Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Page 15
Vikublað 29. apríl–1. maí 2014 Fréttir Viðskipti 15
B
yggðasaga Stranda er rit-
verk sem hefur verið í
vinnslu síðan árið 1980.
Verkið hefur verið óklárað
í rúma þrjá áratugi og
miklar skuldir liggja að baki því.
Verkið var upprunalega í hönd-
um einkafélagsins Búnaðarsam-
bands Strandamanna en líkt og
fram kemur í rannsóknarskýrslu
Alþingis um aðdraganda og orsak-
ir erfiðleika og falls sparisjóð-
anna var sambandið í tæplega 50
milljóna króna skuld við Spari-
sjóð Strandamanna árið 2011
vegna verksins. Heimildarmenn
DV í Strandabyggð herma hins
vegar að í dag sé upphæð skuldar-
innar ekki undir 70 milljónum
króna. DV greindi frá því fyrir ári
að sveitarstjórn Strandabyggðar
hafi ásamt nærliggjandi sveitar-
félögum ákveðið að taka á sig
hluta skuldarinnar en líklegt er
að skuld einkafélagsins verði að
fullu afskrifuð.
Verkið keypt með öðru láni
Ekki er nóg með að sveitarfélagið
taki á sig skuld Búnaðarsamband
Strandamanna heldur ákvað
sveitarstjórn Strandabyggð-
ar nú í apríl að kaupa
óklárað verkið af Búnaðar-
sambandi Strandamanna á 12
milljónir króna. Kostnaðinum
er deilt hlutfallslega miðað við
íbúafjölda milli fjögurra sveitar-
félaga en hlutur Strandabyggð-
ar er tæp 70 prósent, eða um
átta milljónir. Tekið verður ann-
að lán hjá Sparisjóði Stranda-
byggðar til að fjármagna þau
kaup. Sveitarfélagið ætlar að
klára verk Búnaðarsambands-
ins en útgáfukostnaður er
áætlaður níu milljónir sem gerir
21 milljónar króna heildarkostnað.
Andrea Kristín Jónsdóttir,
sveitar stjóri Strandabyggðar, segir
á heimasíðu Strandabyggðar að
það sé sökum fjárskorts sem Bún-
aðarsamband Strandamanna geti
ekki lokið við verkið. Búist er við
því að sölutekjur bókarinnar muni
standa undir kostnaðinum sem
sveitarfélagið hefur lagt út.
Icesave Strandabyggðar
Íbúar í Strandabyggð eru margir
hverjir óánægðir og lang-
þreyttir á framgangi mála. „Þetta
mál er miklu meira mál en marg-
ur heldur. Þetta er svona lítið Ice-
save,“ segir íbúi í Hólmavík og er
öruggur á því að það verði ekki
mikil sala í bókinni ef hún kemur
út miðað við óánægju Stranda-
manna. Margir hafi fyrirframgreitt
bókina fyrir um áratug og séu nú
dánir. „Það er deginum ljósara að
það eru ekki margir sem munu
kaupa bókina,“ segir hann. „Allir
eru undrandi út af þessari bók,
hvernig þetta var gert á þeim tíma
og er gert enn.“
Hann segir að margir aðil-
ar máls hafi setið beggja vegna
borðsins. „Það er reynt að fegra
þetta á allan hátt sem er alveg
með ólíkindum,“ segir sami heim-
ildarmaður og telur að málið hafi
fengið óviðunandi meðferð vegna
fjölskyldutengsla. „Það væri löngu
búið að gera mig gjaldþrota ef ég
hefði hagað mér svona.“
Peningatré fyrir sparisjóðinn
Benedikt Sigurbjörn Péturs-
son, íbúi á Hólmavík, segir að
meirihluti íbúa sé mjög ósáttur
við framgang mála. Hann talar
sömuleiðis um fjölskyldutengsl
einstaklinga í Sparisjóði Stranda-
manna, sveitarstjórn Stranda-
byggðar og þeirra sem ritstýrt hafa
bókinni. Hann telur að yfirtaka og
kaup sveitarfélagsins sé ekki síður
ætlað að bjarga sparisjóðnum en
bókinni. „Þessi bók hefur verið
notuð sem peningatré fyrir spari-
sjóðinn. Sparisjóðurinn sér um sig
og sína,“ segir Benedikt. n
Himinháar skuldir
vegna byggðasögu
n Strandabyggð kaupir Byggðasögu Stranda n Verkið kostar um 70 milljónir
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Benedikt S. Pétursson
Segir bókina vera notaða
sem peningatré fyrir spari-
sjóðinn. Mynd BenedIkt S.PéturSSon
Hólmavík Íbúar á Hólmavík eru margir hverjir ósáttir. Byggðasagan hefur verið í vinnslu frá
árinu 1980 og hleypur kostnaðurinn á tugum milljóna.
