Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 29. apríl–1. maí 201438 Fólk
Dóttirin
stal senunni
Leikarinn Jamie Foxx tók dóttur
sína með sér á frumsýningu nýju
Spider-Man myndarinnar í New
York á dögunum.
Hin fjögurra ára Annalise
Bishop mætti á sýninguna mál-
uð eins og persóna pabba síns úr
myndinni, en hann leikur Electro,
fjandmann Köngulóarmannsins.
Foxx segir dóttur sína vera
gríðarlegan aðdáanda ofurhetj-
unnar og þegar sú stutta frétti að
pabbi hennar ætti að leika óvin
Köngulóarmannsins spurði hún
að sjálfsögðu hvort Köngulóar-
maðurinn lúskraði ekki örugglega
á honum. „Ég svarað auðvitað ját-
andi,“ bætti Foxx við hlæjandi.
L
eikkonan Meryl Streep er flestum
kunn, enda spannar ferill henn-
ar marga áratugi og hefur hún
margsinnis unnið til verðlauna,
meðal annars þrisvar sinnum til Ósk-
arsverðlauna. Leikkonan hélt ræðu á
dögunum þegar hún tók við heiðurs-
doktorsnafnbót við Bloomington-há-
skóla í Indianapolis og sagði með-
al annars: „Ég held að ég hafi líklega
verið eins og hver önnur stelpa sem
klæðir sig í prinsessukjól og býst við að
fá óskipta athygli allra í kring um sig,
flestar okkar vaxa upp úr því. Ég var
alltaf að leika í leikritum en ég taldi að
það væri ómögulegt fyrir mig að starfa
sem leikkona. Ég hélt að ég væri of ljót
til þess. Gleraugu þóttu ekki fín í þá
daga.“
Í ræðunni talaði hún til stúlkna sem
eru óöruggar vegna útlits síns og sagði
þeim að hafa ekki miklar áhyggjur.
„Ekki hugsa svona mikið um þyngd-
ina. Stelpur eyða allt of miklum tíma í
það og það eru til mikilvægari hlutir en
það. Það sem gerir okkur, bæði karla
og konur, öðruvísi eða skrýtin er í raun
styrkleikar okkar. Áður fyrr hataði ég til
dæmis nefið á mér, en ég geri það ekki
í dag. Það er bara allt í lagi.“ n
Taldi sig of ljóta til að geta orðið leikkona
Leikkonan segir ungt fólk of upptekið af útliti sínu
Meryl Streep Leikkonan hafði ekki mikla
trú á sjálfri sér til að byrja með.
Ekki nógu sæt?
Meryl Streep í
kvikmyndinni
Kramer vs. Kramer
frá árinu 1979.
Þessar eru
fallegastar
P
eople Magazine valdi á
dögunum 50 fegurstu kon-
urnar í skemmtanabransan-
um. Sú sem trónir á toppnum
og prýðir forsíðu tímaritsins
er engin önnur en leikkonan Lupita
Nyong'o sem fékk Óskarsverðlaun
fyrir hlutverk sitt í myndinni 12 Years
a Slave. Í samtali við tímaritið sagði
Lupita að það væri mikill heiður að
vera valin en þegar hún hafi verið lítil
hafi hún aldrei upplifað sig sem fal-
lega. Hún ólst upp við það að ljósar
konur með ljóst hár væru þær falleg-
ustu. Móðir hennar hafi þó alltaf sagt
henni að hún væri falleg en hún segist
ekki hafa trúað henni fyrr en núna. n
People Magazine valdi fallegustu konurnar
1 Lupita Nyong'o Leikkonan Lupita
Nyong'o var valin sú falleg-
asta af tímaritinu People.
Lupita hefur heldur betur
slegið í gegn undanfarið en
hún fékk Óskarsverðlaunin
fyrir hlutverk sitt í myndinni
12 Years a Slave. Lupita var
ánægð með viðurkenn-
inguna og sagði í samtali við
People Magazine: „Þetta er
spennandi og mjög, mjög
mikið hrós.“
2 Keri Russel
3 Jenna Dewan- Tatum
4 Mindy Kaling 5 Pink 6
Amber
Heard
7 Gabrielle Union
8 Molly Sims
10 Kerry Washington
9 Stacy Keibler
Fannst
endirinn fínn
Margir aðdáendur þáttanna How I
Met Your Mother voru vonsviknir
með lokaþáttinn sem sýndur var
fyrir nokkrum vikum. Neil Patrick
Harris, sem lék Barney Stinson í
þáttunum, tjáði sig um lokaþátt-
inn í þætti Davids Letterman á
dögunum og sagðist vera sáttur
við hvernig þáttaröðin endaði.
„Framleiðendurnir voru fyrir
löngu búnir að ákveða hvernig
þátturinn myndi enda. Ég studdi
þá heilshugar og er mikill aðdá-
andi þeirrar ákvörðunar sem þeir
tóku,“ sagði Harris í viðtalinu og
bætti við að líkt og í lífinu þá fari
hlutirnir ekki alltaf eins og við vilj-
um að þeir fari.
Kryddpíur í af-
mæli Victoriu
Kryddpíurnar hafa gefið það út
að þær muni ekki koma saman
á ný en það þýði ekki að þær séu
ekki lengur vinkonur. Victoria
Beckham hélt upp á fertugsaf-
mæli sitt um helgina og komu
þær Emma, Geri og Mel C í af-
mælisfögnuðinn hennar. Það
vantaði því bara Mel B til þess
að allar kryddpíurnar væru sam-
ankomnar á ný. Afmælisgleðin
var haldin í Art Club í London
á laugardaginn. Þær Mel C og
Emma tóku meðfylgjandi sjálfs-
mynd af sér á leið í fögnuðinn.