Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Síða 40
Jákvæðni Ekki láta stressið ná yfirhönd-
inni, heldur hafðu jákvæðnina að leiðarljósi.
40 Lífsstíll 9.–11. desember 2011 Helgarblað
É
g fór á Kaffibarinn um síðustu
helgi, í leit að ástinni, sem mér
skilst að sé auðfundin þar. Sel
það þó ekki dýrara en ég keypti
það. Þetta var ekki fyrsta
ferðin mín á Kaffibar-
inn og ekki önnur.
Nei, ég er alltaf að
leita. Þrotlaus vinna
síðustu ára hefur
ekki borið tilætlaðan
árangur en ég gefst
ekki upp, síður en svo.
Þarna var ég stödd, enn
einu sinni í vonlausri leit minni
að ást á pöbbinum, þegar ungur
og ekki ómyndarlegur maður vatt
sér upp að mér. Hann virtist hafa
drukkið einum bjór of mikið og var
ansi óstöðugur. Vaggaði fram og til
baka og til að að ná einhverri festu í
lífinu greip hann í höndina á mér.
V
ið stóðum saman um stund,
héldumst í hendur í þvög-
unni við klósettröðina og ég
varð að styðja við hann svo
hann dytti ekki á mig. Rómantískt í
meira lagi. Hann leit í augun á mér
og sagði þvoglumæltur en ákveð-
ið: „Ég vil hafa mök við þig. Vilt þú
hafa mök við mig?“ Ég tek ofan fyrir
hreinskilni, en þetta var full frum-
stætt fyrir minn smekk. Það fyrsta
sem mér datt í hug var: „Me Tarzan.
You Jane.“ Þetta var aug-
ljóslega ekki ástin sem
ég leitaði að. Fjöl-
skylda mín hefur
vissulega þrýst á að
ég finni mann til að
geta mér börn, en ég
var efins með þennan.
Hann hélt áfram í höndina á mér og
beið á milli vonar og ótta. Ég svar-
aði Tarzan jafn hreinskilið og hann
spurði mig: „Nei takk, ómögulega.“
Hann virtist ekki ánægður með
svarið, rumdi eins og frummaður
og skjögraði sína leið í leit að næstu
Jane.
F
rumlegar (í þessu tilfelli frum-
stæðar) pikköpplínur gefa líf-
inu vissulega lit og geta verið
efniviður í góðar sögur. Eftir því
sem þeim fjölgar fer trú mín á ást á
pöbbinum þó hverfandi. Og trúin á
mannkynið jafnvel líka.
Aðeins nokkrum klukkutímum fyrr,
á bar í næstu götu, fékk vinkona
mín svipað tilboð. Það var reyndar
ekki eins frumstætt og framhleypið,
en hreinskilnin var svo sannarlega
til staðar. „Hæ, viltu koma í sleik?“
sagði maðurinn sem vatt sér upp
að henni. Þetta var fyrsta setningin
í þeirra samskiptum. Sleikinn þáði
hún ekki. Maðurinn tjáði henni þó
í óspurðum fréttum að hann lang-
aði bara að sleik og væri að væri að
fikra sig áfram með það.
Þ
etta er vinnuumhverfið á bör-
unum. Það er augljóslega ekki
fyrir hvern sem er að ná fót-
festu í þess-
um frumskógi.
Þeir hörðustu
lifa af. Þegar
fólk eins og
ég stendur
í þeirri trú
að allir í
kringum
það séu að
fella hugi sam-
an og ástin liggi í
loftinu, þá er þetta lið í raun bara
að falla á hvert annað. Vegna ofur-
ölvunar eða troðnings. „Me Tarzan.
You Jane?“-rómantík er tekin í mis-
gripum fyrir mökunardans og ást á
pöbbinum er bara lag með Leoncie.
„Ást á
pöbbnum“
Sólrún Lilja
Ragnarsdóttir skrifar
Líf mitt
í hnotskurn
U
m þessar mundir þreyta
margir námsmenn próf og
það getur oft verið mik-
ill álagstími í lífi fólks.
Að sögn námsráðgjafa er
hreyfing og holl næring, ásamt já-
kvæðni, mikilvæg á annatíma.
Aðaláherslan er lögð á að gefa
sér tíma til að næra sig líkamlega
og andlega og kíkja þess á milli á
minnispunkta,“ segir Hrönn Bald-
ursdóttir, náms- og starfsráðgjafi,
aðspurð um góð ráð fyrir náms-
menn í prófum. Hún segir það
skipta miklu máli að hvíla sig vel og
hreyfa sig. „Það er gott að hvíla sig
og slaka á. Fara út í göngutúr með-
an það er bjart eða skella sér í heitu
pottana og hugsa um eitthvað ann-
að. Það er líka mikilvægt að teygja
úr stóru vöðvunum yfir daginn.