Segir ekkert
rangt við lán
til Imon
„Ég myndi taka þessa ákvörðun
aftur ef ég væri í þessari aðstöðu,”
sagði Sigurjón Þ. Árnason, fyrr-
verandi bankastjóri Landsbank-
ans, fyrir héraðsdómi um fimm
milljarða króna lán til Imon ehf.
í október 2008, þremur dögum
fyrir bankahrunið. Sigurjón er
ákærður fyrir markaðsmisnotkun
ásamt Sigríði Elínu Sigfúsdóttur
og Steinþóri Gunnarssyni.
Lánið var veitt til hlutabréfa-
kaupa Imon í bankanum, en sér-
stakur saksóknari heldur því fram
að um sýndarviðskipti hafi verið
að ræða sem ætlað var að auka
eftirspurn eftir bréfum bankans.
Sigurjón sagði við aðalmeðferð
málsins í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á mánudag hins vegar að hann
hafi verið að horfa til lengri tíma,
þar sem Imon var stærsti hlut-
hafinn í Byr en Sigurður vildi sam-
eina Byr og Landsbankann. Lánið
hefði því verið mjög gott og hann
gefið grænt ljós á lánveitingu.
„Það er ekkert rangt, óheiðar-
legt, trúnaðarbrot eða misnotk-
un á réttindum að lána aðila til að
kaupa Landsbankabréf,“ sagði Sig-
urður jafnframt þegar hann svar-
aði spurningum saksóknara fyrir
héraðsdómi.
„Ekkert af þessum ávirðing-
um stenst. Reglum var fylgt,“ sagði
Helga Melkora Óttarsdóttir, verj-
andi Sigríðar Elínar. Benti hún
á að enginn auðgunarásetning-
ur hafi verið við lánveitinguna
og það væri af og frá að Elín væri
sek um markaðsmisnotkun í mál-
inu. Helga sagði sönnunarfærslu
í málinu verulega ábótavant. Sak-
aði hún ákæruvaldið um að hafa
sjálft gerst brotlegt við rannsókn
málsins þar sem hleruðum sím-
tölum Elínar hafi ekki verið eytt
lögum samkvæmt.
rannsóknarskýrslan um sparisjóðina Fjallað er um Sparisjóð Strandamanna í skýrslunni.
17 sagt upp
Endurskoðunar- og ráð-
gjafafyrirtækið Deloitte hef-
ur sagt upp 17 af ríflega 190
starfsmönnum fyrirtækis-
ins. Í tilkynningu kemur fram
að þetta sé vegna aukinn-
ar samkeppni og breytinga
á starfsumhverfi fyrirtækja
á sama sviði. „Stjórnend-
um Deloitte þykir leitt að sjá
á eftir þeim reynslumiklu
starfsmönnum sem nú skilja
við fyrirtækið og lögð verður
áhersla á að veita þeim stuðn-
ing og hjálp við að finna ný
störf,“ segir í tilkynningunni.