Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 20
20 Fréttir Helgarblað 15.–18. ágúst 2014
Átakanlegar sögur Á bak við marga hlaupara
n Hlaupa fyrir góðan málstað í Reykjavíkurmaraþoni n 30 milljónir hafa safnast
Fjölmargir hlauparar munu láta gott af sér leiða með þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu sem fer fram þann 23. ágúst næstkomandi. Nú
þegar hafa safnast um þrjátíu milljónir króna til styrktar hinum ýmsu góðgerðafélögum og styrktarsjóðum. Margir hlauparanna hafa
sjálfir notið stuðnings af félögunum, eða þekkja til einhvers sem hefur gert það. Vinir, foreldrar, börn, systkini og aðrir ættingjar vilja
láta gott af sér leiða í nafni þeirra sem þeim þykir vænt um, eða aðstoða beint í gegnum styrktarsjóði. DV fékk sögur á bak við nokkra
hlaupara sem segja frá því hvers vegna þeir ákváðu að styrkja þessi ákveðnu félög. solrun@dv.is
Dóttirin vó 650
grömm við fæðingu
Jessica hleypur fyrir Hringinn og nýtir reynsluna til góðs
„Við dvöldum samtals 99 daga
á vökudeildinni,“ segir Jessica
Leigh Andrésdóttir sem eign-
aðist dótturina Elísabetu Önnu
þann 6. janúar síðastliðinn eft-
ir aðeins 25 vikna meðgöngu.
Elísabet Anna vó aðeins 650
grömm og var 32 sentimetrar,
eða 2,8 merkur þegar hún
fæddist. „Við gátum haldið á
henni í öðrum lófanum, hún var
svo lítil.“ Litla stúlkan hefur þó
spjarað sig ótrúlega vel og þurfti
aldrei að fara í öndunarvél, sem
er sjaldgæft með börn af þessari
stærð.
„Okkur var sagt í byrjun að
búast við tveimur skrefum áfram
og einu til baka, og það er svo-
lítið innprentað í fyrirburafor-
eldra. Við vorum því alltaf að
bíða eftir þessu skrefi til baka. En
hjá okkur hefur þetta gengið al-
veg ofboðslega vel.“ Jessica segir
í raun ekkert stórvægilegt hafa
komið upp á síðan dóttir hennar
fæddist. „Jú, hún lenti einu sinni
í öndunarstoppi hérna heima og
maðurinn minn þurfti að blása
og hnoða í hana lífi. Og við fór-
um með sjúkrabíl upp á spítala
þar sem við dvöldum í viku. Það
er í raun eina bakslagið sem hef-
ur komið.“
Öll tækin merkt sem gjafir
Jessica segist ekki eiga nógu
stór orð til að lýsa þakklætinu
til vökudeildar Barnaspítala
Hringsins. „Ef það væri ekki fyr-
ir Hringinn og vökudeildina þá
væri þetta ekki hægt. Öll tækin
sem hún þurfti á að halda fyrstu
dagana, um sjö tæki, plús hita-
kassinn, kosta á annað hundrað
milljónir. Og hvert einasta tæki
er merkt: gjöf frá Hringum.“
Eftir að hafa dvalið með
dóttur sína á vökudeildinni var
Jessica strax staðráðin í því að
gefa eitthvað til baka. Hún er
sannfærð um að það sé tilgangur
með þessum raunum og vill nýta
sína reynslu til góðs. Þannig fór
hún að hugsa eftir að hafa glímt
við ófrjósemi í nokkurn tíma.
Þetta er hennar tilgangur
„Ég tók þá ákvörðun að nýta
mína reynslu til góðs og hef ver-
ið mjög opin með það. Ég hugs-
aði það sama þegar ég eignaðist
fyrirbura, að ég ætti greinilega
bara að vekja athygli á þessu
líka. Kannski er það tilgangur-
inn,“ segir Jessica sem ætlar að
hlaupa þrjá kílómetra í Reykja-
víkurmaraþoninu til styrktar
Hringnum. Hún segist ekki hafa
sett sér neitt markmið í tengsl-
um við áheitasöfnunina því hún
hafði í raun engar væntingar.
Söfnunin hefur því farið fram úr
hennar björtustu vonum. „Þetta
sýnir hvað margir vilja gefa af
sér og svo eru margir sem hafa
reynslu af vökudeildinni,“ seg-
ir Jessica. En allt að 20 prósent
fæddra barna á Íslandi þurfa að
dvelja á vökudeildinni í lengri
eða skemmri tíma, og er þar
pláss fyrir 22 börn í einu.
