Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Sparisjóðurinn í Keflavík þarf að af-
skrifa rúmlega 500 milljóna króna
hlutabréfaskuld eignarhaldsfélags
Runólfs Ágústssonar, nýráðins um-
boðsmanns skuldara og fyrrver-
andi rektors Háskólans á Bifröst,
samkvæmt heimildum DV innan úr
bankakerfinu. Félagið heitir Obduro
ehf. og skuldaði það sparisjóðn-
um tæpar 530 milljónir króna í árs-
lok 2008. Lánið var veitt til að kaupa
hlutabréf í Icebank, Sparisjóðabanka
Íslands.
Runólfur var skipaður í emb-
ætti umboðsmanns skuldara í síð-
ustu viku eftir að níu höfðu sótt um
embættið. Rektorinn fyrrverandi var
hins vegar metinn hæfastur. Ekki var
tekið fram í tilkynningu frá félags-
og tryggingamálaráðuneytinu um
ráðninguna hvernig hæfnismatið fór
fram.
Runólfur segir aðspurður að ekk-
ert sé óeðlilegt við þessi viðskipti Ob-
duro og aðkomu hans að þeim. „Ég
átti þessi viðskipti á sínum tíma. Ég
seldi þetta félag 2008 og hef algerlega
dregið mig út úr fjárfestingum. Þessi
viðskipti voru hefðbundin á sínum
tíma og fóru fram á viðskiptalegum
forsendum. Viðskiptin fóru fram að
frumkvæði bankans. Ég hef ekkert
meira um þetta að segja.“
Ljóst er að Runólfur fékk fyr-
irgreiðsluna frá Sparisjóðnum
í Keflavík í tengslum við fram-
kvæmdastjórastöðu sína hjá
menntafyrirtækinu Keili sem stað-
sett er á gamla varnarliðssvæðinu
við Reykjanesbæ. Mikil tengsl voru
á milli Sparisjóðsins í Keflavík og
Sparisjóðabankans og var spari-
sjóðsstjórinn, Geirmundur Kristins-
son, meðal annars stjórnarformað-
ur Icebank auk þess sem Steinþór
Jónsson sat í stjórnum beggja fyr-
irtækjanna. Runólfur var jafnframt
tæplega 10 prósenta hluthafi í fast-
eignafélaginu Háskólavellir ehf.
en það keypti eignir bandaríska
varnar liðsins á svæðinu. Stærsti
hluthafi Háskólavalla var Sparisjóð-
urinn í Keflavík.
Kannast við Steinberg
Runólfur er ekki skráður eigandi
Obduro í dag, samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins fyrir árið 2008, heldur
Steinbergur Finnbogason lögmaður.
Runólfur færði Obduro yfir á Stein-
berg í fyrrasumar, þann 10. júni,
samkvæmt tilkynningu þess efnis
sem send var til fyrirtækjaskrár og
hægt er að nálgast á vefsíðu Láns-
trausts.
Á sama tíma var heimilisfang fé-
lagsins fært af heimili Runólfs á Ing-
ólfsstræti 7b og yfir á heimilisfang
Steinbergs á Grænásbraut. Þess-
ar breytingar á stjórn félagsins voru
gerðar í lok desember árið 2008 og
voru breytingar tilkynntar fyrir ári.
Ekki er vitað af hverju Runólfur færði
félagið yfir á Steinberg eða hvort
greitt hafi verið fyrir það.
