Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Page 17
Erlent | 17Mánudagur 29. ágúst 2011
B
arnalæknir frá Delaware í
Bandaríkjunum var dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi fyrir að
misnota sjúklinga sína. Brot-
in voru framin á tíu ára tíma-
bili og mun hann eyða því sem hann
á ólifað á bak við lás og slá. Læknirinn
heitir Earl Bradley og er 58 ára. Hann
sýndi engin svipbrigði þegar dómur
var kveðinn upp yfir honum síðastlið-
inn föstudag. Hann fékk fjórtán lífs-
tíðardóma fyrir að hafa nauðgað fjór-
tán börnum.
Hann var handtekinn í desember
árið 2009 eftir að tveggja ára gömul
stúlka kvartaði yfir verkjum eftir að
hafa verið hjá Bradley. Hún lét móður
sína vita af því að hún væri ekki sátt
við lækninn.
Tók upp myndbönd
Bradley tók upp myndbönd af mis-
notkuninni sögðu saksóknarar í
málinu sem sýndu dómara í mál-
inu meira en þrettán klukkutíma af
myndefni þar sem brot Bradleys gegn
meira en áttatíu börnum sjást.
Málið fór sem eldur í sinu í smá-
bænum Lewes. Mikil sorg ríkti í bæn-
um eftir að málið komst upp og einn-
ig reiði og sektarkennd meðal fólks
sem kenndi sjálfu sér um að hafa skil-
ið börnin sín eftir hjá lækninum.
Leikföng og litríkar skreytingar
Stofa Bradleys í bænum var þekkt
fyrir fjölda leikfanga. Á stofunni var
meðal annars hringekja og önn-
ur leiktæki. Bradley tók upp mynd-
bönd á laun í skoðunarherbergjum
sem voru skreytt með karakterum úr
Disney-teiknimyndum. Alvarlegustu
brotin áttu sér þó stað í bakherbergj-
um og kjallara stofu hans. Þangað
lokkaði hann börnin með loforði um
sælgæti og leikföng.
Handtaka Bradleys kom í kjölfar
rannsóknar lögreglunnar og margra
ára gruns foreldra. Kollegar hans
settu einnig spurningarmerki við
hegðun hans. Þeim fannst hann full
blíður við börnin og forðast ávallt
augnsamband við fullorðið fólk.
Þögnin gagnrýnd
Eftir handtöku hans var það gagn-
rýnt hvers vegna ekki var tilkynnt um
hann til yfirvalda líkt og æðstu yfir-
manna landlæknisembættis Banda-
ríkjanna. Bradley varð því fordæmi
fyrir löggjafann í Bandaríkjunum en
fyrir liggur að herða eigi refsingar við
því að tilkynna ekki meint brot lækna
gegn börnum til yfirvalda.
Barnalæknir fékk
14 lífstíðardóma
n 58 ára barnalæknir nauðgaði börnum n Þótti einum of blíður
og horfði aldrei í augu foreldra
Blíður við börn Læknirinn
þótti full blíður við börnin
„Þeim fannst hann
full blíður við börnin
og forðast ávallt augnsam-
band við fullorðið fólk
Seint frjáls Ekki eru taldar miklar líkur á að Earl Bradley verði frjáls maður á ný.
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Bandaríkin
Berst gegn
hryðjuverkum
Forseti Nígeríu, Goodluck Jona-
than, hefur heitið því að halda aftur
af hryðjuverkastarfsemi í landinu.
Það gerði hann þegar hann heimsótti
höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í
Abuja en þær urðu fyrir sprengjuárás
á föstudaginn. Hann sagði hryðju-
verkin ekki einungis árás á Níger-
íu heldur líka á alþjóðasamfélagið í
heild sinni. Íslamistasamtökin Boko
Haram segjast bera ábyrgð á tilræðinu
en 23 féllu í því og 81 særðist. Jonat-
han sagði samtökin vera „staðbundið
vandamál“ sem þyrfti að glíma við.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, að-
stoðar nígerísk stjórnvöld við rann-
sókn málsins en samtökin þykja nú
ósvífnari í árásum sínum en áður.
„Hélt ég
myndi deyja“
Unglingur sem lifði af árás hvítabjörns
sem drap vin hans hefur nú sagt frá
þessu hrikalega atviki. Unglingurinn
heitir Patrick Flinders og er sextán ára.
Í árásinni lést sextán ára vinur hans,
Horatio Chapple. Fjórtán manns voru í
ferðinni þegar 250 kílóa hvítabjörn réðst
á hópinn klukkan hálf átta að morgni, 5.
ágúst síðastliðinn, á Svalbarða. Sauma
þurfti tuttugu spor í höfuðið á Patrick
eftir árásina. Hann heyrði einhvern um-
gang fyrir utan tjaldið sitt áður en það
féll yfir hann, Horatio og vin þeirra Scott
Bennell-Smith.
„Tjaldið féll á mig. Ég togaði svefn-
pokann yfir mig og lokaði augunum.
Ég öskraði: „Ég vil ekki vera hérna.“ Ég
sá björninn draga einn af stjórnendum
hópsins á höfðinu. Ég vildi fela mig en
komst ekki neitt. Björninn réðst þá á
okkur,“ sagði Patrick. Björninn réðst á
Patrick og beit hann í höfuðið. Patrick
náði að fæla hann burt með höggi.
„Ég leit upp og sá hann glefsa í mig.
Nefið hans var alblóðugt. Ég hélt ég
myndi deyja. Dýrið sló mig og reif svefn-
pokann. Ég fann síðan fyrir tönnum
þess í olnboganum mínum. Allt í einu
var höfuð mitt komið í gin dýrsins og ég
fann hvernig það beit í höfuðkúpuna. Ég
heyrði smell. Ég sló það ítrekað í höfuð-
ið til að reka það í burtu. Scott hlýtur að
hafa ákveðið að hlaupa því dýrið sleppti
mér og fór á eftir honum. Scott öskraði
og svo heyrði ég skothvell,“ segir Patrick
en þá hafði dýrið verið fellt.
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun