Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Page 25
Sport | 25Mánudagur 29. ágúst 2011
J
amaíkinn Usain Bolt, besti
spretthlaupari heims, var
dæmdur úr leik fyrir þjóf-
start á heimsmeistara-
mótinu í 100 metra sprett-
hlaupi í Daegu. Landi hans
Yohan Blake sigraði á 9,93 sek-
úndum. Bandaríkjamaðurinn
Walter Dix kom annar í mark á
10,08 sekúndum og hinn 35 ára
Kim Collins frá St. Kitts og Nev-
is var í þriðja sæti á 10,09 sek-
úndum.
Það var hins vegar hinn
bráðláti Bolt sem vakti mikla
athygli á mótinu. Eftir að hann
var dæmdur úr leik, tætti hann
af sér treyjuna í bræði. Bolt var
dæmdur úr leik samkvæmt nýj-
um reglum sem kveða á um að
fyrsti maðurinn sem þjófstart-
ar verði dæmdur úr leik. Bolt
barði hendinni upp við bláan
vegg fyrir aftan ráslínuna þeg-
ar hann var dæmdur úr leik.
Bolt hefur skiljanlega ástæðu
til að vera reiður, en samkvæmt
gömlu reglunum máttu menn
þjófstarta einu sinni án þess að
það hefði áhrif á þátttökurétt
þeirra í hlaupinu.
Bolt róaði sig hins vegar
fljótt og í viðtölum við frétta-
menn skömmu síðar, virtist
hann vera nokkuð kátur. „Eruð
þið að bíða eftir að ég fari að
gráta? Það er ekki að fara að
gerast.“
„Eruð þið að bíða eftir að ég fari að gráta?“
n Usain Bolt dæmdur úr leik fyrir að þjófstarta
Usain Bolt Grenjaði ekki yfir
því að hafa verið dæmdur úr
leik fyrir að þjófstarta.
Á
gúst hefur senni-
lega verið ömurleg-
asti mánuðurinn sem
Arsene Wenger hefur
upplifað sem knatt-
spyrnustjóri Arsenal. Ekki að-
eins hefur hann neyðst til að
selja tvær stærstu stjörnur sín-
ar, þá Cesc Fabregas til Barce-
lona og Samir Nasri til Manc-
hester City, heldur var hann
gjörsamlega niðurlægður á
Old Trafford á sunnudaginn.
Heimavöllur Manchester Uni-
ted er kallað leikhús draum-
anna, en á sunnudaginn var
það leikhús martraðarinnar
fyrir Wenger. Það hefði enginn
trúað því að Manchester Uni-
ted ætti eftir að slátra Arsenal
8–2 í stærsta leik helgarinnar,
en glæsileg þrenna frá Wayne
Rooney, tvö mörk frá Ashley
Young og mörk frá Danny Wel-
beck, Ji-Sung Park og Nani
gerðu það að verkum að koddi
og sængurver Wengers hafa
trúlega verið tárvot á sunnu-
dagskvöldið.
„Þér finnst þú vera niður-
lægður þegar þú færð á þig
átta mörk. Þetta var hræði-
legur dagur fyrir okkur. Þetta
var sambland af lélegu liði
og veikum leikmönnum. Við
hrundum gjörsamlega í seinni
hálfleik. Þeir voru miklu sterk-
ari,“ sagði Wenger eftir leikinn.
Spurður hvort hann ætlaði að
segja af sér, sagði hann: „Nei,
alls ekki.“
Átakanlegur varnarleikur
Varnarleikur Arsenal í leikn-
um gegn Manchester United
var vægast sagt hörmulegur.
Varnarmaðurinn ungi Carl
Jenkinson aulaðist á afturfót-
unum alveg þar til hann var
rekinn af velli á 77. mínútu fyr-
ir sitt annað gula spjald. Jenk-
inson átti svo hræðilegan leik
að sjónvarpsmaðurinn Piers
Morgan, sem er harður stuðn-
ingsmaður Arsenal, lýsti því á
Twitter-síðu sinni að það væru
vonbrigði að hann hefði verið
rekinn út af fyrir tvö gul spjöld,
því það þýddi aðeins eins leiks
bann fyrir varnarmanninn.
