Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2010, Síða 25
kristín nálægt sínu besta Kristín Birna Ólafsdóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR og einn af íslensku keppendun- um á Evrópumeistaramótinu í Barcelona, var nálægt sínu besta í 400 metra grindahlaupi á þriðjudaginn. Hún hljóp á 58,34 sek- úndum sem er aðeins þremur hundruðustu frá hennar besta tíma. Kristín endaði í sjötta sæti af átta keppendum í undanriðlinum en alls endaði hún í 27. sæti af 32 keppendum. Kristín hefði þurft að hlaupa töluvert hraðar, eða á 56,55 sekúndum, til að komast í undanúrslitin þar sem 16 bestu konurnar keppa. Peningarnir eru til David Gill fram- kvæmdastjóri Manchester United segir að félagið búi yfir sjóðum til að kaupa fleiri leikmenn áður en leiktíðin hefst á Englandi. Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri liðsins, ákveði þó hvort þeir verði notaðir. United hefur látið lítið fyrir sér fara á markaðinum en þó eytt 20 milljónum punda í tvo unga leikmenn, Chris Smalling frá Fulham og Mexíkóann Javier Hernandez. „Peningarnir eru til staðar en við höfum ekki fundið leikmann sem mun styrkja okkar hóp,“ segir David Gill. MOlar Breytingar hjá Brasilíu n Mano Menezes, nýráðinn þjálfari Brasilíu, tilkynnti í gær 24 manna hóp sinn fyrir vináttuleik gegn Bandaríkjunum í ágúst. Margir af leikmönnunum sem spiluðu á HM fá hvíld í þessum leik en Menezes er greinilega á sömu skoðun og forveri hans, Dunga, hvað varðar Ronaldinho og Adriano. Hvorugur er í hópnum og ekki heldur Ronaldo sem margir vonuðust eftir að fengi tækifæri aftur með liðinu. Alexandre Pato sem hlaut ekki náð fyrir augum Dunga á HM hefur þó verið kallaður inn hópinn en leikurinn fer fram í Bandaríkjunum. Úrvalsgamlingi n Javier Zanetti, argentínski fyrirliði Inter á Ítalíu, fékk um helgina Prem- io Scirea-verðlaunin frá ítölskum blaðamönnum. Þau verðlaun eru á hverju ári veitt einum leikmanni eldri en þrítugt sem talinn er hafa átt fyrirmyndarferil. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1992 en hingað til hafa aðeins leikmenn frá Ítalíu komið til greina. Því er það borðleggjandi að Zanetti er fyrsti erlendi leikmað- urinn sem hlýtur þessi verðlaun. Viðkomandi verður að hafa leikið á Ítalíu í að minnsta kosti tíu ár. heiðarleiki kostaði titilinn n Liðstjóri McLaren í Formúlu 1, Martin Whitmarsh, hefur tjáð sig um Ferrari-málið sem kom upp á Hockenheim um helgina þegar Felipe Massa var skipað að hleypa Fernando Alonso fram úr. Árið 2007 varð Kimi Raikkonen meistari á Ferrari en báðir ökumenn McLaren, Lewis Hamilton og Fernando Alonso, urðu stigi á eftir. Hefðu þeir því gert sama hlut og Ferrari í annarri af síðustu tveimur keppnunum hefði annar ökumanna McLaren orðið meistari. En það gerðu þeir ekki. „Ég vildi að annar ökumaðurinn fengi forgang og þá hefðum við unnið og það var mikið rætt. En á endanum vorum við heiðarlegir og það kostaði okkur titilinn,“ segir Whitmarsh. nýr þjálfari roger federer n Besti tenniskappi sögunnar, Roger Federer, hefur fengið sér nýj- an þjálfara í viðleitni til að komast upp úr lægðinni sem hann hefur verið í. Federer hefur síðustu vikur og mánuði tapað í átta liða úrslitum opna franska meist- aramótins, ekki komist í úrslit Wimbledon í fyrsta skipti í átta ár og fallið niður í þriðja sæti heimslistans, á eftir Rafael Nadal og Novak Djokovic. Nýi þjálfarinn er fyrrverandi þjálfari bandarísku tennisstjörnunnar, Pete Sampras. MIÐVIKUDAGUR 28. júlí 2010 sPOrt 25 Ný regla hvað varðar leikmanna- hóp liðanna í ensku úrvalsdeildinni veldur Sir Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóra Manchester United, nokkrum áhyggjum vegna tveggja leikmanna sem eiga við meiðsli að