Missti dóttur úr hjartagalla
Sandra hleypur fyrir Neistann í minningu litlu hetjunnar sinnar
„Ég viljað geta hlaupið fyrir tvö
eða þrjú félög. Neistann, Leiðar-
ljós og Umhyggju, því þetta eru
allt okkar hagsmunafélög. En
Neistinn er sérstaklega fyrir
hjartveiku börnin og það stendur
okkur eðlilega næst,“ segir Sandra
Valsdóttir sem hleypur tíu kíló-
metra í Reykjavíkurmaraþoninu
í minningu dóttur sinnar, Bryn-
dísar Huldu Garðarsdóttur, og til
styrktar Neistanum, styrktarfélagi
hjartveikra barna. Bryndís Hulda
lést þann 22. janúar á þessu ári,
aðeins fjórtán mánaða gömul.
„Þótt maður sé ekki í besta
hlaupaforminu eftir að hafa setið
heima eða uppi á spítala með
veikt barn, þá næ ég allavega að
gefa eitthvað af mér.“
Var með hálft hjarta
Þegar Bryndís Hulda kom í heim-
inn voru foreldrar hennar undir
það búnir að hún væri hjartveik.
„Við fengum greiningu á 20. viku
meðgöngu. Þá kom í ljós hjarta-
galli og við vissum að hún þyrfti
að fara strax til Svíþjóðar í aðgerð.
Þetta áttu að vera þrjár aðgerðir
í allt, á tveimur til þremur árum.
En eftir að hún fæddist kom í ljós
að gallinn var meiri en talið var,
og í rauninni var hún bara með
hálft hjarta.“
Læknarnir voru þó vongóð-
ir um að ferlið myndi ganga vel,
sem það gerði, allt þar til síð-
asta haust. Þá þurfti Bryndís
litla að fara í þriðja skipti til
Svíþjóðar, í aukaaðgerð. Þar fór
hún í hjartastopp og fjölskyldan
dvaldi úti í þrjá mánuði á meðan
hún jafnaði sig. Þann 20. janú-
ar var fjölskyldan svo send heim
til Íslands, en Bryndís lést aðeins
tveimur dögum síðar eftir að hafa
fengið hjartastopp í annað sinn.
„Þá var ekkert hægt að gera,“ út-
skýrir Sandra. „Ástandið var mjög
tvísýnt þegar við fórum heim, en
þeir bjuggust ekki við því að hún
myndi deyja svona snögglega.
Það bjóst enginn við því.“
Orðlaus yfir stuðningnum
„Við fengum rosalega mikinn
stuðning í gegnum Neistann,“
segir Sandra þakklát. Neistinn
heldur meðal annars úti heima-
síðu, Hjartagáttinni, þar sem for-
eldrar hjartveikra barna geta sótt
sér ýmsar nauðsynlegar upplýs-
ingar. En Sandra og fjölskylda
nýttu sér síðuna mikið. Þá veit-
ir félagið fjárhagsstyrki til fjöl-
skyldna sem þurfa að fara með
börn í aðgerðir erlendis. „Það er
mjög gott starf unnið þarna og
maður kynnist fólki í svipuðum
aðstæðum. Okkur var líka komið í
samband við fjölskyldu sem hafði
reynslu af því að fara út í aðgerð.“
Sandra segist hafa komist að því,
eftir að hún eignaðist Bryndísi
Huldu, að mun fleiri börn grein-
ast með hjartagalla en hún hélt.
En árlega fæðast um 70 börn á
Íslandi með hjartagalla, eða um
það bil 1,7 prósent lifandi fæddra
barna hér á landi. Tilfellin eru
misalvarleg, en um helmingur
þessara barna þarf að gangast
undir aðgerð og sum oftar en einu
sinni. Starf Neistans er því mikil-
vægt og snertir marga.
Sandra lagði upp með að safna
100 þúsund krónum og hefur nú
þegar náð því markmiði og gott
betur. „Ég er eiginlega bara orð-
laus yfir þessu. Hvað margir vilja
hjálpa til við að ná markmiðinu
og styrkja Neistann,“ segir Sandra
að lokum.
Lítil hetja Bryndís
Helga lést í janúar á
þessu ári. Hún fæddist
með hjartagalla og fór
þrisvar til Svíþjóðar í
hjartaaðgerð.
Hleypur fyrir Hringinn
Elísabet Anna, dóttir
Jessicu, fæddist eftir
aðeins 25 vikna meðgöngu
og dvaldi á vökudeild
Barnaspítala Hringsins í
99 daga.