Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Qupperneq 19
Vikublað 29. apríl–1. maí 2014 Skrýtið 19
Seldi heróín
af sjúkrabeði
Lori Sullenberger hefur verið
ákærð fyrir sölu á heróíni í Green-
burg í Pennsylvaníu. Það væri þó
ekki frásögu færandi nema fyrir
þær sakir að Lori seldi dópið til
sjúklinga á Excela Westmoreland-
sjúkrahúsinu í Greenburg. Lori
var sjálf í meðferð á sjúkrahúsinu,
þó ekki hafi verið greint frá því við
hvaða veikindi hún átti að etja.
Það var starfsfólk á sjúkrahúsinu
sem taldi það vera ansi grunsam-
legt hversu margir heimsóttu Lori
daginn út og inn. Þangað komu
bæði aðrir sjúklingar og fólk af göt-
unni sem virtist þekkja hana mis-
vel. Starfsfólk hafði samband við
lögregluna og óeinkennisklæddur
lögreglumaður var sendur á
sjúkrahúsið til að kanna aðstæður.
Hann keypti heróín af Lori, en lög-
reglumenn hafa heimild til þess að
leiða fólk í slíkar gildrur í Pennsyl-
vaníu. Hún var handtekin og hef-
ur verið ákærð fyrir að hafa undir
höndum efni fyrir 3.800 dollara,
auk peninga sem hún fékk fyrir
söluna á efninu.
Fljúgandi
furðuhlutur?
Sextán árastúlka í Bretlandi segist
sannfærð um að hún hafi séð
fljúgandi furðuhlut á flugi í Leam-
ington Spa þann 11. apríl.
Hún var að spila tennis í garðin-
um á heimili
sínu þegar hún
sá svartan hr-
ing sem var að
myndast lötur-
hægt á himni.
Talið er ólík-
legt að um sé
að ræða hóp
af fuglum eða
skordýrum og
segir fyrrverandi FBI-lögreglumað-
ur, Ben Hansen, að líklega sé um
að ræða fljúgandi furðuhlut, eða
eitthvað yfirnáttúrulegt. Sá sérhæf-
ir sig í því að kanna hluti sem erfitt
er að útskýra og líklegt er að séu
yfir náttúrulegir.
Nágrannavarsla
Ku Klux Klan
Ku Klux Klan-samtök í Pennsyl-
vaníu hafa ákveðið að vera með
nágrannavörslu í hverfi í bæn-
um Fairview. „Þú getur sofið rótt í
nótt vitandi að Klanið vakir,“ segir
á auglýsingasnepli sem samtökin
hafa dreift meðal íbúa. Ku Klux
Klan-samtökin eru ein þau um-
deildustu í heimi, en þau halda
fram yfirburðum hvíta kynstofns-
ins. Það veldur því mörgum mikl-
um áhyggjum að slík samtök taki
að sér nágrannavörslu. Talsmað-
ur samtakanna segir þó ekkert að
óttast, samtökin ætli sér að vera
sanngjörn og aðeins að fylgjast
með til að vernda nágrannana.
„Við tilkynnum allt sem við sjáum,
en ætlum ekki að fylgjast sérstak-
lega með neinum kynþætti,“ segir
talsmaðurinn Fran Ancona. „Mér
finnst þetta hræðilegt,“ segir íbúi
í hverfinu í Fairview. „Ég treysti
þeim nú alls ekki fyrir þessu.“
Sporðrenndi gull-
fiski í drykkjuleik
n „Neknomination“-drykkjuleikurinn er stórhættulegur
T
uttugu og tveggja
ára karlmaður hef-
ur verið kærður
af breskum dýra-
verndarsamtökum
en hann drakk lifandi
gullfisk í umdeildum
drykkjuleik. Drykkjuleik-
urinn „Neknomination“
lifir enn góðu lífi í
netheimum, en þar kepp-
ist fólk um að drekka eins
óvenjulega og frumlega
áfenga drykki og hægt er.
Þannig stefnir fólk oft-
ar en ekki eigin heilsu í
hættu. Þess eru dæmi að
fólk blandi ógnarsterku
áfengi saman og blandi
út í það hreingerningar-
efnum, skordýrum og
jafnvel eigin þvagi.
Blöndun drykkjarins og
sjálf drykkjan er svo tek-
in upp á myndband og
það sett á vefinn. Fólk skorar svo á
vini sem eiga að reyna að toppa vit-
leysuna.
Kærðu hann
Í þessu tilfelli var það Gavin Hope
sem tók áskoruninni. Hann er 22
ára nemi hjá breska hernum. Hann
hafði tekið áskorun félaga sinna
og tók herlegheitin upp á mynd-
band sem síðar fór á Facebook.
Þaðan var myndbandinu dreift á
ógnarhraða um netið og rataði inn
á borð til RSPCA, dýraverndar-
samtaka í Bretlandi. Samtökin
voru fljót að leggja fram kæru gegn
Hope og sögðu hann hafa brotið
dýraverndunarlög með því að inn-
byrða gullfiskinn. Hope blandaði
saman hráu eggi, eldpiparkryddi,
bjór, gullfiskamat og sterku áfengi.
