fjall
heims og talið eitt það hættulegasta í
heimi. Árið 1937 fjármögnuðu nasistar
leiðangur þýsks hóps á fjallið. Til
stóð að fara sömu leið og Willy Merkl,
þýskur göngugarpur, fór þegar hann
lést á fjallinu þremur árum fyrr. Þann
14. júní þetta ár féll snjóflóð í búðir
gönguhópsins og létust sjö Þjóðverjar
úr hópnum og níu sjerpar, samtals
sextán manns.
Mount Hood
Land: Bandaríkin Hæð: 3.426 metrar
Mannskaði: 9
n Þann 12. maí 1986 héldu 19 manns á
topp Mount Hood í Oregon-ríki. Stuttu
eftir að lokakaflinn hófst sneru sex til
baka vegna veikinda og þreytu. Hinir
þrettán komust í 3.000 metra hæð en
urðu frá að hverfa vegna aftakaveðurs.
Veðrið var orðið það slæmt að göngu-
mennirnir ákváðu að grafa sig í fönn.
Daginn eftir komust tveir úr hópnum
niður til að sækja hjálp. Leitarhópar voru
kallaðir út og þann 14. maí fundust þrír úr
hópnum sem frosið höfðu í hel. Hinir átta
fundust þann 15. maí, sex þeirra höfðu
hlotið sömu örlög en tveir voru á lífi. Af
þeim fjórum sem komust lífs af hlutu þrír
alvarleg kalsár. Fjarlægja þurfti báða
fótleggi af einum þeirra.
Mount Everest
Land: Nepal Hæð: 8.848 metrar Mannskaði: 8
n 11. maí 1996 létust átta í tilraun til komast á topp fjallsins. Um
var að ræða tvo hópa, alls 33 göngumenn. Lagt var af stað um
miðnætti en klukkan 14.00 næsta dag höfðu margir ekki náð
toppnum. Um 14.30 voru göngumenn enn á leið á toppinn veður
fór versnandi. Þeir síðustu komust ekki á toppinn fyrr en um
15.45. Þá sáu þeir ekki handa sinna skil og margir týndu áttum.
Daginn eftir kom í ljós að þrír höfðu króknað úr kulda, tveir
hrapað til bana og þrír farist er þeir reyndu að komast á topp
fjallsins frá Indlandi.
K2
Land: Pakistan/Kína Hæð: 8.611 metrar
Mannskaði: 11
n K2 er næsthæsta fjall jarðar og
af mörgum talið það erfiðasta til að
ganga á. Tölfræðin segir að fyrir hverja
fjóra sem komast á toppinn deyi
einn. Þann 1. ágúst 2008 létust ellefu
göngumenn á fjallinu og þrír slösuðust
alvarlega. Um var að ræða versta
slysið á fjallinu síðan það var fyrst
klifið árið 1954. Fyrst hrapaði einn
göngumaður til bana og í björgunar-
aðgerðum hrapaði annar til bana. 18
komust á toppinn þennan dag en á
niðurleiðinni féll íshella sem klippti
klifurkaðla í sundur og voru göngu-
mennirnir því fastir í hinu svokallaða
dauðabelti, sem er í yfir 8.000 metra
hæð. Sumum tókst að komast niður
að næturlagi en aðrir biðu átekta. Ís-
hellur héldu áfram að hrynja og þegar
upp var staðið lágu ellefu í valnum.
Mount Manaslu
Land: Nepal Hæð: 8.156 metrar Mannskaði: 15
n Manaslu, sem tilheyrir Himalaya-fjöllum, er áttunda hæsta fjall jarðar. Fyrstir til að
klífa fjallir voru Japanarnir Toshio Imanishi og Gyalzen Norbu, árið 1956. Árið 1972 hélt
suðurkóreskur hópur á fjallið og gerði tilraun til að komast upp norðausturhlið fjallsins.
Í 6.500 metra hæð dundu ósköpin yfir þegar snjóflóð féll á tjaldbúðir hópsins. Fimmt-
án göngumenn, þar á meðal tíu sjerpar, létu lífið.
Mount Temple
Land: Kanada Hæð: 3.400 metrar Mannskaði 7
n Þann 11. júlí varð eitt versta fjallaslys í sögu Kanada þegar sjö
ungir Bandaríkjamenn létust á suðvesturhluta fjallsins. Alls lögðu
ellefu af stað en um var að ræða óvana og illa klædda göngu-
menn sem nutu engrar leiðsagnar reynds fjallgöngumanns. Í um
2.700 metra hæð ákvað hópurinn að réttast væri að halda niður.
Ekki voru mennirnir langt komnir þegar snjóflóð féll á hópinn. Tíu
drengir á aldrinum 12 til 16 ára lentu í flóðinu, þar af létust sjö.
Mont Blanc
Land: Ítalía/Frakkland Hæð: 4.810
metrar Mannskaði: 8
n Mount Blanc er hæsta fjall Alpanna en
einnig hæsta fjall Vestur-Evrópu. Þann
24. ágúst 2008 var 47 manna hópur á
norðvesturhluta fjallsins þegar snjóflóð
féll í um 3.600 metra hæð. Snjóflóðið
var um 200 metrar á breidd og hreif með
sér fimmtán göngumenn. Átta af þeim
fóru með flóðinu niður snarbrattar hlíðar
fjallsins og létust þeir. Hinir sjö slösuðust
misalvarlega.
Dhaulagiri
Land: Nepal Hæð: 8.167 metrar
Mannskaði: 7
n Dhulagiri er 7. hæsta fjall jarðar og
var fyrst klifið árið 1960. Að morgni 28.
apríl 1969 héldu sex Bandaríkjamenn
og tveir sjerpar þeim til aðstoðar úr
ísfallinu svokallaða, í um 4.000 metra
hæð, til að bera birgðir upp í næstu
búðir. Á leið sinni þurfti hópurinn að
komast yfir sprungu og til þess þurfti
að brúa hana. Þegar sú vinna stóð
yfir féll snjóflóð á hópinn og létust sjö
manns. Einn úr hópnum komst lífs af.