Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Page 15
Helgarblað 15.–18. ágúst 2014 Fréttir 15 Missti einn af bestu vinum sínum á Gaza Rangfærslur Vigdísar í vikunni sem leið V igdís Hauksdóttir, for- maður fjárlaganefndar Alþingis, fór ítrekað með rangt mál í umræðum um ríkisfjármál og opinbera stjórnsýslu í vikunni. DV kannaði sannleiksgildi ummæla sem hún lét falla, annars vegar í viðtali í þættin- um Í bítið á Bylgjunni og hins vegar í Speglinum á Rás 1. Ekki æviráðnir „Eins og við vitum þá eru ríkisstarfs- menn æviráðnir,“ sagði Vigdís á Bylgjunni. Rangt. Mikill minnihluti ríkis- starfsmanna er æviráðinn, eða um 5 prósent þeirra. Samkvæmt nýj- ustu tölum eru 1.186 starfsmenn hins opinbera æviráðnir, en sam- tals vinna 21.102 hjá hinu opin- bera. Flestir hinna æviráðnu starfa við Háskóla Íslands og hjá lögreglu- stjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn sem borin var upp á Alþingi fyrr á árinu. Ekki þrjár áminningar fyrir sama brot „Það er með forstöðumenn stofnana að þeir þurfa að fá áminningar eigi þeir að víkja,“ sagði Vigdís á Bylgj- unni. Aðspurð hvað þyrfti til að hægt væri að víkja embættismanni úr starfi svaraði Vigdís: „Þrjár áminn- ingar fyrir sama brot.“ Rangt. Embættismenn þurfa ekki að fá þrjár áminningar fyrir sama brot til að unnt sé að víkja þeim frá störfum. Í sjötta kafla laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er fjallað um lausn frá emb- ætti. Fram kemur að veita skuli emb- ættismanni lausn um stundarsakir hafi hann gerst sekur um vanrækslu eða misfellur í starfi. Áminna skuli viðkomandi og gefa honum færi á að bæta sig. Þá skuli mál hans rann- sakað af nefnd sérfróðra manna svo að upplýst verði hvort rétt sé að veita honum lausn að fullu eða láta hann taka aftur við embætti sínu. Um- mæli formanns fjárlaganefndar gefa ekki rétta mynd af hinu lögbundna ferli sem þarf að fara fram til að víkja megi embættismanni frá störfum. Ekki ríkisfé „Hefði síðasta ríkisstjórn ekki far- ið í þessi gæluverkefni sem var farið í, ég nefni stjórnlagaþing, ESB-um- sóknina, umboðsmann skuldara og fleiri verkefni sem var farið í, það var ekki forgangsraðað í þágu þjóðar- innar eða heilbrigðisþjónustu á síð- asta kjörtímabili, og ég fullyrði að ef það hefði verið gert værum við kom- in tveimur árum framar í batanum,“ sagði Vigdís á Bylgjunni og bætti við: „Lilja Mósesdóttir hagfræðingur var á þingi, lét hún reikna það upp ein- hvern tímann fjármagnið sem fór í umboðsmann skuldara per úrlausn hvers máls, þá kostaði hvert mál 16 milljónir, þannig þið sjáið það að ríkisfé veitt í hvert mál upp á 16 milljónir, það hefði verið hægt að af- skrifa nokkuð stórt húsnæðislán í bönkunum fyrir það.“ Rangt. Umboðsmaður skuldara er ekki gæluverkefni kostað af skatt- greiðendum. Samkvæmt 5. grein laga um umboðsmann skuldara standa fjármálafyrirtæki straum af kostnað- inum með greiðslu sérstaks gjalds sem rennur beint til reksturs stofn- unarinnar og er innheimt af henni. Þá er hvorki hægt að kalla um- boðsmann skuldara né stjórnlaga- þing „gæluverkefni síðustu ríkis- stjórnar“. Stofnun stjórnlagaþings var baráttumál Framsóknarflokks- ins árið 2009 og beinlínis skil- yrði þess að hann styddi minni- hlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Vigdís Hauksdóttir og aðrir þingmenn Framsóknarflokksins, að einum undanskildum sem var fjar- verandi, greiddu lögum um stjórn- lagaþing atkvæði sitt árið 2010. Sjálf- stæðisflokkurinn var eini flokkurinn sem ekki studdi málið. Enn breiðari samastaða náðist um embætti um- boðsmanns skuldara, en 45 þing- menn greiddu atkvæði með því máli, meðal annars allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Draga úr tekjum en auka ekki „Tekjur ríkisins eru að stóraukast vegna aðgerða þessarar ríkisstjórnar. Eigum við að fara yfir skuldamálin, eigum við að fara yfir skattalækkun, eigum við að fara yfir atvinnustigið sem hefur hækkað?