Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Page 22
22 Umræða Vikublað 29. apríl–1. maí 2014 Greiðum við framtíðarlífeyri með háu vöruverði í dag? Á því rétta ári sem liðið er síð- an ég settist á Alþingi hef ég ítrekað reynt að setja hátt verð á innfluttum matvörum á dagskrá. Meðal annars fór fram á Alþingi í haust sem leið sérstök umræða um hátt verð á matvöru og samþjöppun í verslunarrekstri. Umræðan var góð og hreinskiptin en vakti enga athygli fjölmiðla. Sama má segja um aðrar þær ræð- ur sem sá sem hér ritar hefur flutt um þessi mál. Þar hefur komið fram að leiða má að því líkur að tregða verslunarinnar til að skila áhrifum sterkara gengis krónunnar undan- farið rúmt ár með lækkun vöruverðs sé að kosta heimilin í landinu um- talsvert fé. Íslenska krónan hefur styrkst gagnvart helstu viðskipta- gjaldmiðlum undanfarið ár um rétt 13% að meðaltali. Í nýlegu yfirliti frá ASÍ kemur í ljós að innflutt vara hefur lækkað um 1,5% á sama tíma. Ég lagði að líkum nýlega að ef 5% gengisstyrkingarinnar skiluðu sér í lækkuðu vöruverði myndi sú lækkun leiða til tveggja prósentustiga lækk- unar neysluvísitölu sem um leið myndi lækka verðtryggð lán heim- ilanna um 34 milljarða króna! Það munar um slíka upphæð ekki satt? Umfang og eignarhald stærstu verslunarkeðjanna flækir óneitan- lega málin og gerir öllum erfiðara um vik að komast að hinni eigin- legu verðmyndun. Stærstu verslun- arkeðjurnar eiga nefnilega líka inn- flutnings- og dreifingarfyrirtæki, og jafnvel kjötvinnslur. Þar með ráða þær virðiskeðju matvara og geta verðlagt þær eins og þeim sýnist. Þá kemur að innihaldi fyrir- sagnarinnar hér að ofan. Nú er svo komið að lífeyrissjóðir eiga sameigin lega ráðandi hlut í báðum stóru matvöruverslunarkeðjunum með fulltingi banka og örfárra einstaklinga. Þessi þróun er háska- leg fyrir margra hluta sakir. Fyrst er að telja fyrirtæki sem ráða 70% mat- vörumarkaðarins eru í eigu sömu aðila. Í annan stað eru stjórnunarleg áhrif lífeyrissjóðanna afar takmörk- uð. Þeim hefur t.a.m. ekki tekist, kannski ekki reynt heldur, að vinda ofan af ofurlaunakjörum forstöðu- manna verslunarfyrirtækjanna sem hafa allt að eitt hundrað milljónum í árslaun á mann. Það er óþolandi að fyrirtæki í eigu erfiðismanna skuli marka slíka launastefnu. Í þriðja lagi og ekki síst er það alvarlegt að líf- eyrissjóðir standi að háu vöruverði í því augnamiði að hámarka ávöxtun sína af fjárfestingu í matvöruversl- unarkeðjum. Þannig situr venjulegt launafólk nú uppi með að kaupa dýrara inn en ástæður eru til og greiða þannig fyrir framtíðarlífeyri sinn. Verði ekki breyting á stefnu verslunarkeðjanna hvað verðlagn- ingu nauðsynjavöru varðar sýnist nauðsynlegt að huga að breytingu á þeim greinum samkeppnislaga sem varðar samruna og eignarhald á fyr- irtækjum í ráðandi stöðu á mark- aði. Sá sem hér skrifar er fús að hafa frumkvæði að slíkri breytingu til hagsbóta fyrir venjulegt launafólk. n Ekki sála Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Könnun Gætir þú hugsað þér að kjósa flokk Evrópusinnaðra sjálfstæðismanna? „Það þarf ekkert að vera hærra verð á mat þó þú hendir honum ekki – þvert á móti eru neytendur látnir borga sóun og rýrnun sem verður á vörum … það er falið inní verðinu sem þú borgar – þannig því minna rusl sem er – því ódýrara og fyrir utan allt – þá eiga komandi kynslóðir betri möguleika á góðu lífi á jörðinni :)“ Þetta segir Rakel Garðars- dóttir í athugasemd við frétt um veitingastað sem hefur nánast engum úrgangi hent í tvö ár. 16 „Þetta er til algjörrar skammar fyrir yfirvöld. Þessum unga manni þarf að hjálpa, ekki hafna.“ Athugasemd Bergs Ísleifs- sonar við frétt um mótmæls- velti hælisleitandans Ghasems frá Afganistan. Ghasem var færður á sjúkrahús á sunnudag meðvitundarlaus. 9 „Af hverju komið þið ykkur ekki í fangelsi víst það er svona æðislegt? Alltaf þegar það kemur upp umræða um fangelsismál á landinu þá kemur þetta upp að þeir hafi það svona andskoti gott, ef þeir hefðu það svona gott þá væru væntanlega mun fleiri að reyna að koma sér viljandi inn og ekki segja mér að fólk vill ekki brjóta lögin til að lenda í steininum því það er örugglega hægt að telja það á fingrum annarrar handar hversu margir á landinu eru ekki lögbrjótar. Haldið þið virkilega að fólk væri að eyða öllum þessum peningum í lögfræðinga til að reyna fá sýknun ef þetta væri bara dans á rósum?“ Þetta segir Yngvi Þór Geirsson í athugasemd við frétt um fanga sem eru ósáttir við Pál Winkel fangelsismálastjóra. For- maður Afstöðu, félags fanga, hefur verið færður frá Litla-Hrauni til Akureyrar og segja fangarnir það gert til að þeir geti ekki sinnt hagsmunagæslu. 