Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 15.–18. ágúst 2014
Umdeildi sýslUmaðUrinn
n Hvert hitamálið á fætur öðru hefur skekið feril Ólafs Helga Kjartanssonar n Óánægja
T
alsverð óánægja ríkir
á Suðurnesjum vegna
skipunar Ólafs Helga
Kjartans sonar í embætti
lögreglustjóra. Sigríður
Björk Guðjónsdóttir var vinsæl í
Reykjanesbæ, ekki síst vegna ár-
angurs hennar í baráttunni gegn
heimilisofbeldi og kynferðisbrot-
um en nú hefur hún verið flutt til
og mun gegna embætti lögreglu-
stjóra á höfuðborgarsvæðinu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra skipaði Ólaf í Sig-
ríðar stað og tekur hann við starf-
inu eftir áramót.
Ólafur Helgi hefur starfað sem
sýslumaður og lögreglustjóri á
Selfossi frá 2002, en þar áður var
hann sýslumaður og bæjarfó-
geti á Ísafirði. Ólafur hefur hvað
eftir annað komist í fjölmiðla fyrir
störf sín. Árið 2007 þvingaði lög-
reglan á Selfossi þvaglegg inn í
konu sem neitaði að gefa þvag-
sýni en Ólafur varði þá aðgerð,
sem konunni voru seinna greiddar
skaðabætur vegna. Jafnframt hefur
hann sætt gagnrýni vegna harka-
legra innheimtuaðgerða og fram-
göngu sinnar gegn gerðarþolum
við nauðungarsölur. Raunar hefur
hvert hitamálið á fætur öðru skek-
ið starfsferil Ólafs sem líklega er
einn umdeildasti sýslumaður á Ís-
landi.
DV náði ekki tali af Ólafi við
vinnslu fréttarinnar, en haft er eftir
honum á Mbl.is að hann sé þakk-
látur ráðherra fyrir að hafa skipað
sig. Hanna Birna hafi sýnt sér mik-
inn sóma. Ólafur hefur gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í gegnum tíðina.
Hann var efsti maður á lista flokks-
ins á Ísafirði, sat í flokksráði um
árabil og í stjórn Sambands ungra
sjálfstæðismanna á yngri árum. n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Boðaði fjöldahandtökur
Björn sagði stopp
Þann 19. janúar árið 2009, þegar
Íslendingar voru í æ ríkari mæli farnir að
kynnast hruni fjármálakerfisins á eigin
skinni, tilkynnti Ólafur Helgi sem sýslu-
maður á Selfossi að hann ætlaði að gefa
lögreglu fyrirmæli um að handtaka 370
einstaklinga í Árnessýslu sem ekki hefðu
mætt í fjárnám. Ætlaðist hann til að fólk
yrði handtekið á heimilum sínum eða við
vinnu. Björn Bjarnason, þáverandi dóms-
málaráðherra, greip í taumana daginn eftir
og lét senda út fréttatilkynningu þar sem
hann setti ofan í við sýslumanninn. „Vill
dómsmálaráðherra taka fram, að hann
telur ekki skynsamlegt af sýslumanni að
kynna ákvörðun sína með þeim hætti, sem
hann hefur gert í fjölmiðlum. Þá sé það
ekki í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórn-
arinnar, að nú sé gripið til óvenjulegra og
harkalegra innheimtuaðgerða af hálfu
sýslumanns,“ sagði í tilkynningu ráðherra.
Í kjölfarið dró Ólafur Helgi yfirlýsingar sínar
til baka og greindi frá því að vinnubrögð
hans yrðu tekin til endurskoðunar.
Ákæra vakti furðu
Gáleysisbrot eiginmanns
Árið 2008 skrifaði Helga Jónsdóttir
lögfræðingur opið bréf í Fréttablaðið
þar sem hún sagði frá árekstri sem hún
varð fyrir á Suðurlandsvegi
og afleiðingum slyssins.
„Við vorum þrjú í bílnum: ég,
maðurinn minn, sem keyrði, og
dóttir okkar sem þá var þriggja
mánaða. Það slasaðist enginn
í slysinu nema ég og maðurinn
minn. Ökumaður hins bílsins
meiddist ekkert,“ skrifaði hún
og bætti því við að nokkru
síðar hefði eiginmanni hennar
verið afhent ákæra vegna
slyssins. „Sýslumaðurinn á Selfossi hafði
sem sagt ákært hann fyrir að hafa valdið
því að ég slasaðist, nánar tiltekið fyrir brot
gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr.
19/1940. Það ákvæði kveður efnislega á
um að refsa eigi þeim sem veldur öðrum
af gáleysi tjóni á líkama eða heilbrigði,
sams konar og því sem fellur undir ákvæði
laganna um meiri háttar líkamsárás.“ Eftir
birtingu ákærunnar gerðu hjónin allt sem
í þeirra valdi stóð til að fá sýslumann til
að falla frá ákærunni. „Ég sendi honum
bréf þar sem ég lýsti því hvaða
áhrif svona dómsmál myndi
hafa á okkur og sendi honum
m.a. vottorð frá lækninum sem
hefur annast endurhæfingu
mína þar sem kom fram að fólk
sem hefði fengið heilaáverka
eins og ég, væri í aukinni hættu
á að fá kvíða og þunglyndi auk
þess sem lítið þyrfti til að koma
slíkum sjúklingum úr jafnvægi.
Í vottorðinu kemur enn fremur
fram að ákæra og allt það álag sem
málaferlum fylgir myndi vafalítið hafa
mjög slæm áhrif á bata minn,“ skrifaði
Helga. Allt kom fyrir ekki og var maðurinn
hennar látinn greiða sekt og dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Sjaldgæft er að ákært sé á grundvelli
lagaákvæðisins þegar gerandi og þolandi
eru nánir ástvinir.
