Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Síða 44
44 Tíska 9.–11. desember 2011 Helgarblað
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Mila Kunis
er heitust!
Fimm efstu konurnar á lista GQ
yfir kynþokkafyllstu konur ársins
2011.
1. Mila Kunis
Leikkonan fæddist í Úkraínu árið 1983.
Hún vakti fyrst athygli í That ‘70s Show
en sló almennilega í gegn í The Swan.
2. Rashida Jones
Jones er fædd 1976 og hefur starfað sem
leikkona, teiknimyndasöguhöfundur
og söngkona. Hún leikur þessa dagana í
Parks and Recreation.
3. Alison Brie og Gillian Jacobs
Alison er fædd árið 1983 og hefur til
dæmis leikið í Mad Men. Jacobs er ári
yngri og hefur leikið í fjölda þáttaraða.
4. Kat Dennings
Leikkonan er fædd árið 1986 og hefur
birst í þáttum á borð við Sex and the City
og leikið í kvikmyndum, til dæmis The
40-Year-Old Virgin, Big Momma’s House
2 og Nick and Norah’s Infinite Playlist.
5. Minka Kelly
Leikkonan og rokkaradóttirin er fædd
1980. Kelly vakti fyrst athygli í þáttunum
Friday Night Lights.
Hengdu slifsið um hálsinn.
Hægri endinn ætti að vera
ívið lengri en sá vinstri.
Gerðu styttri endann
láréttan
Krossaðu lengri endanum
yfir þann styttri.
Gerðu lengri endann lóð-
réttan yfir styttri endanum.
Togaðu varlega
samtímis í báða enda
slaufunnar til að
þétta hnútinn.
Og undir. Lengri endinn á
að koma upp undir styttri
endanum við miðju hálsins.
Settu lengri endann í lykkju
á aftanverðri slaufunni.
Lærðu að
binda slaufu
Í
bókinni A–Z Book of Menswear eru
leiðbeiningar um hvernig best er að
binda slaufu. Margir karlmenn óttast
það, halda að það sé flóknara en það er.
Í raun er þetta nákvæmlega það sama
og að binda skóreimar og það ættu flestir
fullorðnir karlmenn að kunna. Grunnstef
in eru þau sömu.
Best er þó að gefa sér tíma til að æfa sig
áður en þú ætlar út með slaufuna. Æfðu
þig með leiðbeiningunum og reyndu svo
án þeirra. Þetta kann að virðast flókið í
fyrstu en þú nærð fljótlega tökum á þessu.
Þá verður þetta jafnauðvelt og að binda
skóreimarnar.
Leiðbeiningarnar eru hér að neðan.
Þar er gert ráð fyrir því að þú sért rétthent
ur og sjónarhornið er það sama og þegar
þú stendur fyrir framan spegil.
Góða skemmtun.
Rakstur fyrir herramenn
S
annir herramenn vita að með
rakstri þar sem notaður er hníf
ur, verður húðin silkimjúk og
fín en nær aldrei að verða eins
mjúk og góð ef þeir nota rafmagns
vélar.
Undirbúningur
Lykillinn að góðum rakstri felst í und
irbúningi. Best er að raka sig í heitri
sturtu eða eftir hana, eða að setja vel
heitt og rakt handklæði á andlitið í um
það bil 2 mínútur fyrir raksturinn. Þetta
mýkir skeggið, örvar og opnar húðina
þannig að raksturinn verður léttari og
þú rakar þig betur. Þegar undirbúningi
er sleppt, verður rakvélar blaðið fljót
lega skörðótt og bitlaust. Bitlaust blað
er ein meginástæðan fyrir óþægileg
um rakstri og skurðum.
Raksápan
Notið raksápu sem inniheldur glýser
ín, eða sápu sem freyðir með vatni.
Forðist froðu og gel eða efni sem inni
halda deyfandi efni svo sem benzo
cane eða mentól. Þessi efni loka húð
inni og gera skeggið stífara. Notið
hóflegt magn af raksápu, of mikið
magn af sápu gerir raksturinn hvorki
auðveldari né betri. Það jafnast ekk
ert á við að nota góðan rakbursta sem
mýkir og opnar húðina enn betur, ýfir
skegghárið þannig að raksturinn verð
ur enn fínni en annars.
Raksturinn
Notið aðeins góðar rakvélar með góðu
skafti.
Rakið alltaf í sömu stefnu og skegg
ið vex, aldrei á móti. Að raka á móti
skeggvextinum er algengasta orsök
fyrir sviða og inngrónum hárum í and
liti. Rakstur þvert á skeggvöxtinn er í
lagi.
Rennið sköfunni létt yfir hörundið,
hafið eins strekkt á húðinni og mögu
legt er. Hreinsið rakvélarblaðið oft
og vel meðan á rakstrinum stendur,
þannig að ekki safnist hár á milli blað
anna því þá hætta þau að virka. Ef sáp
an þornar meðan á rakstrinum stend
ur, notið þá meira vatn og vinnið upp
froðuna með burstanum, ekki meiri
sápu.
Eftir rakstur og sótthreinsun
Strax að loknum rakstri skal setja kalt
vatn á andlitið og þannig loka húðinni
aftur eftir raksturinn. Þá fyrst skal bera
á sig rakspíra eða krem til sótthreins
unar og mýkingar.
Veðreiðar og drykkja:
Gróf karlmennska
Rithöfundurinn Charles Bukowski gerir
grófri karlmennsku skil í verkum sínum.
Nú fyrir jólin hefur Uppheimar gefið út
nýja þýðingu á bók
hans; Hollywood.
Í Hollywood er
aðalsöguhetjan
Henry „Hank“
Chinaski sem vill
helst fara á veð-
hlaupabrautina
á daginn og fitla
við ljóðagerð á
kvöldin, gjarnan
með vínflösku við
hönd og útvarpið stillt á stöð sem leikur
klassíska tónlist. Skrifa í mesta lagi
smásögu. Skáldskapurinn heldur honum
óbrjáluðum, veðreiðarnar minna hann á
að hafa lífið einfalt – þannig komi sann-
leikurinn í ljós, þannig komist hlutirnir
í verk. Nú hefur hann hins vegar verið
ráðinn til að skrifa kvikmyndahandrit
sem skal til Hollywood.
Charles Bukowski var einn af áhuga-
verðari rithöfundum tuttugustu aldar,
ótvíræður hæfileikamaður og stílisti
en umdeildur vegna drykkjuskapar og
óheflaðs orðfæris.
n Tímalaust, töff og eins einfalt og að reima skóreimar