Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 29. apríl–1. maí 201414 Fréttir að stjórnarformaður Landsbanka Íslands, Helgi S. Guðmundsson, sem jafnframt var frammámað- ur í Framsóknarflokknum, hringdi í einn af væntanlegum tilboðs- gjöfum í Íslenska aðalverktaka og sagði honum að hann ætti ekkert að hafa fyrir því að bjóða í fyrirtæk- ið þar sem „foringinn“ væri búinn að ákveða hver ætti að fá að kaupa það. Með orðinu „foringinn“ vísaði Helgi S. til Halldórs Ásgrímssonar. Stakk upp á viðskiptum Í gögnunum sem DV hefur undir höndum eru fjölmörg dæmi um aðgengi fyrirtækja tengdum Fram- sóknarflokknum að lánsfé og við- skiptum við Landsbankann. Í fundargerð bankaráðs Lands- banka Íslands frá 20. júní 2003 kemur til dæmis fram að Halldór J. Kristjánsson hafi stungið upp á því á fundinum að bankinn keypti tæplega 50 prósenta hlut Íslenskra aðalverktaka í fasteignafélaginu Landsafli. Tekið skal fram að þegar þessi fundur var haldinn var búið að selja Íslenska aðalverktaka frá ríkinu og til nýrra eigenda. Orðrétt sagði í fundargerðinni um viðskiptin við Íslenska aðal- verktaka: „Halldór J. Kristjánsson greindi frá vilja bankastjórnar til að Landsbankinn kaupi 49,5% hlut ÍAV hf í Landsafli. Eignarhlutur Landsbankans eykst úr 13,5% í 63%. Bankaráð er upplýst um að unnið verður að málinu á þessum nótum.“ Selt með langtímaleigusamningi Nýir eigendur Íslenskra aðal- verktaka seldu svo hlut félagsins í Landsafli til Landsbankans í kjöl- farið á þessari tillögu Halldórs J. Í ársreikningi Landsafls fyrir árið 2003 kemur fram að búið hafi ver- ið að ganga frá því íslenska ríkið myndi meðal annars leigja hús- næði á Akureyri af Landsafli en það var í byggingu á þessum tíma. Um var að ræða langtímaleigu- samninga ýmissa stofnana eins og Matís og Háskólans á Akureyri við Landsafl. Þessir leigusamningar juku verðmæti Landsafls og gerðu það að verkum að nýir eigendur Ís- lenskra aðalverktaka gátu selt hlut sinn í félaginu á hærra verði en ella til Landsbankans. Þannig voru nýir eigendur Ís- lenskra aðalverktaka ekki aðeins fjármagnaðir af Landsbankanum, með umræddri ríkisábyrgð, heldur högnuðust eigendurnir líka á við- skiptum við bankann eftir að búið var að einkavæða hann. Í báðum tilfellum var Halldór J. Kristjáns- son lykilmaður í samskiptunum við forsvarsmenn félagsins. Orðrétt segir um leigusamning- ana í ársreikningi Landsafls: „Fé- lagið hefur gert skuldbindandi samning um að leigja fasteignum ríkissjóðs Rannsóknar- og nýsköp- unarhús á Akureyri frá og með 1. M eðal þess sem fram kem- ur í gögnunum er að innri endurskoðandi Lands- bankans, Sigurjón G. Geirsson, fetti fingur út í með- ferð bankans á lánveitingu til eignarhaldsfélagsins FAD 1830 ehf. Það félag var í eigu Einars Benediktssonar, stjórnarmanns í bankanum, auk Gísla Baldurs Garðarsonar. FAD hafði þá fengið lán til að kaupa Olís og var þriðji stærsti skuldari bankans í árslok 2003 með rúmlega 7,5 milljarða lán en einungis Landsbankinn í Lúxemborg og Eimskipafélag Ís- lands voru stærri skuldarar. Ábendingar Sigurjóns komu fram á fundi í endur- skoðunarnefnd bankans í október 2003. Orðrétt segir í fundar- gerðinni: „SGG gerði grein fyrir ábendingum sínum til bankastjórnar varðandi feril við samþykkt bankaráðs um viðskipti við venslaða aðila á þessu ári, en lánveiting bankans til félagsins FAD 1830 hefði t.a.m. ekki feng- ið þá formlegu meðferð í banka- ráði sem starfsreglur bankaráðs gera ráð fyrir og ákvæði leið- beinandi reglna FME gera kröfu um. Ákveðið var í samráði við bankastjóra að málefni FAD 1830 yrðu afgreidd á næsta bankaráðs- fundi.