stríða. Tuttugu og fimm leikmenn verða að vera skráðir til leiks, þar af átta sem voru hjá félaginu í þrjú ár áður en þeir urðu 21 árs gamlir. Leikmennirnir tveir sem um ræðir eru Englendingurinn Owen Hargreaves og Brasilíumaðurinn Anderson en Ferguson er ekki viss um hvort hann þori að hafa þá í hópnum vegna meiðsla. Listan- um verður að skila in fyrir klukk- an 17.00 að breskum tíma þann 1. september. Engar breytingar má gera á hópnum fyrr en í janúar þeg- ar félagaskiptaglugginn opnar. Owen Hargreaves hefur verið meira eða minna meiddur í átján mánuði og enn og aftur kom bak- slag í endurkomu hans um daginn. Hann ferðaðist því ekki með liðinu til Bandaríkjanna þar sem United er nú í æfingaferð. Að sama skapi er ólíklegt að Anderson verði orð- inn heill af meiðslum sínum fyrr en undir lok september. „Þetta veldur mér áhyggjum en ég verð bara að bíða eins lengi og ég get með að velja hópinn,“ segir Ferguson. „Ég þarf að taka ákvörð- un á endanum og hvort þeir verði með fer auðvitað eftir því hvenær þeir eru áætlaðir til baka. Ég er með hópinn nokkurn veginn kláran en það eru eitt til tvö atriði sem ég á eftir að fara betur yfir,“ segir Sir Alex. tomas@dv.is Sir Alex Ferguson þarf að taka ákvörðun: Hargreaves og Anderson utan hóps? Owen Hargreaves Hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarin tvö ár. MyND AFP eða FH. Ég veit að það verður fullt af fólki sem kemur frá okkur þannig að þetta verður bara eintóm gleði,“ segir Einar. Það er hægt að skora á þessa djöfla Einar veit þó vel hversu verðugt verk- efni Ólsara er á morgun enda hefur FH-vélin verið að taka við sér en FH hafði betur gegn nágrönnum sínum, Haukum, á sunnudagskvöld. „Þeir eru farnir að líta ansi vel út, af þess- um myndum af dæma,“ segir Einar sem horfði á svipmyndir úr leiknum í Íslensku mörkunum, áður Bang og mark! „Þeir eru náttúrulega með Gulla í markinu og ég held að þú finnir ekki betri markvörð á landinu. Svo virðist vörnin vera traust núna. Þeir eru al- veg helvíti flottir,“ segir Einar en hvað þurfa Ólsarar að gera til að komast yfir þessa miklu hindrun? „Í fyrsta lagi er það að mæta á völl- inn með sömu trú og gegn Stjörnunni. Í öðru lagi er það að vinna okkar vinnu og vera duglegir til baka. Við þurfum að stöðva Ólaf Pál og þá félaga að fara upp vænginn og gefa einhverja auð- velda bolta fyrir en að sama skapi þeg- ar við erum með boltann verðum við aðeins að ýta á þá. Við erum líka með hraða stráka þannig að við ættum að geta farið upp á þá stundum. Það er alveg hægt að skora á þessa djöfla,“ segir Einar. Eins og Leeds að mæta Man. United Þó Ólsarar eigi að heita annarrar deildar lið þýðir lítið fyrir FH-inga að hugsa á þeim nótum því gestir þeirra eru að rúlla upp annarri deildinni og eru með styrkleika góðs liðs í 1. deild- inni. „Eins og þetta hefur gengið hjá okkur virðumst við ekkert vera 2. deildar lið. Þar erum við samt og þar við situr. FH er með miklu stærri hóp og meiri gæði en ég get bent á það að Leeds gerði góða hluti í fyrra og vann Manchester United í bikarnum. Er þetta ekki svipað dæmi?“ spyr Einar. „Við vitum að það er ekkert ómögu- legt í þessu. Við megum samt ekki fara fram úr sjálfum okkur þannig að við förum að fá á okkur einhvern aragrúa af mörkum. Gengi okkar á árinu hjálp- ar klárlega og það er alveg örugglega styttra síðan FH tapaði leik. Þetta hef- ur gefið okkur mikið sjálfstraust og það er vonandi að við betum byggt á því, vegna þess að þetta er sögu- legt fyrir okkur og félagið,“ segir víta- baninn Einar Hjörleifsson. „Styttra Síðan FH tapaði leik“ HættULEgUR Víkingar verða að stöðva Ólaf Pál og félaga í FH sem eru á góðri siglinu þessa dagana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.