Félagar hans í vörninni,
þeir Johan Djourou, Laurent
Koscielny og Armand Traore,
voru álíka skelfilegir. Vafa-
laust hefur Wenger aldrei á
sínum langa ferli hjá Arsenal
stillt upp jafn hræðilegri vörn
og á sunnudaginn. Wojciech
Szczesny markvörður átti þó
skárri leik en vörnin, þrátt fyrir
að hafa þurft að sækja boltann
átta sinnum í netið.
Hrun Arsenal
Tímabil Arsenal í ensku úr-
valsdeildinni byrjar skelfilega.
Eftir þrjár umferðir er liðið
með 1 stig í 17. sæti deildar-
innar með markatöluna nei-
kvæða um 8 mörk. Fyrir leik-
inn á móti United hafði liðið
ekki náð að skora í úrvalsdeild-
inni. Liðið var ósannfærandi
í fyrsta leiknum á móti New-
castle og átti síðan vægast sagt
slakan leik í annarri umferð-
inni á móti Liverpool. Arsenal
náði hins vegar að komast inn
í Meistaradeild Evrópu í vik-
unni og gaf það tilefni til bjart-
sýni. Engin innistæða reynd-
ist vera fyrir þessari bjartsýni,
því lærisveinar Wengers gátu
ekkert, þrátt fyrir að hafa skor-
að tvö mörk í leiknum á móti
United.
Wenger hefur nú stýrt Arse-
nal í sex ár í röð án þess að
vinna bikar og miðað við það
lið sem hann er með í hönd-
unum nú, þá er ekki að sjá að
Arsenal muni gera tilkall til
nokkurs einasta titils.
Slátrun
Fyrsta mark leiksins skoraði
Danny Welbeck eftir átakan-
legt samskiptaleysi á milli
Johans Djourou og Wojciech
Szczesny. Fjórum mínút-
um síðar hefði Arsenal get-
að jafnað þegar Johnny Ev-
ans braut á Robin van Persie
svo úr varð vítaspyrna. Mark-
vörðurinn David de Gea varði
hins vegar vel og aðeins mín-
útu síðar skoraði Ashley Yo-
ung glæsimark sem kom Uni-
ted í 2–0. Á 41. mínútu skoraði
svo Wayne Rooney úr auka-
spyrnu sem var óverjandi fyr-
ir Szczesny. Rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks minkaði The Walcot
muninn þegar hann skoraði
laglegt mark, þar sem David
de Gea sýndi slaka fótavinnu.
Í upphafi seinni hálfleiks sótti
Arsenal af krafti en á 64. mín-
útu kom endanlegt röthögg
þegar Rooney skoraði sitt ann-
að mark – aftur úr aukaspyrnu.
Þremur mínútum síðar skor-
aði Nani svo eftir aumkunar-
verðan varnarleik Arsenal.
Staðan var orðin 5–1 og Wen-
ger sat stjarfur á bekknum.
Martröðin var rétt að byrja því
á 70. mínútu skoraði Park svo
með hnitmiðuðu skoti á milli
fóta Djourou í vörn Arsenal.
Klaufagangur og sofanda-
háttur í vörn United varð svo
til þess að Robin van Persie
var einn á auðum sjó og gat
þrykkt boltanum í þaknetið á
75. mínútu. Staðan orðin 6–2.
Rooney skoraði svo úr víta-
spyrnu undir lok leiksins en
á lokamínútunni var tími fyr-
ir annað glæsimark frá As-
hley Young. 8–2 fyrir United og
Wenger vissi ekki hvort hann
var að koma eða fara.
n Arsene Wenger hefur aldrei verið eins niðurlægður n Hræðilegur varnar-
leikur og vængbrotið lið n Ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir slátrunina
Valgeir Örn Ragnarsson
valgeir@dv.is
Fótbolti
Martröð Wengers
„Engin inni-
stæða reyndist
vera fyrir þessari bjart-
sýni, því lærisveinar
Wengers gátu ekkert.
Bugaður Aldrei
áður hefur
Arsene Wenger
verið niðurlægð-
ur jafn illilega
og í 8–2 tapi á
móti Manchester
United.