Runólfur var hins vegar skráð-
ur eigandi félagsins samkvæmt árs-
reikningi fyrir árið 2007 og átti hann
hundrað prósent í félaginu. Stein-
bergur var nemandi í lögfræði við
Háskólann á Bifröst þegar Runólfur
var rektor og sat meðal annars í há-
skóla- og íbúaráði skólans. Aðspurð-
ur hvernig hann tengist Steinbergi
segir Runólfur: „Steinbergur Finn-
bogason er lögmaður í Reykjavík.“
Aðspurður af hverju hann hafi selt
félagið til Steinbergs segir Runólfur
að hann hafi talið „... eðlilegt að selja
félagið á þeim tíma.“ Spurður hvort
hann hafi þekkt Steinberg á þessum
tíma segir Runólfur: „Ég vissi alveg
hver hann var.“
Runólfur keypti bréfin
Í ársreikningi Obduro fyrir árið 2007,
þegar Runólfur átti félagið einn,
kemur fram að það hafi átt eignar-
hlut í Icebank sem metinn var á tæp-
lega 320 milljónir króna. Nafnverð
hlutarins var hins vegar einungis
rúmar 11 milljónir króna. Í þeim árs-
reikningi voru skuldir félagsins sagð-
ar 226,5 milljónir króna og voru þær
í japönskum jenum og svissneskum
frönkum. Þar kemur jafnframt fram
að skuldirnar séu til greiðslu á árinu
2010.
Þá kemur fram að eina eign Ob-
duro í félögum hafi verið eignarhlut-
urinn í Icebank og að þessi hlutur
hafi verið keyptur fyrir tæplega 320
milljónir króna. Hlutafé félagsins
nam rúmum hundrað milljónum
króna, eins og segir í ársreikningn-
um: „Hlutafé félagsins nam 101,5
milljón og var allt í eigu Runólfs Ág-
ústssonar.“ Hlutaféð var notað til að
kaupa bréfin í Icebank ásamt láns-
fénu frá Sparisjóðnum í Keflavík eftir
því sem Runólfur segir.
Ljóst er út frá ársreikningnum að
Runólfur stofnaði félagið árið 2007,
fékk lán fyrir bréfunum í Icebank og
keypti bréfin þetta ár.
Skuldirnar rúmlega tvöfaldast
Í ársreikningi fyrir 2008 kemur fram
að Obduro hafi tapað rúmlega 610
milljónum króna á því ári og námu
skuldir þess þá tæplega 530 milljón-
um króna. Sem fyrr segir er Runólfur
ekki skráður eigandi félagsins í árs-
reikningnum 2008 en eigendaskiptin
á félaginu áttu sér stað í lok árs 2008.
Ástæða þessara miklu breytinga
á stöðu félagsins á milli ára er með-
al annars sú að eignarhluturinn í Ice-
bank er færður til bókar á nafnverði,
rúmlega 11 milljónir króna, en er
ekki byggður á annars konar mati.
Jafnframt spilar veiking á gengi krón-
unnar miðað við aðra gjaldmiðla
einnig inn í en skuldir Obduro eru
sem fyrr segir í svissneskum frönk-
um og japönskum jenum. En í árs-
reikningnum kemur fram að gengis-
munur upp á 276 milljónir sé ástæða
hækkandi skulda félagsins.
Þar kemur jafnframt fram að
rúmur helmingur af tapi Obduro
sé vegna 300 milljóna króna niður-
færslu á eignarhlutanum í Icebank.
Auk þess er tekið fram að eigið fé
Obduro sé neikvætt um tæpar 518
milljónir króna. Runólfur segir aftur
á móti að eigið fé Obduro hafi verið
jákvætt þegar hann seldi félagið. „Ég
seldi félagið 2008 og þá var jákvætt
eigið fé eftir því sem ég best man...
Þegar ég seldi félagið var það í plús.“
Þetta stenst hins vegar ekki af áð-
urnefndri ástæðu en Runólfur skýl-
ir sér á bak við það að gengið var frá
eigendaskiptunum á stjórnarfundi
Ég vissi alveg hver hann var.
AFSKRIFA MILLJÓNASKULDIR RUNÓLFS
Sparisjóðurinn í Keflavík þarf að afskrifa rúmlega 500 millj-
ónir króna af skuldum eignarhaldsfélags umboðsmanns
skuldara, Runólfs Ágústssonar. Félagið, Obduro, fjárfesti
fyrir 300 milljónir í hlutabréfum Icebank árið 2007. Runólfur
færði félagið af sínu nafni í fyrrasumar. Félagið er eignalaust
í dag og er eigið fé þess neikvætt um rúman hálfan milljarð.