“ Þannig spurði Vigdís þegar rætt var við hana og Oddnýju G. Harðardóttur, fyrrver- andi fjármálaráðherra, í Speglinum á Rás 1. Rangt. Þær aðgerðir sem Vigdís nefnir auka ekki tekjur ríkisins. Skuldaniðurfellingar ríkisstjórnar- innar munu þvert á móti kosta rík- ið að minnsta kosti 80 milljarða næstu fjögur árin. Við þetta mun bætast kostnaður vegna hærri vaxta og uppgreiðslu lána hjá Íbúðalána- sjóði auk þess sem skattafsláttur við inngreiðslu séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán mun valda ríki og sveitarfélögum tekjumissi upp á tugi milljarða í framtíðinni. Skattalækkanir auka yfirleitt ekki tekjur ríkissjóðs heldur lækka þær. Skattar þurfa að vera gríðarlega háir fyrir, hærri en almennt tíðkast í hin- um vestræna heimi (fyrir ofan há- markið í svokallaðri Laffer-kúrvu, hagfræðilíkani Arthurs Laffer), til þess að lækkun þeirra auki skatt- tekjur. Aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar í skattamálum, svo sem lækkun sérstaka veiðigjaldsins, afnám auð- legðarskatts, lækkun vörugjalda og sú ákvörðun að falla frá hækkun virðisaukaskatts á gistinætur, hafa ekki aukið tekjur ríkisins heldur þvert á móti kostað ríkissjóð millj- arða. Atvinnustig hefur farið hækk- andi frá því árið 2010 og er atvinnu- leysi nú lægra en það hefur nokkurn tímann verið frá hruni. Ýmsir ólík- ir þættir hafa áhrif á atvinnustig og er hæpið að halda því fram að það sé beinlínis vegna aðgerða ríkis- stjórnarinnar sem það hefur haldið áfram að hækka. Vigdís nefndi engin dæmi um aðgerðir máli sínu til stuðnings. n n Formaður fjárlaganefndar illa að sér n Ummæli um ríkisfjármál og stjórnsýslu standast ekki skoðun Veitir Hönnu Birnu lögfræðiráðgjöf n Jón Steinar aðstoðar ráðherrann í Lekamálinu n Vill ekkert tjá sig um málið J ón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardóm- ari, hefur síðustu vikur veitt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkis ráðherra lögfræðiráð- gjöf vegna Lekamálsins. Hann neit- ar að tjá sig um málið við DV og vill ekki svara því hvort hann fái greitt fyrir verkefnið. Hæstaréttardómar- inn fyrrverandi er einn af þeim sem tekið hefur til varna fyrir Hönnu Birnu opinberlega. Í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 8. ágúst hélt hann því fram að um- boðsmaður Alþingis hefði gerst liðsmaður í flokki ófagnaðarmanna og „farið offari“ með því að krefja innanríkisráðherra um nánari svör vegna afskipta hennar af lögreglu- rannsókn þar sem aðstoðarmenn ráðherrans eru með réttarstöðu grunaðs. Beðið eftir svari Heimildir DV herma að Jón Steinar hafi verið talsvert innanríkisráðu- neytinu í tengslum við þá lögfræði- ráðgjöf sem hann hefur veitt innan- ríkisráðherra. Sjálfur vill Jón Steinar ekkert segja um málið eða eðli ver- kefnisins í samtali við DV. Aðspurð- ur um það hvort hann hafni því að hann hafi veitt ráðherra ráðgjöf vegna Lekamálsins segir hann: „Ég svara ekki spurningunni og hættu þessu nú. Þú átt ekki að láta svona við mig, ég er ekki fæddur í gær.“ Tryggvi Gunnarsson, umboðsmað- ur Alþingis, sendi Hönnu Birnu bréf þann 30. júlí og krafði hana svara um samskipti hennar við Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóra vegna rannsóknar Lekamálsins. Svör Hönnu Birnu voru ekki full- nægjandi. Hún sagðist hafa rætt málið á fundum með lögreglustjór- anum en svaraði því ekki hvenær fundirnir fóru fram, hvert efni þeirra hafi verið og hver hafi boð- að til þeirra af hálfu ráðuneytisins. Umboðsmaður ítrekaði því kröfu sína um að hún svaraði þessum spurningum. Ætla má að lögfræði- ráðgjöf Jóns Steinars síðustu miss- eri hafi reynst ráðherranum vel en hann þarf að svara bréfi umboðs- manns í síðasta lagi í dag, föstudag. Gagnrýnir umboðsmann Eins og fyrr segir hefur Jón Steinar gagnrýnt umboðsmann harka- lega vegna málsins. Í grein sinni í Morgunblaðinu sagði hann: „Með ómálefnalegri þátttöku sinni í til- efnislausri aðför að ráðherranum grefur umboðsmaður Alþingis und- an embættinu sem honum hefur verið trúað fyrir. Það er eins og emb- ættismaðurinn vilji koma höggi á ráðherrann.“ Jón Steinar er sem kunnugt gamall vinur Davíðs Odds- sonar, ritstjóra Morgunblaðsins, en hann var skipaður hæstaréttardóm- ari árið 2004. Davíð var þá forsætis- ráðherra. Davíð hefur sjálfur fjall- að mikið um Lekamálið í leiðurum Morgunblaðsins. Hann hefur sagt það „pólitískan spuna“ og fullyrt að Hanna Birna hafi ekkert gert til að torvelda rannsókn málsins. Þá hef- ur hann opinberað þá skoðun sína að eðlilegt sé að leka persónuupp- lýsingum um hælisleitendur í þeim tilgangi að veita almenningi „alla myndina.“ n jonbjarki@dv.is Jóhann Páll Jóhannsson johannp@dv.is „Eins og við vitum þá eru ríkisstarfs- menn æviráðnir. Fór með rangt mál Vigdís sagði sitthvað í vik- unni sem ekki stenst skoðun. MynD SiGtRyGGuR ARi Aðstoðar ráðherrann Jón Steinar hefur undanfarið veitt Hönnu Birnu lögfræðilega ráðgjöf vegna Lekamálsins. Hann vill ekki tjá sig um málið við DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.