“ Á næsta bankaráðsfundi gerði Halldór J. Kristjánsson grein fyrir lánveitingunni frá bankanum til FAD 1830 og taldi hann ekkert athugavert við úrvinnslu henn- ar. Orðrétt segir í fundargerðinni: „Halldór J. Kristjánsson gerði þá grein fyrir málum FAD 1830 sem tengist Einari Benediktssyni banka- ráðsmanni sem meðeiganda þess félags, sem á OLÍS. Skuldir þessa fé- lags eru sennilega stærsta einstaka skuldbinding á einn aðila í Lands- bankanum í dag. Málið var upplýst og samþykkt samhljóða af þremur viðstöddum bankaráðsmönnum. Upplýst var að lánið er á eðlilegum markaðskjörum, auk þess tengj- ast verulegar þóknunartekjur ver- kefninu. Halldór J. Kristjánsson tók fram að viðskipti við þessa vensl- aða aðila væru áhugaverð og eftir- sóknarverð en kölluðu á sérstaka umfjöllun í bankaráði samkvæmt opinberum reglum.“ Eftir hrunið 2008 kom í ljós að skuldsetning FAD 1830 var í reynd allt of mikil. Meirihlutinn í Olís var þá seldur til útgerðarfélag- anna Samherja og FISK Seafood á Sauðár króki. FAD 1830 missti þar með meirihluta sinn í olíufé- laginu. Fetti fingur út í Olíslán Lánveitingin til móðurfélags Olís þótti ekki hafa verið samkvæmt reglum október 2004. Fjárfestingin er áætl- uð um 930 millj. kr. og hófust fram- kvæmdir á vegum undirverktaka í ágústbyrjun 2003. Á árinu 2003 voru eignfærðar 267 millj.kr. vegna þeirra.“ Í ársreikningi Íslenskra aðal- verktaka fyrir árið 2003 kom svo fram að á árinu 2003 hafði félag- ið selt hlutabréf í fjórum fyrirtækj- um, Landsafli hf., Framtaki Fjár- festingarbanka hf., Kögun hf. og Bláa Lóninu hf. fyrir tæplega 1.800 milljónir og bókfærði verktakafyr- irtækið söluhagnað upp á rúmlega 620 milljónir króna vegna þessara viðskipta. Nýir eigendur íslenskra aðal- verktaka höfðu því selt verulegt magn eigna á fyrsta rekstarári sínu eftir einkavæðingu fyrirtækisins og innleyst talsverðan hagnað. Auk þess sem fjármögnun á kaupunum á verktakafyrirtækinu kom frá ríkis- banka sem á þeim tíma laut póli- tískri stjórn framsóknarmanna að hluta. Sigurjón kom ekki að viðskiptunum Í samtali við DV segir Sigurjón Árnason, annar af bankastjórum Landsbankans frá einkavæðingu og fram að hruninu, að hann viti ekkert um lánafyrirgreiðslu bank- ans til Eignarhaldsfélagsins AV ehf. eða viðskiptin með Landsafl. Hann segist ekki hafa komið að þessum viðskiptum heldur hafi Halldór J. Kristjánsson séð um þau. Sigur- jón segist heldur ekki vita af hverju lán félagsins eru færð til bókar með ríkis ábyrgð. Ein af skýringunum á því af hverju ríkisábyrgð var á láninu til Eignarhaldsfélagsins AV ehf. var sú að Landsbanki Íslands átti hlut í félaginu á þeim tíma sem Íslenskir aðalverktakar voru einkavæddir. Þannig var ríkisbanki að hluta til að kaupa ríkisfyrirtæki af íslenska ríkinu í einkavæðingu verk- takafyrirtækisins. Rúmi ári eftir einkavæðingu Íslenskra aðalverk- taka seldi bankinn svo hluta sinn í verktakafyrirtækinu til annarra eigenda þess. Hugsanlegt er að þetta skýri af hverju eingöngu hluti skulda Eignarhaldsfélags- ins AV ehf. við Landsbankann var með