Fara svo snemma að sofa daginn
fyrir próf til þess að vera úthvíldur í
prófinu.“ Hrönn segir það vera mik-
ilvægt að reyna ekki að komast yfir
mikið efni daginn fyrir próf. „Það
er ekki gott að reyna að lesa mik-
inn og langan texta. Ég myndi frek-
ar mæla með því að lesa úr vinnu-
bókum, glósum eða glærum. Taka
svona lotur og rifja upp stutt í einu.“
Jákvæðni segir hún líka vera mikil-
væga. „Það á algjörlega að forð-
ast neikvæðar hugsanir og alls ekki
hugsa að maður geti þetta ekki. Það
skiptir miklu máli að vera jákvæð-
ur og leita til jákvæðra vina og ætt-
ingja.“ Hrönn bendir einnig á að
allt sé gott í hófi. „Koffíndrykkir eru
í lagi í hófi en alls ekki eftir klukkan
fimm á daginn. Þá getur það trufl-
að svefninn. Eins er gott að borða
næringarríkan mat og vera ekki í
mikill óhollustu.“
Ekki láta próf-
stressið ná þér
n Nokkur góð ráð í prófum Nokkur góð ráð frá Hrönn:
1. Hvíla sig vel og slaka á
2. Treysta því að undirbún-
ingur vetrarins hafi eitthvað
um þetta að segja
3. Fara snemma að sofa
daginn fyrir próf
4. Taka vinnulotur þar sem
rifjað er upp stutta stund
í einu
5. Ekki reyna að lesa mikinn
texta rétt fyrir próf
6. Ekki drekka mikið af koff-
índrykkjum og alls ekki eftir
klukkan fimm á daginn
7.Ekki neyta mikillar óholl-
ustu, einblína frekar á
næringarríkan mat
8.Teygja á stærstu vöðvum
líkamans yfir daginn
9. Forðast neikvæðar hugs-
anir og hafa trú á sjálfum sér Ekki sofna yfir bókunum Hvíld og nægur svefn er
nauðsynlegur í prófunum.
Jólasveinninn sáttur í Finnlandi
n Frá norðurpólnum til finnska Lapplands
Þ
að vita það ekki margir en
töluvert er síðan jólasveinn-
inn flutti sig um set frá norð-
urpólnum til smábæjarins
Rovaniemi í Finnlandi. Öld-
um saman hafði sveinki búið sáttur á
Norðurpólnum en þreyttist loks á ein-
angruninni og hóf að leita að nýjum
heimkynnum. Í dag býr hann raunar
við norðurheimskautsbaug, í finnska
Lapplandi, hæfilega langt úr alfaraleið
þótt karlinn fái ívíð fleiri heimsóknir
en áður. Milljón ferðalanga leggja ár
hvert leið sína til jólasveinsins.
Nöfn allra barna heimsins
Að vera jólasveinn er mikill rekst-
ur, í höfuðstöðvum Sveinka er stórt
pósthús, þar sem 30 álfar starfa allt
árið við að flokka póst frá börnum
alls staðar að úr heiminum. Að auki
rekur jólasveinninn mikla leikfanga-
verksmiðju og vöruhús en þar geta
gestir geta verslað, borðað og jafnvel
hitt sveinka sé hann ekki of upptek-
inn við jólaundirbúning.
Vinsæll íbúi
Finnsk yfirvöld voru fljót að bjóða
sveinka að flytja til landsins þegar
fréttist að hann væri einmana. Erfitt
er að ímynda sér vinsælli og þekktari
Finna. Sveinki er raunar löngu orðinn
hluti af ímynd Finnlands og er dugleg-
ur við að aðstoða utanríkisþjónustu
landsins. Þegar hefur hann hitt fjölda
opinberra gesta landsins, nægir þar
að nefna Lyndon B. Johnson, forseta
Bandaríkjanna, Leonid Brezhnev, að-
alritari kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, og Svíakonung svo dæmi séu
nefnd.
Tekið skal fram að hér er ekki átt
við jólasveinana íslensku. Þeir búa
enn í íslensku fjöllunum og hafa ekki
sýnt á sér nokkuð fararsnið. Þá er
ekki vitað til þess að þeir hafi starfað
í þágu utanríkisráðuneytisins.