Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2010, Síða 36
INNLENDAR PLÖTUR ÁRSINS
Árið 2010 var þrælgott ár í íslensku
tónlistarlífi og vandasamt að velja
nokkrar plötur úr. Óhætt er þó að
segja að plata Ólafar Arnalds, Inn-
anundir, hafi slegið í gegn enda fékk
hún afbragðsdóma í helstu miðl-
um í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Sölutölur yfir mest seldu plötur árs-
ins verða birtar í lok janúarmánaðar
en þær plötur sem nutu mestra vin-
sælda í útvarpi og seldust hvað best
eru:
Vinsælastar
1 Helgi Björns Plata Helga
Björns hefur selst
mjög vel í ár og vermir
toppsætið í bili þang-
að til lokatölur verða
gerðar upp.
2 BaggalúturBaggalúti get-
ur ekki mistekist og
þjóðin verður seint
þreytt á þessum húm-
oristum. Það kom
enda í ljós fyrir jólin
þegar sala á plötu þeirra fór fram úr
björtustu vonum.
3 Bubbi Morthens
Bubbi rokselur eins
og hans er vandi og
plata hans vermir
þriðja sæti innlendra
platna.
BÆKUR ÁRSINS
Árið 2010 var metár í útgáfu á inn-
lendum bókum og í ár komu út
miklu fleiri bækur en í fyrra. Sjálfs-
hjálparbækur fyrir stelpur, hnakka-
bækur og krimmar Arnaldar og Yrsu
eru söluhæstu bækurnar í ár. Bók
Arnaldar hefur selst í rúmlega 30
þúsund eintökum. Ofarlega á listan-
um má líka sjá bækur um eldgos og
stelpur og skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis en í henni lásu Íslending-
ar um ómenningu liðinna ára.
Hástökkvarar í jólabókaflóðinu
Systurnar Þóra og Kristín Tómasdæt-
ur komu verulega á óvart og sönn-
uðu að þörf er á ítarlegri fræðslu
fyrir stelpur. Þær eru hástökkvarar
jólabókaflóðsins og bók þeirra hef-
ur verið endurprentuð að minnsta
kosti þrisvar sinnum til að anna eft-
irspurn.
Metsöluhöfundur rakar inn
seðlum
Enn á ný selur Arnaldur glæpasögu
sína grimmt og hefur selt rúm 30
þúsund eintök af bók sinni Furðu-
strandir. Hryllingsamman Yrsa er
þó skammt undan og aldrei að vita
nema hún kræki í metsöluhöfundar-
titilinn seinna meir.
1 FurðustrandirArnaldur Indriðason
Vaka-Helgafell
2 Léttir réttir HagkaupsFriðrika Hjördís Geirsdóttir
3 Stóra Disney matreiðslu-bókin
Ýmsir höfundar
Edda
4 Ég man þigYrsa Sigurðardóttir
Veröld
5 EyjafjallajökullAri Trausti Guðmundsson &
Ragnar Th. Sigurðsson
Uppheimar
6 Gunnar ThoroddsenGuðni Th. Jóhannesson
JPV útgáfa
7 Aðdragandi og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og
tengdir atburðir
Rannsóknarnefnd Alþingis
Alþingi
8 Bók fyrir forvitnar stelpur!Þóra Tómasdóttir/Kristín Tóm-
asdóttir
Veröld
HÁPUNKTAR
LEIKHÚSÁRSINS
Leikhúsárið var líflegt og aðsókn í
leikhúsin með mesta móti. Sýningin
Jesús litli rakaði til sín verðlaunum
á Grímunni og Vesturport sló í gegn
í New York með uppfærslu sinni á
Hamskiptunum. Leikhúsárið er ekki
á enda því tvær stærstu sýningar leik-
húsanna eru jólasýningarnar Ofviðr-
ið og Lér konungur í leikstjórn mik-
illa listamanna.
SÝNING ÁRSINS
Sýning ársins var valin leiksýning-
in Jesús litli í leikstjórn Benedikts Er-
lingssonar og í sviðssetningu Leik-
félags Reykjavíkur. Sýningin var
frumsýnd á Litla sviði Borgarleik-
hússins þann 20. nóvember 2009.
Höfundar verksins, þau Benedikt
Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson,
Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana
Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilm-
arsson hlutu verðlaun sem leikskáld
ársins.
LEIKARI ÁRSINS
Ingvar E. Sigurðsson var verðlaunað-
ur fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni
Íslandsklukkunni í sviðssetningu
Þjóðleikhússins. Hann fer nú með
burðarhlutverk í Ofviðrinu sem var
frumsýnt miðvikudaginn 29. desem-
ber.
HEIÐRAÐUR Á ÁRINU
Á uppskeruhátíð sviðslistanna,
Grímunni var einum ástsælasta leik-
ara þjóðarinnar, Árna Tryggvasyni,
veitt heiðursverðlaun.
LEIKKONA ÁRSINS
Margrét Helga Jóhannsdóttir var
valin leikkona ársins fyrir hlutverk
sitt í leiksýningunni Fjölskyldunni
– ágúst í Osage-sýslu í sviðssetningu
Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleik-
húsinu.