Á myndbandinu segir hann: „Það
er ástæða fyrir því að ég set hér
gullfiskamat, þið sjáið hana núna.“
Næst tók hann glas sem var fullt af
vatni og gullfiskurinn í, og drakk
það. Myndbandinu fylgdi svo þessi
orðsending: „Þú ert ekki alvöru
karlmaður, nema drekka gullfisk.“
Vitleysisgangur
Hope hefur játað brotið greið-
lega og mun þurfa að greiða sekt
þar sem þetta brýtur gegn dýra-
verndunarlögum. Lögmaður hans
sagði að vissulega hefði hann átt að
koma betur fram við fiskinn, þetta
hefði verið vanvirðing. Þó hefði
Hope reynt að láta hann ekki þjást
mjög lengi. Hann segist hafa átt
fiskinn í nokkurn tíma, en taldi að
hann væri veikur eða illa haldinn
því fiskurinn átti það til að synda
á veggi fiskabúrsins. Hann hafði
hugsað sér að sturta honum niður í
klósettið á heimili sínu í Gateshead
í Bretlandi en hætti við. Þess í stað
ákvað hann að bæta honum við
„Neknomination“-áskorunina og
drekka hann. „Þetta var heimsku-
legt,“ segir Hope sjálfur og sagði
að sér væri mjög brugðið vegna
málsins. Hann bjóst ekki við því að
RSPCA lögsækti hann. Talsmaður
dýraverndarsamtakanna segir að
mannslíkaminn sé „enginn staður
til að geyma gullfisk. Fiskurinn get-
ur ekki lifað nema í fjórar mínútur
í maganum. Þetta er því algjörlega
óviðeigandi staður fyrir gullfiska,“
segir Michelle Charlton, talskona
samtakanna.
Hættulegt
Raunar má Hope teljast heppinn.
Á undanförnum mánuðum hafa
komið upp fjölmörg dauðsföll
tengd „Neknomination.“ Leikurinn
á rætur sínar að rekja til ástralskra
ungmenna, en áskoranir berast á
milli á samfélagsmiðlum. 19 ára
piltur drukknaði eftir að hann
þambaði bjórdós í einum rykk og
stökk svo út í á og annar karlmað-
ur drakk svo sterka áfengisblöndu
í einum rykk að hann missti strax
meðvitund. Hann lést stuttu síðar.
Þá eru dæmi þess að fólk falli í dá
vegna ofdrykkju í slíkum leik. Karl-
maður á fertugsaldri sem drakk
blöndu af eldhúshreinsi, eldpipar,
frostlegi og vodka lá lengi meðvit-
undarlaus. n
„Þú ert
ekki
alvöru karl-
maður, nema
drekka gullfisk.
Drakk hann
Hope ætlaði sér
að sturta gull-
fiskinum niður,
en drakk hann
þess í stað.
Miður sín Hope segist ekki hafa haldið að drykkjuleikurinn yrði að dómsmáli.
Kominn heim
Hundurinn Violet er
kominn heim, en enn
finnst hvorki tangur
né tetur af Joel.
Stal hundinum á stefnumóti
Skemmtilegt kvöld breyttist í martröð þegar hundi og sjónvarpi var stolið
L
ögreglan í New Jersey leitar
nú að svikahrappi sem bauð
bandarískri konu á blint
stefnumót á dögunum en stal
svo frá henni. Konan hafði boð-
ið manninum heim til sín, en þegar
hún brá sér frá í næsta herbergi stal
hann sjónvarpinu hennar og Yorks-
hire terrier-hundinum hennar.
Þegar konan hafði samband við
lögregluna ætluðu þeir varla að trúa
því sem konan sagði þeim, enda
þótti maðurinn hafa verið sérstak-
lega ósvífinn. Fólkið hafði kynnst
á stefnumótavefsíðu og litist vel á
hvort annað.
Þau höfðu farið á stefnumót og
maðurinn kvaðst heita Joel. Hún
hafði séð mynd af manninum og
vistað hana á tölvuna sína. Þegar
hann mætti á stefnumótið þekkti
hún hann strax. Þau höfðu skemmt
sér vel og bauð konan honum heim
með sér eftir stefnumótið. Þegar
þangað var komið brá hún sér frá í
stutta stund og þegar hún kom aftur
inn í herbergið var sjónvarpið henn-
ar horfið, sem og hundurinn sem
mun heita Violet. Hún kallaði strax
til lögreglu sem hefur nú í tæpa viku
leitað mannsins.
Hundinum og sjónvarpinu
var skilað þegar að málið komst í
bandaríska fjölmiðla en ekkert hef-
ur spurst til mannsins. Lögreglan
hefur þó dreift myndum af honum
og hefur leitað að honum undanfar-
ið. Hann mun hafa keyrt um á gylltri
Mercedes Benz-bifreið og slegið
talsvert um sig á stefnumótinu, það
er allt þangað til að hann lét greipar
sópa. n astasigrun@dv.is