Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Page 14
Helgarblað 15.–18. ágúst 201414 Fréttir
Ís úr brjósta-
mjólk og
kotasælu
Laugardaginn 16. ágúst verður
hinn árlegi Ísdagur Kjöríss
haldinn hátíðlegur en hann fer
fram í áttunda sinn. Dagurinn
er haldinn í samstarfi við bæjar
hátíðina Blómstrandi daga og geta
gestir því einnig heimsótt plöntu
og grænmetismarkaði.
Undanfarin ár hefur fjöldi fólks
farið í ísbíltúr til Hveragerðis á
þessum degi og í fyrra voru gest
ir um 18 þúsund. Á Ísdeginum
er lögð sérstök ísleiðsla úr verk
smiðju Kjöríss og út á bílaplan.
Þar er ísnum svo dælt ofan í gesti
sem mega borða eins mikið af ís
og þeir geta í sig látið.
Ásamt hinum hefðbundna ís
verður einnig, líkt og fyrri ár, boð
ið upp á bragð af ýmsu tagi sem
er hluti af vöruþróun fyrirtækis
ins. Ísgerðarmenn Kjöríss hafa
undanfarið prófað sig áfram með
tugi óvenjulegra ístegunda eins og
sveskjuís, kotasæluís, harð fiskís,
Skittlesís og Rauðan Ópalís,
en óvenjulegasta bragðið er lík
lega Búbísinn, sem unninn er úr
brjóstamjólk.
Í ár verður landaþema og á
meðal þeirra landa sem ísgerðar
mennirnir horfðu til eru Brasilía
(kaffi), Írland (Guinness), Banda
ríkin (hnetusmjör), Austurríki
(Mozartkúlur) og Indland (karrí,
múskat og engifer).
Gestir Ísdagsins geta tek
ið þátt í vöruþróun fyrirtækis
ins með því að smakka og gefa
ísunum einkunn. Dæmi eru um
að ístegundir sem kynntar voru
á hátíðinni hafi farið í almenna
framleiðslu hjá fyrirtækinu.
Ingó Veðurguð sér um að
halda uppi fjörinu og Lína lang
sokkur og leikhópurinn Lotta
verða á staðnum, ásamt fleiri
skemmtiatriðum. Dagskráin hefst
kl. 13 og lýkur kl. 16.
Gætu þurft að
greiða 12 milljarða
n Stærstu einstöku hluthafar Bakkavarar n 20 milljarða hagnaður í fyrra
B
ræðurnir Lýður og Ágúst
Guðmundssyni gætu þurft
að greiða 12 milljarða
króna fyrir tæplega 46 pró
senta eignarhlut Arion
banka og nokkurra lífeyrissjóða
í matvælafyrirtækinu Bakkavör
Group. Í ársreikningi félagsins sem
heldur utan um eignarhlutinn fyr
ir Arion banka og lífeyrissjóðina,
samlagsfélagsins BG12 slhf., kemur
fram að eignarhluturinn sé metinn
á tæplega 11,8 milljarða króna.
Þetta verð er hins vegar kostn
aðarverð og er það líklega lægra
verð en væntanlegir kaupendur
þurfa að greiða fyrir hlutinn. Um
þetta segir í ársreikningi samlags
félagsins sem heldur utan um hlut
inn: „Eignarhlutur í hlutdeildarfé
lögum er færður á kostnaðarverði,
í samræmi við 4. tl. 70. gr. laga um
ársreikninga, þar sem eignarhlut
arins var aflað eingöngu í þeim til
gangi að selja hann.“ Eignarhlutur
inn gæti því verið seldur á miklu
hærra verði en því ef af viðskiptun
um verður.
Högnuðust um rúma 20 milljarða
Hagnaður Bakkavarar Group nam
rúmlega 20 milljörðum króna í fyrra,
eða um 115 milljónum punda. Mið
að við þennan hagnað er hins vegar
líklegt að tæplega 50 prósenta hlutur
í fyrirtækinu verði seldur á hærra
verði en tólf milljarða króna.
Bakkavararbræður eru stærstu
einstöku eigendur Bakkavarar
Group um þessar mundir eftir að
hafa keypt hlutabréf í fyrirtækinu til
baka af kröfuhöfum þess á síðast
liðnum árum. Þeir bræður ráða yfir
um 40 prósentum hlutafjár í fyrir
tækinu. Hlutabréfin hafa þeir með
al annars keypt með því að flytja inn
fjármuni til Íslands með afslætti í
gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka
Íslands. Hlutabréfin eiga þeir meðal
annars í gegnum félagið Korkur In
vest ehf.
Tilfinningalegt gildi
Líklegt má telja að Lýður og Ágúst
séu líklegustu kaupendur hlutafjár í
Bakkavör Group þar sem þeir stofn
uðu það á sínum og virðast hafa ein
sett sér það eftir hrunið 2008 að ná
aftur undirtökunum í félaginu, mið
að við uppkaup þeirra á hlutabréf
um í Bakkavör Group síðastliðin ár.
Þótt það kunni að hljóma einkenni
lega þá má segja að fyrirtækið hafi
tilfinningalegt gildi fyrir þá þar sem
þeir stofnuðu það á sínum tíma,
ásamt föður sínum, og eru kenndir
við það.
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýs
ingafulltrúi Arion banka, hefur ekki
viljað tjá sig um hugsanleg viðskipti
með hlutabréf bankans í Bakkavor
Group. Í frétt sem Sky News flutti
um viðskiptin hugsanlegu var breski
bankinn Barclays sagður líklegur til
að sjá um söluna fyrir hönd Arion
banka.
