Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Síða 8
8 FRÉTTIR 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Skiptastjóri þrotabús eignarhalds-
félagsins Samsonar, Helgi Birgisson,
rannsakar enn 580 milljóna króna
lánveitingu Sam sonar til eignarhalds-
félags á Tortóla sem heitir Opal Glo-
bal Investments. Fullnægjandi upp-
lýsingar hafa ekki fengist um lánið
samkvæmt heimildum DV. Blaðið
greindi frá því í upphafi þessa árs að
þrotabúið rannsakaði lánveitinguna
sem og þrjár aðrar upp á samtals um
800 milljónir króna. Þrotabúinu hefur
gengið erfiðlega að fá upplýsingar um
aflandsfélögin.
Samson var eignarhaldsfélag
Björg ólfs Guðmundssonar, sonar
hans Björgólfs Thors og Magnúsar
Þorsteinssonar sem hélt utan um
kjölfestuhlut þeirra í Landsbankan-
um á árunum 2003 til 2008.
Í upphafi árs taldi þrotabúið að það
myndi fá upplýsingar um þessar lán-
veitingar frá fyrrverandi stjórnend-
um Samsonar, samkvæmt heimildum
DV. Þetta virðist ekki hafa gengið eft-
ir samkvæmt þessum tíðindum af at-
huguninni á Global-láninu.
Þegar athugun skiptastjórans
komst í hámæli í byrjun árs sendu for-
svarsmenn Samsonar frá sér tilkynn-
ingu þar sem fram kom að skýringar
hefðu verið veittar á þessum viðskipt-
um. Þar kom fram að ýmist væri um
að ræða fjárfestingar eða viðskiptalán
til félaga í eigu sömu eigenda vegna
nýrra fjárfestinga sem í flestum tilfell-
um voru í íslenskum félögum.
Engar upplýsingar
Þrotabúið fann eingöngu einn lána-
samning vegna þessara fjögurra lán-
veitinga. Þetta var samningurinn
vegna lánsins til Opal Global Invest-
ments. Sá lánasamningur var hins
vegar ekki undirritaður. Upphæðirn-
ar eru eignfærðar sem lán í bókhaldi
Samsonar og því er ljóst að stjórnend-
ur félagsins hafa litið á greiðslurnar
sem lán jafnvel þó að engar nánari út-
skýringar sé að finna fyrir lánveiting-
unum.
Einu gögnin, önnur en þau fyrr-
nefndu, um lánveitingarnar sem finna
má í bókhaldi Samsonar eru milli-
færslubeiðnir þar sem stjórnendur
Samsonar biðja um að tilteknar upp-
hæðir verði millifærðar út af reikn-
ingum félagsins og inn á reikninga
aflandsfélaganna í gegnum Lands-
bankann í Lúxemborg.
Skiptastjóra þrotabús Samsonar
hefur gengið betur að fá upplýsing-
ar um hin lánin þrjú en lánið til Opal
Global Investments. Engar skýring-
ar hafa enn fundist á þessu láni þrátt
fyrir að þrotabúið hafi gert ítrekaðar
tilraunir til að komast að því hver til-
gangurinn var með lánveitingunni.
Talið var að lánið hefði runnið inn í
félag sem heitir Samson Global Hold-
ings Sarl. í Lúxemborg en heimildir
DV herma að ekki sé hægt að sanna
það með óyggjandi hætti. Félagið var
til jafns í eigu Björgólfsfeðga og hélt
félagið utan um eignarhluta þeirra í
fjárfestingarbankanum Straumi. Fé-
lagið var stærsti einstaki hluthafinn í
Straumi. Rúmlega 30 prósenta hlutur
félagsins í Straumi var metinn á rúm-
lega 70 milljarða króna sumarið 2007.
Ekki er því útilokað að lánið til
Samson Global hafi verið notað til að
fjárfesta í Straumi ef það rann þangað
frá Opal.
Enn frekari tengingar
Hluti af skuldauppgjöri Björgólfs
Thors Björgólfssonar, sem greint
var frá í fjölmiðlum í síðustu viku,
snérist um að Björgólfur veitti lán-
ardrottnum sínum aðgang að þeim
fjármunum sem hann á í sameign-
arsjóðum á aflandseyjum eins og
Jersey og Guernsey á Ermarsundi.