7 Þ að er ýmislegt að athuga við frumvarp til breytingar á lögum um veiðigjöld nr. 74/2012 sem lagt hefur ver- ið fram í þinginu, en það ber líka með sér jákvæðar lagfær- ingar frá fyrri lögum. Okkur hefur ekki borið gæfa til að leggja frum- varpið fyrr fram og við erum í ann- að sinn að framlengja lög um veiði- gjald til eins árs. Við verðum því að leggja okkur fram á síðustu dög- um þingsins og ljúka málinu og vonandi tekst okkur að slípa frum- varpið til í meðförum þingsins. Í fyrsta lagi er frumvarpið að ganga lengra en ég hefði kosið og er frekar skattur en eðlilegt gjald fyrir aðgang að auðlindinni. Þá hef ég áhyggjur af því að lögin stuðli að enn frek- ari samþjöppun í greininni sem er þó ærin fyrir. Það er ekki til góðs að gengið verði lengra á því sviði. Samþjöppun var nauðsynleg á upphafsárum kvótakerfisins en nú höfum við gengið þann veg meira en á enda. Við höfum mörg stór og glæsileg fyrirtæki í sjávarútvegi sem geta betur staðið undir háum veiði- gjöldum í skamman tíma og þau eru mikilvæg undirstaða fyrir grein- ina. Einstaklingsútgerð er og hefur verið mikilvægur hluti atvinnulífs- ins í hinum dreifðu byggðum og þolir síður þetta háa gjald en það er mjög mikilvægt að við tryggjum út- gerð og vinnslu á landsbyggðinni. Veiðigjald á að vera hóflegt gjald sem endurspeglar þau verð- mæti og arð sem auðlindin skapar útgerðinni. Það gjald eiga allir að greiða óháð skuldastöðu fyrirtækj- anna að mínu viti. Veiðigjald á að vera af lönduðum afla ekki úthlut- uðum heimildum og mikilvægt að lögin taki þeim breytingum. Það er óréttlátt að útgerðir greiði gjald af óveiddum tegundum. Á síðustu loðnuvertíð náðist ekki að veiða 163 þús. tonna kvóta sem var þó mjög lág úthlutun. Margar útgerðir áttu því óveiddar heimildir sem námu hundruðum og jafnvel þúsundum tonna sem þær greiddu engu að síð- ur fullt veiðigjald fyrir. Náttúrulegar aðstæður geta valdið því að ekki ná- ist allur úthlutaður kvóti og þá sér- staklega í uppsjávartegundum og því mikilvægt að binda gjaldið við landaðan afla. Þá er það andstætt minni hug- mynd um veiðigjaldið að renta af fiskvinnslu hafi íþyngjandi áhrif á gjaldið og það hefur sérstaklega slæm áhrif á þær útgerðir sem ekki eru tengdar vinnslu. Það er afar ósanngjarnt að einstaklingsútgerðir ótengdar fiskvinnslunni greiði gjald grundvallað á hagnaði vinnslunn- ar. Við erum að tala um veiðigjald af auðlindinni ekki vinnslunni. Þar koma til annars konar hugmyndir t.d. markaðsgjald til að auglýsa ís- lenska framleiðslu eða það sem ég hef verið óþreyttur á að tala um, hækkun launa til fiskvinnslufólks sem kæmi öllum aðilum best. Ég er reyndar ekki sérstaklega áhuga- samur eða uppfinningasamur um skatta á fyrirtæki eða einstaklinga. Samkvæmt lögunum er heildarfjár- hæð veiðigjalda ákveðin sem 35% af grunni sem er allur hagnaður (EBT) við veiðar og 20% af hagnaði fiskvinnslu. Þá má deila um veiði- gjaldið og hvað það leggst þungt á útgerðina en það er út úr öllu korti að útgerðir sem ekki eru tengdar vinnslu beri gjald vegna hagnað- ar af fiskvinnslunni. Einstaklings- útgerðir munu ekki hafa bolmagn til að standa undir slíku gjaldi og á endanum gefast þær upp og sam- þjöppun í greininni verður meiri og alvarlegi en ástæða er til. Þá kem- ur veiðigjaldið misjafnlega niður á byggðum landsins og landsvæðum. Það er því margt sem þarf að skoða við veiðigjaldið og þing- ið þarf að ljúka við og samþykkja á næstu þremur vikum. Gjaldið er bráðabirgðagjald og sett á til eins árs. Ég hef talað fyrir einföldu, hóf- legu en lifandi veiðigjaldi sem tek- ur á breytingum á mörkuðum frá degi til dags. Einföld prósenta af verði á mörkuðum sem tekur mið af verðmæti hvers söludags land- aðs afla er skiljanlegt og sanngjarnt kerfi. Núverandi kerfi byggir á raun- tölum frá árinu 2012 sem var mjög gott ár í afkomu veiða og vinnslu en á árinu 2014 eru markaðir veik- ir og afurðaverð lægra og því ljóst að veiðigjaldið er of hátt miðað við forsendur í dag. Við höfum því verk að vinna og vonandi náum við lendingu sem sátt næst um. n Veiðigjald eða skattur?„Ég hef talað fyrir einföldu, hóflegu en lifandi veiðigjaldi sem tekur á breytingum á mörkuðum frá degi til dags. Ásmundur Friðriksson alþingismaður Kjallari Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Framsóknarflokks Kjallari 48,7% 3,2% 48% n Óákveðinn n Nei n Já 279 ATKVÆÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.