Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Qupperneq 16
16 ERLENT 28. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR AFHJÚPUN WIKILEAKS Uppljóstranir WikiLeaks sýna fram á að Bandaríkjastjórn og Alþjóðlegu ör- yggissveitirnar í Afganistan hafa farið leynt með raunverulegan gang stríðs- ins í landinu sem staðið hefur í nær níu ár. Skjölin sem WikiLeaks hefur lekið í fjölmiðla, samanstanda af 92 þúsund skýrslum, frá janúar 2004 til desember 2009. Skýrslurnar eru allar aðgengilegar á vefsíðunni wikileaks. org. Frestað hefur verið útgáfu 15.000 skýrslna vegna öryggisatriða sem þar koma fram, en þær munu verða birtar í nánustu framtíð. Skjölin sýna ástæður þess að tali- banar eru mun sterkari í dag en fyr- ir níu árum, þrátt fyrir gríðarlega um- fangsmikinn hernað Bandaríkjanna og bandalagsþjóða í NATO, og að stríð- ið gangi mun verr en áður hefur verið haldið fram opinberlega. Skjölin varpa ljósi á ljótar hlið- ar stríðsins, segja sögur af skelfilegum mistökum hermanna í Afganistan sem hafa myrt hundruð almennra borgara í óskráðum tilvikum. Skjölin draga upp hræðilega mynd af stríði sem virðist dæmt til að mistakast, og af stóraukn- um áhrifum talibana. Þau upplýsa um þungar áhyggjur æðstu yfirmanna af ástandinu og að öfl í Pakistan og Íran styðji vel við bakið á uppreisnarhópum. Hafa fegrað ástandið Eins og fram hefur komið í dagblöð- unum Guardian, New York Times og tímaritinu Spiegel, sem fengu aðgang að gögnunum áður en þau voru birt, sýna skjölin fram á ýmsar hliðar stríðs- ins sem áður voru leynilegar. Þar sem skjölin eru gríðarlega mörg og um- fangsmikil reyna blaðamenn, ráða- menn og almenningur enn að átta sig á þeim. Ljóst er að Bandaríkjamenn hafa fegrað mjög ástandið í stríðinu. Við lestur skjalanna kemur til dæmis í ljós: Að talibanar hafa notað hitasæk- in flugskeyti í árásum á flugvél- ar bandamanna, en Bandaríkjaher hefur haldið því leyndu. Íslömsku stríðsmennirnir mújaheddin not- uðu sömu vopn í stríðinu gegn Sov- étmönnum. Að leynileg dauðasveit, sérsveit 373, sem skipuð er sérþjálfuðum bandarískum úrvalshermönnum eltir uppi háttsetta yfirmenn í upp- reisnarliðinu og handsamar þá eða tekur af lífi án dóms og laga. Starf sér- sveitanna hefur verið aukið eftir að Obama komst til valda. Í skýrslunum sést að sérsveit 373 hefur fyrir mistök fellt almenna borgara sem flækst hafa fyrir. Að Bandaríkjaher notar í síaukn- um mæli fjarstýrðar árásarflugvélar til að kanna vígvelli og ráðast á skot- mörk í Afganistan, en þær eru þó mun ófullkomnari en opinberlega hefur verið talið. Að CIA, bandaríska leyniþjónust- Skjöl WikiLeaks fella pótemkíntjöld sem Bandaríkjamenn hafa sett upp til að fegra ástandið í Afganistan. Þetta er mat blaðamanna, fræðifólks og stjórnmálamanna um allan heim. Skjöl- in sýna að fjölmargir saklausir borgarar í Afganistan hafa fallið vegna mistaka hermanna. Þau sýna að sérsveit eltir uppi uppreisnarmenn og tekur þá af lífi án dóms og laga. HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Skjölin sýna ástæður þess að talibanar eru mun sterk- ari í dag en fyrir níu árum. Stríðið fegrað WikiLeaks-skjölinþykjasýnaaðBandaríkjahersémunverrstaddurí stríðinuíAfganistanenáðurhefurveriðhaldiðfram.Myndinvartekináföstudaginnog sýnirbandarískahermennstyðjaviðsærðanfélagaviðbrennandistríðsvagn.REUTERS 1979 Sovétríkinráðastinní Afganistan.Mújaheddin, íslamskirbardagamenn, komutillandsinsfrá ýmsumlöndumtilað berjastviðinnrásarher- inn.Þeirnutustuðnings Bandaríkjanna. 1989 Síðustusovésku hermennirniryfirgefa Afganistan.Tölurumþá semfélluístríðinueru áreiki,entalaðerum aðalltfrásexhundruð þúsundumtiltveggja milljónaAfganahafifallið oglandiðvarírústum. 1996 Talibanarnávöldum ílandinuoginnleiða strangabókstafstrú. OsamabinLadensestað íAfganistan. 2001 Eftirárásirnarátvíbura- turnanna11.september krefstGeorgeW.Bush Bandaríkjaforsetiframsals binLaden.Talibanar neitaogíoktóberræðst bandarískiherinninní landiðoghrekurtalibana úrhelstuborgum landsinsíárslok. 2002 HamidKarzaierkosinn bráðabirgðaforseti Afganistan.Talibanar stundaskæruhernað nálægtlandamærum Pakistan. 2004 Nýstjórnarskráer samþykktsemgerir Afganistanaðíslömsku ríkimeðvaldamiklum forseta.Síðarsamaárfer HamidKarzaimeðsigur afhólmiífyrstuforseta- kosningumlandsins. 2009 Ágúst Karzaierendurkjörinn íkosningumsemer harðlegamótmæltvegna grunsumsvindl. 2009 Desember Obamaákveðurað 30þúsundhermenn verðisendirárið2010 tilviðbótarþeimsem fyrireruíAfganistan. Samtals100þúsund bandarískirhermenn verðaíAfganistanþegar fyrirskipuninverðurað fulluframkvæmd. n Í AFGANISTANbúa28milljónirmannaenlandiðerum sexfaltstærraenÍslandaðflatarmáli.Borgarastyrjöldhefurríkt ílandinuíáratugimeðregluleguinngripierlendraherja.Sovét- mennstunduðuhernaðíAfganistanáníundaáratugnumsem hafðiskelfilegarafleiðingarfyrirlandsmenn.Bandaríkjamenn, ogbandamennþeirraíNATO,hafastundaðstríðsreksturíAf- ganistaníníuár,semupphaflegasneristumaðkomaíslamskri bókstafstrúarstjórntalibanafrávöldum,oghafahenduríhári OsamabinLaden.Stríðiðhefursíðanþróastígríðarlegaflókin átökviðuppreisnarmenn,semvirðistvaxaásmeginmeð hverjuárisemlíður.TaliðeraðBandaríkjastjórnhafieyttum 300milljörðumdollaraístríðsreksturinníAfganistan. Stríðið í Afganistan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.