Í yfirlýsingu frá talsmanni Björgólfs
kom fram að allar eignir hans væru
undir í skuldauppgjörinu, þar með
taldar eignir í sameignarsjóðum og
á aflandseyjum.
Bæði Samson og Björgólfur Thor
áttu því töluverð viðskipti við félög á
aflandseyjum og sýna þessi tvö að-
skildu en þó tengdu mál fram á að
Björgólfur Thor og viðskiptafélagar
hans virðast hafa notast mikið við slík
félög fyrir hrunið.
Áhugavert verður að fylgjast með
því hvort skiptastjóri Samsonar nær
að átta sig á því af hverju lánið var
veitt.
TORTÓLALÁNIÐ
ENN Í SKOÐUN
Skiptastjóri þrotabús Samsonar hefur enn ekki áttað sig á því af hverju Samson lánaði
580 milljónir til félags á Tortóla. Lánið var eitt af fjórum sem skiptastjórinn rannsak-
aði í upphafi árs. Erfiðast hefur gengið fyrir hann að fá upplýsingar um þetta lán, sem
er hæst þeirra.
Engar skýringar hafa enn fundist
á þessu láni.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Rannsakar enn lán Skiptastjóri
Samsonarrannsakarenn580
milljónakrónalánsemveittvar
útúrSamsonogtileignarhalds-
félagsáBreskuJómfrúareyjum.
Lán Samsonar til aflandsfélaga sem
eru til rannsóknar.
AMBER45milljónir
BENTIS HOLDING80milljónir
ELDORIS85milljónir
OPAL580milljónir
LÁN SAMSONAR SAGAN Á
BAK VIÐ
STYRMIS-
PÓSTANA
MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 26. – 27. JÚLÍ 2010
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 85. TBL.
100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON:
SKÓLASTJÓRI Á
15 MILLJÓNA
JEPPA
AVANT
HERJAR Á
MÖMMU
n SKAL BORGA
SKULDIR SONARINS
FRÉTTIR
FÓLK
FÖNDURKONUR VORU
SKRÁÐAR Á ELLIHEIMILI
FRÉTTIR
n NÍGERÍUSVINDLARAR:
SVONA
FORÐASTU
SVINDLIÐ
FRÉTTIR
n JÓNÍNA BEN ÆTLAR AÐ
SEGJA ALLT Í NÝRRI ÆVISÖGU
n EIGANDI HRAÐ-
BRAUTAR GERIR
VEL VIÐ SIG
n FORSTÖÐUMAÐUR JÁTAR EN KENNIR UM RAFMAGNSREIKNINGUM
NEYTENDUR
n HALEY JOEL OSMENT:
KRAFINN
UM SKIL-
RÍKI Á
PRIKINU
SÝNDI
INN Í
SKATTA-
SKJÓLIN
n SLAPP ÞANNIG VIÐ GJALDÞROT
n SAMDI VIÐ LÁNARDROTTNA
n „KRÖFUHAFAR FENGU MUN MEIRI FJÁRMUNI“
n EIGNALISTI EKKI GEFINN UPP
n FÉKK 500 MILLJÓNIR FRÁ LANDSBANKANUM 2007
26. júlí 2010
Húsaleiga hefur
hækkað
Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu
hefur hækkað undanfarna mánuði
ef marka má nýja könnun sem Neyt-
endasamtökin gerðu. Ef einungis er
litið til fermetraverðs hafa tveggja
herbergja íbúðir lækkað í verði á
meðan stærri íbúðir hafa hækk-
að í verði. Könnunin var gerð í gær,
mánudag, og var einungis kannað
verð á leiguíbúðum á höfuðborgar-
svæðinu. Sumar eignanna eru aug-
lýstar á tveimur eða fleiri stöðum, en
gætt var að því að telja aðeins hverja
eign einu sinni.
Sala HS Orku
„ólögleg“
„Staðreyndin er sú að þessi Magma-
gjörningur virðist vera ólöglegur.