Barnaníðingur gekk laus
Ekkert gæsluvarðhald þrátt fyrir myndefni
Barnaníðingur í Vestmannaeyjum gekk
laus í um það bil ár eftir að myndbands-
upptaka af honum að nauðga stjúp-
dóttur sinni komst í hendur lögreglu. Var
maðurinn grunaður um kynferðisbrot gegn
þremur stúlkum og fannst gríðarlegt magn
barnakláms í fórum hans. Þrátt fyrir allt
þetta krafðist Ólafur Helgi ekki gæslu-
varðhalds yfir honum. Taldi hann manninn
ekki ógna almannahagsmunum og sagði
í hádegisfréttum RÚV að hver maður væri
saklaus uns sekt væri sönnuð.
Maðurinn var ekki úrskurðaður í
gæsluvarðhald fyrr en málið kom á
borð saksóknara sem krafðist þess fyrir
Héraðsdómi Suðurlands. Í kröfugerð sinni
gagnrýndi settur saksóknari lögreglustjór-
ann fyrir að hafa ekki sjálfur farið fram á
gæsluvarðhald. Í niðurstöðu dómstóls-
ins í lok júní árið 2011 kom fram að ríkir
almannahagsmunir stæðu til þess að
menn sem grunaðir væru um alvarleg og
ítrekuð brot gegn ungum börnum gengju
ekki lausir. „Vegna alvarleika, umfangs
og eðli brotanna þykir engu breyta við
mat á skilyrðum fyrir gæsluvarðandi af
þessum toga þó ekki hafi verið farið fram
á gæsluvarðhald vegna almannahags-
muna meðan á lögreglurannsókn stóð,“
sagði í úrskurðinum. Eftir að hann var
kveðinn upp var haft eftir Ólafi Helga að ef
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðuna hlyti
lögreglustjórinn á Selfossi, þ.e. hann sjálf-
ur, að hafa gert mistök. Þegar Hæstiréttur
staðfesti úrskurðinn birtist tilkynning á vef
lögreglunnar á Selfossi þar sem fjölmiðlar
og álitsgjafar voru gagnrýndir fyrir harka-
leg viðbrögð.
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, gagnrýndi Ólaf
Helga harðlega í fréttum RÚV og fullyrti að
hann hefði átt að krefjast gæsluvarðhalds.
Málið vakti mikla reiði og var höfð uppi
krafa um afsögn Ólafs. „Ég hef ekki íhugað
það og ætla ekki að fara klóra ofstækis-
mönnum út í bæ öfugt með því,“ svaraði
sýslumaðurinn þegar Vísir spurði hvort
hann hygðist segja af sér. Ári síðar dæmdi
Hæstiréttur Vestmannaeyjaníðinginn í 8
ára fangelsi og var honum gert að greiða
fórnarlömbum sínum 4,2 milljónir króna í
miskabætur.
„Staðið réttilega að verki“
Lögregla þvingaði þvaglegg inn í konu
Uppi varð fótur og fit þegar lögreglan á Selfossi þvingaði þvaglegg
inn í konu í mars árið 2007. Samkvæmt 102. grein umferðarlaga ber
að svipta einstakling ökuleyfi ef hann neitar að veita sýni, en í staðinn
fyrir að beita þessu ákvæði var gripið til valdbeitingar.
Ólafur Helgi varði ákvörðunina í samtali við Blaðið og sagði meðal
annars: „Það hefur margoft gerst hjá okkur að settur hafi verið upp
þvagleggur hjá karlmönnum. Ég minnist þess hins vegar ekki að áður
hafi þurft að setja upp þvaglegg hjá kvenmanni. Ég kannast ekki við
það að nokkur karlmannanna hafi talið að um kynferðislega áreitni
hafi verið að ræða.“
Konan kærði lögregluna til ríkissaksóknara fyrir kynferðisofbeldi
og lýsti atvikum þannig að girt hefði verið niður um hana og henni
haldið nauðugri af karlkyns lögregluþjónum þegar sýnatakan fór
fram. Ríkissaksóknari hóf ekki opinbera rannsókn á málinu, og túlkaði
Ólafur Helgi það sem svo að lögregla hlyti að hafa „staðið réttilega
að verki“.
Umboðsmaður Alþingis tók hins vegar málsmeðferð lögreglu
til skoðunar að eigin frumkvæði og sendi dómsmála- og mann-
réttindaráðherra bréf þann 26. ágúst árið 2010. Þar vitnaði settur
umboðsmaður til pyntingarákvæðis stjórnarskrárinnar, samsvarandi
greinar í mannréttindasáttmála Evrópu og grundvallarreglunnar um
meðalhóf. Ráðuneytið féllst á að meðalhófs hefði ekki verið gætt,
viðurkenndi mistök og greiddi konunni skaðabætur.
Nýr lögreglustjóri
Ólafur Helgi Kjartans-
son tekur við embætti
lögreglustjórans á Suður-
nesjum eftir áramót.
Stöðvaður á Hraðbraut
„I am a sheriff from Iceland“
Ólafur Helgi er einn metnaðarfyllsti
Rolling Stones-aðdáandi Íslands, á
hundruð platna með hljómsveitinni og
hefur margsinnis séð hana á sviði. DV
fylgdi sýslumanninum á Stones-tónleika
í Denver árið 1999, en þá var hann með
VIP-miða, hitti Mick Jagger og skemmti
sér konunglega. Eftir tónleikana hafði
lögreglan afskipti af Ólafi á hraðbraut.
Ólafur, sem ekki var staðinn að neinu
saknæmu, lauk samtalinu við lögreglu-
menn með orðunum „I am a sheriff from
Iceland“. Þetta þótti heillandi.