Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Side 10
Vikublað 29. apríl–1. maí 201410 Fréttir Aðstoðarmaður fór skyndilega Margrét Gísladóttir færð frá utanríkisráðherra í sérverkefni hjá forsætisráðuneytinu S igmundur Davíð Gunn­ laugsson forsætisráðherra hefur fengið aðstoðarmann utanríkisráðherra lánaðan yfir í sitt ráðuneyti. Margrét Gísladóttir, aðstoðarmaður Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ ráðherra, var færð yfir í tímabund­ in sérverkefni á sviði upplýsinga­ mála hjá forsætisráðuneytinu fyrir um mánuði. DV fékk misvísandi svör varðandi hversu lengi Margrét verð­ ur hjá forsætisráðuneytinu. Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, segist ekki vita hversu lengi Margrét muni starfa hjá for­ sætisráðuneytinu. Sjálf segir Margrét að verkefnið sé til tveggja mánaða. Þá tekur hún sérstaklega fram að hún sé ekki hætt sem aðstoðarmað­ ur Gunnars Braga heldur sé hún „í láni“ hjá forsætisráðuneytinu þenn­ an tíma. Viðmælandi DV, sem starf­ að hefur innan stjórnsýslunnar seg­ ir þetta dæmi um „mjög furðulega stjórnsýslu.“ Mjög óvanalegt Óvanalegt er að aðstoðarmenn ráð­ herra séu færðir yfir í sérverkefni hjá öðru ráðuneyti. Eftir því sem DV kemst næst eru engin nýleg dæmi um slíkt. Heimildir DV herma að ein af ástæðunum fyrir tilfærslunni hafi verið samskiptaerfiðleikar Margrétar og Gunnars Braga. Þessu neitar Mar­ grét en hún vill meina að um „fráleit­ ar ásakanir“ sé að ræða: „Það hafa ekki orðið samskiptaárekstrar milli mín og Gunnars Braga […] Við Gunn­ ar Bragi vinnum mjög vel saman. Ég var fengin í tímabundið sérverkefni á sviði upplýsingamála, til tveggja mánaða. Minn bakgrunnur er í al­ mannatengslum og því þótti kjörið að ég tæki slíkt að mér.“ Stuttu eftir að Margrét hafði svarað DV hringdi Jóhann Þór Skúlason, aðstoðarmað­ ur forsætisráðherra, í blaðamann til þess að ítreka að ekkert væri hæft í því að hún hefði verið færð til í starfi vegna samskiptaárekstra. „Ekki ráðin hingað inn“ Gunnar Bragi vildi ekki tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hann en vísaði í það að Margrét hefði svarað fyrirspurn blaðamanns. Að­ spurð hvaða verkefnum hún sinni ná­ kvæmlega hjá forsætisráðuneytinu segir Margrét: „Þetta snýr að breytt­ um verkferlum í kringum upplýsinga­ gjöf, bæði innri og ytri.“ Aðstoðarmenn ráðherra eru póli­ tískt ráðnir og því ekki eins og hefð­ bundnir starfsmenn stjórnarráðsins sem hægt er að flytja á milli verkefna og ráðuneyta. Blaðamaður veltir því upp hvort ekki megi líta svo á að Margrét sé aðstoðarmaður forsætisráðherra á meðan hún starfar fyrir ráðuneytið. Margrét segir svo ekki vera: „Nei, ég er ennþá aðstoðarmaður utanríkis­ ráðherra, í láni í tímabundnu sér­ verkefni í forsætisráðuneytinu.“ Það sé ekki rétt skilið að líta megi á hana sem aðstoðarmann forsætisráðherra enda hafi hún ekki verið ráðin til starfa: „Aðstoðarmenn eru sérstak­ lega ráðnir. Ég er ekki ráðin hing­ að inn og alls ekki ráðin inn sem að­ stoðarmaður, heldur er ég einungis að sinna þessu verkefni og hef aðset­ ur til þess hér.“ Aðspurð hvort hún geti sinnt hlut­ verki sínu sem aðstoðarmaður utan­ ríkisráðherra á meðan hún starfar í forsætisráðuneytinu segir Margrét: „Á meðan ég er í þessu verkefni sinn­ ir Sunna Gunnars Marteinsdóttir, annar aðstoðarmaður Gunnars Braga, daglegum verkefnum að­ stoðarmanns utanríkisráðherra.