Og ef hann er ólöglegur þá á ekki að
staðfesta lögleysuna. Það er ekkert
róttækt við að fara að landslögum.“
Þetta sagði Ögmundur Jónasson,
þingmaður Vinstri-grænna, í Morg-
unútvarpi Rásar 2 á þriðjudag, að-
spurður hvort ekki þyrfti að grípa til
róttækra aðgerða til að stöðva kaup
Magma Energy á HS Orku. Ögmund-
ur var gestur Morgunútvarpsins
ásamt Sigurði Kára Kristjánssyni.
Í fangelsi í
Færeyjum
Íslenskur karlmaður hefur verið
dæmdur í fimmtíu daga óskilorðs-
bundið fangelsi í Færyjum fyrir inn-
flutning á hassi. Maðurinn, sem er 27
ára, var handtekinn við komuna til
Færeyja fyrir tæpum tveimur vikum
með hass í fórum sínum. Fíkninefna-
leitarhundur lögreglu sýndi mann-
inum áhuga og reyndist Íslending-
urinn vera með 300 grömm af hassi
innvortis. Eftir að maðurinn lýkur af-
plánun verður honum vísað úr landi
og bannað að koma aftur til landsins
næstu þrjú árin.
Hætta fram-
leiðslu lyfja
Sveinn Rúnar Hauksson heimilis-
læknir segir Actavis hafa hætt að
framleiða um þrjátíu lyf hér á landi
undanfarin ár. Sveinn Rúnar benti
á þetta í grein sem hann skrifaði í
Fréttablaðið á þriðjudag. Sveinn
Rúnar segir að fjöldi fólks sem á við
fótakrampa og sinadrátt að stríða,
ekki síst á nóttunni, hafi um langt
árabil getað fengið lyf við þessu hjá
sínum lækni. Er það gamla malaríu-
lyfið kínin sem reynst hefur vel en
nú hefur framleiðslu þess verið hætt
á Íslandi og von á samheitalyfi.
Meiðyrðamáli sem Steinþór Skúla-
son, forstjóri Sláturfélags Suður-
lands, höfðaði gegn Oddi Friðriks-
syni, hefur verið vísað frá. Oddur
segist nú ætla að snúa vörn í sókn
og höfða skaðabótamál á hendur
Steinþóri. Oddur segist hafa orðið
fyrir bæði fjárhagslegu og heilsu-
farslegu tjóni, en hann lá á spítala
um tíma sem hann segir að rekja
megi til andlegs álags vegna máls-
ins.
Forsaga málsins er sú að Stein-
þór höfðaði mál á hendur Oddi
vegna vefsíðu þar sem ráðist er
mjög harkalega gegn Steinþóri, en
hann taldi að Oddur stæði á bak
við síðuna. Steinþór gerði tilraun
til að leiða forsvarsmann síðunnar
í gildru, eins og það var orðað í yfir-
heyrslum hjá lögreglunni. Steinþór
sendi inn mynd á umræddan vef og
taldi að sá sem fyrstur myndi skoða
myndina væri sá sem stæði fyr-
ir síðunni. Oddur var þá farinn að
vinna hjá öðru fyrirtæki en í tölvu
tengdri netþjónum þess fyrirtæk-
is var umrædd mynd fyrst opnuð.
Steinþór fékk tölvuna afhenta hjá
fyrirtækinu.
Í gögnum frá lögreglunni kem-
ur fram að Steinþór skilaði tölv-
unni til lögreglunnar með vinnu-
skjali þar sem tilgreind eru þau
gögn sem hann óskaði eftir að lög-
reglan skoðaði. Í greinargerð sem
lögfræðingur Odds vann er bent
á þetta. Oddur segist aldrei hafa
verið látinn vita að Steinþór hefði
vinnutölvu sína undir höndum og
telur að það sé brot á lögum um
persónuvernd. Hann hefur kom-
ið á framfæri kvörtun til Persónu-
verndar sem hefur málið til skoð-
unar. Oddur segir að vinnuskjalið
sem Steinþór lagði fram sýni fram á
að Steinþór hafi leitað sjálfur í tölv-
unni að gögnum. aðalsteinn@dv.is
Oddur Friðriksson segist hafa orðið fyrir stöðugu einelti:
Segistsnúavörnísókn
Einelti segir Oddur Segisthafa
orðiðfyrirstöðugueineltifráþví
hannhættistörfumhjáSS.