ÚTRÁS ÁRSINS
Gísli Örn Garðars-
son sló í gegn á ár-
inu og sýnir enn á
ný að það er ekki
ómögulegt að laða
nýja áhorfendur í
leikhúsið og fá þá
gömlu og vana-
föstu til að horfa
á óhefðbundnar, poppaðar sýning-
ar. Gísli fékk sérstaklega góða dóma
í New York Times fyrir leik sinn og
leikstjórn á verkinu Hamskiptin sem
var nýlega fært upp á fjölum BAM-
leikhússins í New York.
ÍSLENSKT KVIKMYNDAÁR
Mikill niðurskurður ógnar kvik-
myndaiðnaðinum en þrátt fyrir allt
lét kvikmyndagerðarfólk til sín taka
og setti kraft í framleiðsluna. Ljóst
er að þrátt fyrir þokkalega góða upp-
skeru eru kvikmyndagerðarmenn
upp til hópa daufir í bragði enda
fá þeir nánast ekkert í sinn vasa og
vinnast nánast fyrir hugsjónina eina.
MYNDIR ÁRSINS
The Good Heart
Þriðja kvikmynd Dags Kára í fullri
lengd og sú fyrsta á ensku. Stórleikar-
ar úr Hollywood, Paul Dano og Brian
Cox, fara með aðalhlutverk í mynd-
inni sem frumsýnd var á Toronto
Film Festival árið 2009, en frumsýnd
á Íslandi í mars á þessu ári.
Sumarlandið
Íslensk grínmynd
í leikstjórn Gríms
Hákonarsonar um
venjulega íslenska
fjölskyldu sem
rekur þó óvenju-
lega, álfatengda
ferðaþjónustu.
Myndin var frum-
sýnd 17. september en í aðalhlut-
verkum voru þau Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir og Kjartan Guðjónsson.
Órói
Atli Óskar Fjalars-
son lék í tveimur
íslenskum kvik-
myndum á árinu,
en hann fór með
aðalhlutverkið í
Óróa auk þess að
fara með auka-
hlutverk í Gaura-
gangi. Myndin Órói var frumsýnd
um miðjan október og var hún fyrri
unglingamyndin af tveimur sem
frumsýnd var á árinu.
Mamma Gógó
Kvikmyndaleikstjóri er í fjárhags-
kröggum vegna nýjustu kvikmynd-
ar sinnar, Börn náttúrunnar, sem
enginn hefur áhuga á að sjá, á með-
an móðir hans, Gógó, greinist með
Alzheimer. Friðrik Þór Friðriksson
leikstýrir og skrifar handrit myndar-
innar en það er Hilmir Snær Guðna-
son sem fer með aðalhlutverk ásamt
Kristbjörgu Kjeld.
Kóngavegur 7
Stórskotalið ís-
lenskra leikara
auk þýska leik-
arans Daniels
Brühls kemur
saman í þessari
annarri kvikmynd
Valdísar Óskars-
dóttur. Valdís leik-
stýrði bæði myndinni og skrifaði
handritið en á heimasíðu myndar-
innar er henni lýst sem háalvarlegri
kómedíu með létt djössuðu spennu-
ívafi.
Brim
Stórmyndin Brim fékk fimm stjörnur
í DV frá Jóni Viðari Jónssyni. Árni Ól-
afur Ásgeirsson leikstýrði myndinni,
en þetta var hans önnur kvikmynd
í fullri lengd. Hann skrifaði einn-
ig handrit myndarinnar ásamt Ottó
Geir Borg.
Grínisti kollvarpar kerfinu
Frambjóðendur í Reykjavík grunaði
að eitthvað mikið stæði til þegar leik-
stjórinn Gaukur Úlfarsson fylgdi Jóni
Gnarr eftir með tökuliði alla kosn-
ingabaráttuna. Heimildarmynd-
in GNARR var frumsýnd í vetur og í
henni er skyggnst á bak við tjöldin í
kosningabaráttunni og fylgst með
þeim sögulega atburði þegar grínisti
kollvarpar stjórnmálakerfi.
Gauragangur og ný stjarna
Gauragangur var
frumsýnd á annan
í jólum. Aftur slær
ungur maður í
gegn en Alexand-
er Briem fær stór-
góða dóma fyrir
túlkun sína á óða
uppreisnarseggn-
um Ormi Óðinssyni.
36 | Fókus 29. desember 2010 Áramótablað
Sprengikraftur
í menningarlífinu 2010
Menningarlífið blómstraði sem aldrei fyrr á árinu og mikið var um að vera á þeim
vettvangi. Kreppan bítur greinilega ekki á listrænu eðli landans. Vesturport sló í
gegn í vesturheimi, ný kvikmyndahús opnuðu í Reykjavík og menningarvitar kom-
ust til valda í borginni eftir mikið pönk og grín. Hér er stiklað á því sem bar hæst í
menningarlífi þjóðarinnar á þessu eftirminnilega ári.