“ Af svörunum að dæma fæst ekki betur séð en að Margrét starfi frítt fyrir for­ sætisráðuneytið á meðan hún þigg­ ur áfram laun fyrir starf sitt sem að­ stoðarmaður utanríkisráðherra, sem hún getur þó ekki sinnt meðan á „sérverkefninu“ stendur. Óljóst hve lengi Ólíkt Margréti segir Sigurður Már Jónsson algjörlega óljóst hversu lengi Margrét muni starfa fyrir ráðuneytið. Hann segir starf hennar þar felast í því að sinna samskiptum við þingið og upplýsingamálum almennt. Verið sé að fara yfir verkferla þegar kemur að upplýsingamálum hjá forsætisráðu­ neytinu. „Það fer nú að líða að þing­ lokum og menn vilja hafa ákveðið svigrúm til þess að þungi vinnunnar geti verið að færast til, á milli deilda, eða á milli ráðuneyta, eftir því hvern­ ig það er.“ Þá spyr hann blaðamann hvort honum finnist slíkt óeðlilegt: „Þannig að finnst þér óeðlilegt að það sé eitt­ hvað svigrúm til þess að flytja fólk á milli þar sem menn vilja skerpa á ein­ hverjum þáttum eða eru tímabundin verkefni á borðinu?“ Aðspurður hvers vegna aðstoðar­ maður utanríkisráðherra hafi verið fenginn í þetta verkefni frekar en einhver annar svarar Sigurður með annarri spurningu: „Frekar en ein­ hver annar hver?“ Þekkir engin fordæmi Þegar blaðamaður ítrekar spurn­ ingu sína og spyr hvort það séu ein­ hverjar sérstakar ástæður fyrir því að aðstoðarmaður utanríkisráð­ herra hafi verið fenginn í sérverkefni hjá forsætisráðuneytinu segir Sig­ urður svo ekki vera: „Það þótti bara falla að vinnulagi á báðum stöðum, það var nú svona áhugi á að skerpa á ákveðnum þáttum og þetta hentaði á báðum stöðum.“ Aðspurður hvort fordæmi séu fyrir því að aðstoðar­ maður ráðherra sé færður til að starfa tímabundið í öðru ráðuneyti segist Sigurður telja að fyrir því séu for­ dæmi. Þegar hann er síðar beðinn um að nefna dæmi segist ekki hann ekki þekkja nein slík. Sigurður Már er ekki eins af­ dráttarlaus og Margrét þegar hann er spurður út í hvort ekki megi líta þannig á að nú sinni hún starfi að­ stoðarmanns forsætisráðherra: „Já, ég veit það nú kannski ekki, hún hef­ ur auðvitað starfsstöð hér að neðan, en af verkefnunum að dæma þá er það nú kannski ekki þannig.“ Fyrir er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra með tvo aðstoðar­ menn, þá Jóhanns Þór Skúlason og Ásmund Einarsson, þingmann Fram­ sóknarflokksins, en hann þiggur ekki laun fyrir starfið. Leiddist á fundi í Balí Margrét Gísladóttir var ráðin að­ stoðarmaður Gunnars Braga í maí í fyrra. Hún er „Skagfirðingur í húð og hár“ eins og segir á vefsíðu skagfirska fréttablaðsins Feykis, dóttir séra Gísla Gunnarssonar og Þuríðar Þorbergs­ dóttur frá Glaumbæ. Sem kunnugt er þá er Gunnar Bragi Sveinsson einnig Skagfirðingur og er fyrsti maður á lista Framsóknarflokksins í Norð­ vesturkjördæmi. Það vakti nokkra athygli meðal kunnugra í desember í fyrra þegar Margrét Gísladóttir setti inn Twitter­ færslur frá ráðherrafundi á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunar sem hún sat á Balí í Indónesíu. Á fundinum var meðal annars gerður samningur um tollamál á milli aðildarríkja stofn­ unarinnar. Í Twitter­færslunni sagði Margrét: „Hér sit ég að ræða gjaldeyrishöft, verðtryggingu og skuldaleiðréttingu við Belga, Dana, Mauritusbúa og Indónesíumann #FML #ishouldgeta­ medal.“ Færsluna setti Margrét inn á sína eigin Twitter­síðu en einnig síðu sem ber yfirskriftina „I should get a medal“ en inn á þá síðustu hafa ýms­ ir Twitter­notendur sett færslur sem lýsa einhverju sem þeim þykir leiðin­ legt, svo leiðinlegt að þeir segja í gríni að þeir ættu að fá viðurkenningu fyrir að gera viðkomandi hlut. n Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Fær aðstoð Ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra fær sérstaka aðstoð frá aðstoðarmanni utanríkisráðherra nú um stundir. Í láni Margrét Gísla- dóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segist vera í láni hjá forsætis- ráðuneytinu til þess að sinna sérverkefnum á sviði upplýsingamála. „Það hafa ekki orðið samskipta- árekstrar milli mín og Gunnars Braga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.