Runólfur segir að um eðlileg viðskipti hafi verið að ræða sem
verið hafi að frumkvæði sparisjóðsins.
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Tengslin við Icebank Mikiltengsl
voruámilliSparisjóðsinsíKeflavík
ogIcebankenGeirmundurKrist-
insson,sparisjóðsstjóriíKeflavík,
varstjórnarformaðurIcebank.
Skipaði Runólf ÁrniPállÁrnason,félags-ogtryggingamálaráðherra,skipaðiRunólf
Ágústssoníembættiumboðsmannsskuldaraísíðustuviku.EkkiervitaðhvortÁrna
PálivarkunnugtumaðRunólfurhefðistofnaðtilhundraðamilljónaskulda.
RUNÓLFUR ÁGÚSTSSONhrökklaðistúrstöðurektorsvið
HáskólannáBifröstínóvember2006eftiraðnokkrirnemendur
skólanskærðuhanntilsiðanefndarskólansvegnaembætt-
isafglapa,ósæmilegrarhegðunarogóeðlilegssamneytisvið
nemendur.Uppsögninkomíkjölfarmikilladeilnaískólanum
semuppkomuvegnaþessamáls.Runólfurhafðiþástýrt
skólanumfráárinu1999.
Eftirþetta,árið2007,varRunólfurráðinnfram-
kvæmdastjórihjámenntafyrirtækinuKeilií
Reykjanesbæoggegndiþvístarfiþartilímars
árið2009.Síðanþáhefurhannveriðstjórn-
arformaðurVinnumálastofnunarogeinnig
Atvinnuleysistryggingasjóðs.Bæðiþessistörf
voruunninávegumfélags-ogtrygginga-
málaráðuneytisÁrnaPálsÁrnasonar.Hiðþriðja
bættistsvoviðísíðustuvikuþegarRunólfurvar
skipaðurístarfumboðsmannsskuldara.
FÓR FRÁ BIFRÖST MEÐ SKÖMM
nObduroerekkieinafélagRunólfssemfékklánáárunumfyrirhrunið.Þannig
fékkannaðfélagíeiguRunólfs,FjárfestingafélagiðTeigurehf.,50milljónakróna
lánfráótilgreindrifjármálastofnunárið2007tilaðkaupahlutabréfífasteigna-
félaginuHáskólavellirehf.ÞettakemurframíársreikningiTeigsfyrirárið2007.
HáskólavellirkeyptufasteignirágamlavarnarliðssvæðinuogvarKeilirþartilhúsa
meðalannars.HáskólavelliráttusömuleiðislítinnhlutíKeilisemRunólfurstýrði.
FjárfestingRunólfsvarðtilþessaðTeigureignaðisttæplega9prósentahlutí
Háskólavöllum.
TeigurerekkilengurskráðuránafnRunólfshelduránafnSparisjóðabankans,
Icebank,samkvæmtupplýsingumfráLánstrausti.Runólfurseldifélagiðtil
Icebankárið2008ogsegirhannsjálfuraðhannhafiekkitapaðáviðskiptunum
meðfélagið.ÁrsreikningurliggurekkifyrirumstarfsemiTeigsfyrirárið2008.
Eneinsogáðursegirvoruskuldirnarrúmar50milljóniráðurenRunólfurseldi
félagið.Runólfursegirsjálfuraðlániðhafiveriðgertuppogaðþaðhafiveriðvið
SparisjóðMýrasýslu.
ÁheimasíðuHáskólavallakemurframaðTeigureigiennþátæplega9prósenta
hlutíHáskólavöllum.
FÉKK LÁN UPP Á 55 MILLJÓNIR