ríkisábyrgð. Nokkuð sérstakt verður hins vegar að teljast að einkafyrirtæki hafi verið í samstarfi við ríkis- banka um kaup á ríkisfyrirtæki og að hluti skuldbindinga þess félags hafi verið með ríkisábyrgð. Engir ársreikningar Í gögnunum sem DV hefur undir höndum kemur ekki fram hvern- ig lán Eignarhaldsfélagsins AV ehf. voru gerð upp hjá Landsbankan- um. Félagið hefur aldrei skilað árs- reikningi þannig að ekki er hægt að sjá hvernig félagið gerði upp við lánardrottna sína. Þá hefur fé- lagið sem tók við eignarhaldinu á Íslenskum aðalverktökum af Eignarhaldsfélaginu AV ehf., Drög ehf., heldur aldrei skilað ársreikn- ingi. Eitt af umdeildustu málunum sem tengjast einkavæðingu Ís- lenskra aðalverktaka er að verð- mæti eigna félagsins var vanmetið í bókhaldi félagsins. Sérstaklega var um að ræða hið svokallað Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Það landsvæði var vanmetið um 3,5 milljarða í bókhaldi félagsins, var metið á ríflega 800 milljónir króna en var svo endurmetið upp á nærri 4,4 milljarða króna í lok árs 2003. Það var einkum vitneskja stjórnenda ÍAV um undirliggjandi verðmæti Blikastaðalandsins sem varð til þess að einkavæðing verk- takafyrirtækisins var dæmd ólög- mæt árið 2008. Selt á 6,2 milljarða Í ársbyrjun 2008 seldi Eignarhalds- félagið AV ehf. Blikastaðalandið til eignarhaldsfélags í eigu Péturs Guðmundssonar í Eykt, Holtasels ehf. Kaupverðið nam 6,2 millj- örðum króna og nam bókfærð- ur munur á verðmati landsins í einkavæðingunni 2003 og sölu- verðinu árið 2008 meira en 5 millj- örðum króna. Sigurjón Árnason segir, án þess þó að hann viti það fyrir víst, að langlíklegast sé að Eignarhaldsfé- lagið AV ehf. hafi gert upp skuld sína við Landsbankann í kjölfar sölunnar á Blikastaðalandinu. Líkt og áður segir er hins vegar ekki hægt að sjá nákvæmlega hversu mikið Eignarhaldsfélagið AV ehf. græddi á viðskiptum sínum með Íslenska aðalverktaka og eignir þess, né hvenær félagið gerði upp skuldir sínar við Landsbankann, þar sem engir ársreikningar eru til um starfsemi félagsins. n U pplýsingarnar um fjár- mögnun Landsbanka Ís- lands á Eignarhalds- félaginu AV ehf., og þá ríkisábyrgð sem var á hluta skulda félagsins, bætast við fyrirliggj- andi upplýsingar um fjármögn- un ríkis bankanna á einkavæð- ingarverkefnum á síðasta áratug. Fyrir hefur legið að Búnaðarbanki Íslands fjármagnaði að hluta til kaup eignarhaldsfélagsins Sam- son á Landsbankanum, Lands- bankinn fjármagnaði sömuleiðis að hluta til kaup S-hópsins á Bún- aðarbankanum og Landsbankinn fjármagnaði einnig að hluta til yfir töku S-hópsins á hlutabréfum bankans í Vátryggingafélagi Ís- lands síðla árs 2002. Þannig fjármögnuðu ríkis- bankarnir kaup einkaaðila á þessum ríkiseignum á árunum 2002 og 2003. Ríkisbankarnir lánuðu fyrir einkavæðingunni Lánuðu fyrir VÍS, Landsbankanum og Búnaðarbankanum og ÍAV „Skuldir þessa fé- lags eru sennilega stærsta einstaka skuldbinding á einn aðila í Lands- bankanum í dag Stjórnarformaðurinn Jón Sveinsson var stjórnarformaður Íslenskra aðalverktaka þegar fyrirtækið var einkavætt árið 2003 og eins eftir einkavæðingu. Forstjórinn Stefán Friðfinnsson var forstjóri Íslenskra aðalverktaka þegar fyrirtækið var einkavætt en sú einkavæðing var dæmd ólögmæt í Hæstarétti Íslands árið 2008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.