Milljarða arðgreiðsla
– 22 milljarða tap
Ef Bakkabræður kaupa bréfin af
Arion banka og öðrum hluthöfum
BG12 slhf. þá verður að setja við
skiptin í samhengi við fyrri viðskipti
þeirra bræðra við bankann. Félag
þeirra, Exista, var stærsti einstaki
hluthafi Kaupþings á árunum fyrir
hrun og fengu þeir háar lánveitingar
frá honum.
Eitt af félögunum sem fengu
lán í Kaupþingi var Bakkabraedur
Holding BV, hollenskt eignarhalds
félag sem þeir notuðu til að halda
utan um hlutabréf í Exista meðal
annars. Þetta hollenska félag fékk
um 9 milljarða í arð út úr bankan
um á árunum fyrir hrunið. Félagið
var á endanum í eigu eignarhalds
félags á Kýpur. Í lok árs 2011 námu
skuldir þessa félags um 67 milljörð
um króna.
22 milljarða króna skuldir Bakka
braedur Holding við Kaupþing færð
ust yfir í nýja bankann sem í dag
heitir Arion en var bókfærð á krón
ur 0 við yfirfærsluna síðla árs 2008.
Arion banki hefur sömuleiðis reynt
að setja félagið í þrot en það hefur
ekki gengið þar sem hollensk lög
kveða á um að minnsta kosti tveir
kröfuhafar þurfi að fara fram á gjald
þrotaskipti yfir félögum þar í landi.
„Þar til annar kröfuhafi Bakka
braedur Holding sækir á félagið gæti
reynst erfitt að setja það í þrot,“ sagði
einn af heimildarmönnum DV um
hollenska félagið í fyrra. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Þar til annar
kröfuhafi Bakka-
braedur Holding sækir á
félagið gæti reynst erfitt
að setja það í þrot.
Stærstir og líklegastir
Bakkavararbræðurnir Lýður og
Ágúst Guðmundssynir eru líkleg-
astir til að vilja kaupa hlutabréfin
í Bakkavör sem Arion banki og
fleiri vilja selja. Þeir eru stærstu
hluthafar félagsins í dag.
Missti einn af bestu vinum sínum á Gaza
„Ég hef aldrei grátið einn mann líkt og Ali Abu Afrash“
M
issirinn er gífurlegur en við
höldum áfram til heiðurs
Ali,“ skrifar Sveinn Rúnar
Hauksson, formaður fé
lagsins ÍslandPalestína, á Face
book þar sem hann minnist vin
ar síns Alis Abu Afash sem lést í
sprengingu á Gaza í vikunni.
Ali starfaði með fjölmiðlamönn
um á Gaza og var einn af betri vin
um Sveins Rúnars sem kallaði hann
Ali Baba.
„Það fékk hann til að hlæja og
gerði hann stoltan. Allt fjölmiðla
liðið sem hann starfaði með kallaði
hann það líka. Þeir voru meðvitaðir
um hversu mikill töframaður hann
var í daglegu lífi,“ segir Sveinn Rún
ar sem hafði þekkt Ali í fimm ár.
„Þrátt fyrir að hafa aðeins þekkst
í fimm ár vorum við orðnir jafn
nánir og eineggja tvíburar. Hann
vissi hvað ég vildi segja áður en ég
sagði það og færði mér hluti sem ég
vildi áður en ég bað hann um það.
Þetta var gagnkvæmt og ég var jafn
næmur og hann. Líkt og við værum
sami maðurinn. Ég hef aldrei grátið
einn mann líkt og Ali Abu Afrash,
mögulega vegna þess að ég græt
einnig vegna allra þeirra sem hafa
fallið í þessu skelfilega slysi,“ skrifar
Sveinn Rúnar á Facebook.
Mannfall á Gaza undanfarnar
vikur er gífurlegt. Ísra el og Ham
assam tök in samþykktu á miðviku
dagskvöld að fram lengja vopna
hléið á Gazaströnd inni um fimm
daga, en ekki hef ur tek ist að ná
sam komu lagi um var an legt hlé á
árásum. Viðræður halda hins veg ar
áfram í Kaíró í Egypta landi. n
ritstjorn@dv.is
Ekki birt ákæran
Kolbrún Benediktsdóttir sak
sóknari sem fer með mál ákæru
valdsins á hendur þrítugum
lögreglumanni sem var til rann
sóknar fyrir að leita að upplýs
ingum um konur í LÖKEmála
skrárkerfi lögreglunnar og deila
þeim, kannast ekki við að honum
hafi verið birt ákæra í málinu.
Í Fréttablaðinu á fimmtudag
var fullyrt að honum hafi verið
birt ákæran en aðspurð segist
Kolbrún í samtali við DV ekki
kannast við það. Hefur verjandi
lögreglumannsins farið fram á
að þinghald í málinu verði lokað
og þarf dómari að taka afstöðu
til þess áður en hægt verður að
birta efni ákærunnar opinber
lega. Þegar þinghald er lokað er
ákæra ekki afhent fjölmiðlum.
Í Fréttablaðinu segir að lög
reglumaðurinn sé ákærður fyrir
að fletta upp nöfnum 45 kvenna
í LÖKEkerfinu haustið 2013.
Meðal kvennanna eru fórnar
lömb kynferðisbrota. Enn fremur
er fullyrt að hann sé ákærður
fyrir að hafa í ágúst 2012 sent
skilaboð á Facebook með lýsingu
og nafni manns sem lögreglan
hafði afskipti af.
Alis Abu Afash Hann er einn fjölmargra
sem látið hefur lífið í óöldinni á Gaza.
Formaður félagsins Ísland-Palest-
ína Sveinn Rúnar missti góðan vin.